Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1995, Blaðsíða 22
30
FÖSTUDAGUR 22. DESEMBER 1995
í
fþróttir
Yfirbyggö 50 metra sundlaug fyrir Smáþjóðaleikana 1997:
„Hægt að byggja
laug fyrir mun
minni fjárhæð“
- segir Sævar Stefánsson, formaður Sundsambands íslands
Brassar sigruðu
Heimsmeistarar Brasilíu-
manna sigruðu Kólumbíumenn,
3-1, í vináttulandsleik í knatt-
spyrnu sem fram fór í Brasilíu í
fyrrinótt. Heimsmeistararnir
gerðu út um leikinn á síðustu 8
minútunum en þá skoruðu þeir
tvívegis. Tulio skoraði tvö marka
Brasilíumanna og varamaðurinn
Carlinhis eitt.
Sammways til Wolves
Mark McGhee gerði í gær sín
fyrstu kaup eftir að hann tók viö
stjórninni hjá Wolves. McGhee
fékk þá Vinny Sammways, mið-
vallarleikmann frá Everton, aö
láni en hann hefur verið úti í
kuldanum hjá Roe Royle, stjóra
Everton.
Riochgeturkeypt
David Dein, stjórnarformaður
Arsenal, hefur sagt Bruce Rioch
að eftir dóm í Bosmanmálinu
verði engin takmörk sett á út-
lendinga hjá Arsenal. Rioch fái
nokkrar milljónir til að geta
keypt leikmenn frá Evrópu. Arse-
nal hefur áhuga á Nigeriumann-
inum Emanuel Amoniki hjá
Porto og Marc Overmars, leik-
manni Ajax, sem einnig hefur
verið undir smásjánni hjá Manc-
hester United.
Newsontil Villa?
Aston Villa gerir nú allt til að
stoppa í vömina hjá sér og nú
hefur félagið augastað á vamar-
manninum John Newson hjá
Norwich. Brian Little, stjóri
Villa, er sagður reiðubúinn að
bjóða 200 milljónir í kappann.
BlaketilBolton
Forráðamenn Bolton vonast til
þess að geta skrifað undir samn-
ing við framherjann Nathan
Blake hjá Sheffield United fyrir
föstudagskvöld svo að han geti
veríð löglegur í leikinn gegn Tott-
enham á laugardag.
Wright í vandrædum
Enska knattspymusambandið
hefur krafið Ian Wright hjá Arse-
nal skýringa á því hvers vegna
að hann kallaði dómarann David
Elleray, „Litla Hitler" í blaðavið-
tali í vikunni. „Það er langt frá
því að máhnu sé lokið. Við höfum
skrifað Wright bréf og krafist
skýringa á ummæiunum," sagði
Steve Douhle hjá enska knatt-
spyrnusambandinu.
Toppslaguráítaliu
Sannkailaður toppslagur er á
dagskrá ítölsku 1. deildarinnar í
knattspymu á laugardaginn þeg-
ar toppliöið AC Milan sækir Fior-
entina heim í Flórens. Með sigri
getur Fiorentina skotist upp á
toppinn en þjálfari liðsins,
Claudio Ranieri, spáir því að
hvemig sem þessi leikur fari
standi slagurinn um meistaratit-
ilinn á milli AC Milan, Juventus,
Parma eða Lazio.
Milanántveggja
Fiorentina mætir meö sitt
sterkasta lið en AC Milan leikur
án tveggja sterkra leikmanna.
Costacurda er í leikbanni og Dej-
an Savisevic er meiddur. Stööu
hans tekur Boban en stööu
Costacurda í vöroinni tekur
Francesco Coco.
Bayern að leita
Bayern Munchen leitar nú log-
andi ljósi að framherja sem getur
spilað með Júrgen Klinsmann.
Frakkinn Jean Pierre Papin er
oröinn leiður í Þýskalandi og vill
fara heim. Forráöamenn Bæjara
hafa í hyggju að ræða við Davon
Sukker en hann leikur meö Se-
villa á Spáni.
Ákvörðun borgaryfirvalda að ráð-
ast ekki fyrst um sinn í byggingu
á yfirbyggðri keppnissundlaug fyr-
ir Smáþjóðaleikana hér á landi 1997
varð mikið áfall fyrir aðstandendur
leikanna og ekki síst ráðamenn
innan sundsambandsins. Borgar-
yfirvöld segja kostnaðinn of mik-
inn, mun meiri en fyrstu tölur
gerðu ráð fyrir. Sundmenn hafa um
árabil átt þá ósk heitasta að byggð
yrði yfirbyggð sundlaug en ófull-
komnar aöstæður hafa aö margra
mati staðið sundíþróttinni fyrir
þrifum um alllangt skeið.
Skilyrði fyrir því að sund verði
meðal keppnisgreina á Smáþjóða-
leikum er að til staðar sé yfirbyggð
50 metra sundlaug. Ljóst er aö ef
ekki verður af byggingu hennar
gæti fari svo að ekki verði keppt í
sundi á leikunum á íslandi 1997.
íslenskir sundmenn hafa allt frá
því aö Smáþjóðaleikum var hleypt
af stokkunum sópað til sín verð-
launum og hafa sundmenn átt
stærstan þátt í því að nafn íslands
hefur alltaf verið efst á blaði í heild-
arskiptingu verðlauna.
Sundmenn báru þá von í brjósti
að bygging sundlaugar fyrir leik-
ana myndi rísa en þess í stað blasir
jafnvel við að ekkert verði af henni.
Sævar Stefánsson, formaður Sund-
sambands ísland, var inntur eftir
því í gær hver hefðu verið hans
fyrstu viðbrögð þegar fréttin um
að ekki yrði ráðist í byggingu yfir-
byggðrar sundlaugar barst.
