Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1995, Page 18
18
LAUGARDAGUR 18. NÓVEMBER 1995 DV
Dagur í lífi Magnúsar Jónssonar veðurstofustjóra:
if
Fárviðri" á veðurstofu
flóöaskýrslu sem gerð hefði verið
um ástand snjóflóðamála á íslandi
árið 1984. Væri ég þar heimildar-
maður og sagt að í skýrslunni
kæmi fram að gert hefði verið
norskt hættumat fyrir Flateyri.
Þetta var upphafið að einu
mesta fjölmiðlafári sem ég hef upp-
lifað, fárviðri af sáralitlu tilefni og
að langmestu leyti byggt á umræð-
um um hluti sem ég hélt að allir
væru meðvitaðir um eftir þær
hörmungar sem yfir okkur hafa
dunið á þessu ári.
Eftir að hafa svarað nokkrum
spurningum Gissurar fór ég í
venjuleg árdegisverk: sturtu, rakst-
ur, klæðnað og morgunteið. Auk
þess fórum við hjónin að búa son-
arsoninn út í skólann en hann
hafði verið hjá okkur þessa helgi.
Fór ég með hann í Vesturhlíðar-
skólann á leið minni á Veðurstof-
una.
Rauðglóandi sími
Þegar þangað kom fór ég að und-
irbúa fund sem allstór hópur
starfsmanna var boðaður til vegna
gagnagrunnsmála á stofnuninni.
Hófst hann klukkan tíu og stóð
fram að hádegismat en þar náðist
góð niðurstaða.
Meðan á fundinum stóð hafði
þoka lagst yfir en fyrr um morgun-
inn haföi heiðríkjuhiminninn
skartað sínu fegursta bæði heima í
Grafarvogi og einnig á Öskjuhlíð-
arhálendinu þótt þoka væri í vest-
urbænum.
Um leið og ég fór í matinn sagði
Katrín fulltrúi minn að síminn
hefði verið rauðglóandi þar sem
flestir fjölmiðlar landsins vildu fá
að ræða þessa óformlegu norsku
skýrslu. Eftir hádegismatinn byrj-
aði síðan ballið. Fjölmiðlar
hringdu eða komu með tæki og tól,
fyrst Bylgjan, síðan Tíminn, Stöð 2,
Morgunblaðið, Sjónvarpið og Rík-
isútvarpið. Ég sagði meira og
minna það sama við alla. Skýrslan
var álit norsks sérfræðings á því
hvernig við hefðum staðið að upp-
byggingarmálum á nokkrum stöð-
um síðustu áratugina í illskiljan-
legu andvaraleysi fram til 1985 er
skýrslan var gerð. Auk þess lýsti
ég þekktum skoðunum mínum á
því hvemig staðið hefði verið að
hættumatsmálum hjá okkur síð-
ustu sex til átta árin.
I körfubolta
Á milli „hryðjanna" reyndi ég að
ganga frá nokkrum bréfum og öðr-
um erindum bæði innan húss og
utan. Klukkan hálfsex komst ég
loks í að undirbúa sjónvarpsveður
sem var á minni könnu þetta
kvöld. Sem betur fer var spáin til-
tölulega einfold og tókst mér að
ljúka þessu og koma mér niður í
tvö kvöld í viku. Var stórkostlegur
léttir og útrás fólgin í því að
híaupa, bítast svolítið um boltann
og fara svo vel sveittur í sturtu á
eftir.
Ég var kominn heim klukkan
hálftíu og fékk mér þá síld, egg og
rúgbrauð í kvöldmat enda eigin-
konan og yngri sonurinn löngu
búin að borða. Eiginkonan var
reyndar farin á brigdenámskeið
hjá Guðmundi Páli Arnarsyni,
fyrrum heimsmeistara. Deginum
lauk svo með því að dóttir min og
ég horfðum á plöntuþátt Davids
Attenborough í Sjónvarpinu - okk-
ur til mikillar ánægju. Eg var kom-
inn í rúmið um klukkan hálftólf
þennan dag.
Mánudagurinn 13. nóvember
byrjaði með því að ég var vakinn
upp af símanum klukkan 7.20 og
var þar kominn Gissur Sigurðsson,
fréttamaður Rikisútvarpsins, að
spyrja um skýrsluna. Ég hváði í
svefnrofunum en hann sagði að DV
væri að greina frá norskri snjó-
Mikið fjölmiðlafár var í kringum Magnús Jónsson þennan dag.
Sjónvarp vel fyrir klukkan átta.
Eftir stutt viðtal í fréttum og
veðurfregnir var þessi vinnudagur
á enda og ég ók í hendingskasti
vestur í íþróttahús Vörðuskóla þar
sem við gamlir skólafélagar úr
Menntaskólanum á Akureyri kom-
um saman til að spila körfubolta
Finnur þu fimm breytingar? 333
Læknastofa Jóns, góðan dag. Já, frú Sigríður, taktu e>na magnýl og
ef það hrífur ekki hringdu þá aftur.
Nafn: _
Heimili:
Vinningshafar fyrir þrjú hundruð þrítugustu og
fyrstu getraun reyndust vera:
1. Elín Björk Magnúsdóttir 2. Ólöf Marteinsdóttir
Hraunbæ 72 Heiðarbraut 9a
110 Reykjavík 230 Keflavík
Myndirnar tvær virðast við
fyrstu sýn eins en þegar betur
er að gáð kemur í ljós að á
myndinni til hægri hefur
fimm atriðum verið breytt.
Finnir þú þessi fimm atriði
skaltu merkja við þau með
krossi á myndinni til hægri
og senda okkur hana ásamt
nafni þínu og heimilisfangi.
Að tveimur vikum liðnum
birtum við nöfn sigurvegar-
anna.
1. verðlaun:
TENSAI ferðaútvarp með kassettu, að
verömæti kr. 4.990, frá Sjónvarpsmið-
stöðinni, Síðumúla 2, Reykjavík.
2. verðlaun:
Úrvalsbækur. Bækumar sem eru í
verðlaun heita Líkþrái maðurinn og
Athvarf öreigans, úr bókaflokknum
Bróðir Cadfael, aö verðmæti kr. 1.790.
Bækumar eru gefnar út af Frjálsri
fjölmiðlun.
Vinningamir verða sendir heim.
Merkið umslagið meö lausninni:
Finnur þú fimm breytingar? 333
c/o DV, pósthólf 5380
125 Reykjavík