Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1995, Page 4
4
FÖSTUDAGUR 22. DESEMBER 1995
Fréttir
Voru víxlar upp á 1,7 milljónir gefnir út fyrir myntbreytingu?
Akærður fýrir að hundr-
aðfalda víxlana
- sýkna þar sem höfuðvitni ákæruvaldsins „gat ekki fullyrt“ vegna aldurs málsins
Maður, sem fyrr á árinu fékk
fangelsisrefsingu í Héraðsdómi
Reykjavikur fyrir að hafa fært dag-
setningar á vixlum á tímabilið eftir
myntbreytinguna sem varð í árs-
byrjun 1981, hefur verið sýknaður af
sakargiftum í Hæstarétti.
Á árunum 1990 til 1993 notaði
ákærði sjö víxla upp á samtals 1,7
milljónir króna í viðskiptum. Góður
kunningi hans hafði verið sam-
þykkjandi víxlanna - um einum ára-
tug áður. Þegar viðskiptin fóru i
gang misbauð kunningjanum sem
kærði ákærða fyrir skjalafals - víxl-
amir hafi verið gefnir út sem „gaml-
ar“ 1,7 milljónir króna á sínum tíma
enda hefði hann skrifað upp á þá
áður en myntbreytingin, sem hund-
raðfaldaði verðgildi íslensku krón-
unnar, gekk í garð árið 1981.
Rannsóknarlögreglan rannsakaði
málið og var gefin út ákæra. Héraðs-
dómur Réykjavíkur dæmdi mann-
inn síðan í 6 mánaða skilorðsbund-
ið fangelsi i júni síðastliðnum fyrir
skjalafals með því að hafa fært víx-
ildagsetningar á tímabilið eftir
myntbreytinguna og þar með aukið
verðgildi víxlanna.
Mennirnir störfuðu báðir við veit-
ingahúsarekstur. Þriðji aðilinn, sem
á sínum tíma vann hjá samþykkj-
anda víxlanna, kærandanum, var
fenginn til að bera vitni eftir dóms-
uppkvaðningu í héraði. Hann
kvaðst kannast við að hafa vélritað
vixlana á meðan hann starfaði hjá
kærandanum en sagðist þó „ekki
geta fullyrt það“ að hann hefði unn-
ið það verk fyrir myntbreytingu.
1 dómi Hæstaréttar kemur fram
að skýringar ákærða á því hvers
vegna hann hélt að sér höndum í
heilan áratug um innheimtu á víxl-
unum væru „fábrotnar" og þótti
framburður hans að öðru leyti ótrú-
verðugur.
í niðurstöðu Hæstaréttar segir
hins vegar eftirfarandi: „Ekki er
unnt að fallast á það að með þessu
(vitnisburði þriðja aðila) hafi verið
færð fram lögfull sönnun fyrir því
frumatriði sem málatilbúnaður af
hálfu ákæruvaldsins er reistur á.“
Samkvæmt þessu var sakborning-
urinn sýknaður og hann látinn
njóta vafans eins og lög kveða á um
séu ekki nægar sannanir fyrir
hendi. -Ótt
’' « l Ay ' (V V
;x , -
■
I hondum I
Fatlaðir eiga erfitt með að fylgjast með umræðum á Alþingi þar sem engin lyfta er í húsinu. ítrekað hafa þeir óskað
eftir úriausn án árangurs. Þegar umdeildur bandormur var til umræðu í vikunni barst hins vegar hjálp frá lögregl-
unni. Með samstilltu átaki tókst að koma hjólastóinum upp bratta stiga þinghússins og má segja að þá hafi málið
verið í höndum lögreglunnar. DV-mynd BG
Krossvík á Akranesi:
Frestur
til að afla
hlutafjár
DV, Akranes:
Svanur Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Krossvíkur á Akrá-
nesi, sem keypti allt hlutafé bæjar-
ins í Krossvík, hefur fengið frest til
10. janúar til að afla fyrirtækinu 60
millj. króna aukins hlutafjár.
