Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1995, Qupperneq 8
8
FÖSTUDAGUR 22. DESEMBER 1995
Fréttir
Stuttar fréttir i>v
Frostregn og þoka tefur björgunarstörf viö flugvélarflakið í Kólumbíu:
Bara hressir
Bandarískir embættismenn
sögðust ánægðir með hvað
deiluaðilar í Bosníu væru vilj-
ugir að fara eftir skilmálum
friðarsamkomulagsins.
Serbar fordæmdir
Öryggisráð SÞ fordæmdi Bos-
níu-Serba fyrir dráp og önnur
voðaverk og krafðist þess að fá
aðgang að gröfum hinna
drepnu.
Papandreou enn veikur
Andreas
Papandreou,
forsætisráð-
herra Grikk-
lands, liggur
enn þungt
haldinn á
sjúkrahúsi
og í gær var
upplýst að ný sýking væri kom-
in upp en það hafa læknar óttast
mest.
Kínverji áfrýjar
Kínverski andófsmaðurinn
Wei Jingsheng hefur áfrýjað 14
ára fangelsisdómi fyrir drottins-
svik.
Andstaðan vann
Stjórnarandstaðan í eyríkinu
Mauritius fékk 65,2 prósent at-
kvæða í kosningunum á mið-
vikudag og öll sætin á þingi
landsins.
Jól við eidfjall
íbúar eyjarinnar Montserrat í
Karíbahafi halda nú jól í skugga
eldfjalls og dregur það úr gleði
eyjarskeggja.
Fórust í lestarslysi
Á áttunda tug manna fórst í
lestarslysi í Egyptalandi í gær
þegar tvær lestar rákust á.
Fær samkeppni
Taliö að einungis f imm
hafi lifað
flugslysið af
Björgunarmenn bera á milli sín litla stúlku sem slapp lifandi úr flugslysinu en er alvarlega slösuð. Símamynd Reuter
Talið er að einungis fimm manns
hafi lifað af þegar farþegaþota frá
bandaríska fiugfélaginu American
Airlines fórst í Kólumbíu í fyrrinótt
með 164 innanborðs. Kólumbískir
björgunarmenn visuðu á bug fyrri
fréttum um að 17 manns hefðu lifað
slysið af. Þeir sögðust hins vegar
vonast til að finna fleiri á lífi en erf-
iðar aðstæður, kuldi, regn og þoka,
gerði mönnum erfitt fyrir. Varð að
fresta björgunaraðgerðum seint í
gærkvöldi.
Flakið er ofarlega í hlíðum San
Jose fjallsins sem er um 4 þúsund
metra hátt, á landsvæði sem er að
mestu undir yfirráðum vinstrisinn-
aðra skæruliða.
Fréttir um Qölda þeirra sem kom-
ust lifandi úr slysinu voru á reiki í
allan gærdag en í gærkvöldi var
fullyrt að 60 lík hefðu fundist og níu
manns á lífi.
Fulltrúar bandarísku alríkislög-
reglunnar, FBI, og bandarískra flug-
málayfirvalda komu á slysstaðinn í
gærkvöldi í von um að finna orsök
mannskæðasta flugslyss í sögu Kól-
umbíu. Slysið er -það mannskæðasta
hjá bandarísku flugfélagi síðan 1988,
þegar farþegaþota Pan Am var
sprengd á flugi yfir Lockerbie í
Skotlandi og 270 manns létust.
Gonzales Dussan Monroy frá New
Jersey var meðal þeirra sem lifðu
slysið af. Hann sagði á sjúkrahúsi í
Cali í gærkvöldi að hann hafi ekki
orðið var við nein vandamál stuttu
fyrir slysið. Hann rotaðist við högg-
ið þegar vélin skall á fjallinu en
rankaði við sér innan um lík og
brak. Dóttir hans liggur alvarlega
slösuð á sjúkrahúsi en ekki er vitað
um örlog konu hans og sonar. í
fyrstu var talið að þau hefðu öO
sloppið lifandi. Þykir ganga krafta-
verki næst að nokkur skyldi hafa
komist lífs af úr slysinu.
Talið er að 10 Bandaríkjamenn
hafi verið um borð í vélinni, þar á
meðal flugmenn hennar, en aðir
hafi verið Kólumbíumenn. Reuter
Partýzone ‘95
Stórverslun Laugavegi 26
(opið alla daga til kl. 22) - Sími 525 5040
Kringtunni
(Opið virka daga til kl. 21. Laugardaga
og sunnudaga til kl. 18) - Sími 525 5030
Laugavegi 96
Sími 525 5065
Póstkröfusími
525 5040
BBubbi Morthens - ,„rrirt,
I skugga Morthens I
uuuui iviuimcns ■ í /i
- M
Emiliana Torrini -
Croucie P’oú lá
Páll Óskar -
Palli
Ymsir -
Pottþétt
-
Ymsr
ekö,w.