„Ekki besta
jólagjöfin“
„Ef þetta fer fram sem horfir verð-
ur þetta ekki besta jólagjöfin í ár.
í framhaldi af þessari ákvörðun
borgaryfirvalda vitum við ekki
hvar við stöndum og hvert næsta
skref í málinu verður. Ég held að
það sé einhver vilji að gera eitt-
hvað. Annars verður það að viður-
kennast að ég veit mjög lítið,“ sagði
Sævar Stefánsson.
Hver er ástæðan fyrir því að bygg-
ingin þarf að vera svona dýr. Er
ekki hægt að byggja ódýrara?
„Mér skilst að byggingarkostnað-
urinn sé núna kominn í nálægt 500
milljónir. Það er auðvitað hægt að
byggja ódýrara en þetta var orðið
stórglæsilegt mannvirki eins og
það leit á teikniborðinu. Þessi
teikning var alltaf aö hlaða utan á
sig, kröfur og hugmyndir komu
hver af annarri og áður en varði
var talan komin í þessa áðurnefnda
upphæð. Það er engin spurning að
hægt er að fara ódýrari leið. Þetta
verður erfiðara þegar á að samnýta
svona byggingu. Þarna voru raun-
ar komnar þrjár laugar í einni laug,
íþróttalaug, almenningslaug og
skólamannvirki líka. Hin og þessi
atriði hleyptu verðinu upp úr öllu
valdi.“
Ef ekki verður lagt út í byggingu á
þessu markvirki er þá ekki orðið
útséð um að ekkert verði af sund-
inu á Smáþjóðaleikunum?
„Það er fyrir löngu búið að lýsa
því yfir að miðað við óbreytt ástand
teljum við okkur ekki fært að
standa að sundkeppninni. Það hef-
UT komið fram á fundum í tengsl-
um við þessa fyrirhuguðu bygg-
ingu hvort ekki væri hægt að fmna
einhverja lausn. Ein væri sú að
tjalda yfir laugina í Laugardalnum
eða í Kópavogi því þessi útiaðstaða
er alveg vonlaus. Laugakerið væri
hægt að nota en útiaðstaðan geng-
ur bara einfaldlega ekki upp. Eg
vil að það komi skýrt fram að við
erum ekki einungis að berjast fyrir
byggingu þessari með Smáþjóða-
leikana eingöngu í huga. Það er
framtíð sundsins á íslandi sem við
höfum að leiðarljósi."
„Reiðubúnirað
finna lausnir"
„Við erum reiðbúin að finna lausn-
ir til að halda keppnina en það
• Sævar Stefánsson, formaður
SSÍ, varð fyrir gífurlegum von-
brigðum þegar hætt var við að
byggja laugina í Grafarvogi.
verði á hreinu að haldið verði
áfram við að klára mannvirkið stig
af stigi á næstu þremur árum.
Besta hugmyndin að mínu mati er
sú að setja keriö niður næsta sum-
ar þó að tjaldað yrði yfir það meðan
á leikarnir fara fram. Síðan yrði
haldið markvisst áfram á næstu 2-3
árum. Þetta yrði heppilegasta
lausnin fyrir alla aðila og jafnframt
sú ódýrasta. í þessu sambandi þarf
enga búningsaðstööu heldur mætti
tengja hana viö þá aðstöðu sem
fyrir er í Laugardalnum. Þessu er-
um við tilbúin að taka þátt í og
fundin verði síöan framtíðarlausn
á þessum málum. Ég varð fyrir
rosalegum vonbrigðum þegar mér
barst til eyrna niðurstaða borgar-
yfirvalda fyrr í vikunni. Ég var
búinn aö sitja marga fundi með
þeim, búið var að skoða málið vel
og allt þetta leit vel út. Þetta kom
eins og köld vatnsgusa framan í
okkur. Þegar maður sá hug þeirra
til byggingarinnar var ég farinn að
sjá þessa laug rísa fyrir alvöru.
Maður skilur vel afstöðu borgar-
innar fyrir dæmi sem á í fyrstu að
kosta 250 milljónir en er svo allt í
einu orðiö helmingi dýrara. Það
liggur bara fyrir að hægt er að
byggja fyrir mun minni fjárupp-
hæðir.“
- Hver verða næstu skref ykkar í
sundinu í þessu mikilvæga máli?
„Við verðum í sambandi við
þessa aðila. Þessu var frestað í bili
en ekki ýtt endanlega út af borðinu
í borgarstjórn. Við lifum alla vega
í voninni fram yfir áramót. Ef hins
vegar ekkert gerist þá stöndum við
með fyrri ályktanir Sundsam-
bandsins þar sem segir að við nú-
verandi aðstæður verði ekki hægt
að halda sundkeppnina á Smá-
þjóðaleikunum. Ég trúi þvi nú ekki
að þeir geri ekki eitthvað. Máhð er
komið þaö langt og eytt hefur verið
talsverðum peningum í hönnunar-
mál þannig að ekki verður aftur
snúið,“ sagði Sævar Stefánsson,
formaður Sundsambands íslands.
-JKS
• Það skyldi aldrei fara svo að fundin yrði „gervilausn" á vanda sundfólksins vegna Smáþjóðaleikanna og
tjaldað yfir gömlu Laugardalslaugina. Það yrði aum útkoma fyrir íslendinga en kannski nauðsynleg lending
til þess að forðast að íslendingar missi af leikunum. Sævar Stefánsson, formaður Sundsambands islands,
segir að hægt sé að byggja sundlaug í Grafarvogi fyrir mun lægri upphæð en hálfan milljarð króna.