Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1995, Qupperneq 2
2
FÖSTUDAGUR 22. DESEMBER 1995
Fréttir
Brutust inn og stálu á Austurlandi, Suðurlandi, í Borgarfirði, á Ströndum og höfuðborgarsvæðinu:
Fangelsi fyrir peningaskapa-
innbrot og milljónaþjófnaði
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur
dæmt tvo menn, Tómas Jakob Sig-
urðsson, 33 ára, og Heiðar Þór Guð-
mundsson, 37 ára, í tveggja og hálfs
árs og tveggja ára fangelsi fyrir stór-
felld innbrot og þjófnaði á Strönd-
um, Austurlandi, Suðurnesjum, í
Borgarfirði, á Suðurlandi og höfuð-
borgarsvæðinu á árinu. Tómasi
Jakobi og Heiðari Þór voru gerðar
refsingar með hliðsjón af stórfelld-
um brotum, löngum sakarferli og
rofi á skilorði. Hafþór Ingi Samúels-
son, 21 árs, var dæmdur í sjö mán-
aða fangelsi fyrir hylmingu með því
að hafa geymt hluta þýfisins.
Tómas viðurkenndi sín brot
greiðlega. Hann var dæmdur fyrir
að brjótast inn í Kirkjuhúsið Lauga-
vegi 31, Síldarvinnsluna í Neskaups-
stað, Búnaðarbanka íslands og Póst
og síma í Þykkvabæ, Skeljung hf. og
Olíufélagið í Grindavík, skrifstofu
sýslumanns í Keflavík, Bláa lónið,
Blómaskálann að Kleppjámsreykj-
um og Hótel Bifröst og stolið þaðan
verðmætiun upp á samtals á aðra
milljón króna, m.a. með því að
brjóta upp peningaskápa.
Tómas var jafhframt dæmdur fyr-
ir að hafa í félagi við Heiðar Þór
brotist inn hjá Skeljungi á Drangs-
nesi, Hraðfrystihús Hólmadrangs á
Drangsnesi, Kaupfélag Steingríms-
fjarðar, bæði á Drangsnesi og
Hólmavík, og stolið verðmætum
þar, m.a. stórri tölvu og ýmsum öðr-
um verðmætum, m.a. tékkum og
reiðufé upp á á aðra milljón króna.
Heiðar Þór var auk þess dæmdur
fyrir innbrot í Tækniskóla íslands og
að hafa stolið þaðan tækjum upp á
628 þúsund krónur og að hafa brotist
tvisvar inn á bílasölu Garðars í Nóa-
túni og stolið þaðan verðmætum upp
á um 600 þúsund krónur, m.a. móð-
urtölvu upp á 400 þúsund.
Hafþór Ingi var dæmdur í 7 mán-
aða fangelsi fyrir hylmingu með því
að hafa tekið í sína vörslu hluta þýf-
isins sem hinir mennimir höfðu
stolið. Með brotinu rauf hann skil-
orð 5 mánaða fangelsisdóms sem
var dæmdur með þessu máli.
Ingibjörg Benediktsdóttir kvað
upp dóminn. Ekki var fallist á þær
bótakröfur sem fram komu í málinu
vegna vanreifunar og reyndar
einnig vegna þess að sumar þeirra
tilheyrðu alls ekki málinu. -GK
„Þetta hafðist eftir skemmtilega baráttu og til að vera öruggur um að jólasteikin kæmist í tæka tíð til neytenda ákvað
ég að taka flugvél á leigu,“ sagði Pétur Pétursson, kaupmaður í Kjötbúri Péturs, eftir að sérpantað hreindýrakjöt frá
Grænlandi var komið í hans hendur. Pétur leigði flugvél undir kjötið og kom hún til Reykjavíkur sfðdegis á miðviku-
daginn. Farmurinn var alls 1,5 tonn af lærum, sem seld verða í verslun hans næstu daga á 1.790 til 1.990 krónur kfló-
ið. Pétur lenti í þrasi við íslensk yfirvöld vegna innflutningsins en hafði betur. Einnig lenti hann í stappi við græn-
lenskan dýralækni sem vildi stimpla rassinn á dýrunum með stimpli Evrópusambandsins. Það vildi Pétur ekki enda
óþarfi þar sem dýrunum er slátrað í viðurkenndum sláturhúsum í Grænlandi. DV-mynd BG
Ævintýraleg fiskgengd á VestQarðamiðum:
Hafrannsóknaskip sent á
miðin strax eftir áramót
- samráð verður haft við skipstjóra, segir aðstoðarforstjóri Hafró
Inflúensufaraldur:
Löngu
kominn
V til
íslands
- segir Ólafur Ólafsson
„Ég séð af blaðafregnum að
inflúensufaraldurinn muni
skæður á Norðurlöndunum.
