Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.1995, Blaðsíða 8
J
. sælkerínn
Humarhúsið:
LAUGARDAGUR 4. NÓVEMBER 1995
Vinsælasti
humarrátturinn
Einn af okkar alvinsælustu hum-
arréttum er smjörsteiktir humar-
halar í kryddjurtaraspi með mildri
sinnepssósu og saffranhrígrjónum,"
sagði Tyrfingur Tyrfingsson, mat-
reiðslumaður hjá Humarhúsinu, í
samtali við DV.
Humar er alltaf vinsæll veislu-
matur en hann er því miður dýr í
verslunum og því ekki keyptur
nema eitthvað sérstakt standi til. En
það er alltaf gaman að bjóða gestum
upp á humar og margvislega
skemmtilega rétti hægt að gera úr
honum.
Þeir sem heldur vilja fara út að
borða geta keypt þennan rétt hjá
Humarhúsinu og kostar hann 2.390
krónur. En þá kemur uppskriftin
fyrir þá sem vilja spreyta sig heima.
Humar fyrir 2
400 g pillaður og garndreginn
humar
(geymið skeljamar i súpu)
matarolía og hvítlaukssmjör
til steikingar
Þerrið humarinn vel og veltið upp
úr heimalöguðum brauðraspi sem
gerður er þannig: góður heimalag-
aður brauðraspur er mulinn fint í
matvinnsluvél með timian og hvít-
lauksdufti eftir smekk.
Olían er hituð á pönnu og hum-
arinn steiktur í 2-3 mínútur en
þá er hvítlaukssmjöri bætt á
pönnuna og humrinum
velt í því.
Sósa
3 msk. dijon sinnep
2 msk. franskt
sætt sinnep
1 dl rjómi
1/2 dl fisksoð
1/2 dl hvítvín
1 tsk. ferskt
estragon
salt og pipar eftir
smekk
Öllu blandað
saman og soðið í
um 3 mínútur.
Með þessu eru
borin fram saffran-
hrísgrjón en þá eru
grjónin soðin eftir
leiðbeiningum og
saffrani bætt út í.
Sósan er sett á
diska, humarinn ofan á
matgæðingur vikunnar
Nautakjöt á
wok
Það er fljótlegt og ein-
falt að búa til kínverska
máltíð. Best er að nota
wokpönnu en ef hún er
ekki til á heimilinu má
nota venjulega steik-
arpönnu. Réttur þessi
miðast við fjórar mann-
eskjur. Það sem þarf í
réttinn er eftirfarandi:
4-500 g þunnt skornar
skífur af meyru nauta-
kjöti, t.d. innra læri
2 rif grófhakkaður
hvítlaukur
nokkrir perlulaukar
2 gulrætur
1 rauð paprika
nokkrar sykurbaunir
1 dl portvín
1 bráöinn kjötkraft-
teningur
pipar
salt
olfa
Nautakjötið er skorið í
þunna strimla. Olian
hituð á wokpönnu eða
venjulegri steikar-
pönnu. Kjötið og hvít-
laukurinn steikt saman.
Skolið og hreinsið
grænmetið, skerið papr-
ikuna í strimla og gul-
ræturnar í sneiðar og
svitið hratt saman með
kjötkraftinum í heitri
olíu og setjið baunimar
út í. Þá er perlulaukur-
inn settur á pönnuna,
Kjötið og portvíni hrært
saman við. Bragðbætið
með salti og pipar og
hitið vel upp.
Rétturinn er borinn
fram með laussoðnum
hrísgrjónum og salati.
Sjávarréttir og kjöthleifur
„Ég hef gaman af að elda mat sem
er auðveldur og hef valið einfaldar
uppskriftir sem gott er að eiga ef lít-
ill tími gefst til matarstúss," sagði
Guðrún Jakobsdóttir, skrifstofu-
stjóri og matgæðingur vikunnar. „Ég
á tvo stráka, sem
era 5 og 7 ára, og
þeim finnst þetta
góður matur.“
Guðrún ætlar að
bjóða upp á fiskrétt
sem hún nefnir
Ægisrétt, auðveld-
an kjöthleif og loks
vinsælar súkku-
laðibitakökur.
Ægisréttur
1 stórt ýsuflak
aromat
50 g smjörlíki
1 stór laukur
1-2 rauð epli
1-3 tsk. karrí
1-2 bollar rækjur
1-2 bollar rifinn
ostur
Smjörlíki, karrí,
saxaður laukur, rif-
in epli með hýði
sett á pönnu og lát-
ið krauma í 5 min-
útur. Fiskurinn er
skorinn í hæfilega
bita, aromati stráð
yfir og settur síðan
yfir eplin og lauk-
inn á pönnunni, þá er rækjunum
stráð yflr og loks ostinum. Ef menn
vilja meira karríbragð má auka það.
Lok sett á pönnuna og látið
krauma við miðstraum í 10 mínútur.
Borið fram með soðnum kartöflum
eða hrísgrjónum og salati.
