Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.1995, Blaðsíða 4
4
FÖSTUDAGUR 10. NÓVEMBER 1995
Fréttir
Framkvæmdir Landsvirkjunar vegna stækkunar ÍSAL:
Kalla á 440 ársverk
fram til aldamóta
- Qöldi verkamanna, iðnaðarmanna og bílstjóra kallaður til vinnu
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Landsvirkjunar á raforkukerfinu
vegna stækkunar álversins í
Straumsvík kalla á 440 ársverk til
aldamóta, þar af 260 á næstu tveim-
ur árum. Á næsta ári falla til 120
störf hjá fyrirtækinu og á árinu 1997
allt að 140 störf. Næstu þrjú árin,
eða fram til ársins 2001, falla til um
180 ársverk vegna raforkufram-
kvæmda.
Stækkun Blöndulóns mun hefjast
næsta vor eftir útboð í febrúar og
mun ljúka næsta haust. Samkvæmt
útreikningum Landsvirkjunar er
áætlað að við framkvæmdirnar
skapist 36 ársverk, fyrst og fremst
við jarðvinnu. Eftir að framkvæmd-
unum lýkur eykst flatarmál lónsins
úr 39 í 56 ferkílómetra. Heildar-
kostnaðurinn er áætlaður um 200
milljónir króna.
Framkvæmdir við fimmta áfanga
Kvíslaveitu hefjast einnig næsta vor
og er ráðgert að þeim ljúki haustið
1997. Útboö er fyrirhugað í febrúar
en framkvæmdin felur í sér að
beinna austustu upptökukvíslum
Þjórsá'r um Köldukvísl í Þórisvatn.
Á næsta ári falla til 44 ársverk við
framkvæmdina og á árinu 1997 önn-
ur 42 ársverk, aðallega i jarðvinnu
bæði árin. Heildarkostnaðurinn er
íti®iíife»ísœlf vsqgm
stækkunar Ísaí!
Skipting mannafia
Verkamenn i---Skrifstofufólk,
tækmmenn
Bílstjórar og
tækjamenn
Rafvirkjar og/ i
rafveitúvirkjar
Járniönaöarmenn
og vélvirkjar
O Mannafli 1996
a Mannafli 1997
Fjármagnskostnaður vegna stækkunar ísal
- í milljónum króna -
-im ví
riTiii]
I.-2 2
> m «3
> CQ
3
■o
C
:S e
m'o
Sog*j
áætlaður um milijarður króna.
í lok þessa árs verður boðið út og
gengið frá verksamningi varðandi
endurbætur á Búrfellsvirkjun.
Skipta á um vatnshjól í stöðinni til
að auka afl hennar og á verkinu að
vera lokið i ársbyrjun 1998. Kostnað-
urinn er áætlaður 750 milljónir og
munu 17 til 19 ársverk falla til við
verkið á næstu tveimur árum, eink-
um á sviði vél- og rafbúnaðar.
Vegna stækkunar álversins í
Straumsvík hefur Landsvirkjun
ákveðið að ílýta endurnýjun Sogs-
stöðvanna. Heildarkostnaður við
verkið er áætlaður tæplega 1,2 millj-
arðar og á verkinu að vera lokið fyr-
ir árslok 1997. Um 17 störf falla til
vegna þessa á næsta ári, einkum á
sviði vél- og rafbúnaðar, en um 54
störf á árinu 1997.
Til að auka flutningsgetu núver-
andi háspennulína frá Þjórsár- og
Tungnaársvæðinu til álversins í
Straumsvík hefur verið ákveðið að
setja upp raðþétta á Hrauneyjafossl-
ínu og Búrfellslínu. Á næsta ári
munu falla til 6 ársverk vegna þessa
og á því næsta 21 ársverk. Heildar-
kostnaður við verkið er áætlaður
um hálfur milljarður en ekki er gert
ráð fyrir að því ljúki að fullu fyrr en
árið 2001. -kaa
2.000 króna seðill og
100 króna mynt í untferð
í dag verður settur í umferð nýr
2.000 króna seðill og ný 100 króna
mynt. Samtímis verður hætt að láta
100 króna seðla í umferð en þeir
verða áfram löglegur gjaldmiðill.
