Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.1995, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.1995, Blaðsíða 18
18 Sumir dagar eru eins konar efnis- yfirlit lífs okkar. Snertifletir dagsins verða til þess að minna á einstaka áfanga lífshlaupsins og jafnframt gefst kostur á að bregða sér í mörg þeirra ólíku hlutverka sem manni hefur verið falið að gegna á líðandi stund. Þetta átti vel við um sl. mánudag. Bæði fyrsta verkefni dagsins og hið síðasta tengdust fjölmiðlun og var svo sem vel við hæfi þar sem ég hafði varið um helmingi starfsævi minnar á þeim vettvangi, tíu árum sem fréttamaður hjá Sjónvarpinu og fimm árum sem ritstjóri Vísis. í þessu tilviki var ég þó í hlutverki þess. sem svarar en ekki hins sem spyr eins og á árum áður. Klukkan átta að morgni var ég mættur uppi í Mjódd þar sem út- varpsstöðin FM 957 er til húsa. Þar hitti ég Axel Axelsson, umsjónar- mann morgunútvarpsins, sem ræddi við mig um jólabækur Vöku- Helgafells. Annar útvarpsmaður tók mig tali á tólfta tímanum um kvöldið er leið- ir okkar lágu saman í húsakynnum Bylgjunnar og Stöðvar tvö. Sá var Þorgeir Ástvaldsson sem ræddi við mig sem formann Félags íslenskra bókaútgefenda um stöðu bókarinnar i upphafi jólavertíðar. Báðir útvarpsmennimir luku við- tölunum með því að spyrja hvað væri nýtt að frétta af viðbrögðum okkar hjá Vöku-Helgafelli varðandi nýútkomna franska skáldsögu sem sögð var fialla um keimlíkt efni og íslandsklukka Halldórs Laxness. Um þetta hafði verið fiallað í út- varpi og sjónvarpi daginn áður og ég þá setið fyrir svörum. Full ástæða er til að vera á varð- bergi þegar grunur leikur á að veg- ið sé að höfundarheiðri nóbelskálds okkar, Halldórs Laxness. En það gildir jafnt í þessu máli sem öðrum að rasa ekki um ráð fram. í hlutverk ræðu mannsins Eftir að ég kom í vinnuna kl. 9 þennan morgun hafði ég aðeins hálf- tíma til þess að sinna Tnálefnum Vöku-Helgafells. Ég náði að hringja nokkur símtöl og líta yfir tillögur að nokkram blaða- og tímaritaauglýs- ingum um helstu jólabækur okkar. Að því loknu kölluðu aðrar skyld- ur. Ég brá mér í hlutverk aðalræðis- manns Hollands á íslandi sem ég hef sig „svart-hvíta gengið"! Þar hafði ég verið beðinn um að vera veislu- stjóri og fallist á það. Klukkan að ganga fimm brá ég mér ásamt góðvini mínum, Ólafi Jó- hanni Ólafssyni, á fund í húsakynn- um íslensku óperunnar vegna leik- rits sem hann hefur skrifað og hug- myndin er að setja upp þar að ári. Á sjötta tímanum var ég enn kom- inn í vinnuna, náði að senda nokk- ur símbréf til útlanda, þar á meðal vegna spennandi samninga sem standa yfir um gerð norrænnar kvikmyndar eftir skáldsögu Hall- dórs Laxness, Sjálfstæðu fólki, og virtist mér það mál vera að komast í höfn. Ólafur Ragnarsson bókaútgefandi sat við símann og tók við fjárframlögum í söfnunina Samhugur í verki. ' DV-mynd ÞÖK f Dagur í lífi Ólafs Ragnarssonar, forstjóra Vöku-Helgafells: í mörgum hlutverkum gegnt í nokkur ár. í því felst m.a. margvísleg aðstoð við hollenska aö- ila sem hingað þurfa að leita eða koma til landsins og einnig að vera fulltrúi hollenskra stjómvalda hér á landi í ýmsum erindagjörðum. Um hálftíuleytið þennan morgun gekk ég á fund Halldórs Ásgríms- sonar utanríkisráðherra til að færa honum bréf starfsbróður hans í Hollandi með samúðarkveðjum hol- lensku ríkisstjórnarinnar til ís- lensku þjóðarinnar vegna náttúru- hamfaranna á Flateyri. Að auki kom ég á framfæri við ráðherra ákveðnu erindi hollenskra stjóm- valda sem sendiherra Hollands á Is- landi, er aðsetur hefur í London, hafði reifað við mig er við hittumst á ráðstefnu ræðismanna Hollands ytra á dögunum. „Svart-hvíta gengið" Ég var kominn á skrifstofuna aft- ur um tíuleytið, náði rétt að fá mér tebolla og heilsa