Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1995, Síða 36
FÖSTUDAGUR 22. DESEMBER 1995
Eru íslensku jólasveinarnir illa
klæddir?
Jólasveinar
í lörfum
„Mér leiöast þessir larfar sem
vesalingarnir klæðast í Þjóö-
minjasafninu."
Ólína Þorvarðardóttir, í Tímanum.
Hvaða stofnar eru í
hættu?
„Skipum er markvisst beint í
veiðar á öðrum stofnum sem eru
bersýnilega við hrun.“
Sölvi Pálsson skipstjóri, f DV.
Ummæli
Islenska karnívalið
„Þorláksmessa er hið íslenska
karníval, skemmtilegasti dagur
ársins fyrir alla þá sem hafa
bundið bagga sína sömu hnútum
og samferðamenn.“
Guðmundur Andri Thorsson,
í Alþýðublaðinu."
Alþýðuflokks-uppar
„Þetta snýst bara að einum
Hrafni (Jökulssyni) og engir aðr-
ir alþýðuflokksmenn en hann og
nokkrir Alþýðuflokks-uppar hafa
staðið fyrir pólitískri aðför að
mér.“
Guðni Ágústsson, f Helgarpóstinum.
Jólatré (grenitré) urðu ekki al-
geng hér á landi fyrr en um 1940.
Jólasveinar
og jólatré
í hinni merku bók Sögu dag-
anna eftir Árna Björnsson segir
að Grýla sé þekkt sem flagð frá
13. öld og er á 17.-18. öld barna-
æta sem tengd er jólunum.
Blessuð veröldin
Fyrstu sögur um jólasvein eru
frá 17. öld og þá er hann af-
kvæmi Grýlu. Á 19. öld taka þeir
nokkuð að mildast, koma þá ým-
ist af fjöllum eða af hafi, eru oft-
ast 9 eða 13. Spurnir eru af rúm-
lega sjötíu jólasveinanöfnum.
Seint á 19. öld tekur eðli jóla-
sveina og útlit að blandast
dönskum jólanissum annars veg-
ar en evrópskum og amerískum
jólakarli hins vegar. Um 1930
verður sú aðlögun að jólasvein-
arnir koma fram í rauðum al-
þjóðaklæðnaði og verða gjafmild-
ir en halda íslenskum sérnöfnum
og fjölda. Um miðja 20. öld fóru
jólasveinarnir að gefa börnum í
skóinn að norður-evrópskum sið.
HAPPDRÆTTI
BÓKATÍÐINDA
VINNINGSNUMER DAGSINS:
39355
Ef þú finnur þetta númer á baksíðu
Bókatíðinda skaltu fara með hana
í næstu bókabúð og sækja vinninginn:
BÓKAÚTTEKT AD ANDVIRDI
10.000 KR.
Bókaútgefendur
Éljagangur fyrir norðan og austan
Yfir Austur-Grænlandi er 1030
millíbara hæð og skammt suður af
íslandi er grunnt lægðardrag sem
fer hægt í vestur. Milli Jan Mayen
og Noregs er 992 millíbara lægð sem
þokast suður á bóginn. í dag verður
austan- og norðaustankaldi. Élja-
Veðrið í dag
gangur norðan- og austanlands og
einnig við suðurströndina. Vestan-
lands verður skýjað með köflum og
úrkomulaust að mestu. Frost 5 til 15
stig. Á höfuðborgarsvæðinu verður
austan- og norðaustankaldi og létt-
skýjað fram eftir morgni en síðan
skýjað með köflum og ef til vill smá-
él. Frost 6 til 10 stig.
Sólarlag í Reykjavik: 15.31.
Sólarupprás á morgun: 11.22.
Síðdegisflóð f Reykjavík: 18.37
Árdegisflóð á morgun: 7.03.
Heimild: Almanak Háskólans.
