Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.1995, Qupperneq 28

Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.1995, Qupperneq 28
uS*f LAUGARDAGUR 4. NÓVEMBER 1995 t IJV LAUGARDAGUR 4. NÓVEMBER 1995 Við erum landflótta r Islendingar - segja Anna Kristín og Heiðar sem gáfust upp a skuldabaslinu heima Heiðar og Anna höfðu ekki efni ið er á leiðinni. á að eignast barn á Islandi. Nú eru þau bæði í vel launaðri vinnu, hafa eignast stórt en ódýrt einbýlishús og fyrsta barn- DV-mynd Pálmi Pálmi Jónasson, DV, Kaupmannahöfn: „Við erum búin að vera hérna í fjóra mánuði en erum strax farin að sjá verulegan árangur. Hér í Hanstholm höfum við getað gert hluti sem við höfðum ekki látið okkur dreyma um heima. Það eitt gerir það að verkum að maður er ekki tilbúinn að fara aftur heim - þegar maður sér loksins að mað- ur getur gert eitthvað virkilegt í líf- inu,“ segir Anna Kristín Davíðsdóttir. Anna Kristín og Heiðar Svanur Óskars- son eru nýflutt til Hanstholm, ríflega 3000 manna fiskibæjar á norðyestur- strönd Jótlands. f þessari litlu íslend- inganýlendu búa 160 íslendingar sem fá ekki undir 1.000 krónum á tímann og flestir hafa keypt sér einbýlishús á um 5 milljónir króna. Allir sem DV ræddi við voru mjög ánægðir með vistina í Hanstholm. Anpa og Heiðar höfðu nýlega keypt sér 3ja herbergja íbúð á ísafirði. Hann vann í frystihús- inu á Hnífsdal, hún var aðstoð- armatráðskona á sjúkrahúsinu. Lífið gekk út á það eitt að vinná upp í skuldir. Það tókst með mikilli yfirvinnu og til- heyrandi aukavinnu á kvöldin. En þau gáfust upp á streðinu og settu Ibúðina í sölu. Um leið og hún seldist var farið til Hanstholm að skoða að- stæður. Þau leggja ríka áherslu á mikilvægi þess að vera vel undirbúin því margir hafa vaðið út í óvissuna. Þegar þau fluttu utan voru þau búin að festa sér hús og vinnu. Launin eru miklu betri og 120 fermetra einbýlishús með 900 fermetra garði og bílskúr kostaði svipað og litla íbúðin á ísafirði, eða 5,6 milljónir. Þau fluttu utan 28. maí í vor, fengu húsið afhent 1. júní og hyrjuðu að vinna viku síðar. „Fólk skildi ekkert í þessari vit- leysu. Við reyndum að segja því að okkur væri gefinn kostur á betra lífi. Það skildi ekki að við neituðum að taka þátt í þessu 20-30 ára streði heima til þess að koma und- ir okkur fótunum - ef það þá tekst. Hér er lífið fram undan, eitthvað annað en bara skuldir." Islendingar einangrast Þótt þetta unga par hefði undirbúið ferð- ina vel þurfti það að byggja upp nýtt heim- ili. Heiðar segir að fyrir utan einn stól sem þau fluttu með sér hafi þau keypt allt inn- bú, nýtt eða notað. Það hafl gengið vel enda sé kaupmátturinn allur annar en heima: „Það er gott að setjast hér að,“ segir Heiðar. „Danimir hafa tekið okkur mjög vel í alla staði. Daginn sem við fluttum inn komu t.d. þrjár nágrannafjölskyldur með blóm og buðu okkur velkomin í hverfíð. Einnig buð- ust okkur afnot af klippum, sláttuvél, bor- vél eða hverju sem okkur vantaði. Hér lána nágrannar hver öðrum og við vorum þegar velkomin inn í það kerfi. Heima líður mán- uður áður en menn þora að heilsa nágrönn- unum. Hér finnst fólki það áreiðanlega und- arlegt að við höfum ekki enn boðið í seinni- partsbjórinn. Það tekur tíma að læra inn á þetta afslappaða andrúmsloft," segja þau. Danskan hefur heldur ekki verið það vandamál sem þau bjuggust við. Þó eru is- lendingar sem hafa búið þarna á annað ár án þess að læra orð í dönsku. „Það er grát- legt að sumir íslendingarnir eru að einangr- ast og umgangast Danina ekkert. Samt er boðið upp á sérstaka dönskukennslu fyrir íslendinga. Ég sæi það nú ekki gert