Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1995, Side 2
2
LAUGARDAGUR 18. NÓVEMBER 1995
fréttir
Dró upp kjöthníf og
ógnaði eigandanum
- einnig sakfelldur fyrir gripdeild á sama stað tveimur vikum áður
19 ára piltur, Guöni Þór Guð-
mundsson, hefur verið dæmdur í
átta mánaða fangelsi, þar af sex skil-
orðsbundna, fyrir rán með því að
hafa dregið upp hníf og ógnað eig-
anda sölutumsins Ciro við Berg-
staðastræti og fengið hann til að af-
henda sér ýmsar vörur laugardag-
inn 4. mars. Hann var einnig dæmd-
ur fyrir gripdeild með því að hafa
tveimur vikum áður tekið eina
lengju af sígarettum af afgreiðslu-
borðinu á sama stað og hlaupið með
hana í burtu.
Þegar ránið var framið var eig-
andi sölutumsins á staðnum. Guöni
Þór kom þá inn og dró upp kjöt-
skuröarhníf úr hulstri og ógnaði
manninum og fékk hann til að af-
henda sér fjóra pakka af sígarettum,
einn pakka af Cocoa Puffs, tvær
langlokur og tvær dósir af maltöli -
samtals að andvirði 2.017 krónur.
Við ákvörðun refsingar tók dóm-
urinn mið af því að ógnun með hnífi
væri mjög alvarleg en hins vegar
var litið til vmgs aldurs sakbom-
ingsins sem ekki hafði áður hlotið
dóm fyrir auðgunarbrot. Einnig var
litið til þess að tjón af verknaðinum
var óvendegt og að Guðni Þór við-
urkenndi brot sín greiðlega.
Sakbomingnum var gert að
greiða bótakröfu eigandans og sam-
tals 70 þúsund krónur í málsvarnar-
og saksóknaralaun. -Ótt
Nafnastríð:
Orkagegn
Orkunm
Forráðamenn fyrirtækisins
Orka í Faxafeni tekur ákvörð-
un um það um helgina hvort
og þá hvemig reynt verður að
koma í veg fyrir notkun á
: nafni bensínfélagsins Orkunn-
ar, sem er meðal annars í eigu
| Skeljungs og Bónuss, til dæmis
með lögbanni. Páll Helgi Guð-
mundsson hjá Orku segir aö
nafnnotkunin valdi fyrirtæk-
| inu verulegum vandræðum.
1 „Við fáum bréf, sem þeir
1 eiga að fá, og upphringingar
því að Orkan og Orka hljóma
I alveg eins fyrir þá sem ekki
j vita um hvað málið snýst. Við
eram búnir að senda þeim bréf
og láta lögfræðing tala við þá
1 en þeir halda bara sínu striki,"
segir Páll Helgi. -GHS
Akureyri:
Valgerður fé-
lagsmálastjóri
___________________
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Valgerður Magnúsdóttir sál-
fræðingur verður félagsmála-
; stjóri á Akureyri en Jón
Bjömsson sem gegnt hefúr því
starfi um árabil er hættur.
Krossanes:
Ræða ekki til-
boð Sverris
________________ __
Gylfi Krisljánsson, DV, Akureyri:
„Það er ekki til umræðu að
taka þetta erindi fyrir. Sverrir
Leósson hafði allan þann tíma
sem aðrir höfðu til að gera til-
boð í hlut bæjarins. Þaö kom
hins vegar fýrst fram þegar
fyrir lá samþykkt bæjarráðs
um að ganga til samninga við
annan aðila,“ segir Gísli Bragi
Hjartarson, bæjarfulltrúi Al-
þýðuflokksins á Akureyri.
Bæjaryfirvöld halda sig við
1 þá ákvörðun að ganga til
samninga við Þórarin Krist-
jánsson sem ásamt öðrum aðil-
um gerði tilboð í um 80% eign-
arhlut Akureyrarbæjar í
Krossanesverksmiðjunni.