Veöriö kl. 6 í morgun:
Akureyri skýjaó -.9
Akurnes heióskírt . -8
Bergsstadir léttskýjað -13
Bolungarvík léttskýjaó -7
Egilsstaðir skýjaó -11
Keflavíkurflugv. léttskýjað -8
Kirkjubœjarkl. skýjaó -9
Raufarhöfn alskýjaó -9
Reykjavik heióskírt -10
Stórhöfði alskýjaó -4
Bergen snjóél -5
Helsinki ísnálar -21
Kaupmannah. þokumóóa -5
Ósló léttskýjaö -14
Stokkhólmur heiöskírt -16
Þórshöfn snjókoma -3
Amsterdam súld 1
Barcelona léttskýjaó 8
Chicago alskýjaö -6
Feneyjar þokumóóa 5
Frankfurt súld 1
Glasgow rigning 2
Hamborg skýjaó -5-
London rigning 12
Los Angeles skýjaó 13
Lúxemborg súld 7
Malaga þokumóöa 10
Mallorca ■ lágþokubl. 13
New York skýjaó -1
Nice skýjaó 9
Nuuk heióskírt -5
Orlando alskýjaö 8
París rigning 10
Róm skýjaó 13
Valencia heiðskírt 12
Vín alskýjaó -2
Winnipeg léttskýjaó -14
Guðlaug Runólfsdóttir, starfsmaður Mæðrastyrksnefndar:
Erum hlekkur í stórri keðju
Það hefur verið mikið að gera
hjá Mæðrastyrksnefnd undanfarna
daga eins og alltaf fyrir hver jól en
nefndin úthlutar til einstæðra
mæðra, sem þess þurfa, ýmsum
nauðsynjum. Sönnun þess að
Mæðrastyrksnefnd er að gera þeim
sem til hennar leita lífið bærilegra
er hversu mikill fjöldi leitar til
nefndarinnar ár hvert og einnig
það hversu vel fyrirtæki og ein-
staklingar styðja við bakið á nefnd-
inni. Guðlaug Runólfsdóttir er
starfsmaður Mæðrastyrksnefndar
og var hún fengin í stutt spjall um
störf Mæðrastyrksnefndar:
Maður dagsins
„Við erum þessa stundina að af-
greiða það sem eftir er og það er
fullt út úr dyrum hjá okkur. Við
vorum að fá þriðju sendinguna af
Frónkexi. Við erum búin að koma
út 350 lærum sem Ingvar Helgason
afhenti okkur og er allur matur
sem við höfum fengið farinn út og
nú bið ég bara til guðs að við fáum
meira af peningum til að borga þá
matarmiða sem við höfum verið að
Guðlaug Runólfsdóttir.
hjálpa fólki um, en svo þröngt hef-
ur þetta verið hjá okkur í ár að við
höfum þurft að minnka um helm-
ing þann skammt."
Guðlaug sagði að Mæðrastyrks-
nefnd væri búin að afgreiða um
800 heimili og það sem henni væri
efst í huga er hversu fólk er velvilj-
að nefndinni. „Ég er búin að vera
hér í 22 ár, hef séð um skrifstofuna
og það er alltaf sama traölkin fyr-
ir jólin, en ég er samt alltaf að
vona að það komi slíkt góðæri að
við þurfum ekki á þessum gjöfum
að halda."
Guðlaug sagði aðspurð að fjöld-
inn sem leitaði til þeirra væri
álíka og í fyrra: „í fyrra voru það
rúmlega þúsund heimili sem við
aðstoðuðum og ég held að það
verði álíka nú, en dagurinn í dag
er sá síðasti sem við erum við út-
hlutum."
Guðlaug var spurð hvað tæki
við hjá Mæðrastyrksnefnd þegar
þessari törn lyki: „Þá tekur við
hefðbundið starf. Við érum með
lögfræðiþjónustu og við erum með
fataúthlutun einu sinni í viku.
