Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.1995, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.1995, Blaðsíða 20
20 fréttir LAUGARDAGUR 4. NÓVEMBER 1995 I J V Landflótta útlendingar fá sjaldan eða aldrei pólitískt hæli á íslandi: Fá frekar landvist af mannuðarástæðum - segir Jóhann Jóhannsson, yfirmaður Útlendingaeftirlitsins Pólitískir flóttamenn eru sjaldséö- ir á íslandi enda sækja aöeins einn til tveir útlendingar um pólitískt hæli hér á hveiju ári. Rúmlega 200 flóttamenn hafa þó fengið landvist- arleyfi hér gegnum árin, langflestir gegnum kvótastefnu stjórrvalda. Jóhann Jóhannsson, yfirmaður Útlendingaeftirlitsins, segir að um- sóknir flóttamanna séu metnar á einstaklingsgrundvelli enda hafi aö- eins örfáum einstaklingum verið visað frá landinu á ári. Flóttamenn séu ekki reknir burt umsvifalaust heldur geti þeir sótt um landvistar- leyfi af mannúðarástæðum þó þeir fái ekki pólitískt hæli í landinu. „Langflestir hafa fengiö hér dval- ar- og atvinnuleyfi af mannúðará- stæðum, öðlast lögheimili og eru þá komnir með allan sama rétt og póli- tískir flóttamenn. Nokkrir flótta- menn, sem hafa átt umsóknir um flóttamannahæli annars staðar, til dæmis annars staðar á Norðurlönd- um, hafa verið stöðvaðir á flugvell- inum og þeim snúið aftur til þess lands. Engum hefur verið snúið aft- ur til heimalands síns en við hljót- um að treysta því að yfirvöld ná- grannalanda vinni samviskusam- lega í málefnum þessa fólks,“ segir Jóhann. Ekki svart og hvítt Islendingar byggja reglur sínar um móttöku flóttamanna á Flótta- mannasamningi Sameinuðu þjóð- anna. Samkvæmt honum ber flótta- mönnum til dæmis að sækja um pólitískt hæli í fyrsta landi sem þeir koma til eftir að hafa yfirgefið heimaland sitt. Á grundvelli þessar- ar reglu hafa íslensk stjómvöld, eins og gerist einnig í nágranna- löndmn okkar, sent flóttamenn til baka. „Þetta fólk kemur yfirleitt alltaf frá Vestur-Evrópulöndum þvi að við erum ekki í beinum samgöngum við þau lönd þaðan sem flóttamennimir koma. Það eitt að sækja um hæli og falla ekki undir fyrsta lands regluna og kannski aðrar reglur gerir ekki endilega að verkum að viðkomandi sé sendur til baka. Langalgengasta afgreiðslan í svona málum er að menn fái dvalarleyfi hér af mannúð- arástæðum," segir Jóhann. „Það má ekki stilla þessu upp eins og það sé bara annað hvort flóttamannahæli eða heim í hörm- ungamar. Fólk verður að átta sig á að þetta er ekki bara í svörtu og hvítu,“ segir hann. RKÍ sár um flóttamennina Rauði kross íslands, RKÍ, hefur séð um landflótta einstaklinga sem hafa sótt um pólitískt hæli hér á landi. Hólmfríður Gísladóttir, starfs- maður RKÍ, segir að venjan sé sú að Útlendingaeftirlitið hafi haft sam- band við Rauða krossinn þegar póli- tískir flóttamenn sækja um hæli. Rauði krossinn virki sem stuðnings- aðili fyrir þetta fólk, komi þvl í fæði og húsnæði og sjái því fyrir vasa- peningum. Kostnaður RKÍ nemi hundmðum þúsunda á ári. Útlend- ingaeftirlitið ræðir svo við fólkið en sjaldan em sendar fyrirspumir til útlanda. „Útlendingaeftirlitið hefur beint því til RKÍ að sjá um flóttamenn og hefur Rauði krossinn sinnt því án þess að fá til þess sérstaka fjárveit- ingu. Kostnaðurinn er verulegur og mér finnst ýmsar leiðir koma til greina, til dæmis að Flóttamanna- ráð semji við RKÍ gegn því að kostn- aður verði greiddur. Einnig kemur til greina að flóttamönnum verði sinnt beint gegnum Flóttamannaráð eða með því að semja við sveitarfé- lögin,“ segir Bragi Guðbrandsson, Fréttaljós á laugardegi Guðrún Helga Sigurðaidóttír formaður Flóttamannaráðs, en á mánudag fjallar Flóttamannaráð um þaö hvemig þessum málum verður hagað í framtíðinni. Hólmfríður tekur í sama streng og yfirmaður Útlendingaeftirlitsins og segir að flóttamönnum sé yfirleitt ekki vísað burt heldur sé þeim frek- ar veitt landvistarleyfi. Hún segist aðeins muna eftir einum flótta- manni sem var vísað frá landinu. Hann hafi ferðast