Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1995, Side 19
FÖSTUDAGUR 22. DESEMBER 1995
19
Fréttir
Geysilegt magn af þorski út af Vestfjörðum og Norðvesturlandi:
Með friðun áfram
gengur þorsk-
urinn á rækjuna
- auka á kvótann um 50-70 þúsund, segir Bjarni Bjarnason
DV, Akureyri:
„Þorskurinn er i miklu magni al-
veg út á 300 faðma norður af Horni
sem er mjög óvenjulegt og út af
Vestfjörðum og Húnaflóa er mjög
mikið um þorsk. Ég held það sé tími
til kominn til að auka þorskkvótann
í ljósi þessa og það ekki seinna en
strax. Það er geysilega mikið af
þorski og ef þessi friðun heldur
áfram verður ein afleiðing þess sú
að hann gengur á rækjuna og þá sjá
allir hvemig fer fyrir henni. Það er
auðvitað tóm vitleysaáð vera að ala
upp mjög stóran þorskstofn og láta
það bitna á öllu öðru,“ segir Bjami
Bjarnason, skipstjóri á Súlunni frá
Akureyri.
Súlan hefur verið á rækjuveiðum
undanfarna mánuði og Bjarni segir
það ekki hafa farið fram hjá sér sem
rætt hefur verið um undanfarna
daga að geysilegt magn sé af þorski
út af Vestur- og Norðvesturlandi.
„Maður hefur líka aldrei heyrt um
aðra eins veiðimennsku og hjá
Sléttanesinu sem sagt var frá í DV
þegar þeir eru að fá tonn á mínút-
una sem togað er.
En það er alltaf eins þegar fréttir
koma að svona fiskgengd og veiði-
skap þá eru viðbrögðin frá þessum
háu herrum hjá Hafrannsóknastofn-
un alltaf þau að draga úr, segja að
þorskur hafl þétt sig áður á ísland-
smiðum og fleira í þeim dúr. Þeir
slá alltaf um sig vamarmúr en virð-
ast aldrei geta glaðst yflr fréttum
eins og þeim sem nú berast af mið-
unum.
Það á auðvitað að bæta 50-70 þús-
und tonnum við þorskkvótann. En
eina ferðina enn ætla þeir hjá Hafró
að bíða með að skoða ástandið á
miðunum þangað til þeim hentar.
Og þá er ekki víst að þeir finni
neinn þorsk, það er nefnilega ekki
hægt að skoða þetta þegar fiskurinn
finnst ekki og þorskurinn hagar sér
ekkert eftir áformum fiskifræðing-
anna um hugsanlegar rannsóknir,"
segir Bjarni.
-gk
Mæðrastyrksnefnd fékk í vikunni alls 300 kjötlæri að gjöf frá Ingvari
Helgasyni hf. Lærunum var þegar úthlutað til skjólstæðinga nefndarinnar
sem eru einkum efnalitlar einstæðar mæður. Á myndinni sjást þau Ingvar
Helgason forstjóri og Sigrfður Guðmundsdóttir, eiginkona hans, afhenda
Unni Jónsdóttur, formanni Mæðrastyrksnefndar gjöfina. í dag klukkan 15 til
18 mun nefndin úthluta fötum til skjólstæðinga sinna í síðasta sinn fyrir
þessi jól. Aukin ásókn hefur verið í aðstoð og margir nýir skjólstæðingar
leitað á náðir nefndarinnar. En þó þörfin fyrir aðstoð hafi aukist hefur dreg-
ið úr framlögum. „Engu að síður reynum við að aðstoða alla sem til okkar
leita,“ segir Unnur. DV-mynd GS
Friðrik Karlsson gítarleikari:
Freista gæfunnar erlendis
„Eg hef fengið svo mörg atvinnu-
tilboð að ég er að hugsa um að
freista gæfunnar og flytjast búferl-
um til London á næsta ári,“ sagði
Friðrik Karlsson, gítarleikari í
Mezzoforte. Fyrr á þessu ári fékk
Friðrik boð um að spila á gítar í
kvikmyndinni Evitu þar sem
Madonna og Antonio Banderas fóru
með aðalhlutverkin.
„Ég ætla að flytja til útlanda i eitt
ár til að byrja með, en ef dæmið
gengur upp og ég fæ nóg að gera get-
ur verið að ég flytji alfarið utan,“
sagði Friðrik.
-ÍS
LEYNDARDOMURINN:
Svert og teygjanlegt
mittisband sem tryggir
fullkomna setu buxnanna.
Meðalþétt teygja sem
gerir mittið granntog
tígulegt.
Stuðningur um magann
gefur glæsileika.
Sérstök teygjubönd sem
lyfta rassinum,o.g gera
hann fegurri.
Mótandi teygja fyrir
mjaðmirog læri.
40 Meðalþétt teygjubönd
sem hindra fellingar.
40Breytiiegur þéttleiki veitir
róandi nudd á
fótleggjunum.
SEM
ft • Vfövvín " b&íll
lllliP’' L
ODpioneer
The Art of Entertainment
Þar sem gæðin skipta máli
Aldrei meira
úrval
RAÐGREfÐSLUR
V/SA
—Ml , . ,
TIL 24 MÁNAO/X
Euro raðgreiðslur
til allt að 36 mán.
VERSLUNIN
MBÆRf
Skeifunni 7 - Sími 533 2500