Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.1995, Side 31

Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.1995, Side 31
LAUGARDAGUR 4. NÓVEMBER 1995 39 „Aðalatriðið er að við sem setjum þetta upp hér í Borgarleikhúsinu höfum gaman af þessu og sýnum hvað hægt er að gera þegar ungt fólk tekur hönd- um saman," segir Hel- ena Jónsdóttir, leik- stjóri söng- og dans- leiksins Dagur. DV-mynd GVA og sagði Helena þeim hafa líkað mjög vel og hlegið þar sem hlæja átti. „Þeir tóku vel á móti okkur og fannst mjög gaman. Þetta er áhuga- mannahópur sem setur verkefnið upp. Þetta er alls ekki þungt verk sem ætlað er að skilja einhver ósköp eftir. Þetta er enginn Shakespeare. Það sem við erum að gera er að varpa skímii inn í skammdegið og létta brúnina á fólki. Aðalatriðið er hins vegar að við sem setjum þetta upp höfum gaman af þessu og sýn- um hvað hægt er að gera þegar ungt fólk tekur höndum saman.“ -pp Helena Jónsdóttir setur upp söng- og dansleikinn Dag ásamt félögum sínum: „Við erum að gera góðlátlegt grín að okkur sjálfum og jafnöldrum okk- ar. Þetta gerist allt á einum sólar- hring og hefst á því að ungt par, sem hittist á veitingahúsi kvöldið áður, vaknar hlið við hlið eftir gaman- sama nótt. Þau þekkjast ekki en annað þeirra kannast við hitt. Við fylgjumst svo með lifi þeirra i einn sólarhring og þeim persónum sem búa á heimili stúlkunnar. Þar er há- skólaborgarinn, menntaskólanem- inn, sá neikvæði og sú jákvæöa, sem vill vera þula í ríkissjónvarpinu og syngja í sjónvarpsþætti. Svo kemur í heimsókn ryksugusölumaður og ljóða- Úlíhildur, sem er vergjörn ung kona,“ segir Helena Jónsdóttir, leikstjóri og höfundur dans- og söng- leiksins Dagur, sem frumsýndur var í Borgarleikhúsinu sl. fimmtudag. Frumraun Hér er um frumraun Helenu sem höfundur dans- og söngleiks í fullri lengd að ræða. í raun hefur hópur leikara, dansara og tónlistarmanna lagt sitt af mörkum til að gera sýn- inguna að raunveruleika. Helena átti hugmyndina að verkinu, leikar- ar og dansarar komu með sínar hug- myndir að útfærslum, tónlistar- menn sömdu tónlistina og síðan sá Helena um að fmstilla hópinn. Auk þessa sá hún um gerð leikmyndar að hluta, dansar sjálf í sýningunni, er danshöfundur og síðast en ekki síst er hún leikstjóri verksins. Alls koma 26 manns að sýníng- unni en þar af eru 11 á sviði. Hópur- inn kaUar sig Hamingjupakkið. Með aðalhlutverk fer Jóhann G. Jó- hannsson en einnig eru í hópnum Benedikt Elfar, Brynhildur Björns- dóttir, Gísli Magnason, Pétur Örn Guðmundsson og Þórlákur Lúðvíks- son sem einnig eru laga- og textahöf- undar ásamt því að leika í verkinu. Hljómsveitina skipa Gunnlaugur Briem og Hrólfur Sæmundsson, sem sjá einnig um lagasmíðar, Stína - ætlunin að varpa skímu inn í skammdegið og látta brúnina á fólki Bongó, Tómas Jóhannesson og Jó- hann Hjörleifsson Löng meðganga Helena segist lengi hafa gengið með það í maganum að búa til dans- verk enda hefur hún verið að dansa meira og minna frá barnsaldri. Síð- ustu árin hefur hún hins vegar átt þátt í uppsetningu hverrar stórsýn- ingarinnar af annarri í leikhúsum borgarinnar. „Ég ætlaði að kalla til hæfileika- ríkt fólk á öðrum sviðum listarinn- ar en ég er sérfróð á. í sumar sótti ég síðan um litla sviðið í Borgarleik- húsinu og fékk það til afnota. Eftir að hafa skoðað aðstæður kviknaði hugmyndin að verkinu á skömmum tíma. Ég vann þetta þannig að ég samdi uppkast að handriti og talaði við það fólk sem ég valdi til starfa með mér og það útfærði mínar hug- myndir. Ég fastmótaði þær síðan,“ segir Helena. r Ahorfendur gætu séð sjálfa sig Hún segir persónurnar sóttar í hennar eigið umhverfi og þeirra sem taka þátt í sýningunni. Margir ættu því að sjá sjálfan sig eða ein- hvern sem þeir þekkja í personun- um sem koma fram í sýningunni. „Hver kannast ekki við af eigin reynslu eöa einhvers annars að vakna daginn eftir rekkjufarir við hliö einhvers sem hann þekkir lítið eða ekkert. Hver man til dæmis ekki eftir brandaranum um gaurinn sem sefur með strætókortið í nátt- borðsskúffunni og réttir dömunni sem hann svaf hjá um nóttina síðan miða til að hún komist heim sem fyrst. Það er meðal annars þetta sem við erum að gera grín að,“ segir Hel- ena. Aðeins verða fjórar sýningar á verkinu. Frumsýningin var á fimmtudag og önnur sýningin er á morgun en ágóðanum af þeirri sýn- ingu verður varið til söfnunarinnar Samhugur í verki, sem er til styrkt- ar þeim sem lentu í snjóflóðinu á Flateyri. Helena segir þá sem unnið hafa að sýningunni hafa gert það kaup- laust. Ýmis fyritæki hafi einnig kostað uppsetningu hennar en ætl- unin sé síðan að skipta hagnaði ef éinhver verður á milli þeirra sem tóku þátt í henni. Hlegið á réttum stöðum Þegar viðtalið var tekið á fimmtu- dag hafði generalprufa á verkinu farið fram fyrir framan áhorfendur Fíkus 60 cm. 235 kr. Gúmmílré 60 cm. 390 kr. Erica 390 kr. - Aloe 290 kr. Drekalilja 40 cm. 245 kr. Jukka lOO cm. 995 kr. Burkni ffrá 198 kr. _ ._ POTTAHLIFijl- AFIUfflR BLOMAVASAII | csllca cflcscfca 1 0-22 v/JossvogskirkjugarÖ sími 55 40 500

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.