fyrir Pólverjana heima á ísafirði,“ segir Anna Kristín. „Hins vegar er rétt að taka það fram að þótt þetta gangi vel er þetta ekki gull og grænir skógar. Maður fær ekkert rétt upp í hendurnar. En ef menn vilja leggja eitthvað á sig uppskera þeir örugg- lega samkvæmt því,“ segir Heiðar. Þau segja markaðinn fyrir íslenskt vinnuafl í Hanstholm virðast vera að mett- ast. Fyrir ári gátu menn komið tómhentir og gengið strax inn í vinnu. Nú þurfi að hafa meira fyrir hlutunum, hafa trygga at- vinnu og húsnæði. Flýja spillingu og fátækt „Það má kannski segja að við séum land- flótta íslendingar,“ segir Anna. „En við fór- um fyrst og fremst vegna spillingar í verka- lýðshreyfingunni og stjórnmálum. Fólk get- ur ekki treyst því sem við það er sagt og því er lofað. Það er alltaf verið að kippa undan því fótunum. Atvinnuleysið á íslandi er ekki ástæðan því þar fá allir vinnu sem það vilja. Það er bara staðreynd. Maður er dæmdur til að vera fátækur á íslandi," seg- ir Heiðar og þeim er heitt í hamsi þegar rætt er um ástæður landflóttans. „íslenska kerfið er einfaldlega byggt þannig upp að maður er dæmdur til að vera í basli nema ríkir foreldrar geti mokað í mann peningum langt fram eftir aldri. Að eignast íbúð er varla mögulegt. Ef ungt fólk langar til að eignast barn hefur það vart efni á því. Það líður vanalega ekki langur tími þar til vanskilaskuldir hrannast upp af íbúðinni. Við stóðum alltaf í skilum en mik- ið djöfull gat það verið erfitt." í Hanstholm segja þau ástandið allt ann- að. Þar sé hægt að lifa mannsæmandi lífl, orð standi og fjármálin séu í föstum skorð- um. Einnig finnst þeim mikill munur á rekstri fyrirtækjá. í Hanstholm þekkist ekki forstjórajeppar eða fyrirtækjabílar. Eigendurnir vinna á gólfinu í sloppum og sérhæfmg er mikil varðandi hráefni og tæki. „Bruðl og ævintýraleg yfirbygging þekkist ekki hér. Þetta bara virkar.“ Loksins efni á að eignast barn Anna segist stefna á 4-5 ára veru i Dana- veldi. „Draumurinn er að koma utan, koma undir mig fótunum og komast í skóla. Þá get ég farið heim og fengið góða vel launaða vinnu. Ég get bara ekki verið annað en ánægð hér. En ég hugsa að það komi að þeim tímapunkti að mig langi til að fara heim til fjölskyldunnar. Við eigum von á barni og auðvitað langar mig tU þess að barnið geti umgengist sina nánustu." Það var daginn sem þau fóru tU Han- stholm sem þau fréttu að Anna væri barns- hafandi. Þau segja barnið ánægjulegt slys því þau voru búin að reikna það út að þau hefðu ekki efni á barneignum á íslandi. „Börn eru forréttindi á íslandi. Þetta var því ánægjulegt slys þótt það hefði verið betra að hafa aðeins lengri tíma til að vinna sig upp. En við komum til með að ráða við þetta af því að við erum hér.“ íslendinganýlenda Hanstholm er á norðvesturströnd Jót- lands og er stærsta flskihöfn Danmerkur. Ríflega annar hver flskur sem landað er kemur frá útlöndum og höfnin er einnig viðkomustaður fyrir ferjur. Að auki er tölu- verð ferðaþjónusta á svæðinu í tengslum við strandlíf ýmiss konar, náttúrufegurð og fornminjar, auk íþrótta. Staðurinn státar m.a. af því að vera við besta brimbretta- svæði í norðanverðri Evrópu. Hanstholm er ungur bær og fór ekki að byggjast svo nokkru næmi fyrr en höfnin var fullgerð 1967. Nokkur byggð hefur þó alltaf verið á svæðinu og má þar m.a. flnna menjar frá steinöld og víkingatíma. Bæjarstæðið liggur fyrir opnu hafi þar sem Skagerak og Norð- ursjór mætast og svæðið var því hernaðar- lega mikilvægt í síðari heimsstyrjöldinni. Þá reistu þúsundir Þjóðverja þar stærsta virki Norður-Evrópu. Samkvæmt upplýs- ingum hagstofunnar búa 