Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1995, Page 64
FRÉTTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í
síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er
notað í DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt.
Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn.
550 5555
MUNIÐ NÝTT SÍMANÚMER
550 5000
MUNIÐ NÝTT SÍMANÚMER
Frjálst,óháð dagblað
LAUGARDAGUR 18. NÓVEMBER 1995
Georgíumennirnir:
Annar al-
gjörlega
sýknaður
„Vist er dómurinn undarlegur og
hastarlegt fyrir manninn að sitja í
gæsluvarðhaldi í þrjá og háifan
mánuð saklaus," segir Sigmundur
Hannesson, skipaður verjandi Ge-
orgíumannanna tveggja sem verið
hafa í haldi hér frá i sumar grunað-
ir um nauðgun.
Báðir voru þeir í Héraðsdómi
Reykjaness í gær sýknaðir af
ákæru um nauðgun. Malkhaz
Nanava sýknaður alveg en félagi
hans, David Kupiava, var hins veg-
ar dæmdur til 6 mánaða fangavist-
ar og til greiðslu skaðabóta fyrir að
hafa misnotað sér aðstöðu sína í
kynferðislegum tilgangi.
Þeir sátu í gæsluvarðhaldi frá 4.
ágúst eða í þrjá og hálfan mánuð.
Sá tími dregst frá refsingu Kupi-
ava. Hann þarf og að greiða annarri
konunni 250 þúsund krónur í
skaðabætur. Skaðabótakröfu á
hendur Nanava var vísað frá dómi.
Mennimir voru ákærðir fyrir að
nauðga tveimur íslenskum konum í
togaranum Atlantic Princess í sum-
ar en þeir voru þar skipverjar. Þeir
neituðu ásökunum um nauðgun og
ennfremur að hafa haft samræði
við konumar. Tekin voru svoköll-
'uð DNA-próf af mönnunum og af
sýnum úr konunum. Sæði úr báð-
um fannst í konunum en það réði
ekki úrslitum um dóminn heldur
framburður vitna og málsatvik.
Málið dæmdi Guðmundur L. Jó-
hannesson og með honum Finn-
borgi H. Alexandersson og Sigurð-
ur Ingvarsson. -GK
Keflavíkurflugvöllur:
Verkfall rafiðn-
aðarmanna
Ægir Már Kárason, DV, Suðurnesjum:
Rafiðnaðarmenn, sem vinna hjá
. varnarliðinu á Keflavíkuflugvelli,
hafa samþykkt að boða til allsherj-
arvinnustöðvunar á Keflavíkurflug-
velli frá og með 1. desember næst-
komandi. Auk þess fara þeir fram á
við miðstjóm Rafiðnaðarsambands
íslands að það beini því til aðildar-
félaga að hefja samúðarvinnustöðv-
un hjá þeim sem vinna á Keflavík-
urflugvelli.
„Við förum fram á það við lög-
menn okkar að þeir leiti leiða til
þess að við getum greitt sem þyngst
högg og að öllum mætti rafiðnaðar-
manna verði beitt,“ sagði Guð-
mundur Gunnarsson, formaður
Rafiðnaðarsambands íslands.
Rafiðnaðaramenn sjá um allt við-
hald á rafmagnstækjum á flugvall-
arsvæðinu. Ef tæki bila í flugturn-
inum gæti vinnustöðvunin haft
áhrif á allt flug til og frá landinu.
L O K I
Yfirlögregluþjónninn á Siglufiröi sem var sagt upp vegna hestakerrumálsins:
Krefst 13 milljóna
fýrir skaða og æru
- krafan byggð á sýknu í sakamálinu, lægri launum í dag og atlögu að æru
Gunnar Guðmundsson, fyrrver-
andi yfirlögregluþjónn á Siglu-
firði, hefur stefnt dómsmálaráð-
herra þar sem hann krefst samtals
12,9 milljóna króna í skaða- og
miskabætur vegna þess að honum
var sagt upp starfi sínu þegar hann
var ákærður í svokölluðu hesta-
kerrumáli á sínum tíma. Gunnari
var vikið úr starfi á meðan rann-
sókn stóð en þegar hann var sýkn-
aður fékk hann það ekki aftur.
