Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.1995, Síða 37

Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.1995, Síða 37
LAUGARDAGUR 4. NÓVEMBER 1995 45 skák Stórmótið í Horgen: Kasparov vann aðeins eina skák - Kramnik og Ivantsjúk deildu sigrinum Garrí Kasparov var heillum horf- inn á stórmeistaramótinu í Horgen í Sviss, sem lauk á miðvikudag. Hann varð að sætta sig við 50% vinnings- hlutfall, hlaut fimm vinninga í tíu skákum. Þetta er trúlega slakasti ár- angur Kasparovs á skákferlinum. Ef einvígi Kasparovs og Anands í New York á dögunum er haft í huga þarf meðalmennska Kasparovs í Sviss ekki að koma á óvart. Einvíg- ið í New York einkenndist af litlaus- um jafnteflum og fingurbrjótum An- ands undir lokin fremur en snilli Kasparovs. Hitt er annað mál að alkunna er að slík einvígi eru lýjandi en svo virðist sem Kasparov hafi ekki náð að safna kröftum fyrir ný átök. Því er of snemmt að bera þau boð á torg að Kasparov sé „útbrunninn og bú- inn að vera“, eins og sérfræðingar hafa freistast til að gera. Anand var einnig skráður til leiks í Horgen en hætti við á síðustu stimdu og því voru keppendur aðeins 11 og einn varð að sitja yfir í hverri umferð. Skák > ----------7---- Jón L. Arnason Vladimir Kramnik og Vassily Ivantsjúk deildu sigrinum, fengu 7 vinninga. Jaan Ehlvest og Nigel Short komu næstir með 6. Sá siðar- nefndi hefur eflaust verið sæll með að skjóta Kasparov aftur fyrir sig. Artur Jusupov, Viktor Kortsnoj og Boris Gulko fengu 4,5 vinninga - hálfum vinningi minna en Kasparov. Joel Lautier fékk 4 v., Rafael Vaganjan 3,5 og Jan Timman rak lestina með 3 v. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Timman verður neðstm: en honum hættir til að of- meta stöður sínar, eins og fleiri góð- um mönnum. Kasparov vann einungis eina skák, gegn gamla brýninu Viktor Kortsnoj. Átta skákum Kasparovs lauk meö jafhtefli, eftir misjafnlega mikla baráttu en hann tapaði fyrir Ivantsjúk eftir að hafa teflt veikt meö hvítu mönnunum. Úrslit mótsins réðust ekki fyrr en í síðustu umferð. Taugar Ivantsjúks brugðust eins og svo oft áður. Hann sættist á jafntefli gegn Gulko en Kramnik vann Vaganjan og komst upp að hlið hans og gott betur. Hvltt: Vladimir Kramnik Svart: Rafael Vaganjan 1. Rf3 RfB 2. d4 e6 3. c4 b6 4. a3 Bb7 5. Rc3 Re4 Vaganjan velur afbrigði, sem hef- ur ekki sérlega gott orð á sér. 6. Rxe4 Bxe4 7. e3 Be7 8. Bd3 d5Ef 8. - Bxd3 9. Dxd3 d5 10. e4 og hvítur á betra tafl. ABCDEFGH 9. Bxe4 dxe4 10. Rd2 f5 11. f3 Bd6 12. Da4+! Ekki 12. fxe4 Dh4+ og hvítur missir hrókunarréttinn. 12. - c6 13. Dh4 14. f4 Svörtum hefur tekist að hindra hvítan í að brjóta upp miðborðsstöð- una en hefur ekki leyst allan vanda, eins og laglegur næsti leikur hvíts gefur til kynna. 15. c5! bxc5 16. Rc4 De7 17. dxc5 Bxc5 18. b4 Bd6 19. Bb2! Hins vegar ekki 19. Rb6 axb6 20. Dxa8 e5! og svartur hefur góð faéri, með riddara og peð gegn hróki. Eft- ir textaléikinn á hvítur góða stöðu í skiptum fyrir eitt lítið peð - svarta homalínan er ógnarsterk, peðastaða svarts veik og hann á í vandræðum með að skipa út liði á sómasamleg- an hátt. 19. - Bc7 20. Hfdl Losnar við veikleikann en svartur tapar enn meiri tíma. 21. bxc5 Dxc5 22. Hacl De7 23. Db5! Hótunin 24. Db7 er óþægileg. Tak- ið eftir að þótt svartrn- hafi nú ein- um veikleikamnn færra kostaði 20. leikur hans mikilvægan reit. 23. - Bb6 Vonast eftir 24. Rxb6 axb6 25. Dxb6 Ra6 og staðan hefur skánað. 24. a4! Bc5 25. Bd4 Bxd4 26. Hxd4 Þunginn í taflmennsku hvíts er mikill. Nú er 26. - Hc8 27. Hcdl Rc6 skásta tilraunin en eftir 28. Hd7 lof- ar staða hvíts þó góðu. 26. - a6 27. Db6 Ha7? 28. Rd6 Hd7 29. Hc8! Nú er svartur vamarlaus. 29. - Hxc8 30. Rxc8 Da3 31. Dxe6+ Kf8 32. Dxf5+ Ke8 33. De6+ Kd8 34. Db6+! Ke8 35. Rd6+@ - Og svartur gafst upp. Meistaramót Hellis Þröstur Þórhallsson, nýkrýndur skákmeistari Taflfélags Reykjavik- ur, er ekki við eina fjölina felldur i skákmálum. Þröstur tekur nú þátt í meistaramóti taflfélagsins Hellis og er efstur að loknum fjórum umferð- um með fúllt hús vinninga. í górðu umferðinni vann Þröstur Sævar Bjamason. Jón Viktor Gunn- arsson, Andri Áss Grétarsson, Snorri Bergsson, Ólafur B. Þórsson og Áskell Öm Kárason deila 2. sæti ásamt Sævari með 3 vinninga. Fimmta umferð verður tefld á mánudagskvöld í Menningarmið- stöðinni í Gerðubergi. 6** & /* Baðkar Stærð 170x70 cm, Handlaug ávegg 34x45 cm. WC í vegg eða gólf með vandaðri harðri setu í sama lit. ^FYRlRAOe/JVj tryggtng SÍÐUMÚLA 34 (Fellsmúlamegin) • SÍMI 588 7332 OPIÐ: MÁNUD. - FÖSTUD. 9-18 • LAUGARDAG 10-16 RAÐGREIÐSLUR 1(D

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.