Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1995, Síða 18
18
FÖSTUDAGUR 22. DESEMBER 1995
Fréttir
Rekstur Herjólfs hefur gengið brösulega undanfarin ár:
Einkennst af deilum og
uppsögnum starfsmanna
- skipstjórinn með efasemdir um að nýja skipið væri nógu gott
Forráðamenn Vegagerðarinnar
og Herjólfs hf. skrifuðu í fyrradag
undir samning um að Vegagerðin
yfirtæki allar skuldir fyrirtækisins
og afskrifaði viðskiptaskuld þess
gegn því að Herjólfur afsalaði sér
skipinu til Vegagerðarinnar. Skipið
er þar með komið að fullu í eigu rík-
isins. Hið opinbera greiðir 78 millj-
ónir til reksturs ferjunnar á ári en
Herjólfur hf. mun sjá um fram-
kvæmdina. Segja má að þar með sé
kominn lokapunkturinn í brösótt-
um rekstri Herjólfs en á ýmsu hefur
gengið undanfarin ár.
í lok síðasta áratugar hófust um-
ræður um nýja ferju milli lands og
eyja en gamla ferjan hafði verið í
siglingum frá 1976. Ákvörðun var
tekin um að láta byggja nýtt 79
metra langt skip hjá norskri skipa-
smíðastöð en teikningum var snar-
lega breytt eftir að ríkisstjórnin
ákvað að skipið yrði aðeins 70,5
metrar. Eftir að skipið kom til
landsins í júníbyrjun 1992 kom í ljós
að það var of stutt miðað við breidd
og lýsti skipstjórinn áhyggjum sín-
um vegna þessa.
„Bili uggarnir líst mér illa á mál-
ið. Þá myndum við veltast hér um
hafið eins og korktappi. Ég er af-
skaplega daufur og leiður yfir þvi
Vinningshafi 21. des. 1995:
JÓN HALLDÓR GUÐMUNDSSON
Mulavegi 7 - Seyðisfirði
VINNINGUR DAGSINS:
YOKO YPR-200
FM-STEREO ÚTVARPSTÆKI
með segulbandi að verðmæti
3.990 kr. frá Bónus Radíó
Grensásvegi 11
Þú getur tekið þátt í jólaleik
Bónus Radfó á hverjum degi til
23. des. með því að hringja
í síma 904 1750
og svara þremur spurningum.
Verð 39,90 mínútan.
Glæsilegir vinningar eru í boði:
20 YOKO útvarpstæki
með segulbandi sem eru dregin út
frá mánudegi til föstudags að
verðmæti 3.990 kr.
3 öflugir Affinity GSM símar sem
dregnir eru út á laugardögum, að
verðmæti 54.890 kr.
Á Þorláksmessu verður dregið úr
nöfnum allra þátttakenda um
aðalvinninginn sem erfullbúin CMC
margmidlunartölva að verömæti
202.804 kr.
Jólaleikur Bónus Radíó er í síma
904 1750
Verð 39,90 mínútan
J
hvernig þetta fallega skip lætur í
sjó,“ sagði Jón Eyjólfsson, þáver-
andi skipstjóri á Herjólfi, við DV á
þessum tíma.
Fljótlega hófust deilur um það
hver hefði hannað skipið og sakaði
Sigurður Ingvason skipaarkitekt
fyrirtækið Skipatækni hf. um að
stela hugmyndum, sem hann hafði
einkaleyfi á, við hönnun á Herjólfi
og fór hann í málarekstur vegna
þessa. Skipatækni hélt hins vegar
fram að Sigurður Karlsson hefði
hannað skipið og hótaði meiðyrða-
máli.
Tveir reknir
Launa- og starfsmannadeilur hafa
sett mark sitt á rekstur Herjólfs.
Vorið 1990 kröfðust yfirmenn á
skipinu þess að fá sömu hækkun og
undirmenn höfðu fengið og hótuðu
verkfalli. í febrúar 1993 hófst verk-
fall stýrimanna og var því haldið
fram að aðeins tveir menn stöðvuðu
skipið með verkfallsaðgerðum sín-
um fram á vor. Eftir að stjórn Herj-
ólfs hf. hafði afturkallað uppsagnir
Saga Herjólfs
1975-1977 Gamli Herjólfur byrjar siglingar
1985-1990 Ákveðið að hanna og smíða nýtt skiph Ákveöiö
aö hafa ferjuna 70 metra langa í slað 79 metra
Vorið 1990 Kjaradeilur.
