Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.1995, Blaðsíða 16
16
LAUGARDAGUR 4. NÓVEMBER 1995 JLlV
Einn vinsælasti listamaðurinn í dag:
- segir Inga Elín Kristinsdóttir sem rekur verslun með eigin listmuni
„Þetta byrjaði allt þegar ég var
tólf ára. Þá fékk ég aö fara á nám-
skeið hjá Myndlistaskóla Reykjavík-
ur og fannst það alveg frábært. Ég
var síðan mjög ung þegar ég hóf
nám í Myndlista- og handíðaskóla
íslands. Fyrrst lauk ég prófi í kenn-
aradeild en hélt síðan áfram í ker-
amikdeildinni. Það var engin spurn-
ing að listin átti vel við mig,“ segir
Inga Elin Kristinsdóttir myndlista-
maður en verk hennar hafa átt vin-
sældum að fagna meðal þjóðarinnar
og hafa vakið mikla athygli. Kerta-
stjaki, sem Inga Elín hefur hannað,
hefur verið ein vinsælasta gjafavara
á undanförnum mánuðum. Skálar,
jafnt litaðar sem glærar, sjást einnig
orðið víða á heimilum landsmanna
og í fyrirtækjum.
Inga Elín hefur sannarlega fundið
þessa velgengni enda er mikið að
gera hjá henni. Á síðasta ári opnaði
hún verslun eða gallerí á Skóla-
vörðustíg þar sem hún selur einung-
is eigin vörur. „Það var gamall
draumur minn að setja upp verslun
og ákveða allt sjálf en mér finnst
samt erfitt að selja mínar vörur,“
segir hún og brosir. „Það hefur þó
oft verið skemmtijegt að standa í
búðinni og fá viðbrögð viðskipta-
vina,“ segir Inga Elín.
Vaxandi áhugi
á íslenskri list
Svo virðist sem íslendingar séu
sér meira meðvitandi en áður um
það sem íslenskir listamenn eru að
gera og vaxandi áhugi á listmunum
þeirra. Nokkur sölugallerí eru í
Reykjavík en sjaldgæfara er að lista-
menn reki sérstakar verslanir ein-
ungis með sínum vörum. Inga Elín
hefur útbúið í samvinnu við Kassa-
gerð Reykjavíkur sérmerktar um-
búðir fyrir vörur sínar sem þykja
skemmtilegar. „Ég byrjaði á þessu
vegna þess að það var erfitt að
pakka kertastjökunum inn og ákvað
því að láta hanna fyrir mig umbúð-
ir.“
Inga Elín, sem er 38 ára, var
kennari við barna- og grunnskólann
í Mosfellssveit og í Breiðagerðis-
skóla í þrjú ár. Hún er fædd og upp-
alin í Mosfellsbæ. „Afi minn og
amma eru héðan og móðir mín býr
hérna núna og eiginlega öll ættin,“
segir listamaðurinn sem hefur kom-
ið sér fyrir í skemmtilegu lista-
mannahverfi sem risið hefur við
Álafossveg í Mosfellsbæ. í kringum
hana eru margir þekktir listamenn
með vinnustofur sínar, eins og Tolli,
Edda Jónsdóttir, Þóra Sigurþórs-
dóttir, Magnús Kjartansson og
margir fleiri.
„Það er stundum einmanalegt hér
á vinnustofunni og þá kíkir maður í
kafti til hinna — það gera allir hér,“
segir Inga Elín. Fyrir jólin ætla
listamennirnir að taka sig saman og
halda hátíð þar sem ýmsir listmun-
ir verða til sölu. „Við gerðum þetta
í fyrra og það tókst mjög vel.“
Lærði að blása gler
Inga Elín byrjaði snemma að
teikna og mála. Hún segist þó ekki
hafa verið undir áhrifum frá nein-
um þar sem listamenn séu ekki í
kringum hana. „Mamma er þó list-
ræn í höndunum."
Eftir að hafa starfað sem kennari
ákvað Inga Elín að fara til Dan-
merkur í fimm ára nám í glerlist og
keramik. Hún nam við Skolen for
Brugskunst í Kaupmannahöfn á ár-
unum frá 1983-1988. Þar lærði hún
til dæmis að blása gler en fáir gera
það hér á landi. „Mig langaði að
auka víðsýni mína og kynnast nýj-
um hlutum. Ég kom heim aftur árið
1989 og þá byrjaði ég á fullu í þess-
ari vinnu. Þetta var þó erfítt til að
Vinsælasti listmunur Ingu Elínar er
þessi kertastjaki sem unninn er úr
keramiki og gleri og heitir Geysir.