160 íslendingar á svæðinu en í Hanstholm eru einungis um 3.000 íbúar. Aðeins 62 koma frá öðrum stöð- um en íslandi og Danaveldi. Fjölgun íslend- inga hefur verið geysilega mikil og má nefna að fyrir einu og hálfu ári voru Islend- ingarnir 36 talsins. Þeir heimamenn sem rætt var við voru þó ánægðir með veru Is- lendinganna, þeir sinntu sérhæfðum störf- um og tækju því ekki vinnu frá heima- mönnum. Hins vegar eru margir sem blanda alls ekki geði við heimamenn og ein- angrast. Stefna stinnar á Jótland - ekki heim Þessi mikli fjöldi Islendinga hefur orðið til þess að þeir sem lengst hafa verið í bæn- um eru margir hverjir farnir að hugsa sér til hreyfings. Þeir vilja flytja sunnar á Jót- land til þess að komast betur inn í danskt samfélag og jafnvel komast í annað en fisk. - segir Jónas Guðmundsson í Hanstholm um frystihúsum á íslandi gengur illa, ætli það séu ekki háu launin sem eru að drepa þau. Ég vildi óska þess að ísland myndi rísa úr öskustónni en til þess þarf þenkj- andi menn á Alþingi. Landinu er stýrt af landráðamönnum sem vís- vitandi vega að hornsteini þjóðfé- lagsins. Ef þeir gera það ekki vísvit- andi, þá eru þeir bjánar. Menn mega bara ekki gleyma því að það þurfti heljarinnar átak fyrir fólk á sínum tíma að flytja vestur um haf. Það þarf ekki mikil harðindi nú á dögum til að fólk fari, eftir að hafa verið haldið kverkataki árum saman,“ sagði Jónas að lokum. „Menn hljóta að velja sér búsetu eftir afkomu, það gera allar skepn- ur,“ segir Jónas Guðmundsson sem flutti ásamt konu sinni Helenu Sör- ensdóttur og fjölskyldu til Hanst- holm síðasta sumar. Helena og elsti sonurinn vinna í fiski en yngri börn- in tvö eru i skóla. Sjálfur vinnur Jónas í fjögurra manna fiskvinnsluhúsi. Með svolít- illi aukavinnu skilar það honum um og yfir 300 þúsund íslenskum krón- um í mánaðartekjur, eða gott betur en venjulegum fiskvinnslumanni á íslandi. Þau voru bæði í ágætu starfi á Eskifirði og Jónas segir flutning- inn því frekar hafa verið ævintýra- þrá sem varð að veruleika eftir að þau höfðu kynnt sér launamál, verð á húsnæði og þess háttar. Hann segir íslendingana í Han- stholm almennt vera ómenntað verkafólk í kringum fertugt sem hafi ekki séð fram á að komast nokkum tímann út úr skuldafeni og vandræð- um. „Verðlagið og kaupgetan er þannig á íslandi að menn verða að lifa um efni fram, safna skuldum eða stela. Svelt ekki fyrir söknuðinn Hér í Hanstholm er fyrirkomulag- ið allt annað. Hér er greiösluöryggi sem er óþekkt á íslandi og allt fer í gegnum bankann. Þetta er alveg nýtt fyrir íslendinga sem eru að drukkna í gluggapósti upp fyrir augasteina. Hér hefur maður alltaf nóg fyrir öll- um nauðþurftum enda verða menn bara að kyngja því að hér er borgað einstakiega vel fyrir fiskinn." Þrátt fyrir allt viðurkennir Jónas að hann sakni íslands, ræturnar séu jú alltaf til staðar. „En söknuðurinn er ekki svo mikill að maður vilji svelta fyr- ir hann. Ég hef enga löngun til þess að flytja aftur til íslands. Nú hef ég líka efni á að heimsækja vini og vandamenn. Þegar við vorum á Eskifirði hafði ég ekki efni á að fara til Reykjavíkur. Nú get ég farið 1-2 sinnum til íslands ef ég vil. Landráðamenn eða bjánar Ef öll skip íslands, náttúruauðæfi, útflutningsvörur og allt sem landið hefur upp á að bjóða væri til staðar í Árósum held ég að þeir hefðu það djöfulli gott. Þar búa einmitt um 260 þúsund manns. En Danirnir þurfa að byggja allt sitt á hugvitinu. Heima er hugvitið ekki til staðar, því það fer sjálft úr landi. Það er hægt að ná langt á hugvitinu. Mörg- 37 Fólk er að gefast upp og eftir 5-6 ár verður sprenging. Það