Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1995, Qupperneq 10
10
FÖSTUDAGUR 22. DESEMBER 1995
Utlönd
Skilaboö kirkjunnar manna til Karls Bretaprins setja Camillu út í kuldann:
Liföu skírlífi eftir
skilnað við Díönu
HRUN KONUNGLEGS
HJÓNABANDS
Elísabet drottning hefur skrifað
Karli ríkisarfa og Díönu
prinsessu bréf þar sem
hún krefst þess að þau
gangi frá skilnaði
hið fyrsta.
HJÓNABANDSSAGA
29. júlí 1981
Gift í St. Paul's dómkirkjunni.
1985
Fyrstu fréttir af hjónabandserfiðleikum.
Júní1992
"Diana - HerTrue Story" eftirAndrew
Morton kemur út. Þar er dregin
upp mynd af ástlausu hjónabandi og
eiginkonu sem reynir sjálfsmorö til
að ná athygli eiginmannsins.
9. desember 1992
John Major forsætisráöherra tilkynnir
um skilnað Karls og Díönu að borði
og sæng.
Janúar1993
"Camillagate" kemst í hámæli, þ.e.
segulbandsupptökur af leynilegum
símtölum Karls og Camillu Parker
Bowles sem er gamall séns.
September 1994
Anna Pasternak sendir frá sér bókina
"Princess In Love", sem fjallar um
ástarsamband Díönu og liösforingjans
James Hewitts.
29. júní 1994
Karl viðurkennir í sjónvarpsviötali að
hafa haldið fram hjá með Camillu
Parker Bowles.
20. nóvember 1995
Díana kemur fram í sjónvarpsviðtali
þar sem hún viöurkennir að hafa átt
í ástarsambandi með Hewitt.
19. desember 1995
Elísabet drottning skrifar Karli og
Díönu bréf þar sem hún krefst
lögskilnaðar þeirra hið fyrsta, þaö sé
æskilegasta leiðin.
REUTER
Karl Bretaprins ætlar ekki að
giftast aftur verði af skilnaði hans
og Díönu prinsessu eins og Elísabet
móðir hans hefur krafist. Þar með
er Camilla Parker Bowles úti í kuld-
anum. Camilla er gamla ástin hans
Karls og hefur hann viðurkennt í
sjónvarpsviðtali að hafa átt í ástar-
sambandi við hana eftir að brestir
fóru að koma i hjónaband hans og
Díönu.
Karli virðist í mun að fara eftir
fyrirmælum, hvort sem þau koma
frá móður hans eða kirkjunnar
mönnum. Elísabet sendi honum og
Díönu bréf í vikubyrjun þar sem
hún krafðist lögskilnaðar þeirra hið
fyrsta. Eftir að hann féllst á þá kröf-
ur móður sinnar komu kirkjunnar
menn og sögðu: Ef þú skilur við
Díönu skaltu lifa skírlifi. Þeir voru
allt annað en hrifnir af þeirri hug-
mynd að Karl mundi lifa í synd
utan hjónabands og annað hjóna-
band á ekki upp á pallborðið meðal
þeirra. Það kemur þó ekki í veg fyri
að Karl verði konungur Breta.
Þó Karl hafi brugðist fljótt við og
viljað binda enda á 14 ára hjóna-
band hefur Díana enn ekki svarað
bréfi drottningarinnar. Er þó fast-
lega búist við að hún fallist á skiln-
að og gerist eins konar góðgjörða-
sendiherra Breta og líkni sjúkum.
Ekki er búist við ákveðnu svari af
hennar hálfu fyrr en eftir áramót
þar sem lögmenn beggja eru í fríi
fram á nýja árið.
Sonunum strítt í skólanum.
Diana mun kreíjast ótakmarkaðs
aðgangs að sonum sinum tveimur,
Vilhjálmi, 13 ára, og Harry, 11 ára.
Þá er rætt um að hún muni ganga
að skilnaðarsamningi sem mun gefa
henni 1,5 milljarða íslenskra króna
í aðra hönd. Samkvæmt breskum
lögum getur lögskilnaður gengið í
gegn innan þriggja mánaða.
Það kemur meðal annars í hlut
Johns Majors forsætisráðherra að
miðla málum og hann mun leggja
sitt af mörkum við að ákveða fram-
tíðarhlutverk Díönu. Einstakir ráð-
herrar og þingmenn eru lítt hrifnir
af hugmyndum hennar um það en
um leið er viðurkennt að aðdráttar-
afl Díönu er gríðarlegt þar sem góð-
gjörðir og fjölmiðlar eru annars veg-
ar.