Læknatímarit gera ekki eins
mikið úr málinu. Þessi sama
flensa greindist hér í nóvember
og hefur ekki reynst hörð,“ seg-
ir Ólafur Ólafsson landlæknir
um flensumál vetrarins.
Ólafur sagði að bólusetningar
á undanfornum árum yllu því
að faraldurinn væri ekki skæð-
ur hér. Hann sagði að bólusetn-
ingar væru mun meiri hér en á
hinum Norðurlöndunum, sér-
staklega þó í Danmörku.
„Það er engin ástæða til að
óttast að fólk sem kemur heim í
jólafrí beri með sér nýjan farald-
ur. Þetta er allt sama flensan og
hún er löngu komin til íslands,"
sagði Ólafur. -GK
Alþingi:
Ekki tókst
að Ijúka
þingstörf-
um í nótt
- atkvæðagreiðsla í dag
Þrátt fyrir samkomulag milli
stjórnar og stjómarandstöðu um
að ljúka þingstörfum í nótt er
leið tókst það ekki. Ástæðan er
ekki síst sú mikla umræða sem
varð um ríkisábyrgö vegna
Hvalfjarðarganga. Hún tók lang-
an tíma í gærdag en lauk með
samkomulagi eftir kvöldmat.
Seint í gærkveldi var ákveðið
að fresta atkvæðagreiðslu um
fjáraukalög og fjárlög ársins
1996 þar til í dag. Þriðja umræða
um fjárlög hófst ekki fyrr en um
klukkan eitt í nótt er leið. Það
verður ekki sagt að sú umræða
hafi verið hvöss eða átakamikil
enda má segja að púðrinu hafi
verið eytt við 2. umræðu eins og
oftast er. Þar að auki vsr komið
samkomulag um þinglok milli
stjómar og stjórnarandstöðu
þannig að ekki var málþófinu
fýrir að fara. Samt sem áður
stóð umræðan yfir langt fram
eftir nóttu
Gert er ráö fyrir að atkvæða-
greiðslan hefjist um klukkan
11.00 í dag. Hún getur staðið í
eina tvo til þrjá klukkutíma. Að
lokinni atkvæðagreiðslu verður
gert hlé á störfum Alþingis til
22. janúar. -S.dór
„Viö höfum fylgst með fréttum af
aflabrögðum og emm að fá sýni úr
þessum afla. Þaö er rangt að við höf-
um ekki áhuga á þessu máli. Við
geram auðvitað aUt til aö fá sem
mest gögn um það sem er að gerast
á hverjum tíma. Við eram með mjög
ítarlega áætlun um gagnasöfnun
sem fylgt er eftir,“ segir Jóhann Sig-
urjónsson, forstjóri Hafrannsókna-
stofnunar, vegna frétta DV af ævin-
týralegri þorskgengd á Vestfjarða-
miðum og víðar.
„Þetta era athyglisverðar fréttir
málaflokkanna hækka um 25 millj-
ónir króna á næsta ári. Era þau þá
samtals 123 miUjónir króna. Það
kom fram í ræðu Kristínar HaU-
dórsdóttur, fuUtrúa Kvennalistans í
fjárlaganefnd, að Kvennalistinn
neitaði að samþykkja þessa hækk-
un.
að vestan sem við ætlum að skoða
nánar. Það er þegar ákveðið að okk-
ar fyrsta verkefni á Bjama Sæ-
mundssyni á næsta ári verður að
fara í leiðangur þar sem gerðar
verða tflraunir tU að bergmálsmæla
þorsk á Halanum og nærliggjandi
svæðum. Skipið fer strax þegar veð-
ur leyfir upp úr áramótum, líklega
þann 3. janúar. Það er ljóst að tU að
árangur náist verða bæði veðurskU-
yrði og ástand þorsksins að vera
þannig aö mæling takist," segir Jó-
hann.