Auðveldur kjöthleifur
700 g nautahakk
1—2 egg
1 dós tómatssósa frá Hunts
1/2 bolli mulið saltkex
(u.þ.b. 7 kökur)
1 lítill laukur
2 msk. græn paprika
1 tsk. salt
1/4 tsk. pipar
Guðrún Jakobsdóttir gefur uppskrift að auðveldum súkkulaðjbitakökum.
DV-mynd
1 tsk. timian
1 tsk. oregano
1 tsk. marjoram
Fyrst er öllu blandað saman í skál
nema hakkinu en því er síðan bætt
út í. Búið til hleif og setjið í eldfast
smurt mót og bakað viö 175 gráöur í
eina klukkustund. Með þessu má
hafa kalda grillsósu eða tómatsósu
fyrir börnin eða búa til ítalska tóm-
atsósu.
Með þessu höfum við pastaslaufur
eða skrúfur sem kryddaðar hafa ver-
ið með smjöri og pastakryddi.
Mig langar að gefa uppskrift að
súkkulaðikökum í staðinn fyrir eftir-
rétt vegna þess að það er mjög fljót-
legt að búa þær til og börnin eru
sólgin í þær.
Súkkulaði-
bitakökur
125 g smjörlíki
1/2 bolli strá-
sykur
1/4 bolli púður-
sykur
1 egg
1 tsk. vanillu-
dropar
1 bolli hveiti
3/4 tsk. salt
1/2 tsk. matar-
sódi
100 g
suðusúkkulaði
1/2 bolli
hnetuflögur
(kókosmjöl
eða möndluflög-
ur eftir því sem
til er. Má sleppa)
Smjörlíki, sykur,
egg og vanillu-
dropar er hrært
saman. Þurrefnin
eru sigtuð og
hrærð saman
við.
Súkkulaðið er
brytjað og sett út
í ásamt hnetuflögunum. Kökurnar
eru settar á bökunarpappír á plötu
(16 kökur á plötu) og bakað við 175
gráðu í 6—8 mínútur.
Kökurnar þarf að taka strax af
plötunni og setja á grind til að kæla
þær.
Guðrún ætlar að skora á vinkonu
sína, Margréti Lilju Einarsdóttur
sjúkraliða, að vera næsti matgæðing-
ur. „Hún lumar alltaf á ljúffengum
réttum.“
og borið fram með-
grjónunum og
hvítlauksbrauði.
Tyrfingur og þjón-
amir á Humar-
húsinu mæla með
áströlsku
hvítvíni,
Chardonnay
Bin 65,
Lind-
ermans
en það
er ilm-
ríkt,
með
fremur
mikilli
fyllingu
og góð-
um
ávaxtakeim.
Flaskan af því
kostar 1.050
krónur í áfeng-
isverslunum.
Tyrfingur
Tyrfingsson
með humar-
réttinn góða.
DV-mynd GVA
Kirsuber hafa lengi verið
vinsæl í eftirrétti enda passa
þau með ýmsu. Nú orðið er oft
hægt að fá fersk kirsuber í
verslunum hér. Fyrst er vitaö
um kirsuberjatré í Egyptalandi
700 árum fyrir Krist en þau
vora alþekkt hjá Rómverjum í
kringum árið 70. Vinsældir
ávaxtarins breiddust út til Evr-
ópu á miðöldum og sagt er að
Georg V. af Frakklandi hafi
plantað yfir eitt þúsund kirsu-
berjartrjám í hallargarði sín-
um. Kirsuber vora helst notuð
í ferska eftirrétti en einnig var
talið að þau hefðu lækninga-
mátt.
V 1
I þremur litum
Kirsuber eru í þremur litum,
gulum, vínrauðum og svörtum.
Þau svörtu vaxa í Bandaríkjun-
um og Kanada. Mest kemur af
kirsuberjum frá Frakklandi,
Ítalíu, Spáni og Ameríku. Þegar
kirsuber eru keypt eiga þau
ekki hvorki að vera of hörð né
of lin og passa verður að litur-
inn á þeim sé fallegur. Hægt er
að geyma ný kirsuber i ísskáp í
tvær vikur en við stofuhita
geymast þau í viku til tíu daga.
Þess má geta að kirsuberjavið-
ur er mikill tískuviöur um
þessar mundir og mikið notað-
ur i innréttingar.
Vítamúirík
Kirsuber eru full af C-
vítamíni. Þau hafa einnig smá-
vegis af B-vítamíni og kalki.
Kirsuber má nota í hina ýmsu
rétti og sem skraut í drykki og
á tertur. Krökkum finnast þau
sæt og safarík og þess vegna
eru þau kjörið snakk á milli
mála. Einnig er gott að setja
nokkur ber í matvinnsluvél og
setja maukið í mjólkurhristing.
Kirsuber eru einnig Ijúffeng
með ostum, eins og t.d. brie og
camembert.
Mýkra kjöt
Ef þú hefur ástæðu til að
halda að kjöt, sem þú hefur
keypt, sé seigt er ráð að setja
ofan á það kiwisneiðar eða
papayasneiðar og láta ávextina
liggja yfir nótt. Áður en kjötið
er eldað era ávextimir fiar-
lægðir og kjötið matreitt á
venjulegan hátt.