Nokkrar áhyggjur hafa verið af
velferð sona Karls og Díönu. Vil-
hjálmur er þó talinn koma óskadd-
aður út úr hjónabandsvanda sem
milljónir manna um heim allan
hafa fylgst náið með og þar sem for-
eldrarnir hafa séð fyrir yfirlýsing-
um og fyrirsagnaefni á sjónvarps-
skjánum. En Harry þykir viðkvæm-
ári sál og óvíst að hann hefði þolað
ástandið öllu lengur. í breskum
blöðum segir frá því að þeim bræðr-
um hafi verið strítt i skólum sínum
eftir að foreldrar þeirra viður-
kenndu í sjónvarpsviðtölum að þau
hefðu haldið fram hjá og að hjóna-
band þeirra væri í molum. Reuter
Díana hefur enn ekki svarað bréfi drottningarinnar þar sem krafist er lögskiinaðar hennar og Karls Bretaprins. Er þó
fastlega búist við að hún fallist á skilnað og gerist eins konar góðgjörðasendiherra Breta og ifkni sjúkum.
Símamynd Reuter
LAURA STAR EXPRESS
Straujárn meó gufuþrýstingi.
Gufuþrýstingurinn
sléttir úr misfellum
og krumpur hverfa
á augabragði. ^
Skútuvogi 11, 104 Reykjavík • Sími 588-6869
MIKLU MEIRA EN
VENJULEG RYKSUGA
Kraftmikil ryksuga
og vatnssuga.
Djúphreinsar teppi
og áklæðði.
VAX skúrar flísar,
gólfdúk og önnur
hörð gólfefni.
Alþjóða verslunarffélagið lif.
Ólgan í Frakklandi rædd við forsætisráðherra:
Verkalýðsleið-
togar vonsviknir
eftir fund
Alain Juppé, forsætisráðherra
Frakklands, og leiðtogar verkalýðs-
félaga ræddu fram á nótt um leiðir
til að draga úr ólgunni sem hefur
verið í landinu að undanfórnu en
ekki eru allir á eitt sáttir um hvem-
ig til tókst.
Juppé, sem skýrði frá ýmsum
ráðstöfunum til að auka einkaneysl-
una, styrkja efnahagslífið og draga
úr atvinnuleysinu, sagði að viðræð-
urnar hefðu verið jákvæðar þegar á
heildina væri litið. Hann sagði að
þær hefðu leitt til sátta, eins og von-
ast var til, og að refsiaðgerðum gegn
opinberum starfsmönnum í verk-
falli yrði aflétt.
Verkalýðsleiðtogar voru á hinn
bóginn vonsviknir yfir að ekki
skyldi vera gengið að kröfum þeirra
um hærri laun og að hætt yrði við
hinn umdeilda niðurskurð velferð-
arkerfisins.
Louis Viannet, formaður verka-
lýðsfélagsins CGT þar sem komm-
únistar hafa undirtökin, sagði til-
lögur ríkisstjómarinnar vera óra-
veg frá þvi sem aðstæðumar krefð-
Alain Juppé var fremur ánægður
með niðurstöðu fundarins.
Símamynd Reuter
ust og hann boðaði frekari mót-
mælaaðgerðir strax í næstu viku.
Reuter
Kommúnistar
sigra í fjórö-
ungi kjör-
dæmanna
Sigur kommúnista í rúss-
nesku þingkosningunum várð
enn skýrari í gær þegar búið var
að telja atkvæði í einmennings-
kjördæmunum. Þá lá ljóst fyrir
að kommúnistar höfðu fengið
fjórðung þeirra 225 þingsæta
sem þannig var kosið um. Loka-
talna í listakosningunum er
ekki að vænta fyrr en einhvem
tíma í dag í fyrsta lagi. En þegar
búið var að telja atkvæði í 192 af
225 kjördæmum höfðu kommún-
istar fengið 22 prósent atkvæða.
Kosið var um 450 sæti í neðri
deild þingsins, eða Dúmunni.
Helmingurinn var útkljáður í
einmenningskjördæmum þar
sem sá frambjóðandi náði kosn-
ingu sem fékk flest atkvæðin.
Hinum 225 sætunum er skipt eft-
ir hlutfallskosningu þar sem
kosið var milli nokkurra tuga
flokka.
Kommúnistar fengu 58 menn
kjörna í einmenningskjördæ-
munum, auk þess sem þeir fá
allnokkur sæti til viðbótar þegar
talningu atkvæða í listakosning-
unum verður lokið. Varaformað-
ur flokksins, Valentín Kúptsov,
krafðist þess í gær að flokkur-
inn fengi embætti forseta
dúmunnar. TT