Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.1995, Page 34
42
unglingaspjall
LAUGARDAGUR 4. NOVEMBER 1995
Tr'ti
V
Maður-
inn mátt-
lausi
Kyrrstaðan er ákjósanlegt ástand hugans, ekki
skuluð þið bregða út af aðalbrautinni og skoða
hinar myrku hliðargötur lífsins. Helst á að læsa
sig af, í litlu bæjarfélagi með fasta vinnu og ör-
ugga afkomu til þess að geta greitt reglulega af
lánum sem tekin voru til þess að kaupa raðhýsi,
sem búa skal í, öruggri og raunverulegri tilveru.
Ef þetta er gert eruö þið fullkomnir þjónar mín-
ir, ofurmennisins. Þið hafið eitt líf en endilega
reynið að halla ykkur upp að öxl trúarinnar til
þess að sætta ykkur við hlutskipti ykkar sem
beisluð lítilmenni, þar sem trúin lofar ykkur
betri tilveru í næsta lífi. Þið getið haldið að ein-
hver þarna uppi hugsi vel til litla mannsins,
einhverjum sé ekki sama. Það er rangt. Stigið
verður á ykkur og yfir allt ykkar auma líf af
mönnum eins og mér. Við gerum það brosandi í
andlit ykkar og þið munuð sætta ykkur við það
því að þið eruð þrælar samfélagsins. Menntunar-
leysi ykkar er okkar vopn.
Maðurinn þjáis taf lífshöfnun
Svarið við spumingu lífsins er spurning. Við
sköpum okkar eigin menningu, djúpstæðar mál-
hin hliðin
fræðireglur, hugtakahvelfingu. Er gott að búa
þar? Af hverju gerum við okkur veikbyggð og
bæld? Er þessi menning í þágu lífsins? Er hún í
þágu hamingjunnar? Maðurinn þjáist af lífshöfn-
un. Menning skapar manninn og er hann því af-
urð afurðar sinnar. Virkar menningin jákvætt
eða neikvætt á manninn? Er þessi túlkun á veru-
Hakemm er bestur
- segir Jón Kr. Gíslason, þjálfari landsliðsins í körfubolta
Jón Kr. Gíslason körfuboltamað-
ur var ráðinn þjálfari landsliðsins
í körfubolta í vikunni. Jón er
þekktur körfuboltamaður en hann
hefur þjálfað úrvalsdeildina i
Kéflavík. Jón hefur verið fyrirliði
landsliðsins um árabil og á 158
landsleiki að baki. Auk þess er Jón
kennari í Holtaskóla í Reykjanes-
bæ og starfaði sem fararstjóri hjá
Samvinnuferðum-Landsýn sl. sum-
ar. Það er Jón Kr. sem sýnir hina
hliðina að þessu sinni:
Fullt nafn: Jón Kristinn Gísla-
son.
Fæðingardagur og ár: 14. októ-
ber 1962.
Maki: Auður Sigurðardóttir.
Böm: Dagur Kár, átta og hálfs
mánaðar.
Bifreið: Huyndai, árgerð 1992.
Starf: Kennari og þjálfari.
Laun: Ágæt.
Áhugamál: Körfubolti og fjöl-
skylda mín.
Hefur þú unnið í happdrætti
eða lottói? Nei, ég get varla sagt
það en þó fékk ég einu sinni þrjá
rétta.
Hvað finnst þér skemmtileg-
ast að gera? Vera með stráknum
mínum.
Hvað finnst þér leiðinlegast
að gera? Standa í biðröð.
Uppáhaldsmatur: Gæsir, endur
og rjúpur.
Uppáhaldsdrykkur: Kók.
Hvaða íþróttamaður flnnst
þér standa fremstur 1 dag? Það
er NBA- maðurinn Hakemm Olaju-
von en hann er Nígeríumaður og
langbesti körfuboltamaðurinn í
Bandaríkjunum í dag.
Uppáhaldstímarit: Karfan.