Hiðrra tii þin
i v Geirmundur Valtýsson
Ymsir -
Pottþétt 2
0Jóiagestir 3 -
Björgvin Haildórsson
Sjávarútvegsráöherrar ESB ákveða kvóta 1996:
Niðurskurður ekki
eins og lagt var til
Sjávarútvegsráðherrar Evrópu-
sambandsins komust að samkomu-
lagi i morgun um að taka tillit til
þarfa fiskiðnaðarins við ákvörðun
kvóta fyrir næsta ár og fóru ekki að
ýtrustu kröfum framkvæmdastjóm-
ar ESB um niðurskurð til að vemda
fiskistofnana. Ráðherrarnir fund-
uðu næturlangt.
„Þetta var erfitt verk,“ sagði Luis
Atienza, landbúnaðarráðherra
Spánar, heldur þreytulegur eftir
fjórtán klukkustunda fundarsetu.
„Okkur tókst að ná jafnvægi milli
sæmilega arðbærra veiða annars
vegar og félags- og efnahagslegra
hagsmuna hins vegar,“ bætti hann
við.
Emma Bonino, fiskveiðistjóri
Evrópusambandsins, var aftur á
móti ekki jafn kát og sagðist hefði
viljað sjá kjarkmeiri aðgerðir til
verndunar fiskistofnunum.
„Málamiðlunin um vemdun fiski-
stofna var ekki alveg fullnægjandi,"
sagði hún. „Við verðum að beina
sjónum okkar sífellt meira að fiski-
stofnum og verndun þeirra ef við
ætlum okkur að tryggja að veiðar
geti staðið undir sér í framtiðinni.“
Emma Bonino hefði viljað skera
meira niður. Símamynd Reuter
Framkvæmdastjórnin hafði lagt
til allt að fimmtíu prósenta niður-
skurð aflaheimilda eftir að fiski-
fræðingar höfðu varað hana við því
að hrun nokkurra fiskistofna væri
yfirvofandi.
Bretar og aðrar stórar fiskveiði-
þjóðir innan bandalagsins mót-
mæltu og sögðu að gögnin fyrir
sumar tegundimar, einkum á vest-
urmiðunum, væm ófullnægjandi og
niðurskurðurinn mundi ræna þús-
undir sjómanna vinnunni. Reuter
Bíða eftir jólasvein-
inum í 35 stiga gaddi
Krakkar sem heimsækja jóla-
sveininn í höfuðstöðvum hans í
finnska bænum Rovaniemi þurfa að
leggja ýmislegt á sig. Þeir verða til
dæmis að standa í biðröðum úti í 35
stiga gaddi eftir að fá að hitta
sveinka þar sem skrifstofa hans er
svo lítil að allir komast ekki þangað
inn.
Allt að sjö flugvélar fullar af
bömum, margar þeirra frá Bret-
landi, koma daglega til Rovaniemi,
sem er nyrst í Finnlandi. Börnin
gera það sem böm gera þegar þau
hitta jólasveininn, setjast á hné
hans og láta taka af sér mynd.
„Þarna rikir algjör ringulreið,"
sagði í frétt blaðsins Iltalehti, sem
birti jafnframt myndir af fjölskyld-
um að bíða úti í kuldanum. „Það er
svo kalt og svo margt fólk að jóla-
skapið gæti horfið þá og þegar.“
Reuter
Yasser
Arafat, leið-
togi PLO,
hefur fengið
samkeppni í
forsetakosn-
ingunum
sem verða í
lok janúar
en kona nokkur sem stjórnar
góðgerðarsamtökum á Vestur-
bakkanum lýsti yfir framboði
sínu í gær.
Börn fórust
Rúmlega áttatíu böm létust í
flugslysinu í Angóla í vikunni
þegar flugvél frá Saír fórst.
Sveinki hneyksiar
Svíar urðu ævareiðir þegar í
ljós kom að aðstandendur sjón-
varpsþáttar eins höfðu valið
dæmdan barnaníðing til að
leika jólasveininn.
Hörfað í Tsjetsjeníu
Uppreisnarmenn í Tsjetsjeníu
hættu við vikulangt umsátur
sitt um borgina Gudermes í
gær.
Oleksy
Jozef
Oleksy, for-
sætisráð-
herra Pól-
lands, þarf
að standa í
ströngu í dag
til að bjarga
bæði starfi
sinu og orðspori eftir að hann
vísaði alfarið á bug ásökunum
um að hafa verið njósnari, að
því er virðist á snærum
Moskvuvaldsins.
Dansað í Betlehem
Palestínumenn dönsuðu og
sungu á götum Betlehem langt
fram á nótt eftir að ísraelskir
hermenn fóm þaðan eftir 28 ára
hemám.
Sprengt í Pakistan
Að minnsta kosti 32 týndu lífi
og rúmlega 100 særðust í bíl-
sprengju í borginni Peshawar í
Pakistan i gær. Reuter
í baráttu