Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1995, Page 37

Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1995, Page 37
T>~Vy LAUGARDAGUR 18. NÓVEMBER 1995 45 Ásamt Ericu Schön í herútvarpinu í Mílanó á árum seinni heimsstyrjaldar. Hún var vinkona SS-foringja og lét lífið í fyrirsát andspyrnuhreyfingarinnar. hurðinni upp. Á meðan þessu fór fram söng Pagliughi „Alfre-e-e-do“ og hélt háa tóninum svo lengi að gekk út yfir allt velsæmi í þeirri von að ég væri þrátt fyrir allt skammt undan. Það vildi til að hún hafði framúrskarandi rödd. Móður af hlaupunum strunsaði ég að lokum inn á sviðið og tók bjargvætti mína ástúðlega í fang mér. Oft hefur Violetta þráð endurkomu Alfredos síns en sjaldan eins heitt og þá. Óblíð meðferð á mót- söngkonu Pagliughi hafði gott skopskyn. Og það var kannski eins gott þegar við fluttum sömu óperu kvöld eitt í Pa- via. Pagliughi var fjarska digur kona og lágvaxin í þokkabót. Þegar hún hlassaöi sér niður á legubekk- inn til þess að syngja með mér tví- sönginn Parigi, o cara spruttu stálfjaðrimar út úr bekknum svo að söng í. Hún sökk svo djúpt ofan í dívaninn að fætur hennar stóðu upp í loftið og hún gat sig hvergi hreyft. Ég reyndi mitt ýtrasta til þess að koma henni á réttan kjöl samtímis því sem við sungum en gat ekki bif- að henni. Að tvísöngnum loknum reis ég upp og beitti til þess öllum kröftum að kippa henni á fætur. Var það fremur óblíðleg meðferð á konu sem átti að liggja banaleguna. En - þó að Pagliughi væri sannfærandi leikari trúði því enginn hvort sem var að hún væri að deyja úr tær- ingu. í útvarpi þýska herliðsins Næst er litið í kafla þar sem rak- in era störf Sigurðar - eða Vincenz - Demetz fyrir útvarp þýska hemá- msliðsins í Milanó á árum síðari heimsstyrjaldarinnar. Þá voru hætt- ur á hverju götuhomi. Dag nokkum fékk ég kort í pósti frá höfuðstöðvum SS i Bolzano í Suður-Tiról. Það flutti skelfilegar fréttir. Mér var skipað i herlögreglu- sveit sem senda átti til Júgóslavíu. Þjóðverjarnir virtu að vettugi ítalsk- an þegnrétt minn og töldu alla Suð- ur- Tíróla til þýsku þjóðarinnar. Auk þess tóku þeir ekkert tillit til starfs míns við útvarpið. Ég leitaði á náðir trúnaðarlæknisins í þýska sendiráðinu í Mílanó og lagði ríkt á við hann að fá þessari skipun breytt. Ég rakti fyrir hann rauna- söguna af sjúkdómum mínum og hrakförum og klykkti út með að ég væri ómissandi útvarpinu eins og sakir stæðu. „Gerið eins og yður þykir rétt,“ sagði ég að lokum og kvaddi. Ég beið úrlausnar milli vonar og ótta í þrjá óhemjulanga daga. Frank höfuðsmaður lagði sig einnig í fram- króka við að leysa mig undan hem- aði í Júgóslavíu. Honum kom til hugar að senda mig til Potsdam til þjálfunar í stríðsáróöri í staðinn. En góðu heilli kom aldrei til þess. Sendiráðslæknirinn fékk skipun- inni breytt á þann veg að ég gegndi herskyldunni á mínum stað í út- varpinu í Mílanó. Þungu fargi var af mér létt. Síðar heyrði ég að kempur Títós hefðu klófest hér um bil alla í nefndri herlögreglusveit og drepið á grimmúðlegan hátt. Likin voru skorin í ræmur. Blóðugur skrípaleikur Dauðinn var ætíð nálægur á ítal- íu einnig. Fasistar af hvora tveggja þjóðerni skutu undanbragðalaust þá sem grunaðir voru um andóf. Rétt- arhöld þessa tíma voru blóðugir skrípaleikir. Allt varð það vatn á myllu andspyrnuhreyfingarinnar sem óx fiskur um hrygg og gerði hemámsliðinu æ oftar alvarlegar