2.000 króna seðillinn er hannaður
af Kristínu Þorkelsdóttur og Steph-
en A. Fairbairn. Á framhlið seðils-
ins, sem tileinkaður er myndlist, er
andlitsmynd Jóhannesar S. Kjarvals
en á bakhlið er málverk Kjarvals,
Flugþrá. Fleiri öryggisatriði eru
felld í nýja seðilinn en þá seðla sem
nú eru í umferð.
Birgir Isleifur Gunnarsson og Steingrímur Hermannsson bankastjórar Seðlabankans með
nýja 2.000 króna seðilinn. DV-mynd Brynjar Gauti
Myntina hannaði Þröstur Magn-
ússon. Landvættamynd er á fram-
hlið myntarinnar en á bakhlið er
mynd af hrognkelsi. Myntin er sleg-
in úr gulleitri blöndu og er rönd
hennar riffluð og slétt á víxl til hag-
ræðis fyrir sjónskerta.
Ekki þótti tímabært að
gefa út 10.000 króna
seðil. Núna eru 3 millj-
arðar króna af 5.000
seðlum í umferð. Mið-
að við að 10.000 króna
seðlar kæmu í stað
helmings þeirra hefðu
nýju seðlarnir orðið
150 þúsund talsins og
það þótti of lítið.
Kostnaður við prentun
hvers 2.000 króna seð-
ils er 7,75 krónur en
kostnaður við sláttu
hvers penings er 3,65
krónur. Slátta 100
króna myntar er um
þriðjungi ódýrari en
prentun seðils. Seðl-
amir eru prentaðir í
Englandi og myntin er
slegin þar. Tvær millj-
ónir seðla eru í fyrsta
upplaginu en sex millj-
ónir eintaka af mynt.
-ffiS
Stækkun álversins í Straumsvík:
Jarðvegs-
vinna hefst
í þessum
mánuði
- uppgrip fyrir iðnaðarmenn og verkamenn
Undirbúningur verklegra fram-
kvæmda við stækkun álversins í
Straumsvík er þegar hafln og mun
jarðvegsvinna hefjast á næstu vik-
um. Gert er ráð fyrir að ný ker
verði gangsett i október 1997 og að
fullri framleiðslaukningu verði
náð á árinu 1998. Við stækkunina
eykst ársframleiöslan úr 100 þús-
und tonnum í 162 þúsund tonn.
Kostnaðurinn við stækkun ál-
versins er áætlaður um 14,2 millj-
arðar. Kostnaðartölur varðandi
einstaka verkþætti liggja ekki fyr-
ir hjá ÍSAL enda verða þeir flestir
boðnir út. Gert er ráö fyrir að 200
til 400 manns fái vinnu við fram-
kvæmdimar, að stærstum hluta
iðnaðarmenn og verkamenn, og að
starfsmannafjöldi verksmiðjunar
aukist um 70 til 90 eftir að fram-
kvæmdunum lýkur og verði um
500.
Þær framkvæmdir sem ráðist
verður í er bygging kerskála með
160 kerum, en fyrir eru tveir
kerskálar. Að auki verður byggð
þurrhreinsistöö, tengistöð, steypu-
skáli, vöruskemmur og nýr hafn-
arbakki. Samkvæmt framkvæmda-
áætlun verður þegar í þessum
mánuði hafist handa við alla þessa
verkþætti og á þeim flestum að
vera lokið í ágúst og september
1997. Frágangi í kersmiðju og
skautasmiðju lýkur hins vegar
fyrst í desember 1997.
-kaa
Meö hverjum Opel bíl fylgir þjófavörn
í samlcesingum og þjófavörn í útvarpi.