upp á starfsfólkið í kaffistofunni áður en ég settist á fund til að fara yfir stöðu mála varð- andi nýtt sérsmíðað tölvukerfi sem við erum að taka í notkun. Að fundinum loknum um hálftól- fleytið fór ég yfir skilaboð sem borist höfðu meðan á fundinum stóð, náði að afgreiða fáein stutt símtöl og ræddi við nokkra nánustu samstarfsmenn mína um stöðu brýnna viðfangsefna. Þá lá leiðin niður í miðbæ á há- degisfund í fyrsta blandaða Rotary- klúbbnum sem stofnaður hefur ver- ið hér á landi og heitir Reykjavík - Miðborg. Friðrik Sophusson fiár- málaráðherra var gestur fundarins og ræddi við okkur um fiárlagafr- umvarp ríkisstjórnarinnar. Síðdegið leið hratt í vinnunni, á fundum og í spjalli við samstarfs- menn meðal annars fiallað um nýjar útgáfuhugmyndir, stöðu á fram- leiðslu bóka og klúbbefnis hér og er- lendis, atriði tengd rekstri fyrirtæk- isins, verðlagningu, markaðs- og kynningarmál. Einnig um afhend- ingu íslensku baraabókaverðlaun- anna og útgáfufagnað forlagsins. Meðal viðvangsefna símleiðis var fréttaviðtal við Morgunblaðið vegna Laxnessmálsins í Frakklandi og samtal vegna skemmtikvölds sem starfsmenn Sjónvarpsins frá fyrstu 15 árum þess ætla að halda síðar í mánuðinum en þessi Kópur nefnir Sannur samhugur Ég var kominn heim í kvöldmat rétt fyrir sjö en var floginn út aftur rúmlega hálfátta. Ég hafði verið beð- inn að sitja við símann i söfnunarm- iðstöð Samhugar í verki þetta kvöld og var mér einkar ljúft að verða við þeirri bón. Eftir að hafa fengið svolitla leið- sögn um skráningu framlaga í tölvu sat ég við skjáinn og símann frá átta til ellefu ' um kvöldið. Sighvatur Björgvinsson, þingmaður Vestfirð- inga, var sessunautur minn en and- spænis mér svaraði í símann Hall- dór Ásgrímsson utanríkisráðherra sem ég hefði hitt um morguninn. Þannig lágu leiðir okkar saman að nýju í lok dagsins. Síminn er oft kröfuharður og stundum friðarspillir í vinnu og á heimili en hann hefur aldrei veitt mér jafn mikla ánægju og þetta kvöld. Símtölin komu í stríðum straumum hvarvetna af landinu og við höfðum vart undan að skrá framlögin. Gefendur voru á öllum aldri en mest þótti mér til um að skrá framlög þeirra yngstu sem hringdu og gáfu upphæðir sem báru það með sér að þær komu beint úr sparibaukum gefendanna. Á slíkum stundum verða menn djúpt snortnir af þeirri hluttekn- ingu sem landsmenn allir hafa sýnt þeim sem urðu fyrir ástvinamissi og eignatjóni vestra. Ég vona að það verði Flateyringum styrkur að vita af samhug okkar hinna. Það hefur sýnt sig nú eins og fyrr áð þegar á bjátar erum við ein fiölskylda, ís- lendingar. Finnur þú fimm breytingar? 331 Það er allt búið á mllli okkar, Eddi; ég held ég velji hinn ömurlega ein- manaleika frekar Nafn: Heimili: Vinningshafar fyrir þrjú hundruð og þrítugustu getraun reyndust vera: 1. Garðar Magnússon Eyjahrauni 39 815 Þorlákshöfn 2. Kolbrún Ámadóttir Mávabraut 9 d 230 Keflavík Myndirnar tvær virðast við fyrstu sýn eins en þegar betur er að gáð kemur í ljós að á myndinni til hægri hefur fimm atriðum verið breytt. Finnir þú þessi fimm atriði skaltu merkja við þau með krossi á myndinni til hægri og senda okkur hana ásamt nafni þínu og heimilisfangi. Að tveimur vikum liðnum birtum við nöfn sigurvegar- anna. 1. verðlaun: TENSAI ferðaútvarp méð kassettu, að verðmæti kr. 4.990, frá Sjónvarpsmið- stöðinni, Síðumúla 2, Reykjavík. 2. verðlaun: Úrvalsbækur. Bækurnar sem eru i verðlaun heita Líkþrái maðurinn og Athvarf öreigans, úr bókaflokknum Bróöir Cadfael, að verðmæti kr. 1.790. Bækurnar eru gefnar út af Frjálsri fiölmiölun. Vinningamir verða sendir heim. Merkið umslagið með lausninni: Flnnur þú ftmm breytingar? 329 c/o DV, pósthólf 5380 125 Reykjavík
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.