Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1995, Page 27
FÖSTUDAGUR 22. DESEMBER 1995
35
Menning
Speglabúð í bænum
Þetta er fimmta ljóöabók Sigfúsar Bjart-
marssonar. Hún er efnismikil, skíptist I sex
hluta, ýmist prósaljóð eða frekar stutt ffDjóð.
Sér á parti er sjötti hlutinn, sem heitir Minnis-
greinar um Kennarann, 20 bls. samfelldur bálk-
ur, eftirmæli um nafngreindan frænda höfund-
ar. Hann lýsir sér í eigin orðalagi og viðhorfum
og úr verður svo skörp mynd að mér finnst ég
gjörþekkja manninn þótt aldrei hafi heyrt
hann né séð. Þessi persónumynd minnir mikið
á Tómas Jónsson Guðbergs sem er þó miklu
öfgakenndari skrípamynd.
Síbylja
í prósaljóðunum ber annars mest á síbylju
hugarflaums. Allur textinn (stundum 2-3 bls.)
er ein málsgrein þar sem vaðið er úr einu í
annað, óskipulega. Þessarar aðferðar gætti í
fyrstu bók Thors Vilhjálmssonar, 1950. Hér er
þetta m.a. í borgarlýsingum, ss. Endurvinnsla í
London sem byggist á kunnuglegum brotum úr
enskum bókmenntum, mest frá 19. öld. Annar
texti, Drög að kvæði mínu um hrafninn, segir
frá því að sögumaður skýtur hrafn, og er þetta
bergmál frá dýrlegu smásagnasafni Sigfúsar,
Mýrarenglarnir falla. Þessir textar eru flestir
of langir til að birta hér, en lítum þó á einn
hinn stysta:
Vatn
Banginn og skreppandi saman undan hvolf-
inu sígandi í jarðmyrkrið og nei andskotinn
þetta getur ekki staðist, getur ekki verið til
þessi skepna, og þeir dúa ekki svona bakkarn-
ir, bólgnar ekki svona vatnið, ekki bullað
svona upp geislann nei, - jú gúmmískórnir að
hverfa og kuldinn í því og dauðans alvara upp
leggina og hnén, og lærin upp í klobba og þá er
ljósið löngu dautt og óratími þar til grillir í það
að ekkert er blautt nema vasaljósið.
Þetta er nokkuð dæmigert, allt á talmáli, og
textinn er röð af skynjunum settum fram í
myndmáli, sem allt er af hversdagslegu tagi, og
heldur fráhrindandi. Samhengi er óljóst, en þó
hnitast textinn um einn kjarna, sem kemur þó
ekki skýrar fram en svo, að lesandi verður að
Bókmenntir
Örn Ólafsson
ráða í hann. Þannig miðlar textinn vel hugará-
standi augnabliks. - Ég túlka þetta þannig, að
mælandi sé einn á ferð í myrkri, finnist hann
vera að sökkva í kviksyndi, dauðhræddur við
eitthvert kynjadýr sem hann þykist grilla í.
Svo virðist hann átta sig í lokin.
Fríljóð
eru flest styttri og sum einfaldari. Hér rík-
ir oft kumpánlegur tónn, jafnvel er vorlýs-
ing dregin niður í lágkúru í lokin (bls. 64),
og kemst þannig hjá klisjum. Eitt stysta
ljóðið lýsir leiði konu sem þótti fuglsleg,
lifs og liðin, á því vex þá tréð sem fuglar
sækja mest í. Þetta er hálfdæmisögu-
kennt, þannig varðveitist eitthvert órofa
samhengi í gegnum myndbreytingar
dauðans.
Minningarmark
við Suðurgötu
Líflegasta tréð og kliðurinn
upp af konu sem þótti svo fuglsleg
á svip og fislétt í kistunni.
Ljúkum þessum pistli á ljóði af öðru tagi.
Þar ríkir fegurðin í þremur stuttum er-
indum sem öll eru með hliðstæðu orðalagi
og öll byggjast á sambærilegri mótsögn,
sem hver um sig skilar því hve yfirgengi-
leg tilfinningin er fyrir náttúrunni. Allt
orðalagið lýtur að kyrrð, skjóli, yl, innan
andstæðna nætur og dags.
Landslag með tíma
Svo sólríkur þessi dalur
að undir morgun týrir enn
á degi frá í gær.
Svo mikil þessi fjöll
að næturskuggarnir einir
ná utan um þau.
Svo skjólsæl þessi laut
að í lynginu leynist ylur
frá liðinni öld.
Speglabúð í bænum.
Sigfús Bjartmarsson.
Bjartur 1995,102 bls.
Krakkar! í kvöld kemur
Kjötkrókur til byggöa
m
Leikjatöiva
framtíöarinnar
kventta kr. 3.450
Silkisloppar frá kr. 3.450
Gjafavara í miklu úrvali.
Hverfisgötu 37, sími 55I-2050.
Fað/r vors krossar
Krossar með faðirvorinu úr silfri og gulli.
Verð á silfurkrossinum er 1.950 kr. með festi.
Verð á 9k gullkrossinum er 4.950 kr. með festi.
Laugavegi 49
Símar 551 7742 og 561 7740
Ermahnappar og bindisnælur
Mikið og glæsilegt úrval af ermahnöppum og
bindisnælum (einnig settum) úr silfri, gulli, 14k og
9k, og einnig ódýrum gylltum málmi, komið og
skoðiðbið frábæra úrval.
Verð á hnöppurasem eru á myndinni er:
hnappar 7.600 kr. og bindisnæla 4.900 kr.
Hægt er að fá fallegt se.tt úr gylltu frá 2.100 kr.
49
7742 og 561 7740
<@utt .
X. Laugavegi
Ifillin Símar 551
Herraarmbönd
Mjög falleg herragullarmbönd á frábæru verði 9k
gull frá 16.200 kr. og upp í 32.000 kr. í 14K
(ekki hol að innan).
Einnig úr silfri og double frá kr. 4.400.
Eigum einnig fallegar herrakeðjur úr gulli og silfri á
góðu verði.
&U Laugavegi 49
(dffötlin Símar 551 7742 og 561 7740
Hringar
Mjög fallegir gullhringar, tví- og þrílitir, gult, rautt
og hvítt gull á frábæru verði, frá kr. 4.500.
Stafahálsmen
Þessi skemmtilegu stafahálsmen fást í Gullhöllinni,
Laugavegi 49. Þau eru úr 14 karata gulli með demanti
sem er 0,01. Verð án festar er kr. 6.100.
Hálsmen
TÖFRARÚNIR,
silfurmen (stafir)
verð með festi
aðeins 1.850 kr.
TÖFRARÚNIR
eru margra alda
gamlar. Menn til
forna notuðu rúnir
þessar sér til
verndar og heilla.
Þeir sem þessar
rúnir bera munu
ekki í vandræöi
komast.
'&utl ,
Laugavegi 49
Töllin Símar 551 7742 og 561 7740
^ull
Laugavegi 49
Öllin Símar 551 7742 og 561 7740
<%ull
Laugavegi 49
Öllin Símar 551 7742 og 561 7740