Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1995, Blaðsíða 26
26
-lent fréttaljós
LAUGARDAGUR 18. NÓVEMBER 1995 MV
Vísindamenn í Rússlandi reka upp ramakvein og biðja stjórnvöid um aðstoð:
Áfengisneysla hefur alltaf verið
mikil í Rússlandi og í Sovétríkjun-
um á meðan þau voru og hétu. Það
þótti ekkert tiltökumál og var jafn-
vel bara talið sjálfsagt að menn
fengju sér nokkur glös af vodka til
að hressa upp á grámyglulegan
hvunndaginn. Að minnsta kosti var
svo meðal rússneskra karla. Nú
munu Rússar um það bil að slá öll
fyrri met í áfengisdrykkju og hætta
er á að heil kynslóð vinnufærra
manna muni liggja í valnum í kjöl-
farið.
Á ráðstefnunni í Moskvu fóru vís-
indamennirnir fram á aðstoð ríkis-
valdsins við að bjarga lífi þjóðarinn-
ar.
„Hver einasti karlmaður á aldrin-
um þrjátíu til fimmtíu ára drekkur
næstum kvartlitra af vodka á dag og
dauðsfollum í þessum hópi hefur
fjölgað umtalsvert,“ segir vísinda-
maðurinn Al-
exander
Nemtsov
sem starfar -............." -
við opin-
bera áfeng-
ismála-
stofnun.
Hann
segir að
samhliða
aukinni
áfengis-
neyslu
fari
Borís Jeltsín Rússlandsforseti er frægur fyrir að þykja sopinn góður og hefur
framkoma hans við opinber tækifæri oft þótt benda til ótæpilegrar áfengis-
drykkju.
Slagandi drykkjumenn eru algeng sjón á götum rússneskra borga, algeng-
ari en nokkru sinni fyrr.
lífslíkur rússneskra karla lækkandi.
Á tæpum tíu árum, segir Nemtsov,
hafa lifslíkur karlanna lækkað úr
tæpum 65 árum í rétt rúm 57 ár.
Fleiri eiginkonur lamdar
og myrtar en áður
Nemtsov skorar á ríkisvaldið að
grípa þegar í stað í taumana. „Að-
eins langtímaaðgerðir á vegum hins
opinbera geta stöðvað þessa óheilla-
þróun,“ segir hann.
Nemtsov segir að atvinnuleysi og
upplausn allra gilda, samfara skorti
á félagslegri umönnun í hinu nýja
Rússlandi séu meðal
helstu ástæðnanna
fyrir gífurlegri
aukningu áfengis-
misnotkunar lands-
manna. Áfengissýkin
leiðir einnig til þess
að annað þjóðfélags-
böl eykst til muna.
Þar á meðal eru bar-
smíðar á eiginkon-
um. Nýlegar
upplýsingar sýna að önnur hver
manneskja sem var myrt í Rúss-
landi í fyrra var kona sem eigin-
maðurinn stútaði.
Haftastefna Gorbat-
sjovs
Míkhaíl Gorbatsjov, siðasti leið-
togi Sovétríkjanna sálugu, reyndi að
stemma stigu við vodkadrykkju
landa sinna á tímum perestrojkunn-
ar. Þá reiknaðist mönnum til að
meðalneyslan á hreinum vínanda
næmi tíu lítrum á ári.
Grobatsjov lýsti yfir stríði á
hendur ótæpilegri áfengis-
drykkju Sovétborgara árið
1985. Áfengi var skammtað,
verð þess var hækkað,
bannað var að veita áfengi
í veislum fyrirtækja og
veitingastaðir fengu að-
eins leyfi til að veita
vodka á ákveðnum tím-
um dagsins.
Lagt var blátt bann við
að drekka áfengi á öll-
um opinberum stöð-
um, í jámbrautarlest-
um og flugvélum og
öðrum almenn-
ingsfar-
artækjum. Vínviður var eyðilagður
í vínræktarhéruðunum og landið
flaut í áróðri gegn sopanum.
En boðskapurinn fór ekki vel í
rússneska karlmenn sem tóku til
við að bmgga í stórum stíl. Biðrað-
imar við þær fáu verslanir sem
seldu áfengi vora endalausar.
Hjá konunum var aftur á móti
annað hljóð i strokknum. Þær þökk-
uðu Gorbatsjov fyrir aðgerðir hans
og grétu af gleði. Það hefur líka sýnt
sig að meðallífslíkur rússneskra
karla, sem höfðu verið á niðurleið,
stóðu í stað á haftatímabilinu.
Slagandi um götur og torg
Þegar Sovétríkin liðuðust í sund-
ur hurfu hin félagslegu öryggisnet
þegnanna líka nánast eins og dögg
fyrir sólu. Hér áður fyrr gátu fylli-
byttur fengið ókeypis aðstoð til að
losna úr viðjum áfengissýkinnar en
í hinu nýja Rússlandi stendur
drykkjumaðurinn einn og yfirgef-
inn. Nú um stundir er ekki óvana-
legt að sjá slagandi heimilislausa
leppalúða á götum og torgum Rúss-
lands. Slík sjón var óhugsandi fyrir
ekki svo mörgum árum. Áfengi og
sígarettur kosta lítið
í Rússlandi, að
minnsta kosti mið-
að við verð á lífs-
nauðsynjum eins
*
V.
■-•
■
og mat. Hálfur lítri af venjulegu
vodka kostar mUli fimm og tíu þús-
und rúblur en það svarar til um sjö-
tíu til 140 íslenskra króna. Tvö
brauö kosta næstum því jafn mikið.
Og á sama tíma og áfengisverð helst
stöðugt, hækkar verð á brauði.
Ríkisbrugghúsin hafa þurft að
halda í við sig með verðhækkanir á
framleiðslu sinni þar sem markað-
urinn yfirfyllist bara af ódýru inn-
fluttu brennivíni, sem oftastnær er
smyglað til landsins.
Sænska vodkað Absolut fæst í
annarri hverri sjoppu í Rússlandi
og hefur selst grimmt, þótt verðið á
því sé allnokkru hærra en á inn-
lenda miðinum.
Byggt á TT
Míkhaíl Gorbatsjov, síðasta leiðtoga
Sovétríkjanna, blöskraði drykkju-
skapur landa sinna og reyndi að
Borís Jeltsín Rússlandsforseta
þykir sopinn góður. Að minnsta
kosti segir almannarómur það og í
bæði blöðum og sjónvarpi hafa birst
myndir af forsetanum þar sem hann
er greinilega glaður og hreifur. En
Jeltsín er ekki eini Rússinn sem
þykir gaman að kikja í glas heldur
er heil kynslóð rússneskra karla á
góðri leið með að drekka sig í hel.
Það er að minnsta kosti álit rúss-
neskra vísindamanna sem ráku upp
ramakvein á ráðstefnu um áfengis-
sýki í Moskvu í vikunni.
Vísindamennimir halda því fram
að brennivínsfaraldur sé hreinlega
að gera út af við Rússland. Meðalr-
ússinn drekkur ijórtán og hálfan
lítra af hreinum vínanda á ári
hverju, hvorki meira né minna, og
árlega deyr rúmlega kvartmilljón
manna af áfengismisnotkun.
Nokkur vodkaglös á dag
IZ»'