Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1995, Page 44

Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1995, Page 44
52 LAUGARDAGUR 18. NÓVEMBER 1995 JjV - viðtal við unga menn sem hafa opnað tvær herrafataverslanir á einu ári Eftir á að hyggja segja þeir sig ekki hafa órað fyrir því, fyrir hálfu öðru ári, að þeir myndu fara út í verslunarrekstur þremur mánuðum seinna. Annar er með BA-próf í stjómmálafræði en hinn í námi í Tækniskólanum. Sú varð hins vegar raunin með Hákon Hákonarson og Sigurjón Örn Þórsson sem vom að opna aðra herrafataverslun sína í Kringlunni, rúmlega einu ári eftir að þeir opnuðu herrafataverslun í Austurstræti. Á sama tíma gefa þeir fyrirtækjum og starfsmönnum þeirra leiðbeiningar um snyrti- mennsku i klæðaburði, sjá um dag- legan rekstur útgerð, auk þess að sjá um sölu loðnumjöls til fjarlægra landa. Fiskimjölsútflutningur og fatainnflutningur „Það var eiginlega fyrir tilviljun að við fórum út í þetta. Við byrjuð- um á að stofna fyrirtæki i júní í fyrra, áður en við vorum búnir að ákveða hvað við ætluðum að gera. Við vorum að'fást við flskimjölsút- flutning i félagi við annað fyrirtæki og vantaði eitthvað meira að gera. Síðan ákváðum við að fara að höndla með fatnað. Við fórum til Finnlands út af mjölviðskiptum og ákváðum að kaupa inn föt í leiðinni. Ekkert gekk í mjölviðskiptunum í þeirri ferð en við keyptum fatnað- inn. Fyrst ætluðum við að vera með póstverslun en fréttum svo af lausu verslunarplássi í Austurstræti, rétt hjá skrifstofunni okkar, og létum slag standa og ákváðum að opna herrafataverslun með vandaðan fatnað," segja Sigurjón Örn Þórsson og Hákon Hákonarson. Aðspurðir um af hverju fata- bransinn hafi orðið fyrir valinu, með það i huga að rekstur í þeirri grein hefur verið erfiður fyrir marga, segir Sigurjón það sama hvar fæti sé drepið niður, menn séu alls staðar að kvarta. „Þegar ákvörðunin lá fyrir hvem- ig rekstur við myndum fara út í kom í ljós að við höfðum valið þá leið sem við höfðum mesta reynslu af. Ég hafði starfað í herrafataversl- unum í fjölda ára með námi og jafn- vel tekið mér frí frá námi og unnið þá í herrafataverslun. Hákon hafði hins vegar töluverða reynslu af fyr- irtækjarekstri og skrifstofuhaldi. Þegar við sameinuðum svo krafta okkar varð niðurstaðan sú að þessi leið var farin. Það hefði verið erfitt að byrja á að flytja inn verkfæri, veiðarfæri eða annað slíkt vegna JÓLAGJAFA- HANDBÓK 1995 Miðvikudaginn 6. desember mun hin árlega jóla- gjafahandbók DV koma út í 15. sinn. Jólagjafahandbók DV hefur orðið æ ríkari þáttur í jólaundirbúningi landsmanna enda er þar að finna hundruð hugmynda að gjöfum fyrir jólin. Skilafrestur auglýsinga er til 24. nóvember en með tilliti til reynslu undanfarinna ára er auglýsendum bent á að hafa samband við Selmu Rut Magnúsdótt- ur eða Ragnar Sigurjónsson, auglýsingadeild DV, hið fyrsta í síma 550-5000 svo að unnt reynist að veita öllum sem besta þjónustu. ATH.! Bréfsími okkar er 550-5727. reynsluleysis okkar á því sviði. Á hitt ber líka að líta að rekstur herra- fataverslana hefur, eins og þú segir, verið erfiður undanfarið og nokkrar lokað eða dregið verulega saman seglin. Það er á svona tímum sem best er að komast inn á markaðinn," segir Sigurjón. Gripu gæsina Þeir segja að opnun verslunarinn- ar í Kringlunni sé í raun einu ári of snemma á ferðinni miðað við upp- haflegar áætlanir þeirra. Markaðs- aðstæður