Hver er fallegasta kona sem
þú hefur séð fyrir utan
eiginkonuna?
Leikkonan í súperman-þáttun-
um á Stöð 2.
Ertu hlynntur eða andvígur
ríkisstjórninni? Hlynntur.
Hvaða persónu langar þig
mest að hitta? Ég hefði viljað
hitta afa mína.
Uppáhaldsleikari: Leslie Niel-
sen.
Uppáhaldsleikkona: Ellen í
samnefndum sjónvarpsþáttum á
Stöð 2.
Uppáhaldssöngvari: Ég, heima
hjá mér.
Uppáhaldsstjórnmálamaður:
Enginn.
Uppáhaldsteiknimyndaper-
sóna: Simpson-fjölskyldan.
Uppáhaldssjónvarpsefni:
íþróttir og gamanþættir.
Uppáhaldsveitingahús: Glóðin
í Keflavík.
Hvaða bók langar þig mest að
lesa? Grímsævintýri.
Hver útvarpsrásanna finnst
þér best? Bylgjan.
Uppáhaldsútvarpsmaður: Eng-
inn.
Hvort horflr þú meira á Sjón-
varpið eða Stöð 2? Stöð 2.
Uppáhaldssjónvarpsmaður:
Halti- Björn.
Uppáhaldsskemmtistaður:
Enginn.
Uppáhaldsfélag í íþróttum:
Keflavík.
Stefnir þú að einhverju sér-
stöku í framtíðinni? Já, að hafa
það gott.
Hvað gerðir þú í sumarfríinu?
Ég málaði húsið mitt.
Jón Kristinn Gísiason,
landsliðsþjálfari
í körfubolta.
leikanum, sem menning okkar er reist á, þess
virði að byggja líf okkar á henni? Því hvað er
veruleikinn annað en það sem ákveðið er af
menningu okkar og þróun hennar. Maðurinn ber
falska vitund úr brunni menningarinnar. Lífið er
blekking ef móðurspeninn er menningin. Sálin
nær betur til blómanna úti á víðum velli „caos-
ins“ en í djúpum og þröngum frumskógi menn-
ingarinnar. Maðurinn verður að skapa sinn veru-
leika, það er hans hlutskipti.
Þið Ijúgið saman í hjörð
Maðurinn virðist oft búa yfir svarinu við
spurningu lifsins en þorir ekki að fylgja því
vegna þess að hann skortir réttlætingu á
svari sem hefur enga spumingu. Því er
spuming svarið við tilgangi lífsins og
hvernig eigi að fá sem mesta nálægð við
hamingjuna. Sannleiksviljinn í vest-
rænni menningu „kreddutrúin", hinn
eini sanni veruleiki, hefur verið traust-
ur hornsteinn fyrir litla manninn að
byggja veruleika sinn á. Staðreynd
er túlkun staðreynda. Maðurinn er
listamaður og betra er að gera sér
grein fyrir því og lifa á skapandi
hátt en lifa í blekkingu um
einn sannleik, þar sem sann-
leikurinn er aðeins breytileg
merking á „caos“. Þið ljúgið
saman í hjörð, reglum sem all-
ir verða að hlýða. Blekking er
forsenda manlífsins og sann-
leikans.
Lífsöflin em sveigð undir lög-
mál „skynseminnar"
Hamingjan er fundin eftir ákveðinni for-
múlu. Ekki á hún að endurspegla „veruleikann"
heldur túlka hann í þágu lífsins. Er menningin
okkar, sem er okkar afurð, þess virði að við
byggjum líf okkar á henni.
Þessi grein geymir upplýsingar sem eru eitur
fyrir samfélagið en epli fyrir einstaklinginn, ef
einstaklingurinn vill búa í samfélaginu með
þessu hugarfari ber hann eitrað epli. Það þarf
mjög sjálfsöruggan mann til þess að brjóta niður
það öryggi sem skríllinn reynir að berja saman
með veikri menningu en það er nauðsynlegt þar
sem menningarfylgni er lífsskemmandi og eitrar
sjálfssköpun, þar sem lifsöflin em sveigð undir
lögmál „skynseminnar".
