Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1995, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1995, Page 6
6 iútlönd LAUGARDAGUR 18. NÓVEMBER 1995 IjV stuttar fréttir Jeltsín áfram á spítala Borís Jeltsín, forseti Rúss- lands, er byrjaður að vinna en verður á sjúkrahúsi til mánaða- móta. Leita strútakjöts Dönsk heilbrigðisyfirvöld leita logandi ljósi að strútakjöti sem smyglað hefur verið til landsins frá Suður-Afríku. Leyniþjónusta skömmuð ísraelska leyniþjónust- an hefur orð- ið fyrir mik- illi gagnrýni eftir yfir- heyrslur yfir morðingja Itzhaks Rabins. Þykir leyni- þjónustan hafa vanrækt mjög skyldur sín- ar og ekki varið Rabin fyrir hugsanlegri árás aftan frá. Kveiktu í fanga Fangar í öryggisfangelsi í Aþ- I enu myrtu útlendan fanga og kveiktu í líkinu á fjóröa degi óeirða í fangelsinu. Tekist á um skilnaði Stuðningur íra við lögleið- ingu hjónaskilnaða hefur minnkað samkvæmt skoðana- könnunum. Létu 80 fanga lausa Bresk yfirvöld iétu 80 fanga lausa, bæði mótmælendur og kaþólikka, í von um að 15 mán- aða vopnahlé á Norður-írlandi gæti leitt til varanlegs friðar. Vildi ekki í sjónvarp Bob Dole, leiðtogi repú- blikana i öld- ungadeild bandaríska þingsins, neitaði að koma fram í kappræðu- þætti CNN-sjónvarpsstöðvar- innar þar sem fjalla átti um deilurnar um fjárlagafrumvarp- ið. Dole sagðist of önnum kaf- f inn við að leysa fjárlagadeiluna. Búist var við að þingfundir stæðu fram á kvöld. Skaðræðisveður St í vetrarveðrinu r Svíþjóð í fyrr- orgun, þar af þrír 10 þúsund heimili ig rafmagns. kki undan a, yfirmaður her- í Nígeríu, fagnaöi ddaafmæli. Sagði ngruð stjórn sín áta kúga sig til íytinga. tankskipi Sofiu í Búlgaríu sem földu sig í líuskips sem lá i Reuter/Ritzau/TT Erlendar kauphallir: Hækkun í Evrópu Einhverjar sviptingar hafa orðið í hlutabréfaviðskiptum í erlendum kauphöllum undanfama viku. Hlutabréfavísitalan í Tokyo hefur heldur lækkað miðað við síðustu viku og sama gildir í Hong Kong meðan viðskiptin hafa heldur tekið kipp í New York, Lundúnum og Frankfurt. Litlar sviptingar hafa orðið á bensínveröi. 92ja oktana bensín hef- ur lækkað lítillega, 98 oktana sömu- leiðis. Verð á hráolíu er nokkm hærra en verið hefur þó að litlu muni. Nýjar upplýsingar um verð á kaffi og sykri bárust ekki. Reuter Brúðkaupshátíö í snjókomu og strekkingi í Kaupmannahöfn: Prinsessan vermdi hjörtu í kuldanum Hátt í fjörutíu þúsund manns stóðu í kulda, snjókomu og strekk- ingi í miðborg Kaupmannahafnar í gærdag og biðu þess að hestvagn Jóakims prins og Alexöndru Manley æki fram hjá á leiðinni frá Amalíen- borgarhöll til Ráðhússins. Þar biðu um 450 gestir eftir sérstakri mót- töku sem haldin var í tilefni af brúð- kaupi Jóakims og Alexöndru sem fram fer í hallarkirkjunni í Frið- riksborgarhöll í dag. Óttast var að óveðrið sem gekk yfir Danmörku og suðurhluta Sví- þjóðar í fyrrinótt og gærmorgun mundi setja strik í reikninginn en hátíðahöldin gengu snurðulaust. Starfsmenn borgarinnar unnu hörð- um höndum að snjóruðningi við Amalíenborgarhöll áður en hjóna- leysin lögðu af stað. Vegna snjókom- unnar mættu færri í bæinn en búist var við og bílstjórar óku varlegar. Með fram leiðinni beið mannfjöld- inn og veifaði. Skrifstofufólk í nær- liggjandi byggingum hékk bókstaf- lega út um gluggana, veifaði fánum og reyndi að sjá hin verðandi brúð- hjón. Ungir menn reyndu að vera Alexöndrumegin í von um að horfast í augu við hina verðandi prinsessu. Alexandra vakti óblandna hrifn- ingu þegar hún steig út úr hestvagn- inum. Hún hafði hunsað vetrarveðr- ið, var klædd dökkblárri dragt, var með skærgrænan hatt og í skær- grænum, háhæluðum skóm. Stuttu áður hafði Margrét Þórhildur komið til Ráðhússins ásamt Henriki prins sem studdist við staf vegna bakveik- innar. Aðrir fjölskyldumeðlimir höfðu komið frá Hilleröd en óttast var um að þeir kæmust ekki vegna ófærðar á leiðinni. Fjölskylda Hen- riks prins sat hins vegar á flugvell- inum í París og missti af veisluhöld- unum. Frönsku flugmennirnir treystu sér ekki til að lenda á snjóugum Kastrupflugvelli. Áður en veislan hófst veifuðu Jóakim og Alexandra frá svölum Ráðhússins við gífurlegan fögnuð mannfjöldans á Ráðhústorginu og vermdu þar ófá hjörtu konunghollra karla og kvenna. Inni voru haldnar ræður og sagði einn ræðumanna að hefði H.C. Andersen