á vegabréfi kunn- ingja síns, sagst vera frá Líberíu en verið frá Ghana og átt umsókn um pólitískt hæli í umfjöllun í Svíþjóð. Honum hafi því verið visað þangað. Bosníumenn fari til ísafjarðar? íslensk stjómvöld hafa tekið á móti flóttamönnum gegnum kvóta frá árinu 1956, til dæmis Ungverjum og Víetnömum, en ekki hefur nein- um flóttamönnum, sem hafa komið hingað til lands af sjálfsdáðum til að sækja um pólitískt hæli, verið veitt það. Ríkisstjómin hefur nú ákveðið að taka á móti 25 flóttamönnum frá Bosníu, blönduðum hópi særðra og ósærðra eða „blönduðum ávöxhnn“ eins og Bragi Guðbrandsson orðaði það. Stefnt er að því að fólkið komi til landsins upp úr áramótum og hefúr ísafjarðarkaupstaður lýst yfir vilja til að taka á móti því. Formaður Flótta- mannaráðs skilar skýrslu til félags- málaráðherra um þetta á næstunni. „Ég sit bara hér og bíð eftir niðurstöðu ís- lenskra stjómvalda. Ég fer í gönguferðir fjórum til fimm sinnum á dag og er búinn að þræða all- ar götur í miðborg Reykjavíkur. Ég er peninga- laus og vegabréfslaus og get því ekkert gert eða farið. Þegar ég hef fengið íslenskt vegabréf get ég kannski farið í stutta heimsókn til Lundúna til að hitta fjölskyldu mína sem ég hef ekki séð lengi en mestu máli skiptir að fá pólitískt hæli hér,“ segir Mehmet Kayas, 45 ára tyrkneskur Kúrdi, sem sótt hefur um hæli sem pólitískur flóttamaður á íslandi. Mehmet Kayas er fæddur í borginni Gazian- tep í Kúrdistan í suðurhluta Tyrklands. Móðir hans var gyðingur og faðir hans var Kúrdi. Mehmet var félagi í frjálslyndum lýðræðis- flokki, starfaði sem bílstjóri í frelsisher Kúrda í Kúrdistan i 20 ár. Hann segist hafa verið fang- elsaður alsaklaus í Tyrklandi fyrir hryðjuverk og verið vísað úr landi árið 1978. Hann fór þá til Þýskalands en var vísað þaðan árið 1980. Hann var pólitískur fangi í Ankara í tæp fjögur ár. Mehmet Kayas, 46 ára Kúrdi, sækir um pólitískt hæli: Sit bara og bíð eftir stjórnvöldum Börn myrt daglega „Ég tilheyrði lýðræðisflokki sem aldrei framdi nein hermdarverk þó að Tyrkir héldu fram að allir Kúrdar gerðu það. Tyrkir hafa lagt í rúst 3.000 þorp í Kúrdistan að meðtöldum sjúkrahúsum og skólum. Þeir myrða daglega 30-50 manns að konum og börnum meðtöldum en þessi ofbeldisverk fá enga umfjöllun í fjöl- miðlum vegna umræðu um stríðið í Bosníu," segir hann. Mehmet Kayas sneri aftur til Þýskalands árið 1989 og fékk þá pólitískt hæli. Haustið 1990 var ráðist á fyrrverandi eiginkonu hans á götu í Þýskalandi. Hann kærði konuna til lögreglunn- ar fyrir að leyfa sér ekki að hitta bömin og var sendur aftur til Tyrklands. Þar var hann svipt- ur vegabréfi en komst loksins til Hollands fyrra og þaðan til íslands um miðjan júní á þessu ári. Með falsað vegabréf Mehmet segist hafa skoðað landakort og kynnt sér stöðu mála í ýmsum lýðræðisríkjum. Hann ákvað að koma til íslands og sækja hér um pólitískt hæli því ísland væri lítið og einangrað lýðræðisríki sem gott væri að búa í. Hann kom frá Hollandi til ís- lands um miðjan júní. Stuttu eftir komima uppgötvaðist að hann hafði falskt vegabréf svo að lög- reglan tók það og hringdi í lög- mann. Mehmet hefur verið undir verndarvæng Rauða kross íslands frá því hann kom til landsins. Mehmet hefur sótt um póli- tískt hæli á íslandi. Útlendinga- eftirlitið hefur hafnað umsókn hans og því hef- ur hann áfrýjað til dómsmálaráðherra. Ólafur Walter Stefánsson, skrifstofústjóri í dómsmála- ráðuneytinu, segir að verið sé að vinna i mál- inu en vill ekki segja hvort niðurstaða fáist fljótlega. ____ -GHS Heimaslóðir Mehmets Kayas í Kúrdistan TYRKLAND RÚSSLAND Ankara Gaziantep /v yv Dyarbakr C / 9 Halep (Aleppo) SÝRLAND 200 km Mosul ÍRAK tP L ÍRAN Mehmet Kayas er 46 ára Kúrdi sem hefur búið í Tyrklandi og Þýskalandi. Hann hefur nú sótt um hæli á íslandi sem pólitískur flóttamaður og bíð- ur eftir að dómsmálaráðherra afgreiði umsókn hans. DV-mynd ÞÖK
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.