Svanur greiddi 20 millj. krónur
fyrir hlutafé bæjarins en í samningi
hans við bæinn var ákvæði um að
hann yrði að vera búinn að afla 60
milljónanna fyrir 15. desember. Það
hefur enn ekki tekist og fresturinn
var því veittur.
Mjög hagstætt tilboð hefur borist
í skip fyrirtækisins, Höfðavík, og
eru menn að skoða það mál, að sögn
Svans. DÓ
Pétur Gunnlaugsson, formaður Fjölskylduverndar, gagnrýnir félagsmálayfirvöld:
Líta á okkar fólk eins
og þriðja flokks borgara
- mjög slæmt ef meðlimir Fjölskylduverndar séu látnir gjalda þess, segir félagsmálastjóri
Pétur Gunnlaugsson, formaður
Fjölskylduverndar, segir félags-
málayfirvöld umgangast skjólstæð-
inga samtakanna eins og þriðja
eða fjórða flokks borgara og finnist
það eðlilegt. - „Okkar fólk upplifir
kerfishroka og stofnanaofbeldi
mjög sterkt“. Lára Björnsdóttir, fé-
lagsmálastjóri Reykjavíkm-borgar,
segist ekki telja að meðlimir Fjöl-
skylduvemdar séu látnir gjalda
þess - slíkt væri mjög slæmt og
mætti alls ekki gerast í málum
„blásaklauss fólks“.
„Ég fór nýlega með manni úr
Fjölskylduvemd sem þurfti fjár-
hagsaðstoð, hann var ólæs og ég
veitti honum því aðstoð og fór með
honum til félagsráðgjafa hjá Fé-
lagsmálastofnun," sagði Pétur.
„Ráðgjafinn sagði að hann ætti að
fá aðstoð vegna aðstæðna hans.
Síðan beið skjólstæðingur minn
viðbragða frá stofnuninni en ekk-
ert svar kom. Þá var haft samband
við stofnunina sem sagði að aðstoð
í þessu tilfelli samræmdist ekki
reglum éftir því sem yfirmaður
sagði. Að öðm leyti var ekki vilji
til að ræða hvers vegna umsókn-
inni var synjaö.
Ég tel að maðurinn hafi verið
látinn gjalda þess að vera í Fjöl-
skylduvernd enda ríkja miklir for-
dómar í garð okkar skjólstæðinga
sem fá ekki þá fyrirgreiðslu sem
ætla mætti - það er beinlínis unn-
ið gegn þeim. Þeir mæta fordóm-
um og andstöðu kerfisins við okk-
ar starfsemi sem miðast við að
vinna gegn óréttmætum afskiptum
yfirvalda af fjölskyldumálum í
landinu," sagði Pétur.
„Mér finnst leiöinlegt ef Pétur
telur þetta,“ sagöi Lára. Hún sagð-
ist ætla að kanna málið sérstak-
lega.
„Ég veit ekki hvort þetta er á
misskilningi byggt og hvort ein-
hver misbrestur hefur orðið. Ég
hef ekki trú á því að umsækjand-
inn hafi verið látinn gjalda þess að
vera meðlimur í Fjölskylduvernd.
Það væri líka mjög slæmt því slíkt
á alls ekki að vera um blásaklaust
fólk. Við erum að reyna að halda
okkur við reglur til að gæta jafn-
ræðis en ef umræddur maður hef-
ur verið að sækja um eitthvað ann-
að en talið var getur hann sótt um
aftur.
Varðandi almenna gagnrýni Pét-
urs á félagsmálayfirvöld vegna
skjólstæðinga Fjölskylduverndar
sagði Lára:
„Mér finnst eðlilegt að fólk bind-
ist samtökum. Ég held að við höf-
um fullan skilning á þVí. Þama
eru samtök sem vilja gæta þess að
við vinnum vel - það er gott að
hafa samtök sem styðja þetta fólk.“
-Ótt
Bílheimar eju fluttir
oð Sœvarhöfba 2a viö hlib Ingvars Helgasonar