skráveifur. Erica Schön hét ung og falleg stúlka sem söng óperettulög með mér í útvarpið. Hún var vinkona SS- foringja og endaði líf sitt í bifreið með honum þegar þau lentu í fyrir- sát. SS-foringinn sagði henni að beygja sig undan kúlnadrifunni en forvitnin varð skynseminni yfir- sterkari. Erica gægðist út um glugg- ann og fékk kúlu beint í ennið. Hennar var sárt saknað á útvarpinu. Nasistar hegndu iðulega alþýð- unni fyrir aðgerðir andspymunnar. Nöturlegt dæmi um það sá ég við Loreto-torg. Skólabróðir minn, Vict- or Muik, starfaði á skrifstofum þýska flughersins á hótel Loreto við torgið. Dag einn hringdi hann í mig og var óðamála. Hann bað mig að hraða mér til sín. Ógnvekjandi at- burðir hefðu átt sér stað. Lymskufullt tílræði Nokkrum dögum áður h'afði tveimur vöruflutningabílum frá Pirelli verið ekið inn á torgið. Und- ireins og bílarnir vora í námunda við þýska hermenn sprakk annar þeirra í loft upp með þeim afleiðing- um að nokkrir lágu óvígir eftir á götunni. Þegar fleiri hermenn dreif að til hjálpar félögum sínum sprakk síðari bíllinn í tætlur. Fimmtán þýskir hermenn létu lífið í þessu lymskufulla tilræði. Nasistamir urðu æfir af bræði og vildu tafarlaust skjóta tíu óbreytta borgara fyrir hvern einn sem fallið hafði úr þeirra röðum. Schuster kar- dináli í Mílanó beitti sér af harð- fylgi gegn þeirri fyrirætlun. Eftir ákaflega ógeðfellt samningastapp upp á lif og dauða fjölda ókunnra manna urðu lyktir þær að nasistar létu sér nægja að drepa einn fyrir hvern sinna. Snemma að morgni þess dags sem Victor Muik bað mig að koma hafði langferðabifreið rannið inn á torgið og staðnæmst fyrir framan bensín- stöð. Um borð voru fimmtán póli- tískir fangar. Föngunum var í skyndingu skipað út og þeir síðan skotnir meö vélbyssu. Þegar mig bar að garði var fjöldi fólks aö skoða líkin sem lágu í einni kös skammt þar frá á bak við grindverk. Ég hitti vin minn sem var klæddur herbún- ingi og saman gengum við inn fyrir. Þar blasti við okkur hræðileg sjón, líflausir og blóðugir líkamar óbreyttra borgara, þar á meðal ein kona. Mig klígjaði við grimmdinni og þeirri lítilsvirðingu að skilja lík- in svo hirðuleysislega eftir á göt- unni fyrir allra augum. En til þess var leilcurinn gerður. Á þessum stað strengdi ég þess heit að gerast aldrei áhangandi stjórnmálaflokks. Ég skyldi aldrei nokkurn tíma treysta orðum stjórn- málamanns. Ógleði og hlátur Frændi minn, Martin, gegndi her- þjónustu í Tórínó. Ég fór að kveðja hann áður en ég flýði. Við erum þre- menningar og höfðum fylgst að á yngri árum og margt brallað saman, nánast eins og bræður. Einu sinni reyndum við að láta okkur vaxa yfirskegg með því að smyrja eggjar- auðu á efri vörina og stinga hænsnaskít upp i okkur. Þetta var okkur sagt að væri óbrigðult ráð en höfðum ekki annaö upp úr því en ógleði og hlátur feðra okkar - og það þötti okkur sárast. Það var líka Martin sem ornaði sér um nótt í köldu fjósi uppi í fjöllum með því að sitja undir halanum á kúnum og bíða þess að þær léttu á sér. Martin dó aldrei ráðalaus. Nú varaði hann mig við hættum á leiðinni til Mílanó og fékk mér í hendur pinkil með hlaðinni skammbyssu, tveimur handsprengjum og niðursuðudósum með kjöti. „Kæri vinur, þetta endar með ósköpum," sagði ég. „Ég kann ekkert með svona lagað að fara, varpa dósunum á óvininn en spæni upp í mig úr handsprengjunum.