Grandi hf. í Reykjavík hélt í cjær upp á 10 ára afmæli fyrirtækisins en það varð til við sameiningu Bæjarútgerðar
Reykjavíkur og ísbjarnarins. I tilefni dagsins ákvað stjórn Granda að styrkja SÁÁ með tveggja milljóna króna fram-
lagi sem nota á til forvarna gegn vímuefnaneyslu unglinga. Fjöldi gesta heimsótti fyrirtækið í tilefni dagsins, jafnt
ungir sem aldnir. Boðið var upp á risastóra köku með afmæliskaffinu og var ekki annað að sjá en Davíð Oddsson
forsætisráðherra og Árni Gunnarsson, stjórnarformaður Granda, kynnu vel að meta gómsætið. DV-mynd GVA
Heimsíðu á Internetinu lokað vegna „ósiðlegra upplýsinga“:
Sendu út ásakanir um
stórfelldan fjárdrátt
- viö fáum enga áheyrn hjá réttarkerfinu, segir framkvæmdastjóri fyrirtækis
„Við sendum þessar upplýsingar
út undir fullu nafni og era ekki að
fela frá hverjum þær era komnar.
Við höfðum hér starfsmann sem stal
af okkur miklum fjármunum, 5 til 6
milljónum, og það gengur ekkert að .
rannsaka hans mál. Þess vegna
sendur við upplýsingamar út til að
vara aöra við manninum,“ segir
Kjartan Bjamarson, hjá tölvufyri-
tækinu HKH, en heimasíðu þess á
Intemetinu hefur nú verið lokað
vegna málsins.
Fyrirtækið hafði fengið heimsíð-
una skráða hjá ísmennt, sem lokaði
henni í gær vegna upplýsinganna
um fyrrum starfsmann HKH. Þar
var hann borinn þungum' sökum og
ferill hann rakin hjá fyrri vinuveit-
endum eftir því sem eigendur HKH
vissu best. Upplýsingamar vora í
um tíu daga aðgengilegar öllum á
netinu.
Mál starfsmannsins var kært til
Rannsóknarlögreglunnar í sumar
en hefur enn ekki hlotið afgreiðslu
þar. Kjartan Bjarnarson viður-
kenndi að með því að senda þessar
upplýsingar út á netið væri vissu-
lega verið að dæma þennan mann.
„Við erum fórnarlömbin í þessu
máli en fáum enga leiðréttingu.
Réttarkerfið bregst og það leiddi til
að við tókum málin i okkar hend-
ur,“ sagði Kjartan.
Jón Jónasson, umsjónarmaður
veraldarvefsins hjá ísmennt, sagði
að lokunin á heimasíðu HKH væri
gerð á grundvelli siðareglna auglýs-
ingastofa um vemdum einkalífs.
Þar segði að ekki mætti birta neitt
um einkalíf án þess að spyrja við-
komandi leyfis. Hann sagði og að
umræður þær sem orðið hefðu síð-
ustu daga út af svokölluðu „Heiðars-
máli“ hefðu leitt til að þess að grip-
ið var til aðgerða nú.
„Ef þetta á að ganga svona hér eft-
ir þá erum við að taka gapastokkinn
í notkun á ný. Þetta er þróun sem
verður að stöðva," sagði Jón.
Hann sagði að nú væra í smíðum
siðareglur fyrir Intemetið og notk-
un þess á íslandi. -GK
Samhugur í verki:
Stjórnin setur sér reglur
Sjóðstjóm landssöfnunar fyrir
Flateyringa, Samhugur í verki, hef-
ur tekið til starfa og sett sér starfs-
reglur. Söfnunarfénu verður aðal-
lega varið til að styrkja einstaklinga
og fjölskyldur sem urðu fyrir fjár-
hagslegu, andlegu og félagslegu
tjóni vegna snjóflóðsins. í starfsregl-
unum er einnig tekið fram að hugað
skuli aö stöðu þeirra sem urðu fyrir
óbeinu tjóni og einnig samfélagsleg-
um verkefnum.
Á vegum sjóðstjómarinnar hafa
verið fengnir 6 félagsráðgjafar til aö
aðstoða tjónþola viö gerð umsókna
um aðstoð úr söfnunarsjóðnum.
