Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1995, Page 55
JjV LAUGARDAGUR 18. NÓVEMBER 1995
fréttir
Hitnaði í kolunum á Alþingi í gær:
Agust kallaði sjavarut-
vegsráðherra ómerking
- og var áminntur af forseta fyrir orðbragð
„Það er ómerkilegt af ráðherra að
blanda mér og fyrirtækinu Granda
saman í þessu máli og segja að ég sé
að vinna hér fyrir Granda. Ég kalla
ráðherra ómerking fyrir,“ sagði Ág-
úst Einarsson, þingmaður Þjóðvaka,
í heitum umræðum á Alþingi í gær.
Þingsályktunartillaga hans um að
taka upp veiðileyfagjald í sjávarút-
vegi var þá til umræðu. Hann sagði
einnig að það væri alveg ljóst að
sjávarútvegsráðherra skildi ekki
nokkum hluti í þessu máli og það
væri alvarlegt mál.
Ólafur G. Einarsson, forseti Al-
þingis, gerði alvarlega athugasemd
við þessi ummæli Ágústs.
Þorsteinn sagði meðal annars að
Ágúst vissi það ofur vel að ef slíkt
veiðileyfagjald yrði tekið upp myndi
kvótinn allur safnast á fáar hendur
sterkustu útgerðarfyrirtækjanna.
Ágúst er einn stærsti hluthafinn í
Granda hf. og tók þetta sem sneið til
sín.
Það er ekki oft sem sýður upp úr
við umræður á Alþingi. Það er helst
þegar kvótamál eða fiskveiðistefnan
er til umræðu og gærdagurinn var
þar engin undantekning.
Umræðumar um þingsályktun-
artillöguna urðu mjög heitar. Ekki
síst varð rimma á milli Jóns Bald-
vins Hannibalssonar og Þorsteins
Pálssonar sjávarútvegsráðherra en
mjög kalt, vægast sagt, hefur verið á
milli þeirra um langt árabil. Jón
Baldvin sagði Þorstein vera með
„Heimdallar-málílutning", eins og
hann orðaði það. Jón Baldvin sagði
núverandi kvótakerfi vera ríkis-
styrk til útgerðarmanna, sem væm
ekkert annað en styrkþegar sem
hagnist á annarra manna eigum.
Um þetta opinbera styrkjakerfi
stæði Þorsteinn Pálsson vörð.
Helstu varnarmenn núverandi
kerfis í kvótamálunum í umræðun-
um voru þeir Þorsteinn Pálsson og
Einar K. Guðfinnsson, en Jón Bald-
vin, Ágúst Einarsson og Svanfríöur
Jónasdóttir vom hörðustu talsmenn
fyrir veiðileyfagjaldi.
-S.dór
Vestmannaeyjar:
Norskir kyrr-
setja færeysk-
an togara
Ómar Garðarsson, DV, Vestmannaeyjum:
Krafa norska rikisolíufélagsins
Statoil um staðfestingu á vörslu-
sviptingu togarans Sambro, sem
legið hefur í Vestmannaeyjum frá
því snemma í sumar, hefur verið
dómtekin hjá Héraðsdómi Suður-
lands.
Sambro kom til Eyja um miðj-
an júní en í byrjun júli var hann
kyrrsettur að kröfu Statoil sem
einnig fór fram á vörslusviptingu
sem var staðfest af sýslumanni.
Fallist var á kröfu Statoil hjá
sýslumannsembættinu og hefur
togarinn verið í vörslu sýslu-
manns frá þeim tíma.
Færeyska útgerðin, sem er
skráð í Belís, krefst þess að kyrr-
setningin verði ógild og fer fram á
bætur vegna tjóns sem hún telur
sig hafa orðið fyrir vegna vörslu-
sviptingar. Statoil krefst þess aö
kyrrsetning verði staðfest og að
félagið fái Sambro í sína vörslu.
Nautgripirnir
enn ófundnir
„Forðagæslumenn geta ekkert
verið að eltast við það og það er
ekki á verksviði okkar að segja
fólki að hýsa búpening sinn. Þeir
líta fyrst og fremst eftir fóðnm og
skrásetningu á búpeningi," segir
Jósavin Arason forðagæslumaður
vegna nautgripanna átta frá
Spónsgerði í Eyjafirði sem töpuö-
ust í stórviðrinu seinni part októ-
bermánaðar.
Gripirnir, sem voru í hólfi þeg-
ar veðrið skall á, huifu sporlaust
og hefur enn ekkert til þeirra
spurst. Ljóst þykir að þeir hafi
drepist í fónn. -rt
Akureyri:
Tónleikar til
styrktar
Flateyringum
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:_
Stórtónleikar verða haldnir í
íþróttahöllinni á Akureyri nk.
sunnudag og kemur þar fram end-
urgjaldslaust fjöldi listamanna.
Allur ágóði af tónleikunum renn-
ur i söfnunina Samhugur í verki,
til styrktar Flateyringum.
Þeir sem koma fram eru: Sin-
fóníuhljómsveit Norðurlands, kór
Tónlistarskóla Akureyrar,
Tryggvi H”bner, Borgardætur,
Tjamarkvartettinn, hljómsveitin
Cigaretts, KK, Piltur og stúlka og
Pálmi Gunnarsson. Sr. Pétur Þór-
arinsson flytur hugvekju í upp-
hafi samkomunnar sem hefst kl.
16.
