Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1995, Blaðsíða 34
42
FÖSTUDAGUR 22. DESEMBER 1995
Fólk í fréttum
Jóhann Hjartarson
Jóhann Hjartarson stórmeistari
er nú íslandsmeistari í skák í
Qórða sinn og annað árið í röð
eftir tvisýnt einvígi við Hannes
Hlífar Stefánsson sem lauk í
bráðabana.
Starfsferill
Jóhann fæddist í Reykjavík 8.2.
1963. Hann lauk stúdentsprófi frá
MH 1983 og embættisprófi í lög-
fræði frá HÍ 1992.
Jóhann er atvinnustórmeistari
í skák og lögskipaður kennari við
framhaldsdeild Skákskóla Islands
frá stofnun hans 1991.
Jóhann varð skákmeistari fs-
lands 1980, 1984, 1994 og 1995, varð
alþjóðlegur skákmeistari 1984,
stórmeistari 1985, hefur verið í
ólympíusveit íslands í skák frá
1980, var áskorandi í heimsmeist-
arakeppninni í skák 1987-89,
Þýskalandsmeistari í skák með
liði F.C. Bayern Múnchen 1989-90,
1990-91 og 1991-92, og Evrópu-
meistari með sama félagi 1992.
Jóhann var formaður Félags
stórmeistara 1987-90 og sat í
stjórn Taflfélags Reykjavíkur
1992-93. Hann hefur skrifað um
skák að staðaldri í innlend og er-
lend skákblöð frá 1984.
Fjölskylda
Kona Jóhanns er Jónína Ingva-
dóttir, f. 30.5. 1962, skrifstofumað-
ur. Foreldrar hennar eru Ingvi
Gunnar Ebenhardsson, fyrrv. for-
seti bæjarstjórnar og skrifstofu-
stjóri á sýsluskrifstofunni á Sel-
fossi, og k.h., Emma Guðrún
Carlsson húsmóðir sem nú er lát-
in.
Börn Jóhanns og Jónínu eru
Hjörtur Ingvi, f. 7.9. 1987, og Sig-
urlaug Guðrún, f. 16.6. 1993.
Foreldrar Jóhanns eru Hjörtur
Magnússon, f. 9.6. 1919, fyrrv. lög-
skráningarstjóri hjá tollstjóranum
í Reykjavík, og k.h., Sigurlaug
Guðrún Jóhannsdóttir, f. 10.2.
1922, húsmóðir.
Ætt
Systir Hjartar var Sesselja,
móðir Magnúsar Hreggviðssonar,
forstjóra Frjáls framtaks. Hjörtur
er sonur Magnúsar, sparisjóðs-
stjóra í Borgarnesi, af Ormsætt,
Jónssonar, b. á Skarfsstöðum í
Hvammssveit í Dalasýslu, Jóns-
sonar. Móðir Magnúsar var Krist-
ín Magnúsdóttir, b. í Arnarbæli,
Magnússonar, og k.h., Guðrúnar
Jónsdóttur, systur Sigurðar, lang-
afa Björns Hermannssonar toll-
stjóra.
Móðir Hjartar var Guðrún,
systir Guðmundar á Valbjarnar-
völlum, afa Þórarins Sigþórsson-
ar, tannlæknis og veiðimanns, í
Reykjavík. Guðrún var dóttir
Jóns, hreppstjóra á Valbjarnar-
völlum í Borgarhreppi, Guð-
mundssonar, b. í Stangarholti,
Guðmundssonar, bróður Sigurðar,
langafa Ingvars Ásmundssonar
skákmeistara. Móðir Jóns var
Guðrún Jónsdóttir, systir Jóns,
afa Sigurjóns, afa Önundar
Björnssonar, prests og bókaútgef-
anda.
Sigurlaug er dóttir Jóhanns
Kristins, b. á Iðu í Biskupstung-
um, bróður Ámunda, foður Lofts
járnsmiðs. Jóhann var sonur Guð-
mundar, b. á Sandlæk í Gnúp-
verjahreppi, bróður Guðmundar
yngri, fóður Guðmundur Kr„
skrifstofustjóra hjá Olíufélaginu
og afa Harðar Ágústssonar list-
málara og Jóns Sigurðssonar
borgarlæknis. Guðmundur var
sonur Ámunda, b. á Sandlæk,
Guömundssonar, sem Sandlækja-
rættin er kennd við. Móðir
Ámunda var Guðrún Ámunda-
dóttir, smiðs og málara í Syðra-
Langholti og vefara í Innrétting-
unum í Reykjavík, Jónssonar.
Móðir Jóhanns Kristins var Guð-
rún Bjarnadóttir, b. í Tungufelli,
Jónssonar, og Katrínar Jónsdótt-
ur af Bolholtsættinni, systur
Þóru, langömmu Sigríðar, móður
Friðriks Ólafssonar stórmeistara.