verður alger landflótti," segir Guðmundur Geir Maríasson. DV-mynd Pálmi Guðmundur Geir Maríasson flúði virðingarleysi og óöryggi: Landflóttinn verður ekki stöðvaður „Það er mín skoðun að það sé of seint að snúa þróuninni við á ís- landi. Skellurinn verður stærri hjá okkur en Færeyingunum sem þó hafa Danina. Fólksflóttinn núna er bara upphafið. Fólk er að gefast upp og eftir 5-6 ár verður sprenging. Það verður alger land- flótti því menn verða að athuga að núna er ekki meira mál að fara á milli landa en var að fara á milli flarða fyrir 15-20 árum,“ segir Guðmundur Geir Maríasson. Guðmundur flutti síðasta sum- ar tU Hanstholm ásamt perúskri eiginkonu sinni, Gladys Marías- son. Þau komu til Hanstholm með sjónvarp og hljómflutningstæki en annað hafa þau keypt nýtt inn í einbýlishús sitt. Gladys bjó með Guðmundi í 5 ár á íslandi en leið alla tíð illa. Nú blómstrar hún í Hanstholm. Þau vinna bæði í fisk- vinnslu og hafa ríflega 1.000 krón- ur íslenskar á tímann. Virðingarleysi og óöryggi „Ástæðan fyrir því að menn eru að flýja land er fyrst og fremst virðingarleysi við almenning. Það er ruddaskapur að bjóða fólki upp . á að vinna fyrir 50-80 þúsund krónur á mánuði þegar aðrir leika sér að því að fá milljón á mánuði. Fólk fær 300 krónur á tímann á meðan stjórnendur sem fara með fjöregg þjóðarinnar skammta sér 10 þúsund krónur á tímann. Svo skilur Páll Pétursson, félagsmála- ráðherrann, ekkert í því að eng- inn vUji vinna fyrir 60 þúsund krónur í frystihúsi og vill banna útlendinga. Hann ætti að prófa að lifa á þessum launum, ráðherrann og stórbóndinn. Og frúin er nú ekki tekjulaus heldur. Skrípaleikur og skuldasöfnun Það fer meiri fiskur um höfnina hérna í Hanstholm en aUur sá fiskur sem kemur að landi heima á íslandi. Fiskurinn kemur alls staðar að. Þeir fara norður í Smugu og keyra fisk hingað frá PóUandi. Síðan er hann unninn hér á helmingi hærra kaupi og keyrður niður til Portúgals og Spánar. Hérna gengur þetta upp. Skrípaleikurinn er slíkur heima að útlendingar mega ekki landa fiski til þess að nýta þessi miUj- arðahús sem hafa verið byggð upp. Á Islandi er það lika þannig að ef einstaklingur verður gjald- þrota er öllu kippt undan honum. En ef útgerðarfyrirtæki úti á landi fer á hausinn þá gerist ekk- ert. Það sjá allir hvert stefnir en fyrst fá þeir stórpeninga úr Byggðasjóði og að lokum er bæjar- félagið látið ganga í ábyrgðir. Loksins er fyrirtækinu lokað með tugmilljarða skuldir á bakinu. Eft- ir sitja eigendurnir i einbýlishús- unum sínum og skammast sín ekki einu sinni. Þetta þarf al- menningur að hlusta á heima og getur ekki gert neitt. Manneskjulegra þjóðfálag Mestur finnst mér samt munur- inn hvað öryggi varðar. Heima er alls ekkert öryggi. Ef fólk lendir í vandræðum, veikindum, skilnaði eða öðru er það gjörsamlega sleg- ið niður. Vinir og vandamenn þurfa að skrifa upp á allan fjand- ann og þvi dragast fleiri niður í faUinu. Um leið og eitthvað kemur fyrir eru tíu lögfræðingar komnir á bakið á þér. Fólk lifir í stöðug- um ótta yfir því að eitthvað gerist. Fyrir hinn almenna borgara er þetta mannvonskuþjóðfélag sem er verið að byggja upp. Ef þú kaupir hús hérna tekur bankinn veð í húsinu. Punktur. Verkalýðs- félögin hjálpa fólki aftur á fæt- urna ef það lendir í veikindum eða öðru. Ef menn eru með papp- írana í lagi eru þeir komnir með fuU réttindi í verkalýðsfélaginu eftir 2-3 mánuði - aðrir þegar þeir eru búnir að borga í eitt ár. Þetta öryggi nær yfir öll svið og því er þetta miklu manneskjulegra þjóð- félag,“ segir Guðmundur Geir Maríasson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.