Ufsasteinninn
Sjómenn í vesturbænum settu grásleppubátana sína upp í fjöruna við gatnamót Hringbrautar og Ánanausta, nærri
ufsasteininum svokallaða, sem var þarna utarlega í fjörunni í gamla daga. Margir vesturbæingar muna eftir steinin-
um því að strákarnir reyndu gjarnan að komast upp á steininn. Ef það tókst fiskuðu þeir vel. Eftir að fyllt var upp í
fjöruna beittu strákarnir sér fyrir því að steinninn yrði varðveittur. Honum hefur nú verið komið fyrir á fjörugrjóti á
hringtorginu þarna nærri og það er að þakka litlu strákunum úr vesturbænum sem nú eru orðnir stórir menn -
mönnum eins og Guðmundi J. Guðmundssyni og fleiri kempum úr þjóðlífinu. DV-mynd Sveinn
Búíjáreftirlitsmanni Vesturbyggðar sagt upp störfum fyrir helgi:
Ríkisútvarpið:
Ráðstöfun-
arfé skert
um 120
milUónir
Ráðstöfunarfé Rlkisútvarpsins
mun skerðast um ríflega 120
milljónir króna verði stofnunin
látin greiða hluta uppsafnaðra
lífeyrisréttinda starfsmanna
sinna hjá Lífeyrissjóði opinberra
starfsmanna. Til að greiða lifeyr-
isskuldbindingamar upp aö fullu
þarf stofnunin að útvega tun 1,3
milljarða á næstu árum.
Að sögn Péturs Guðfinnssonar,
framkvæmdastjóra Sjónvarpsins,
liggur ekki fyri'r hvernig staðið
verði að greiðslunni á næsta ári.
Ekki verði gengið frá fjárhagsá-
ætlun fyrr en íjárlög hafi verið
samþykkt á Alþing.
Pétur segir að Ríkisútvarpið í
heild þurfi að öllu óbreyttu að út-
vega um 120 milljónir á næsta ári
vegna uppsafhaðra lífeyrisskuld-
bindinga. -kaa
Keppst um
svanga Skaga-
menn
Get ekki tekið þessu
öðruvísi en fýlu
- segir Keran Ólafsson sem hafði gagnrýnt störf sveitarstjórnarinnar
Bæjarráð Vesturbyggðar hefur
álíveðið að segja Keran Ólafssyni
búfjáreftirlitsmanni upp m.a. í kjölf-
ar bréfs sem hann sendi dýralækni
að Keldum þar sem hann gagnrýndi
sveitarstjórnina fyrir aðgerðaleysi
gagnvart útigangsfé í Vatneyrar-
hlíðum. Keran sagði í samtali við
DV að hann vissi ekki hvemig ætti
„að taka þessu öðravísi en fýlu í
bæjarstjóranum".
Gísli Ólafsson, bæjarstjóri á Pat-
reksfirði, sagði í samtali við DV í
gær að Keran hefði ekki gert grein
fyrir störfum sínum með þeim hætti
sem hann hefði átt að gera - hins
vegar væri uppsögnin, sem bæjar-
ráð tók ákvörðun um, ekki tengd
útigangsfénu í Vatneyrarhlíðum.
Varðandi umrætt bréf hefði á hinn
bóginn verið hægt að heimfæra
trúnaðarbrest Kerans gagnvart
sveitarstjóminni.
Keran sagði við DV að ljóst væri
að honum væri sagt upp starfmu
þar sem hann hefði gagnrýnt sveit-
arstjórnina vegna útigangsfjárins í
Vatneyrarhlíðum. Um 50 kindur
hefðu lengi gengið lausar og hann
hefði gert við það munnlegar at-
hugasemdir við bæjarstjómina á
fyrri hluta ársins, sérstaklega í ljósi
erfiðs tíðarfars síðustu misseri.
Keran sagði hins vegar að hann
fagnaði því að - stærsti hluti úti-
gangsfjárins hefði nú verið fluttur á
brott úr hinum bröttu Vatneyrar-
hlíðum.
-Ótt
> Keflavíkurflugvöllur:
Olga hjá iðnaðarmönnum vegna
verulegrar lækkunar á bónus
Ægir Már Kárason, DV, Suðumesjum:__
„Starfsmannahald vamarliðsins
lækkaði bónusinn hjá iðnaðarmönn-
um upp á sitt einsdæmi en bónus-
inn var úrskurðaður af kaupskrár-
nefnd 1989. Við teljum að þeir geti
ekki breytt þessu nema í samráði
við nefndina," sagði Halldór Páls-
son, framkvæmdastjóri Iðnsveinafé-
lags Suðumesja.
Um 100 iðnaðarmenn, sem starfa
hjá varnarliðinu á Keflavíkurflug-
velli, er mjög óánægðir með að bón-
us til þeirra hefur verið lækkaður
verulega. í síðasta launaumslagi
kom lækkunin fram. Þeir hafa haft
fastan samning um bónus milli
15-20 þúsund krónur á mánuði en
fengu nú 7-8 þúsund krónur.
Daniel Ólafsson, DV| Akranesi:
Mikil samkeppni hefur færst í
veitingabransann á Skaganum að
undanförnu. Á skömmum tíma
hafa þrír nýir veitingastaðir ver-
ið opnaðir.
Viðar Magnússon, formaður
Kaupmannasamtakanna, opnaði
veitingastaðinn Café La Skútan
og Pálmi Lorentz opnaði veit-
ingastaðinn Hressó. Á báðum
stöðum er boðið upp á ýmsa smá-
rétti. Þá opnaði Hótel Akranes
veitinga- og skemmtistað fyrir
skemmstu. Fyrir era veitinga-
staðimir Barbró og Langisandur.
Það eru því fimm veitingastaöir
sem keppast um svanga Skaga-
menn.
HÁRTOPPAR
Frá M ANDEVII ,LE
og nú einnig
frá HERKULES
Margir verðflokkar
RAKARASTOFAN
KLAPPARSTÍG