Platon sagði að skynsemin ætti að
stjórna, skapið að framkvæma og
ástríðurnar að framleiða. Ekki get-
ur þessi kenning talist rétt þar sem
ástríðurnar mega aldrei taka stjórn-
ina, blind ástriða afvegaleiðir skyn-
semina. Ekki á aðeins að hlusta á
það sem hausinn segir manni, þar
sem hann er mjög mengaður af regl-
um og gildum samfélagsins. Þeir
sem hafa „guts“ eiga að ljá því eyra.
Hlusta á hjartað, það ber mann oft
heilan til hafnar.
(Stuðst við rit Friedrichs Nietzsches)
Sigurður Runólfsson
nemandi á félagsfræðibraut
Flensborgarskólans
Richard Grieve
eða Sam í nágrönnum:
Sá myndar-
legasti
Nágrannar eða Neighbours
hafa verið vinsælir þættir meðal
ungs fólks. Einn aðalleikari þátt-
anna er Richard Grieve, 25 ára,
en hanh hefur farið með hlut-
verk Sams Kratz. Hann þykir
nógu myndarlegur, hávaxinn,
dökkhærður og með brún augu,
til að fá stelpur fyrir framan
skjáinn og að þættinum. Sam er
mikill töffari, ekur um á mótor-
hjóli og fæst við hin ýmsu verk
eins og t.d. að gera við bíla.
Richard er vatnsberi og býr í
Melbourne i Ástralíu. Hann á
tvær eldri systur sem báðar eru
hamingjusamlega giftar. Það má
segja að hann hafi flækst um
eins og vinur hans, Sam, því
Richard bjó í Hong Kong og
Malasíu þar til hann var þrettán
ára, með fjölskyldu sinni, en fað-
ir hans var að vinna á þeim
stöðum.
Hann fór í skóla til að læra
dans og leiklist og hefur leikið í
nokkrum leikritum í Ástralíu,
þar á meðal eftir Shakespeare.
Áður en hann byrjaði að leika í
Nágrönnum hafði hann verið í
tveimur öðrum áströlskum
sápuóperum, Newlyweds og E
Street.
Uppáhaldsmaturinn hans er
allur ítalskur matur og hann
elskar að fara í útreiðartúra.
Auk þess er hann mikill hlaup-
ari og skíðaíþróttamaður.
Alicia Silverstone.
/ ■
Nyiasta stjaman
Clueless heitir unglingamynd
sem Háskólabíó er að taka til sýn-
ingar en myndin hefur fengið mjög
góða dóma víðast hvar. Myndin
þykir ijörug og skemmtileg og það
er ekki síst unglingastjörnunni
Aliciu Silverstone að þakka. Alicia,
sem er 18 ára gömul, hefur áður
leikið í sjónvarpsþáttum og kvik-
myndum. Auk þess er hún hvað
þekktust fyrir leik sinn í mynd-
bandi með hljómsveitinni Aer-
osmith sem fékk reyndar verðlaun
hjá áhorfendum MTV sjónvarpsrás-
arinnar.
Alicia lék í myndinni The Crush
og einnig sjónvarpsþáttunum The
Wonder Years. Hún hefur alla tíð
haft mikinn áhuga á leiklist.Nýlega
gerði Alicia samning við Colombia
kvikmyndafyrirtækið upp á tíu
milljónir dala (650 milljónir íslensk-
ar krónur) fyrir tvær myndir á
þremur árrnn. Hún segist bera mik-
ið traust til kvikmyndafyrirtækis-
ins. „Ég er ung og bjartsýn en ég
vona að fólk fyrirgefi mér ef mér
mistekst," segir hin unga stjarna,
Hún segir að peningar skipti hana
ekki öllu máli. Það gera dýr hins
vegar. Alicia er mikill dýravinur og
hefur alla tíð verið það.