Stolnar hugmyndir
Kertastjakinn Geysir er trúlega
vinsælasti hluturinn sem Inga Elín
hefur gert. Hún segist ekki vita
hversu marga hún hafl búið til en
enginn þeirra er eins. „Þessi kerta-
stjaki hefur verið vinsæll hjá mér
lengi en hann er alltaf að breytast. t
upphafi langaði mig að blanda sam-
an gleri og keramiki þar sem efnin
eru mér bæði kær og síðan þróaðist
vinnan talsvert,“ útskýrir Inga Elín.
Það þykir óvenjulegt að blanda sam-
an gleri og keramiki eins og hún
gerir.
Þegar einum gengur vel reyna
aðrir að stæla hugmyndirnar og fyr-
ir því hefur Inga Elín orðið. „Það
grófasta er kannski engill sem ég
gerði en nánast algjör eftirlíking af
honum er nú fáanleg í Reykjavík,"
segir hún. „Það er erfitt að verjast
slíku en sem betur fer er stór hópur
fólks sem þekkir mín verk og kaup-
ir ekki eftirlíkingar.“
Lampar og lýsing
Það er alltaf eitthvað í þróun hjá
listakonunni þó hún hafi meira en
nóg að gera við að framleiða þá
hluti sem vinsælastir hafa verið hjá
henni. Hún hefur verið að hanna
nýja bolla en nytjalist er henni
hjartfólgin. Inga Elín fær líka pant-
anir og óskir frá fólki á einstökum
hlutum.
Hún segist ætla að halda áfram á
sömu braut, að hanna skemmtilega
hluti, og einnig hefur hún í hyggju
að halda sýningu. „Það er þó ekkert
fastákveðið ennþá," segir hún. „Mig
langar aö vinna meira með lampa
og lýsingu. Listin er mitt aðaláhug-
mál og ég legg mig alla fram í því
sem ég er að gera. Ef maður ætlar
að ná árangri þarf að vinna stöðugt
í þessu. Margir gera sér ekki grein
fyrir hversu langan tima tekur að
gera einn einstakan hlut, það þarf
að renna, brenna, mála og aftur
brenna og líma. Ég þarf stöðugt að
finna nýjar hugmyndir af teikning-
um á hlutina og það getur auðvitað
verið erfitt. Yfirleitt mála ég beint á
og læt hugmyndaflugið ráða,“ segir
Inga Elín Kristinsdóttir en blár litur
er mjög ríkjandi í list hennar.
- ELA
DV-mynd GVA
landi og erlendis. Inga Elín hefur
einnig hlotið viðurkenningar fyrir
störf sín, bæði í Danmörku og Nor-
egi.
„Mér hefur verið sýndur mikill
áhugi og það er ánægjulegt vegna
þess að ég hef unnið mikið í gegnum
árin. Ég fann mikil viðbrögð eftir
sýningarnar og eftir þær fór fólk að
koma til mín. Einnig hef ég selt tölu-
vert í Flugstöð Leifs Eiríkssonar.“
Þegar listakonan var spurð hvað
það væri í hennar list sem gerði það
að verkum að hún væri svo vinsæl
svaraði hún:
„Verður maður ekki bara að vera
heiðarlegur í starfinu og leggja
krafta sína í það.“
Inga Elín Kristinsdóttir er listamaður sem Islendíngar kunna að meta.
byrja með. í fyrstunni leigðum við
tvær saman, ég og Britta, vinnu-
stofu og unnum af mikilli hörku. Ég
hef alltaf unnið í gleri og keramiki
en blæs ekki þar sem ég á ekki
þannig ofn. Vinnan mín hefur auð-
vitaö þróast og breyst mikið á þess-
um árum. Það er líka alltaf eitthvað
að bætast við.“
Einstæð þriggja
barna móðir
Inga Elín segist hafa tekið áhættu
þegar hún ákvað að lifa á listinni en
það hefur tekist framar öllum von-
um. Hún er einstæð móðir þriggja
barna, 5-17 ára, og segir að það
gangi vel að framfleyta fjölskyld-
unni. „Þaö er hins vegar mjög dýrt
að kaupa allt efni til framleiðslunn-
ar,“ segir hún.
Inga Elín hefur ekki auglýst sig
neitt sérstaklega en haldið nokkrar
sýningar sem vakið hafa athygli.
Hún var með sýningu í Epal árið
1989, 1991 í Gallerí List, 1992 í Gall-
erie Oriel í London og á árinu 1993
hélt hún þrjár einkasýningar, hjá
Sævari Karli, Galleríi Allra handa á
Akureyri og Héraðsbókasafninu í
Kjósarsýslu. Árið 1994 hélt hún sýn-
ingu í listmunahúsinu Ófeigi.
Einnig hefur hún tekið þátt í fjöl-
mörgum samsýningum, bæði hér á