Hún sagði að Kvennalistinn hefði
ætíð áður staðið að ákvörðun um
framlag til starfsemi stjórnmála-
flokkanna. Ástæðuna fyrir því að
þingkonur Kvennalistans gera það
ekki að þessu sinni sagöi hún þá
lækkun sem stjómarflokkamir
heföu ákveðið á bótum til tjónþola
ofbeldis. Eftir að stjómarandstaðan
„Samkvæmt okkar áætlunum
eiga þegar að vera nokkur bata-
merki á þorskstofiiinum eftir frið-
unaraðgerðir undanfarinna ára.
Góð aflahrota á afmörkuðu svæði
táknar ekki að forsendur fiskveiði-
ráðgjafar á árinu hafi breyst. Engu
að síður er áhugavert að fara á
svæðið og kanna slóðina því án efa
má draga af því lærdóm. Við mun-
um hafa samráð við staðkunnuga
skipstjóra þegar við komum á slóð-
ina,“ segir Jóhann.
hafði aðeins getað mildað skerðingu
bótanna stæði eftir að spamaðurinn
sem skerðingin færir ríkissjóði era
15 milljónir króna. En hækkun
framlaga til stjórnarflokkanna er 25
milljónir króna. Kristín benti. á aö
ekki væri hægt að standa að slíkri
hækkun við þessar aðstæður.
-S.dór
Stuttar fréttir
Óánægja með launin
Tæplega 60% landsmanna eru
óánægðir með laun sin skv.
könnun á vegum Hagvangs. Óá-
nægjan er mest meðal kvenna og
opinberra starfsmanna. Tæplega
40% þeirra sem afstöðu tóku eru
tilbúnir í verkfall. Sjónvarpið
greindi frá.
Ljóshöfði í Fossvogi
Ljóshöfði hefur haldið sig í
Fossvogi síðan í haust. Sam-
kvæmt Morgunblaðinu er um
sjaldgæfa andategund að ræða.
Bankar verða opnir
Nokkrir bankar og sparisjóðir
á höfuðborgarsvæðinu verða
opnir á Þorláksmessu aö ósk
kaupmanna. Tíminn hefur eftir
formanni Sambands íslenskra
bankamanna að um sé að ræða
brot á kjarasamningi banka-
manna.
Þjónusta í höndum
bæjarins
Gert er ráð fyrir þvi að Akur-
eyrarbær yfirtaki þjónustu við
fatlaða af ríkinu nú um áramót-
in. RÚV greindi frá þessu.
Biskupinn beitir sér
Biskup Islands beitir sér fyrir
því að sungnar verði jólamessur
í Langholtskirkju í Reykjavík
með eðlilegum hætti þrátt fyrir
deOur prests og organista. Skv.
RÚV hafa mörg sóknarbörn snú-
iö sér til Biskupsstofu og spurst
fyrir um hvemig það geti skipt
um söfnuð.
Blysför á Laugavegi
íslenskar friðarhreyfingar
efna til blysfarar niður Lauga-
veginn i Reykjavík kl. 18 á morg-
un, Þorláksmessu. Kórar verða
með í fór og fundað verður á Ing-
ólfstorgi.
Bóluefni gegn eyrna-
bólgu
Rannsóknir íslenskra sérfræð-
inga á bóluefhi gegn eyrnabólgu í
börnum hafa gefið góða raun.
Samkvæmt Stöð tvö er taliö að
um 90% barna undir 6 ára aldri
fái eymabólgu -kaa
Met í landflótta
íbúum landsins fjölgaði ein-
ungis um 0,38 prósenf á síðasta
ári og hefur fjölgunin ekki verið
minni frá síðustu aldamótum.
Alls v'ora 267.809 manns meö lög-
heimili á íslandi l. desember síö-
astliðinn.
Samkvæmt bráðabirgðatölum
Hagstofúnnar fluttu til landsins
um 3.000 manns en frá þvi um
4.400. Fjöldi brottfluttra er meiri
en nokkru sinni áður. Á árinu
fæðast um 4.300 börn eða 2 til 3
prósent færri böm en i fyrra. Þá
deyja fleiri í ár, eða um 1.900,
manns sem er um 10 prósent auk-
ing milli ára. Fimmtung aukning-
arinnar má rekja til snjófóöa-
slysa á Vestfiörðum. -kaa
,-rt
Stj órnmálaflokkarnir:
Framlögin hækka
um 25 milljónir
Framlög á fjárlögum til stjóm-