Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1995, Qupperneq 14

Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1995, Qupperneq 14
14 LAUGARDAGUR 18. NÓVEMBER 1995 JjV „Það halda margir að við séum eitthvað skrýtin, sérstaklega hér í okkar heimabæ. Engu að síður leit- ar fólk mikið til okkar og við lifum nú á þessu. Við höfum ferðast um landið og haldið miðilsfundi sem hafa verið mjög vel sóttir auk þess sem ég hef starfað tvo daga í viku hjá Sálarrannsóknarfélagi íslands," segir Bjarni Kristjánsson, transmið- ill í Reykjanesbæ, en hann og eigin- kona hans, Erna Lína Alfreðsdóttir læknamiðill, hafa haft nóg að gera á undanfórnum tveimur árum. Það er ákaflega sjaldgæft að hjón vinni saman sem miðlar og margir telja að það sé ekki heppilegt. Þau Bjami og Erna láta þó allt slíkt sem vind um eyru þjóta og halda sínu striki. „Það var hún sem hvatti mig á þess- ari braut og hefur verið stuðnings- aðili minn og mér finnst betra að vita af henni þegar ég fell í trans en einhverjum óviðkomandi,“ segir hann. Bjarni segist hafa fundið fyrir því þegar sem barn að hann væri skyggn. „Ég var hræddur við þetta og reyndi að bægja því frá mér. Það var ekki fyrr en löngu seinna að ég fór að virkja þennan hæfileika minn. Þegar ég var tíu ára gamall fór ég að sjá fólk, sem ég vissi að væri ekki lifandi, og varð mjög hræddur. Ég gat ekki taiað um þetta Bjarni Kristjánsson er 42 ára og hefur haft skyggnigáfu frá því hann var barn. Það er hins vegar stutt síðan hann hætti að hræðast þennan hæfileika sinn. Miðlar vilja stofna samtök sín á milli: þörf fyrir að tala og ræða sín vanda- mál. Við getum kannski ekki lækn- að alvarlega sjúkdóma en við getum veitt andlegan stuðning. En við get- um auðvitað aldrei gert öllum til hæfis - þá væri maður fullkominn. Ég reyni bara að gera þetta eins vel og ég get og veit að margir hafa fengið bót.“ - Núna virðist óvenjumikill áhugi á andlegum málefnum á íslandi. Er einhver ástæða fyrir því? „Ég veit það ekki. Mér finnst sjálf- um þetta vera orðið fullmikið. Þetta er orðið miklu meira heldur en þessar gömlu aðferðir sem alltaf hafa þekkst eins og sambands- eða skyggnilýsingafundir og síðan handayfirlagning. Núna er þetta heilun, kristalsheilun og fleira og fleira og það ruglar fólk. Ég hef þá trú að þetta hafi ekkert breyst í raun og veru heldur eru hlutirnir kallaðir öðrum nöfnum." Óprúttnir náungar - Mjög margir aðilar virðast finna hjá sér hvöt til að starfa við andleg málefni. Er ekki hætta á að óprúttið fólk sjái þarna hagnaðarleið og er það einhver gæðastimpill að miðlar séu í Sálarrannsóknarfélögum? „Það geta ekki allir starfað sem miðlar hjá Sálarrannsóknarfélög- Fannst óhugnanlegt að lána líkama minn - segir Bjami Kristjánsson transmiðill sem hefur verið að þráa skyggnigáfu sína á undanförnum árum við neinn og varð því að bera þenn- an ótta. Móðir mín var sjálf næm en hún ýtti því frá sér og vildi aldrei ræða þessa hluti. Ég missti föður minn þegar ég var tólf ára og þá varð ég enn meira var við þessa hluti. Erfið æska Ég ólst upp við mjög erfiðar að- stæður. Faðir minn var drykkfelld- ur og þekktur hér í bæjarlífinu vegna þess. Vegna 'erfiðra heimilsá- stæðna var ég sífellt í vörn gagnvart skólafélögum, kennurum og öðru fólki. Ég varð fyrir einelti vegna fóð- ur míns og sífelldum árásum. Á unglingsárunum og fram yfir tví- tugt var ég sjálfur drykkfelldur. Ég þakka það konunni minni að ég komst yfir það og steinhætti öllu slíku þegar viö byrjuðum að búa. Mér fmnst samt, því miður, eima af því enn þann dag í dag að ég sé stimplaður af fólki. Margir eru dóm- harðir í þessu þjóðfélagi og það er eins og fólk, sem lent hefur á villi- götum, hafi enga möguleika á að hefja nýtt líf,“ segir Bjarni. „Ég er sannfærður um að skyggnigáfa mín truflaði mig á vissu tímabili þó ég gerði mér ekki grein fyrir því. í rauninni var ég orðinn þess fullviss að ég væri eitt- hvað bilaður og þegar ég ræddi það við kunningjana var bara hlegið að mér. Strax þegar ég var. fimmtán ára fór ég að detta út og það gerði mig dauðhræddan. Á þessum árum var þessi reynsla martröð. Ég vissi ekkert hvað þetta var og leið fyrir það. Þegar ég varð sautján ára hætti ég að finna fyrir þessu og það var mikill léttir. Ég veit ekki af hverju þetta hætti en tel að einhver hafi tekið í taumana og þannig hjálpað mér. Hins vegar byrjaði þetta aftur þegar ég var 26 ára gamall en á allt annan og þægilegri hátt. Fannst andatrú della Á þeim tima fór ég að hugleiða meira þessa gáfu mínu og velta fyr- Það er óvenjulegt