Æ9*m ■'
íffi iFMm' "'iil
Júní 1982 Of stuttur Herjólfur kemur jjj landsins.
Vorið 1993 Verkfall stýrimanna. Stýrimanni og skipstjóra
sagt upp. Gerðardómur og samið um áramót.
DV
þerna og háseta á Herjólfi var stýri-
manni sagt upp vegna verkfallsins
og skipstjórinn rekinn. Hann sakaði
stjórnendur fyrirtækisins um að
koma fram við áhöfn skipsins með
hroka.
Samkvæmt gerðardómi, sem féll
sumarið 1993 og gilti til áramóta,
var svokölluð tvíborgun undir-
manna afnumin en þeir höfðu feng-
ið greiddan einn unninn yfirvinnu-
tíma á dag auk launahækkunar. Um
áramót náðist samkomulag í kjara-
deilu við undirmenn. Ríkti friður
milli starfsmanna og stjórnenda þar
til ferðir milli lands og eyja stöðvuð-
ust í sumar vegna verkfalls skip-
stjóra, stýrimanna og bryta á far-
skipum um allt land.
Kostnaður nam
1,6 milljörðum
Hið opinbera hefur sett háar fjár-
hæðir í rekstur Herjólfs frá því
fyrsta Vestmannaeyjaferjan var tek-
in i notkun um miðjan áttunda ára-
tuginn. Bygging nýju ferjunnar
kostaði tæpa 1,3 milljarða króna fyr-
ir utan ýmsan kostnað í landi.
Kostnaður var því samtals um 1,6
milljaröar að þávirði. Ríkið hefur
styrkt rekstur ferjunnar frá þessum
tíma. -GHS
Miklar skemmdir urðu á kirkjugarðinum á Flateyri þegar snjóflóðið féll á staðinn í október. Snjólaust er þar nú og þá koma skemmdirnar berlega í Ijós.
DV-mynd Guðmundur
Miklar skemmdir á kirkjugarðinum á Flateyri:
Flestir legsteinar fallnir og girðingin einnig
„Við vinnum að hreinsun eins og
hægt er fram á veturinn. Við erum
nýbúin að breiða yfir mestu haug-
ana með síldarnót til að varna foki.
Við erum þessa dagana að vinna að
hreinsun jaöranna," segir Kristján
J. Jóhannesson, sveitarstjóri á Flat-
eyri, um hreinsunarstarf eftir eyði-
leggingar snjóflóðsins sem féll í okt-
óber sl.
Jörð er nú að mestu auð á Flateyri
og afleiðingar snjóflóðsins hafa verið
að koma í Ijós smátt og smátt. Kirkju-
garðurinn er kominn undan snjó og
þar er eyðileggingin hrikaleg.
„Kirkjugarðurinn er mjög illa far-
inn. Það eru flestir legsteinar
skemmdir og girðingin fallin. Þá
eru miklar gróðurskemmdir," segir
Kristján.
Húnvetnskir hestamenn sameinast:
Hrossasamtök í eina sæng
- stefnt að skilvirkni í vinnu um héruð víð
„Víða um héruð eru menn að
gera sömu verkin á tvennum víg-
stöðum. Með sameiningu viljum við
tengja betur saman ræktunina og
markaðsmálin. Með því að nýta
krafta manna betur má búast við að
skilvirkni í vinnubrögðum aukist,“
segir Þórir fsólfsson, bóndi á Lækja-
móti í V- Húnavatnssýslu.
Gengið var frá sameiningu Félags
hrossabænda í V-Húnavatnssýslu
og Hrossaræktarsambands V-Húna-
vatnssýslu þann 18. desember síð-
astliðinn á Laugarbakka. Nýju sam-
tökin bera nafnið Hrossaræktar-
samtök V-Húnavatnssýslu þegar
þau taka formlega til starfa um ára-
mótin.
Þórir mun gegna formennsku í
samtökunum en hann var áður for-
maður Hrossaræktarsambandsins.
Formaður Félags hrossabænda,
Bjöm Sigurvaldason, bóndi á Litlu-
Ásgeirsá, verður meðstjórnandi.
Að sögn Þóris hefur aðalfundir
Félags hrossabænda og Hrossarækt-
arsambands íslands samþykkt til-
lögu um að árið 1996 verði notað til
að sameina félögin heima í héruð-
um. „Ég á því von á að fleiri komi í
kjölfarið," segir Þórir.
-kaa