Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1995, Qupperneq 9
JjV LAUGARDAGUR 18. NÓVEMBER 1995
9
húsmóðir
I september síöastliðnum
var stór stund í lífi dönsku
stúlkunnar Jeanette
Grenborg því þá lét hún
skíra tveggja mánaða gamla
dóttur sína í kirkjunni í
heimabæ sínum. Þá var ekki
nema ár liðið frá þvi að Jea-
nette var fermd í sömu
kirkju í Kvaglund við
Esbjerg.
Jeanette, sem er 15 ára, er
nú í barneignarfríi frá
gnmnskólanum. Hún hefur
engan tíma til að sinna lexí-
um því hún hefur nóg að
gera við að sinna litlu dótt-
urinni, Helenu Emiliu.
Unnusti Jeanette, Kenn-
eth Olesen, er 17 ára. Hann
heldur áfram námi en síð-
degis starfar hann sem send-
ill til þess að þéna nokkrar
krónur handa fjölskyldunni.
Kenneth dreymdi um að
verða stýrimaður og sigla
um heimsins höf en nú get-
ur hann ekki hugsað sér að
yfirgefa fjölskylduna. Hann
stefnir nú að því að verða
smiður.
Foreldrarnir nýbökuðu
hafa verið kærustupar í þrjú
ár. Þegar Jeanette varð
barnshcifandi vildi móðir
hennar að hún léti eyða
fóstrinu. Jeanette flutti í
staðinn heim til Kenneths.
Núna býr litla fjölskyldan i
íbúð sem sveitarfélagið hef-
ur útvegað. Fjölskyldur
beggja styðja nú við bakið á
þeim.
Sveitarfélagið hefur
myndað hóp fólks með sér-
þekkingu sem styðja á við
bakið á foreldrum á táninga-
aldri. Margar stúlkur á þess-
um aldri vita ekki hvað það
þýðir í raun og veru að vera
móðir. Þær hafa ef til vill
gætt lítilla systkina eða
starfað við barnagæslu. Það
er hins vegar allt annað en
að bera alla ábyrgð sjálfur á
uppeldi bams. Jeanette þyk-
ir gott að geta leitað til
stuðningshópsins og síðustu
mánuði meðgöngutímans
starfaði hún á vöggustofu.
Reyndar sýna rannsóknir
að fæðingum táninga fækk-
ar i Danmörku. Vegna mik-
ils atvinnuleysis hefur það
orðið mikilvægara fyrir
ungt fólk að mennta sig og
reyna að fá sér vinnu áður
en það stofnar fjölskyldu.
Getnaðarvarnir og fóstur-
eyðingar eiga einnig sinn
þátt í fækkun barneigna
meðal táninga.
Jeanette og Kenneth njóta
þess að vera orðin foreldrar
og vilja miklu heldur vera
heima hjá litlu dótturinni en
að fá sér bamapíu til að geta
farið út á kvöldin.
Kenneth og Jeanette með litlu dótturina, Helenu Emilíu,
6. kynslóðin af Honda Civic, árgerð 1996, býður meiri geeði,
meiri kraft og meira rými fyrir þig og farþega þína en afmennt
stendur til boða á markaðinum í dag. Verðið, sam skiptir okkur
öli míklu máli á tímum þrenginga, mun koma þér verulega á óvart
’
sími 568 9300