lifað þennan dag hefði Alexandra orðið fegursta prinsessan í ævintýrum hans. í gærkvöldi var hátíðarkvöldverð- ur í Kristjánsborgarhöll þar sem þingið er til húsa. Á méðan fylgdust Danir spenntir með veðurspánni og vonuðu að fyrsta konunglega brúð- kaupið í Danmörku í 27 ár og stærsta fjölmiðlauppákoma þar í landi fyrr og síðar fengi grið fyrir Vetri konungi. Ritzau Jóakim prins og Alexandra Manley, verðandi prinsessa, veifa tii mannfjöldans frá tröppum Ráðhússins í Kaup- mannahöfn í gærdag. Símamynd Reuter Átakalaust eftir að úrslit forsetakosninganna í Alsír voru kunn: Zeroual sigraði með yfirburðum Liamine Zeroual, fyrrum hershöf- ingi, var yfirlýstur sigurvegari for- setakosninganna í Alsír sem fram fóru í vikunni. Haföi hann örugga forustu á þrjá keppinauta sína. Sá sem kom næstur, íslaminn Mahfoud Nahnah, gaf strax frá sér yfirlýsing ar um kosningasvik en bað stuðn- ingsmenn sína að halda ró sinni. Samkvæmt fyrstu spám studdu sjö af tólf milljónum kjósenda Zer- oual. Stjómvööld vonast til að með kosningum ljúki fiögurra ára ógnar- öld meö blóðsúthellingum og morð- um þar sem íslamskir bókstafstrú- armenn hafa haft sig mjög í frammi. Mannfiöldi þusti fagnandi út á götur þegar úrslitin vom ljós og ör- yggisverðir, sem gætt höfðu öryggis kjósenda, skutu af byssum sínum. í ræðu sem hinn 54 ára gamli Zerou- al hélt í gærdag sagði hann að kosn- ingarnar væru sigur fyrir sjálfsá- kvörðunarrétt fólksins í landinu og lýðræðið sem óvinir innan lands sem utan yrðu að taka mark á. Zeroual, sem barði niður andóf skæruliða múslíma, en reyndi að semja við bókstafstrúarmenn, hefur boðað fiölflokkalýðræði. „Ég mun verða forseti allra alsískra karla og kvenna og vinna af mætti að eflingu þjóöarinnar," sagði hann. DV Pólland: Hnífjafnt milli forseta- frambjóðenda Lech Walesa og Aleksander Kwasinewski, sem takast á um forsetaembættið í Póllandi í síð- ari hluta forsetakosninganna á sunnudag, eru með jafnt fylgi samkvæmt síðustu skoðana- könnunum. Walesa er spáð sigri í kosningunum þar sem miðju- og hægriöfl hafa stutt hann. En í síðustu skoðana- könnun hafði Kwasinewski að- eins betur, var með 50,8 pró- senta fylgi á móti 49,2 prósent- um Walesa og hafði auk þess betur í heimabæ Walesa. Wa- lesa hafði annars haft 3-6 pró- | sentustiga forustu í skoðana- könnunum. Kosningabaráttunni er lokið. Walesa hefur barist af hörku síðustu daga og staðið fyrir hörðum árásum á Kwasinewski og kommúnistaflokk hans. Þá hefur hann notað andkommún- ískan áróður sem talið er að vegi þungt á kjördag. Norska kirkjan vill ekki ráða samkynhneigða Á kirkjuþingi norsku þjóð- kirkjunnar var samþykkt með 58 atkvæðum gegn 22 að sam- kynhneigðir í sambúð yrðu ekki ráðnir í störf á vegum kirkjunnar. Hins vegar var samþykkt að ekki væri tíma- bært að fordæma almennt sam- búð samkynhneigðra. Stuðningsmenn þess að sam- kynhneigðir í sambúð fengju vinnu hjá kirkjunni höföu von- ast til að atkvæðagreiðslu um máliö yrði frestað til kirkju- þings eftir tvö ár en þeirri ósk var hafnað. Droftningarmóðir að jafna sig eftir mjaðmauppskurð Nýr mjaðmarlið- ur var settur í Elísabetu 1 drottningar- Imóður á spít- ala í London í gær. Að- geröin sem tók hálfan annan tíma gekk mjög vel og var gamla konan að jafna sig í gærdag. Heimsóknir voru bannaðar þar til í dag. í gær sagði talsmaður Bucking- hamhallar að drottningarmóð- irin mundi sifia uppi og kannski ganga fáein skref. Að- gerðinni var haldið leyndri þar til hún var yfirstaðin en drottn- ingarmóðirin var lögð inn á miðvikudag, eftir þrálát mjaðmavandræði. Hafði hún gengið með hjálp goifkerru og stafs undanfamar vikur. Heilsu hennar hefur hrakað undanfar- in misseri en fyrr á árinu fór hún í augnaðgerö. Bretland; Mál Rosemary Westfyrir kviðdóm Siðasti dagur réttarhaldanna yfir Rosemary West, sem ákærð er fyrir að hafa orðið 10 ungum stúlkum og konum að bana ásamt manni sínum, Fred West, var í gær. Dómari fór yfir mál- ið og rifiáði upp hryllinginn sem mætti fómarlömbum hjón- anna. Þau voru flest misnotuð kynferðislega, pyntuð og myrt, líkin siðan höggvin og þau graf- in i eða við hús hjónanna í Gloucester. Dómarinn minnti kviðdóminn, sem í eru 9 karlar og 4 konur, að skoða þyrfti mál- | ið án tilfinningasemi. Ritzau, NTB, Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.