Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1995, Síða 32
40
FÖSTUDAGUR 22. DESEMBER 1995
Sviðsljós
Linda eyddi fé
til einskis
Linda McCartney, eiginkona
Pauls, snaraði fram þrjú þúsund
pundum um daginn tU að bjarga
verðlaunakalkúna frá bráðum
jólabana, að hún hélt og aðrir
sömuleiðis. Nú hefúr hins vegar
komið á daginn að meintir
væntanlegir morðingjar fugls-
ins, veitingamaður nokkur og
starfsfólk hans, ætluðu sér
aldrei að slátra gripnum heldur
gefa hann skóla einum bömun-
um tU skemmtunar tU fuglsins
æviloka.
Angela ánægð
meo ákvörðun
Leikkonan Angela Lansbury,
sem allir þekkja í hlutverki
Jessicu Fletcher, rithöfundar og
afskiptaskjóðu í Morðgátum, er
ansi ánægð með þá hjá CBS
sjónvarpsrisanum í Ameríku.
Þátturinn verður nefnUega flutt-
ur aftur yfir á gamla sunnudags-
tímann sinn í janúarbyrjun. „Eg
lít á þetta sem nýársgjöf til
áhorfenda," sagði hún.
Jack Lemmon
með ógeð á ofbeldi
Jack Lemmon, óumdeilanlega
einn af gömlu risunum í leikara-
stéttinni í Hollywood, segist líta
með söknuði tU þeirra daga þegar
kvikmyndirnar voru bara sögur af
fólki.
„Kvikmyndagerðin hefur breyst.
Eitt af því sem setur svip sinn á
kvikmyndir nú er ofgnótt kynlífs og
ofbeldis, sérstaklega ofbeldisins,
sprenginganna, bellibragðanna þeg-
ar fólk er sprengt í tætlur. Ég tel að
aUt of mikið sé um ofbeldið og per-
sónulega finnst mér það viðbjóðs-
legt. Ég mundi hafna slíkum
hlutverkum. En það er sosum
ekki mikið sóst eftir mér í
þannig myndir. Ég sakna
bara frásagna af fólki,“ segir
Jack Lemmon, önnur aðal
hetjan í væntanlegri gam-
anmynd, Fúlli á móti, þar
sem hann leikur á móti
gömlum og góðum vini
sínum, Walter Matthau.
Jack segist þó merkja að bók-
menntalegri handrit, ef svo má að
orði komast, séu að sækja
í sig veðrið. „Ég
held að
pendúllinn
sé að
sveifl-
ast til
baka,“ segir Lemmon, sem sjálfur
útskrif-
aðist
frá
hin-
um
virta
Harvard- háskóla og er þekktur fyr-
ir túlkun sína á flóknum persónum.
Og aUtaf skal hann vera jafn stráks-
legur og fyrir 40 árum þegar hann
haslaði sér völl innan kvikmynd-
anna.
í byrjun þessa áratugar leit ekki
út fyrir annað en að Jack Lemmon
mundi aðeins leika pínulítil hlut-
verk þar til hann settist alveg í helg-
an stein. Það breyttist þó árið 1992
þegar Jack var 67 ára. Þá fékk hann
stórt hlutverk í mynd Davids
Mamets, Glengarry Glen Ross, og
sýndi þar gömlu taktana sem
hann er svo elskaður og dáður
fyrir.
- En Jack er ekki hættur að
kiífa brattann, því hann
hefur fallist á að vera með
' í Hamlet sem sá breski
snillingur Kenneth
Branagh ætlar að gera
á næsta ári. Það
verður í fyrsta sinn
sem hann leikur
Shakespeare. Þang-
að til verðum við
þó að láta okkur
nægja að hlæja að
honum í nýju
myndinni um fúlu
karlana eða bara í
gömlu
meistara-
verkun-
um.
Jack Lemmon og Ann-Margret láta vel hvort að öðru, enda leika þau hér hjón í myndinni Fúlli á móti sem verður frumsýnd vestra á næstunni. Þar leikur
Lemmon enn einu sinni á móti fornvininum Walter Matthau.
sem fylgdi
25. nóvember og hringdu í
s. 904-1750 og taktu þátt í jólaleiknum
Jólaleikur^^*
Skoðaðu Jólagjafahandbók
YOKO YPR-200 FM stereo útvarpstæki með segul
bandi, hvert að verðmæti kr. 3.9p0.
jlfc -AFFINITY 930 GSM símar, hver að verðmæti
kr. 54.890. Þetta eru öflugir símar með 60 númert
símaskrá með nöfnum, 15 mismunandi hringingum,
dagsetningu og klukku, 5 styrkstillingar o.fl.
Og aðalvinningurinn sem dreginr
verður út á Þorláksmessu:
486DX4/100 fullbúin margmiðlunar
ilva með 8 MB vinnsluminni, 540 MB
diski. Tölvunni fylgir PCI skjákort, 16
bita hljóðkort, innbyggt 4 hraða geisladrif CD
ROM, tveir 40 vatta hátalarar, Samsung 17"
Gli Sync Master S-VGS lágútgeislunar litaskjár
28800 bps modem, Internet- tenging í 1
mánuð, 2 raðtengi, 1 hliðtengi, 1 leikja-
tengi, straumlínulaga mús, músarmotta
og Windows 95.
Nöfn vinningshafa verða birt daglega í DV til 23. desember.
Jólaleikur Bónus Radíó - Hringdu í 904-1750 - Verð 39,90 mínútan
Þegar kemur að auglýsingum er allt reynt og ólfklegustu staðir notaðir. Hér
stendur Aki Alma, dansmey í spílavíti Stardust-hótelsins í Las Vegas, á
væng þotu þar sem mynd af henni í fullum skrúða hefur verið máluð á sté-
lið. Þotan er í eigu Western Pacific flugfélagsins en myndskreyting stélsins
er sú nýjasta í röð augiýsinga utan á vélum félagsins. Símamynd Reuter
Geena Davis
gefur sjóræn-
ingjakjólinn
sinn
Geena Davis, leikkonan leggja-
langa, hefur fengið þá ósk sína
um að leika í sjóræningjamynd
uppfyllta. Hún lék undir stjórn
eiginmannsins, finnska stjórans
Rennys Harlins, í myndinni Cutt-
hroat Island, eða Morðingjaeyju,
og fór með hlutverk sjóræn-
ingjastýru. Á þessari mynd eru
þau Geena og Renny með kjól-
'inn hennar Geenu úr myndinni á
milli sfn. Kjóiinn gáfu þau minja-
safni Planet Hollywood veitinga-
staðarins í Hollywood fyrr í vik-
unni. Myndin sjálf verður frum-
sýnd vestur í Bandaríkjunum í
kvöld og veröur þá væntanlega
mikið um dýrðir.
Símamynd Reuter