Skrifstofan er opin tvisvar í viku,
auk þess reynum við að hjálpa
sængurkonum og mæðrum eftir
því sem við best getum. Það er
mikið leitað til okkar en við höfum
ekki bolmagn til að verða við öll-
um beiðnum, enda leitar fólk til
Félagsmálastofnunar þegar um
mikla erfiðleika er að ræða, en það
má segja að við séum hlekkur í
stórri keðju."
Myndgátan
Hægrihandarakstur
Myndgátan hér aö ofan lýsir orðtaki
Jólasýning
helguð
jólaljósum
Árleg jólasýning Þjóðminja-
safnsins stendur nú yfir. Að
þessu sinni er sýningin í Boga-
salnum og er hún helguð jólaljós-
um. Sýndar eru lýsiskolur og
kerti af ýmsum gerðum, olíu-
Sýningar
lampar, gaslukt og tírur. Einnig
sjást ýmsar gerðir af rafljósaser-
íum fyrir jólatré, glugga og kaffi-
borð og eru hinar elstu frá því
um 1930. Nokkrar gerðir af
jólatrjám og aðventukrönsum
eru sýndar og loks má geta að út-
búin hefur verið jólastofa frá því
um 1930. Sýning þessi stendur til
6. janúar.
Skák
Ágúst Sindri Karlsson hafði hvítt
og átti ieik í meðfylgjandi stöðu
gegn Sigurbirni Björnssyni á Guð-
mundar Arasonar mótinu sem lýk-
ur í Hafnarfirði í dag. Hvítur hefur
byggt upp skemmtilega sóknarstöðu
og lauk nú skákinni snaggaralega:
20. Rxh7! bxa4 Ef 20. - Kxh7 21.
Rg5+ Kg8 22. Dh3 og óverjandi mát.
21. Hxd7! og svartur gafst upp. Svar-
ið við 21. - Dxd7 yrði auðvitað 22.
Rf6+ og eftirleikurinn er auðveldur.
Jón L. Árnason
Bridge
Hverju ætti vestur aö spila út gegn
6 hjörtum eftir þessar sagnir? Austur
gjafari og allir á hættu:
4 --
V KD108
♦ K72
* ÁKD1054
4 10764
* --
♦ D10964
* G876
4 ÁKD92
«4 ÁG54
4 G83
4 9
4 G853
«4 97632
4 Á5
4 32
Austur Suður Vestur Norður
pass 14 pass 24
pass 2*4 pass 3*4
pass 44 pass 44
pass 44 pass 54
pass 5*4 pass 6*4
p/h
Þegar maður er með 5 tromp í vörn-
inni, gefst það oft vel að sjá um að and-
stæðingarnir þurfl aö nota tvö tromp
fyrir hvert eitt sem þú átt. I þessu til-
felli hefði það gefist vel að spila út
trompi í upphafi, sem hnekkir samn-
ingnum. En Vestur stóðst ekki freist-
inguna á að spila út tígulásnum í upp-
hafi og síðan meiri tígli. Spilið kom
fyrir í sveitakeppni í Danmörku og
sagnhafi var Steffen Holm Pedersen.
Hann drap á tígulkóng og fékk vondu
fréttirnar í trompinu þegar hann lagði
niður hjartakóng. Hann tók nú ÁK í
laufi, trompaði lauf með hjartagosa (ef
austur hefði sýnt eyðu, hefði samning-
urinn veriö auðveldur), en vestur
henti spaða í laufið. En sagnhafi slapp
með skrekkinn þegar vestur varö að
fylgja lit í 3 hæstu spaöana. Með þeirri
spilamennsku gat sagnhafi fengiö af-
ganginn af slögunum með víxltromp-
un og hjartasvíningu í næstsíðasta
slag. Þrátt fyrir að sagnhafi hafi slopp-
ið heim, hefði verið nákvæmar að taka
aðeins einu sinni lauf, trompa síðan
lauf og spila síðan spöðum ofanfrá.
ísak Örn Sigurðsson