Móðir Sigurlaugar var Bríet, syst-
ir Vilborgar, móður Jóns Freys
Þórarinssonar, skólastjóra Laug-
arnesskóla. Bríet var dóttir Þór-
ólfs, b. í Gerðiskoti í Flóa, Jóns-
Jóhann Hjartarson.
sonar, b. á Kjalvararstöðum í
Reykholtsdal, Kristjánssonar.
Móðir Þórólfs var Kristín Einars-
dóttir, b. i Kalmanstungu, Þórólfs-
sonar, langafa tónskáldanna
Bjarna Þorsteinssonar og Sig-
valda Kaldalpns og einnig Ingi-
bjargar, móður Þorsteins Ö.
Stephensen leikara. Móðir Krist-
ínar var Helga Snæbjarnardóttir,
systir Snæbjarnar, afa Bríetar
Bjarnhéðinsdóttur, og Margrétar,
móður Arnljóts Ólafssonar, prests
á Bægisá, langafa Arnljóts Björns-
sonar prófessors.
Afmæli
Jóhannes M. Gunnarsson
Jóhannes M. Gunnarsson,
lækningaforstjóri Borgarspitalans,
Þrastarlundi 11, Garðabæ, verður
flmmtugur á aðfangadag.
Starfsferill
Jóhannes fæddist að Skarði í
Gnúpverjahreppi og ólst þar upp.
Hann lauk stúdentsprófi frá MA
1966, embættisprófi í læknisfræði
frá HÍ 1973 og stundaði framhalds-
nám í skurðlækningum í Örebro i
Svíþjóð 1977-84.
Jóhannes starfaði á kandídatsá-
rum á sjúkrahúsum í Reykjavík
1973-74, var héraðslæknir í Siglu-
fjarðarlæknishéraði 1974-76, var
sérfræðingur á skurðdeild Borgar-
spítalans frá 1984 og jafnframt á
St. Jósepsspítala í Hafnarfirði
1984-1994, formaður læknaráðs
Borgarspítalans 1991-94 og er
lækningaforstjóri þar frá ársbyrj-
un 1994.
Jóhannes sat í stjórn Skurð-
læknafélags íslands 1984-89 og for-
maður 1987-89, stjórn Lífeyris-
sjóðs lækna 1988-93 og formaður
1991-93, í samninganefnd sjálf-
stætt starfandi lækna 1988-93, í
stjórn Norræna skurðlæknafélags-
ins 1988-90, í vísindanefnd Nor-
ræna skurðlæknaþingsins í
Reykjavík 1995 og hefur setið í
opinberum nefndum um samein-
ingu Borgarspítalans og Landa-
kotsspítala 1991 og um samvinnu
sjúkrahúsanna og verkaskiptingu
1993.
Fjölskylda
Jóhannes kvæntist 2.9. 1967
Guðrúnu Sigurjónsdóttur, f. 18.10.
1946, hjúkrunarfræðingi við Borg-
arspítalann. Hún er dóttir Sigur-
jóns M. Guðmundssonar, f. 20.3.
1919, d. 16.11. 1953, vélstjóra, og
Gróu Frímannsdóttur, f. 4.5. 1919,
verkakonu í Hafnarfirði.
Börn Jóhannesar og Guðrúnar
eru Gunnar, f. 15.2. 1968, restrar-
verkfræðingur í Garðabæ, kvænt-
ur Önnu Maríu Sigurjónsdóttur
hárgreiðslumeistara og er dóttir
þeirra Ásdis Björk; Gróa Björk, f.
15.11. 1969, læknir í Reykjavík,
gift Halldóri Snæbjörnssyni kenn-
aranema og er sonur þeirra Ár-
mann Óli; Kristín, f. 21.3. 1975,
nemi við HÍ.
Systur Jóhannesar eru Alexía
Margrét, f. 27.6. 1936, kennari við
VÍ; Valgerður Kristín, f. 25.2. 1940,
húsmóðir í Reykjavík; Sigríður
Svava, f. 12.4. 1942, bankastarfs-
maður, búsett að Efstalandi í Ölf-
usi.
Foreldrar Jóhannesar voru
Gunnar Jóhannesson, f. 7.6. 1904,
d. 14.2. 1965, prestur að Skarði 1
Gnúpverjahreppi, og Áslaug
Gunnlaugsdóttir, f. 2.8. 1900, d.
25.8. 1980, kennari.
Ætt
Gunnar var sonur Jóhannesar,
b. á Hólum í Laxárdal og Fagra-
dal á Hólsfjöllum, bróður Ingólfs,
föður Arnórs yfirlögregluþjóns og
Guðrúnar, móður Halldórs Ás-
grímssonar utanríkisráðherra. Jó-
hannes var sonur Eyjólfs, b. í
Fagraneskoti, Guðmundssonar, b.