séu hins vegar þannig, sérstaklega í Kringlunni, að ekki sé hægt að vera of vandfýsinn á tíma. Þeir hafi nýverið heyrt af því að herrafataverslun í Kringlunni hafi verið að hætta og pláss væri því að losna. Þeir hafi því ákveðið að grípa gæsina á meðan hún gafst. Aldrei hafi verið að vita hvenær næsta tækifæri myndi gefast því aðeins viss fjöldi herrafataverslana sé heimilaður i Kringlunni hverju sinni. Eins og fyrr segir reka þeir félag- ar tvær herrafataverslanir í dag: Herrana í Austurstræti, þar sem lögð er áhersla á finan herrafatnað, og Bogart í Kringlunni þar sem áhersla er lögð á hversdagslegan en vandaðan herrafatnað. Nýverið gerðu Hákon og Sigurjón síðan samning við íslándsbanka um að leiðbeina karlkyns starfsmönnum eins útibús bankans í snyrti- mennsku í klæðaburði. Að sögn þeirra félaga kom þetta samstarf við bankann vel út og virðast allir vera ánægð- ir. Þeir segja samstarf af þessu tagi mjög þekkt í vandaðri verslunum er- lendis og þeir bjóði upp á þessa þjónustu í verslun sinni í Austur- stræti, Herrunum. Herrafataverslanir erlendis bjóði jafnan fyrir- tækjum upp á námskeið fyrir starfs- fólk þeirra i klæðaburði og snyrti- mennsku. Full- trúar frá versl- iminni kenni síð- an á námskeiðinu og starfsfólkinu sem krafist er að sé snyrtilegt i vinnunni, gefst síðan kostur á að kaupa sér föt í versl- uninni á sérkjör- um. „Þetta gengur út á það hvað mað- ur þarf að eiga í skápnum til að vera í góðum málum, hvað þarf að gera á morgnana til að manni líði vel og þeim sem starfa í kringum mann, hvernig á að raða saman fötunum sínum, kynna efni í fatnaði, stærðir og svo framvegis," segir Hákon. Eiga sár sterka bak- hjarla Auk þess að velkjast í tískunni á hverjum degi í tveimur verslunum þá sjá þeir félagar um skrifstofuhald og daglegan rekstur út- gerðarfyr- irtækis sem fjöl- skylda Hákonar á í félagi við aðra, Húnaröst hf., sem gerir út samnefnt nótaskip frá Hornafirði, auk þess að eiga hlut í loðnu- bræðslu á sama stað. En hvernig gengur að sameina svo ólíka hluti sem útgerð og herrafataverslunar- rekstur er? „í útgerðinni er bara þessi daglegi rekstur sem ég sé aðallega um. Sig- urjón sér meira um daglegan rekst- ur verslananna. Mjölsalan er sam- vinna við annað fyrirtæki þannig að þetta er að mestu skrifstofuvinna. Innkaupaferðir reynum við að sam- eina viðskiptaferðum fyrir útgerð- ina og mjölsölunni," segir Hákon. Aðspurðir um fjármögnun segjast þeir aldrei hafa getað þetta án þess að hafa fjárhagslega sterka bak- hjarla sem hafi trú á þeim. Tóm vit- leysa sé að fara út í viðskipti eða verslanarekstur með tvær hendur tómar. Þeir segjast hins vegar ætla að staldra hér við, enda eins og fyrr sagði ári fyrr í Kringlunni en upp- haflega var gert ráð fyrir. Nú þurfi að byggja upp þá verslun sem þeir hafi nýverið opnað og festa hana í sessi. Allt kosti þetta sitt þótt reynt hafi ver- ið að halda kostn- aðinum í skefjum. Þrátt fyrir þrenging- ar í þjóðfélaginu séu möguleikarnir þó óþrjótandi ef rétt sé haldið á spilun- um. Hákon Hákonarson og Sigurjón Orn Þórsson í nýrri verslun sinni í Kringlunni. Þeir hafa opnað tvær verslanir á rétt rúmlega einu ári. Auk þess bjóða þeir fyrirtækjum upp á að aðstoða starfsmenn þeirra í fatavali. Loks sjá þeir um daglegan rekstur útgerðar fjölskyldu Hákonar og mjölsölu til fjarlægra landa. DV-mynd Brynjar Gauti

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.