Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1995, Side 13

Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1995, Side 13
jLlV LAUGARDAGUR 18. NÓVEMBER 1995 sviðsljós Jólapakkar til Norðurlanda Sími 525 7000 x Afhendingarstaður: Nýjasta súperfyrirsætan: Alltof grönn Nýjasta stjaman í fyrirsætuheim- inum heitir Jodie Kidd og er sautján éira. Reyndar þykir sumum hún vera alltof grönn og er talað um að hún eigi við vandamál að stríða í því sambandi. „Ég er orðin leið á að hlusta á fólk tala um matarvenjur mínar,“ segir fyrirsætan. „Ég borða bara eins og aðrir. Þó ég hafi góða matarlyst er fólk alltaf að bendla mig við anorexíu," segir hún. Jodie Kidd, sem er 185 cm há, vegur að- eins 57 kíló. „Vandamálið er að ég vinn alltof mikið og stundum má ég varla vera að því að borða nokkra daga í röð,“ segir Jodie, sem viðurkennir að hún reyki líka einn pakka af sígarettum á dag. Fyrir stuttu var því haldið fram að ef hún héldi áfram að grennast gæti það skaðað feril hennar. „Hún er alltof mjó og hún veit það,“ segir faðir hennar, Johnnie Kidd. Þess vegna hefur hún hafnað þátttöku í nokkrum tískusýningum í New York og býr nú í foreldrahúsum til að reyna að ná ffieiri vigt. Jodie Kidd hefur verið áberandi í Bretlandi og þar hafa skapast mikl- ar umræður og fyrirsætustörf og óheilbrigt líferni. Á nýafstaðinni tískuviku í París, þar sem Jodie var á sviði, var mikið rætt um hvort það væri réttlætanlegt að svo grönn stúlka ætti að vera fyrirmynd ungl- inga. „Það er mikil pressa á ungar stúlkur að þær eigi að vera grannar. Tískuheimurinn hefur komið þessu inn hjá þeim og margar taka það mjög alvarlega,“ segir Lucy Daníels, breskur næringafræðingur. „Það er orðið hættulegt þegar ungar stúlkur eru famar að svelta sig til að líkjast þessum ungu fyrirsætum." Jodie Kidd er alltof grönn og um hana hafa spunnist miklar umræð- ur í Bretlandi. Útflutningur - Sundahöfn, hlið nr. 3 (norðanmegin). Tekið verður á móti pökkum 1., 4. og 5- desember frá kl. 8.00 til 14.00 og 6. desember frá kl. 8.00 til 12.00. Brottför skips frá Reykjavík 7. desember 1995. Áætlaðir komudagar: Árósar-13. des. Kaupmannahöfn - 14. des. Helsingborg - 14. des. Gautaborg - 15. des. Fredrikstad - 15. des. Látið móttakendur vita um áætlaðan komudag skips því sækja þarf pakka þann dag í samráði viö skrifstofu eða umboðsmann Eimskips í viðkomandi landi. Pökkun og merkingar: Merkja þarf pakka vel með nafni móttakanda, fullu heimilisfangi, síma og upplýsingum um verðmæti jólapakka í gjaldmiðli viðkomandi lands. Leyfilegt verðmæti er misjafnt eltir stöðum: • í Árósum - 360 danskar krónur fyrir hverja sendingu. • í Kaupmannahöfn - engin ákveðin upphæð. • Helsingborg/Gautahorg - 45 ECU fyrir hvem jólapakka í kassa. Skrifa skal stykkjaljölda utan á kassa.* • Fredrikstad - 200 norskar krónur fyrir hverja sendingu. Ef um matvöru er að ræða krefjast tollyfirvöld erlendis heilbrlgðisyfirlýsbigar. Vottorð/yfirlýsingar eiga að fást í viðkomandi verslun. • Sérstök tollafyrirmæli gilda fyrir Svíjsjóð, vinsamlega fáið nánari upplýsingar lijá Útflutningsdeiid Eimskips, sími 525 7230. Frá Norðurlöndum til íslands Áætluð brottför skips frá: Árósum - 6. des. Kaupmannahöfn - 7. des. Helsingborg - 7. des. Gautaborg - 8. des. Fredrikstad - 8. des. Skrifstofa Eimskips/umboðsmaður DFDS, sími 89 347474 DFDS, sími 43 203040 Anderson Shipping, sími 42 175500 Eimskip Gautaborg, sími 31 124545 Anderson & Morck, sími 69 358500 Áætlaður komudagur til Reykjavíkur - 13. des. Áríðandi er að pökkum sé skilað til vöruafgreiðslu í viðkomandi höfn a.m.k. 2 dögum fyrir brottför skips. Verðmæti hvers pakka má vera allt að 3.000 kr. EIMSKIP

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.