“ Legið í leyni Ferðin til Mílanó var áfallalaus og ekki kom til þess að ég þyrfti veganestisins með. Starfsmenn út- varpsstöðvarinnar voru í óðaönn að hlaða senditækjum, hljóðnemum, hljómplötum og þviumlíku upp á pallbíla og vora í þann veginn að flýja norður til Bolzano. Ég dreif mig í að taka saman foggur mínar og slóst í för með þeim. Um leið og myrkur datt á lögðu bílamir af stað úr borginni. Þetta voru þrír stórir vöruflutningabílar, hver meö sinn tengivagn aftan í sér og grá segl til hlifðar strengd yfir pallana. Ég sat ásamt Frank höfúðs- manni og fleirum í tengivagninum aftan í þeim bíl sem ók í miðið. Við höfðum ekki ekið lengi úti á þjóð- vegum þegar við kváðu skot úr gelt- andi hríðskotabyssum. Bíllinn sem fór fyrir þessari yfirlætislausu lest hökti lítið eitt áfram og staðnæmd- ist. Þaðan heyrðist ekki framar hljóö. í daufri birtunni frá luktum þessa fremsta bíls gátum við virt fyrir okkur aðstæður. Skotið var handan yfir kirkjugarðsvegg þar sem kröpp beygja var á veginum og nauðsynlegt að hægja ferðina. And- spymuhreyfingin hefði ekki getað valið sér betri stað fyrir launsátur. Treyst á forsjónina Pallbíllinn á eftir okkur sneri við þegar árásin hófst. En við voram komnir nær og áttum þess engan kost. Líf okkar var nú í höndum hins tvítuga hermanns sem ók bíln- um. Þótt ungur væri dignaði hann ekki á raunastund. Hann bakkaði bilnum fáeina metra og lagði á minnið hvemig aka ætti eftir gagn- stæðri akrein, fram hjá kyrrstæða bílnum í beygjunni og með fram kirkjugarðsveggnum þar sem and- spyrnumennirnir biðu með byss- umar skotklárar. Hann treysti á for- sjónina, beygði höfuð sitt djúpt nið- ur, steig bensíngjöfina í botn og branaði blindandi fram á veginn. Samstundis urðum við fyrir þindar- lausu kúlnaregni. Frank höfuðsmað- ur skipaði okkur að skjóta allt hvað af tæki og kasta handsprengjunum. Ég þreif upp skammbyssuna sem Martin hafði gefið mér, rak hana út undan hlífðarseglinu og tæmdi úr henni út í bláinn. Svo lagðist ég flat- ur á pallinn og hélt fyrir eyrun því að hávaðinn ætlaði alveg að æra mig. Ferðatöskur og kassar með út- varpstækjum sviptust á loft þegar vörubíllinn snerist harkalega í beygjunni og tók svo snöggt við- bragð á beinum vegarkafla og þaut urrandi áfram. Skotgnýrinn fjar- lægðist að baki okkur og við vorum hólpin. Þegar hirti af degi grandskoðaði ég vörubílinn. Hann var götóttur eins og svissneskur ostur eftir-skot- bardagann og var röð vélbyssu- kúlna á kafi í jámþilinu aftan við bílstjórasætið. Sá sem öllu ræður vildi bersýnilega lofa hermanninum unga að lifa ögn lengur. Raunar var mikil mildi yflr okkur öllum því að engan sakaði. Með vasahnífnum mínum kroppaði ég eina kúluna úr bílnum og geymdi til minja. Þann dag allan létum við fyrirberast í skugganum af kastaníutré og ókum aðeins i skjóli nætur. (Ath.! Millifyrirsagnir era blaðs- ins) HUSGAGNA 2ja sæta sófi • áður 98.000 Áður 48.800 NU 69.000 NU 39.000 Sófi - áður 63.600 - NU 47.700 Stóil - áður 44.800 - NÚ 33.600 Borð - áður 27.600 - NÚ 13.800 Hnattbar áður 19.800 NÚ 15.800 Hornskápur áður 32.800 - NÚ 16.400 NU 19.800 Stórir spealar 1 80x8Q. cm. áour 72.800 1 1 140x90 áður 29.500 VSJ Ú 1 4.800 Spegili - áður 7.700 NÚ 5.800 Bókaskápur á hjólum Hilla - áður 4900 ýjur 33,800. NÚ 29.100 NÚ 2400 QuvÖshovit^m^^ Öll bast húsgögn 50% afsl. v/Fossvogskirkjugarð, s. 55 40 500

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.