Ráðgjafamir era fengnir aö láni og
verða þeir á launum hjá vinnuveit-
endum sínum.
í frétt frá sjóðstjórn segir að starfi
stjórnarinnar verði hraðað sem
verða má. Tekið er fram að þó að
bið verði á fullnaðarmati tjóns muni
sjóðstjórnin engu að síður greiða
hlutabætur til þeirra sem orðiö hafa
fyrir tjóni. Þegar hafi nokkram slík-
um erindum verið sinnt.
Kjúklingaverðstríöiö:
Hagkaup lækk-
ar bitann í
85 krónur
„Það er búið að bjóða upp
og viö dönsum með á meöan
hljómsveitin spilar,“ sagði
Óskar Magnússon, forstjóri
Hagkaups, í gær. Hann sagðist
ætla að lækka bitann í 85
krónur strax að loknu símtal-
inu við DV og þar með er Hag-
kaup líklega að bjóða ódýrasta
kjúklingabitann í bænum.
Verðstríðiö á kjúklingabit-
um, sem DV sagði frá í blað-
inu í gær, er því farið að skila
sér með verulega áþreifanleg-
um hætti til neytenda.
Alfreð Bóasson, eigandi
Kjúklingastaðarins í Suður-
veri, sagðist ætla aö lækka sig
niður í 97 krónur fyrir bitann
en Kentucky Fried, með bit-
ann á 95 krónur, > og Svarta
pannan, með bitann á 89 krón-
ur, hyggjast ekki lækka verðið
frekar en þegar hefúr verið
gert hjá þeim, a.m.k. ekki að
svo stöddu.. Eigandi Boston
kjúklings sagðist ætla að
halda sig við bitann á 165
krónur og sjá til. Haldið yrði
upp á aftnæli staðarins á
næstu dögum og þá yrðu gerð-
ir hlutir sem ekki hefðu sést
hér á landi áður. -sv
stuttar fréttir
Bakarar sammála VSÍ
Bakarameistarafélag ís-
lands hefur lýst yfir fullum
stuðningi við ályktun VSÍ þess
efnis aö eggjaframleiðsla veröi
undanskilin landbúnaðar-
framleiðslu og verðlagsákvæð-
um.
Hafísinn nálægur
Hafisbrúnin úti fyrir Vest-
fjörðum er tiltölulega nálægt
landi. Samkvæmt veðurspá
má gera ráö fyrir að ísjaöar-
inn færist enn nær landi um
helgina og nálgist þar með
siglingaleiðir.
Samráðsnefnd skipuð
Utanríkisráöherra hefur
ákveðiö að skipa samráðs-
nefhd utanríkisráðuneytis,
iðnaðarráðuneytis og við-
; skiptaráðuneytis um verk-
efnaútflutning og fjárfestingu
íslenskra fyrirtækja í atvinnu-
| rekstri erlendis.
Farið fram a skoðun
Neytendasamtökin hafa far-
ið þess á leit við ríkissaksókn-
ara og bankaeftirlit Seöla-
bankans að viðskipti A. Finns-
sonar hf. við ýmsa aðila verði
tekin til gaumgæfilegrar skoð-
unar.
Nefnd yfirfer tillögur
Heilbrigðisráðherra hefur
skipað nefnd til aö meta áhrif
tillagna tilsjónarmanns um
breytingar á starfsemi St. Jós-
efsspítala í Hafnarfjrði.
Útvarp á Internetinu
í vikunni hóf útvarpsstöðin
Studio 33 útsendingar samtím-
is frá Danmörku og Islandi.
Stöðin sendir út á ensku á
Intemetinu 4 tíma í senn. Net-
fangið er: http: //WWW.centr-
um.is/studio33.
Borgin nettengd
Upplýsingakerfi fyrir
Reykjavíkurborg hefur verið
sett inn á Intemetið. Uppsetn-
ingin var styrkt af Nýsköpun-
|1 arsjóði námsmanna.
Netfang borgarinnar er
| http://WWW.rvk.is. -kaa
-kaa