Gunnar býr á Siglufirði og hef-
ur feng'ið tryggt frambúðarstarf
sem húsvörður. Hins vegar eru
launin miklum mun lægri en
hann hafði þegar hann var yfirlög-
regluþjónn. Skaðabótakröfu sína,
9,2 milljónir, byggir hann fyrst og
fremst á því að brottvikningin úr
starfi hafi verið ólögmæt - því sé
hún bótaskyld. Upphæðin felst í
mismun launa í núverandi og
fyrrverandi starfi sé miðað við að
hann verði í vinnu til sjötugsald-
urs.
Miskabótakrafan, 3,6 milljónir
króna, er hins vegar byggð á því
að í málinu hafi atlaga verið gerð
að æru hans með sakargiftum og
síðan með hrottvikningu hans úr
starfi.
Gunnar leggur einnig fram tæp-
lega 500 þúsund króna kröfu
vegna kostnaðar sem hann hefur
þurft að bera og tæplega 300 þús-
und króna kröfu vegna tapaðra lif-
eyrisréttinda.
í svokölluðu hestakerriunáli
var fyrrverandi sýslumaður
einnig sýknaður að miklu leyti af
þeim sakargiftum sem ákært var
fyrir. Hestakaupmaður í Þýska-
landi og sonur hans tengdust
einnig málinu. Málshöfðun
ákæruvaldsins féll að stærri hluta
til þegar málið kom fyrir dóm-
stóla. -Ótt
Flugkennari og nemandi sluppu ómeiddir þegar vél þeirra hvolfdi í lendingu á Sandskeiði í gær. Nefhjól véiarinnar sökk í flugbrautina. Vélin er töluvert
skemmd. DV-mynd S
Flugvél hvolfdi þegar reynt var að lenda á „drullubraut“:
Héldu að völlurinn væri þurr
„Þeir flugu yfir brautina áður en
ákveðið var að lenda og hún sýndist
þurr. Það var meira að segja svo að
sjá sem þar væru ný för eftir aðra
flugvél. Þegar til kom reyndist
brautin drullublaut og því fór sem
fór,“ segir ísleifur Ottesen, fram-
kvæmdastjóri flugskólans Flug-
menntar, en vél frá honum hvolfdi á
malarvellinum við Sandskeið síð-
degis f gær.
Flugkennari og nemandi voru í
vélinni og sluppu þeir ómeiddir.
Vélin er af gerðinni Cessna 152. Ætl-
unin var að æfa lendingar á vellin-
um þegar óhappið varð. Veður var
gott.
Að sögn Skúla Jóns Sigurðarson-
ar hjá flugslysanefnd varð óhappið
með þeim hætti að nefhjól vélarinn-
ar fór í gegnum holbakka sem
myndast hafði vegna frosts í flug-
brautinni síðustu daga.
Bæði nemandi og kennari komust
út úr vélinni af sjálfsdáðum. Vélin
hafði nær stöðvast þegar henni
hvolfdi. Hún er samt mikið skemmd
en ekki ónýt.
„Ég hefði sjálfur gert ráð fyrir að
þetta væri óhætt. En það er aldrei
að treysta þessum sveitaflugvöllum
okkar," sagði ísleifur. -GK
Veðrið á sunnudag
og mánudag:
Rigning
með köflum
Á sunnudag og mánudag
verður vestlæg átt, víða kaldi,
súld eða rigning með köflum
og hiti 2 til 7 stig vestan til á
landinu. Um landið austanvert
verður léttskýjað víðast hvar
og hiti 0 til 3 stig yfir daginn
en hætt við næturfrosti.
Veðrið í dag er á
bls. 69.