Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.1995, Síða 21
LAUGARDAGUR 4. NÓVEMBER 1995
21
fí fc
Bridgeblaðamannaverðlaunin
1995:
Precisionverð-
launin fyrir bestu
varnarspila-
mennskuna
Félag bridgeblaðamanna veitir
árlega verðlaun fyrir besta ár-
angur á öllum sviðum
bridgespilsins, s.s. í sögnum, úr-
spili eða varnarspilamensku.
Pakistaninn Zia Mahmood
kemur oft til álita þegar verð-
laun þessi ber á góma og þetta
sinn var engin undantekning.
Spilið sem um ræðir kom fyr-
ir á sumarlandsmóti Bandaríkj-
anna 1994 og það var glæsileg
varnarspilamenska Zia, sem var
verðlaunuð.
4 D73
44 G983
♦ 973
4 ÁK9
* AG1064
V K52
* Á106
* 107
4 985
44 74
4 KG54
* D863
N
4 K2
44 ÁD106
♦ D82
* G542
S/Allir
Norður Austur Suður Vestur
1* pass 14 pass
1G pass 24 pass
2» pass 3G pass
pass pass
Zia sat í austur og vestur spil-
aði út tígulþristi. Það var eðlilegt
útspil því tígulsögn norðurs var
kröfusögn sem spurði um hálita-
stöðu suðurs.
■ Við skulum fyrst athuga
hvernig málin þróast með venju-
legri vörn. Suður lætur lítið úr
blindum, austur drepur með
kóngi og spilar meiri tígli. Suður
sér nú að hann getur ekki fengið
níu slagi, nema spaðaliturinn
gefi a.m.k. þrjá. Hann spilar því
spaðakóngi og svínar síðan
spaðatíu. Þar með eru tíu slagir
upplagðir og þannig gerðust
hlutirnir á hinu borðinu hjá
sveitarfélögum Zia.
Zia sá strax að spaðinn lá hag-
stætt fyrir sagnhafa og hann
reyndi því að rugla sagnhafa í
ríminu. Hann setti því tígulgosa
í fyrsta slag, sem gat reyndar
aldrei kostað neitt, hver svo sem
ætti tíguldrottninguna.
Umsjón
Stefán Guðjohnsen
Þegar suður fékk slaginn á
drottninguna var hann sann-
færður um að tígulkóngurinn
væri hjá vestri. Hann gat því
fengið þrjá tígulslagi, í stað
tveggja. Þar með átti hann mögu-
leika á sjö slögum á rauðu litina
og tveir á spaða nægðu í geimið.
Hann tók því þrisvar hjarta og
þegar gosinn kom ekki svínaði
hann tígulíu. Nú drap Zia á tígul-
kónginn og spilaði laufdrottn-
ingu. Spilið var nú tapað.
Það er vert að taka eftir því að
Zia spilaði laufdrottningunni
þótt það skipti ekki máli í þessu
tilfelli. Hefði vestur átt ÁG9 í
laufi var nauðsynlegt að spila
drottningunni en i reyndinni var
grunnur að ósigri sagnhafa lagð-
ur með tígulgosanum í fyrsta
slag.
AÍlll
ES3
lififls
904*1 700
Verö aðeins 39,90 mín.
lj Lottó I
_2j Víkingalottó
3j Getraunir
BESTA VERD í BÆNUM
Fóðraður skyrtujakki
Stærðir: M-L-XL-XXL
Hettu-kuldaúlpa
Tvöfaldir olnbogar
Stærðir: M-L-XL-XXL
LAUGARDAG10-16
SUNNUDAG 12-16
SÍÐUMÚLA 34 (Fellsmúlamegin) • SIMI 588 7332 | OPIÐ: MÁNUD. - FÖSTUD. 9-18 • LAUGARDAG 10-16