Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.1995, Blaðsíða 36
44
LAUGARDAGUR 4. NÓVEMBER 1995 ÐV
Olyginn
sagði...
Mira Sorvinu er stjarnan í nýjustu kvikmynd Woodys Allens:
Afburðanámsmaður en
ákvað að gerast leikari
Unnusta Seinfelds
var ástkona Fabios
aðeins 15 ára
...að lifrarþeginn Larry Hagman
hefði ákveðið að ala önn fyrir
fjölskyldu lifrargjafa sfns sem
er látinn. Hann var fátækur
vörubílstjóri af rómönskum
Mira Sorvino er enn eitt nýstirniö í
Hollywood. Mira hefur nýlokiö við að
leika í kvikmynd Woodys Allens,
Mighty Aphrodite, sem frumsýnd verð-
ur vestra seinna í mánuðinum. Þar fer
hún með hlutverk vændiskonu sem get-
iö hefur sér „gott“ orð í klámmyndum.
Vændiskonan hittir íþróttafréttamann
sem vill leiða hana af villu síns vegar og
í staðinn trúir hún honum fyrir sínum
dýpstu þrám og væntingum I lífinu. Úr
verður það sem menn telja enn eitt
meistaraverkið frá Allen.
Mira er ekki að sjást í fyrsta skipti á
hvíta tjaldinu þótt hlutverk hennar í
Mighty Aphrodite sé fyrsta aðalhlut-
verk hennar í kvikmynd eftir stórleik-
stjóra. Hún lék til dæmis í Barcelon,
kvikmynd eftir Stillman, sem sýnd var í
Regnboganum fyrir nokkru og þá fór
hún með hlutverk eiginkonu gyðingsins
í Quiz Show. Nú blasir hins vegar fram-
tíðin við henni og í bígerð eru þrjár
myndir með henni í einu af aðalhlut-
verkunum.
Mira ólst upp í smábænum Tenafly í
New Jersey. Hún segist snemma hafa
ákveðið að gerast leikari en strax á
barnsaldri var hún farin að leika í leik-
ritum í skólanum og fjölskylduboðum.
Síðan hafi leikurinn orðið aö eins kon-
ar fikn hjá henni.
Mira er afburðanámsmaöur. Hún var
aðeins átján ára gömul þegar hún
skráði sig til náms i Harward háskóla
þar sem hún nam kínversku. Sama ár
hélt hún til Kína í átta mánuði og nam
mandarín-kínversku. Eftir að hún kom
heim fór hún að vinna sem þulur og fór
á námskeið í ljósmyndun. Þá vafðist
nokkuð fyrir henni hvað hún ætlaði sér
í framtíðinni en loks áttaði hún sig á
því að leiklistin var hennar svið.
Jerry Seinfeld, sem áhorfendur
Stöðvar 2 þekkja vel, varð æfur þeg-
ar unnusta hans, hin unga Shos-
hanna Lonstein, kynnti hann fyrir
Fabio sem er tíður gestur á forsíð-
um ástarsagna. Ástæða reiði Jerrys
var sú að Fabio heilsaði Soshönnu
eins og gamalli kærustu. Staðreynd-
in er reyndar sú að Fabio og Shos-
hanna voru saman um sex mánaða ■
Fabio, hinn íturvaxni, átti í ástar-
sambandi við Shoshönnu þegar
hún var aðeins 15 ára.
skeið. Þetta hafði hins vegar alveg
farið fram hjá Jerry og kom flatt
upp á hann þegar þau rákust á
Fabio á einum veitingastaða Los
Angeles.
Vitni að atburðinum segja hann
hafa verið mjög spaugilegan, ekki
aðeins fyrir upplitið á Jerry heldur
líka vegna samanburðarins þegar
Jerry, sem þykir ekki hafa likama
vaxtarræktarmanns, stóð andspæn-
is Fabio hinum íturvaxna. Shos-
hanna og Fabio ræddu víst um liðna
tíma og sameiginlega vini í New
York en Jerry stóð hjá eins og þriðja
hjól undir vagninum. Þegar Shos-
hanna og Jerry settust svo við eigið
borð hundskammaði hann hana í
allra áheym.
í erlendum fjölmiðlum er greint
frá því að Shoshanna, sem nú er tví-
tug, hafi hitt Fabio fyrir fimm árum
á eyju í Karíbahafi þar sem ástir
tókust með þeim. Seinna endurnýj-
uðu þau samband sitt í New York.
Shoshanna tók svo saman við hinn
rúmlega fertuga Jerry en hann vissi
víst aldrei af þessu sambandi unn-
ustu sinnar og Fabios.
Seinfeld og Shoshanna voru hin ánægðustu þegar þau gengu inn á veitinga-
staðinn í Los Angeles. Upplitið á Seinfeld átti þó eftir að breytast.
uppruna.
...að hin roskna fyrirsæta,
Christie Brinkley, hefði boðið
fyrrum eiginmanni sínum og
barnsföður, Ricky Taubman,
tvær milljónir fyrir að fara fjand-
ans til. Hann þáði milljónirnar
tvær og fann fjandann í leikkon-
unni Daryl Hannah. John F.
Kennedy yngri hafði áður sagt
Daryl að fara sömu leið og
Ricky.
...að Heather Locklear, Melrose
Place-stjörnunni, og nýrri
stjörnu í þáttunum, Antonio
Sabato yngri, hefði komið illa
saman. Heather réð ferðinni og
var Antonio höggvinn í spað
eftir aðeins 6 þætti. Var saga
hans í því hlutverki þar með öll.
...að Tatum O’Neal, barnastjarn-
an úr Pappírstungli, hefði
ákveðið að fara í meðferð en
hún hefur átt við fíkniefna-
vandamál að etja. Tatum, sem
nú er þriggja barna móðir og
hefur um tíma neytt kókakíns í
töluverðum mæli, tók þessa
ákvörðun eftir að fyrrverandi
eiginmaður hennar opinberaði
að hann ætti von á barni með