í Fagranesi í Aðaldal, Björnsson-
ar, b. í Lundi, Guðmundssonar,
bróður Páls, langafa Stefáns, afa
Guðmundar Bjarnasonar landbún-
aðarráðherra. Móðir Jóhannesar
var Sesselja Pétursdóttir, b. í
Hraungerði, Jóhannessonar, b.
þar, Péturssonar, b. þar, Sölvason-
ar.
Móðir séra Gunnars var Krist-
ín, systir Sigurjóns, afa Ingólfs
Margeirssonar rithöfundar, og
systir Jóhönnu, ömmu Jóhanns
Bergþórssonar, bæjarfulltrúa í
Hafnarfirði. Kristín var dóttir Jó-
hanns, b. í Götu í Landsveit, bróð-
ur Jónasar, langafa rithöfund-
anna Svövu og Jökuls Jakobs-
barna. Jóhann var sonur Jóns, b.
í Mörk, Finnbogasonar, b. á
Reynifelli, Þorgilssonar.
Áslaug var dóttir Gunnlaugs,
bakara á Eyrarbakka og.í Noregi,
Björnssonar, b. á Óspaksstöðum í
Hrútafirði, Gunnlaugssonar, ætt-
föður Óspaksstaðaættarinnar,
Björnssonar. Móðir Gunnlaugs
var Sesselja, ljósmóðir Stefáns-
dóttir, b. á Hnúki í Miðfirði,
Jóhannes M. Gunnarsson.
Gunnlaugssonar og Karólínu
Bjarnadóttur.
Móðir Áslaugar var Valgerður,
gestsgjafi á Kolviðarhóli, Þórðar-
dóttir, b. í Traðarholti í Flóa, Þor-
varðarsonar og Guðríðar Jóns-
dóttur.
Jóhannes og Guðrún hafa opið
hús’ í Félagsheimili Stjörnunnar í
Garðabæ laugardaginn 23.12. kl.
16.00-18.00.
Tíl hamingju með
afmælið 22. desembér
70 ára
Tómas Oddsson,
Hamraborg 26, Kópavogi.
60 ára
Kristrún
Malmquist ljós-
móðir,
Laufbrekku 3,
Kópavogi,
verður sextug á
morgun.
Hún og eigin-
maður hennar,
Elías Jökull Sig-
urðsson,
taka á móti gestum að heimili
sínu í dag, föstudaginn 22.12., kl.
17.00- 19.00.
Olgeir Magnús Bárðarson,
Hæðargötu 9, Njarðvík.
Jóhannes Jónasson,
Asparlundi 2, Garðabæ.
Ólafur Guðjón Karlsson,
Byggðarenda 24, Reykjavík.
Lísabet Sólhildur Einarsdóttir,
Erluhrauni 2B, Hafnarfirði.
50 ára
Ingibjörg Gunnarsdóttir,
Háaleitisbraut 133, Reykjavík.
Ásgerður Þorsteinsdóttir,
Illugagötu 33, Vestmannaeyjum.
Guðríður Þorsteinsdóttir,
Holtsbúð 42, Garðabæ.
Unnur Sigtryggsdóttir,
Hvassaleiti 133, Reykjavík.
Haraldur Karlsson,
Víkurbraut 25, Grindavík.
Árni Þórhallur Helgason,
Hlíðarendavegi 7, Eskifirði.
40 ára
Kristján Kristjánsson,
Meistaravöllum 17, Reykjavík.
Sigríður Ágústa Skúladóttir,
Fannafold 55, Reykjavík.
Leifur Einarsson,
Geithellum 1, Djúpavogshreppi.
Ásdís Snorra-
dóttir,
fulltrúi hjá Pósti
og síma,
Hraunbæ 102,
Reykjavík.
Ásdís er stödd á
Kanaríeyjum
ásamt sambýlis-
manni sínum,
Guðlaugi Böðv-
arssyni.
Ingibjörg J. Þorsteinsdóttir,
Norðurgötu 1, Akureyri.
Aðalbjörg Pálsdóttir,
Sundstræti 30, ísafirði.
Ragna D. Skarphéðinsdóttir,
Álfhólsvegi 91, Kópavogi.
Aðalsteinn Oddsson,
Hvanneyrarbraut 56, Siglufirði.
Norma Einarsdóttir,
Túngötu 16, Eyrarbakka.
Magnús Ólafsson,
Asparfelli 10, Reykjavík.
Guðmundur Eyþór Guðmunds-
son,
Oddagötu 1, Skagaströnd.
Jólasnjór
„Jólin nálgast jafnt og þétt / jafnvel snjórinn létt og nett / húfur skreytir hátt
og lágt / hrífur barnið smátt en kátt“, varð skáldinu að orði þegar það mætti
glaðlyndu ungviðinu á Austurvelli í vikunni. Öllum að óvörum féll jólasnjór
á höfuðborgarsvæðinu, jafnt ungum sem öldnum til ómældrar ánægju.
DV-mynd BG