að hjón starfi saman að andlegum málefnum en það gera þau Bjarni og kona hans, Erna Lína Aifreðsdóttir. DV-myndir Brynjar Gauti ir mér hvernig ég ætti með hana að fara. Ég hafði aldrei farið til miðils, fannst þessi andatrú bara della en lét þó verða af því fyrir hvatningu frá Ernu. Ég hitti sænskan miðil, Thorstein, og hann ráðlagði mér að fara í bænahring enda sá hann vel hversu næmur ég var. Eftir að ég lærði að takast á við þetta fannst mér færast ró yfir mig og mér fór að líða betur. Þá fór ég aftur að finna fyrir þessum hæfileika mínum, aö falla í trans, og ræddi það við aðra miðla. Ég þurfti að þjálfa mig upp og gerði það fjögur til fimm kvöld í viku í nokkur ár. Erna hjálpaði mér mikið í gegnum þetta og það fólk sem sat með mér í bænahring enda komu aldrei upp nein vandamál. í fyrstunni fór ég í bænahring með það markmið, eins og þeir eru upp- byggðir, að biðja fyrir þeim sem eiga erfitt og senda orku til þeirra. Síðan var þetta orðið bæna- og hug- leiðsluhringur. Ég fór síðan að finna fyrir þeim sem vildu koma í gegn en var alls ekki tilbúinn að taka á móti. Maður þorir ekki að sleppa sér í þetta fyrr en maður er tilbúinn. Mér fannst það svolítið óhugnanleg til- hugsun að lána búkinn á mér til þeirra sem látnir eru og hugsaði mikið um hvort það gæti gerst að maður kæmi ekki til baka. Eftir að ég hafði verið fullvissaður um að slíkt gerðist ekki fór þetta að ganga ágætlega þó ég þyrfti tíma til að þróast. í fyrstu var þetta svolitið óagað en síðan kynntist maður smám saman sínum leiðbeinendum." Mörgum líður illa Á þessum árum starfaði Bjami á Keflavíkurflugvelli en stundaði bænahringina á kvöldin. Það eru um tvö ár síðan hann byrjaði að stunda miðilsstörf af full- um krafti. „Ég byrjaði á því að vinna sem læknamiðill meðfram mírium störfum og reyna þannig að hjálpa fólki. Það gekk mjög vel og ég tel að margir hafi fengið bót meina sinna. Þetta vatt síðan upp á sig og ég var í þessu öll kvöld og helgar þannig að ég átti aldrei frí. Ég varð því að taka ákvörð- un um hvort ég ætti að gera þetta að mínu aðalstarfi. Núna starfa ég hjá Sálar- rannsóknarfélaginu hér í Keflavík og í Reykjavík, síðan hef ég farið víða um land að beiðni félaga þar. Þetta er slítandi starf og getur verið mjög erfitt. Ég hefði aldrei trúað því hversu margir það eru í rauninni sem líður illa í þessu þjóðfélagi. Margt fólk er mjög langt leitt and- lega og það kemur til að fá stuðning og hjálp." Mikill áhugi - Hvernig getur þú hjálpað þessu fólki? „Ég geri það ekki sjálfur heldur er ég notaður sem farvegur fyrir fólk að handan. Ég stunda transheil- un og þá kemur læknir í gegnum mig og ræðir við fólkið. í rauninni er þetta bara orka sem er notuð til að hjálpa fólki. Einnig hafa margir um. Þessi félög hafa verið að reyna að koma því þannig fyrir að þau beri ábyrgð á sínu fólki. Við höfum gengið í gegnum skóla hjá enskum miðli í sambandi við lækningarnar til að öðlast þau réttindi sem gefin eru út á Bretlandi. Þar í landi er þetta viðurkennt fag og læknamiðl- ar fá að starfa á sjúkrahúsum og innan heilbrigðisgeirans hafi þeir þessi réttindi. Hér á landi getur hins vegar hver sem er komið fram og sagt að hann sé læknamiðill. Sálar- rannsóknarfélögin hafa verið með það til skoðunar að stofna miðla- samtök og menn hafa komið saman til að ræða það. Þá verður hægt að ábyrgjast fólk sem starfar við þetta að einhverju leyti. Því miður hefur það komið fram hér sem annars staðar að óprúttið fólk stundar þetta í hagnaðarskyni." - En er það einungis sjúkt fólk sem leitar til miðla? „Nei, alls ekki. Þaö er fólk úr öll- um stigum þjóðfélagsins, margt kemur bara af forvitni. Sumir eru að leita að einhvers konar sönnun fyrir því að líf sé eftir þetta líf en aðra langar að frétta af ömmu og afa. Við viljum þó helst ekki fá fólk undir átján ára til okkar nema með samþykki foreldra." Andar á Suðurnesjum - Svo virðist sem margir miðlar starfi hér suður með sjó. Eru fleiri andar á sveimi hér í kring en ann- ars staðar á landinu? „Ég hugsa að það séu misjafnir straumar í kringum byggðarlög og við höfum fundið það á feröum okk- ar um landið. Það er örugglega meiri áhugi hér en víðast annars staðar. Þegar mest var voru 1.800 manns skráðir félagar í Sálarrann- sóknarfélaginu hér. Hins vegar vildi enginn prestur hér vígja nýtt hús- næði Sálarrannsóknarfélagsins þeg- ar við óskuðum eftir því og það er enn óvígt," segir Bjarni Kristjáns- son transmiðill en segir það þó ekki skipta máli. - ELA
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.