Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.1996, Blaðsíða 6
6
LAUGARDAGUR 10. FEBRÚAR 1996 ilV
útlönd
stuttar fréttir
Sjúkdómar og hungur
Vísindamenn segja að ef jarð-
| arbúar hafi ekki hemil á fólks-
ijölguninni muni mannkynið
horfast í augu við sjúkdóma og
J hungursneyð í alvarlegri mæli
| en áður hefúr þekkst.
Ríkisstjórn í myndun
Antonio
Maccanico,
J verðandi for-
'í sætisráðherra
1 italíu. segir að
myndun nýrr-
ar ríkisstjórn-
i ar sinnar
| verði lokið á
Ísunnudag.
Vilja börnin burt
Sendiráð Bandaríkjanna í Afr-
íkuríkinu Gíneu hvetur til að
bandarísk börn verði flutt brott
frá landinu vegna óróa eftir upp-
reisn hersins.
Kallar á föðurlandsást
Nelson Mandela auglýsti eftir
nýrri tegund foðurlandsástar svo
reisa mætti Suður-Afríku úr
rústum aðskilnaðarstefnunnar.
Hann vill ráðast gegn miklum
1 glæpum og boðaði almenna sið-
bót.
Alnæmissjúklingur myrtur
Bandarískur alnæmissjúkling-
ur, sem var ákærður fyrir að
hafa smitað þrjár konur með al-
næmisveirunni, var myrtur á
heimili vinar síns í gær.
Verkfall lamar ferjur
Verkfallsmenn i franska bæn-
um Calais hunsuðu dómsúr-
skurð um að fara aftur til vinnu
í gær og lömuðu ferjusiglingar
yfir Ermarsund annan daginn í
Íröð.
Du Pont án tryggingar
Dómari hafnaði i gær ósk um
að milljarðamæringurinn John
Du Pont yrði látinn laus gegn
tryggingu og var hann dæmdur i
áframhaldandi gæsluvarðhald.
Du Pont er ákærður fyrir morð á
glímumanni.
Styður Zhírínovskí
Franski
hægrimaður-
inn Jean-
Marie Le Pen
sagðist styðja
forsetafram-
- boð rússneska
þjóöernissinn-
ans Vladimirs
Zhírínovskís
sem hann kallar vin sinn og
1 bandamann.
Löggur í hættu
Ný rannsókn sýnir aö fransk-
ur lögreglumaður fremur sjálfs-
morð níunda hvern dag. Eru lög-
reglumennirnir í mestri sjálfms-
orðshættu allra starfshópa í
Frakklandi.
Reuter
Kauphallir erlendis:
Dow Jones yfir
5.500 stigin
Hamagangurinn heldur áfram í
kauphöllinni við Wall Street í New
York. Dow Jones hlutabréfavísital-
an hækkar og hækkar og sl.
fimmtudag fór hún i fyrsta sinn í
sögu Wall Street yfir 5.500 stig. Þá
fór Dow Jones í 5.539 stig. Þetta var
í ellefta sinn á þessu ári sem sögu-
legt met var slegið.
Undanfarna viku hefur sögulegt
met einnig verið slegið í kauphöll-
inni í London. Þá hafa hlutabréfa-
vísitölur í Hong Kong og Tokyo ekki
verið hærri síðastliðið ár. Hang
Seng vísitalan í Hong Kong er ekki
langt frá sögulegu meti sem sett var
4. janúar 1994. Nikkei-vísitalan í
Tokyo er hins vegar langt frá sínu
besta, 38.915 stigum 29. desember
1989.
Bensínverð á heimsmarkaði hef-
ur sama og ekkert breyst síðustu
daga. -Reuter
Holbrooke óttast örlög Dayton-friöarsamkomulagsins:
Þolum engar hótanir
af hálfu Bosníuserba
Yfirmenn herafla Bosníuserba
hótuðu að handtaka alla Króata og
múslíma sem ferðuðust yfir á sitt
yfirráðasvæði nema þeir Serbar sem
eru í haldi fyrir meinta stríðsglæpi
yrðu látnir lausir. Bannaði Ratko
Mladic, yfirmaður hers Bosn-
íuserba, alla umferð um landamær-
in. Umferð fólks hélt þó áfram en
eitt lykilatriða Dayton-samkomu-
lagsins um frið í Bosníu er frjáls
umferö fólks yfir mörk yfirráða-
svæða og landamæri.
Richard Holbrooke, aðstoðarutan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna og að-
alhöfundur friðarsamninganna um
Bosníu, sagði í Ungverjalandi í gær
að Bandaríkjamenn reyndu hvað
þeir gætu til að ekki syði upp úr í
Bosníu og að þeir mundu ekki þola
neinar hótanir af hálfu Bosníuserba.
Samningamenn Bandaríkjanna og
Rússa reyndu að losa um spennuna
í Bosníu i gær en án árangurs. Tals-
menn NATO sögðu í gærkvöldi að
þeir hefðu misst allt samband yið yf-
irmenn hers Bosníuserba og sögðu
þeir þá þróun ills viti. Mladic hers-
höfðingi hafði fyriskipaö að öll
tengsl við NATO yrðu rofin þar til
serbneskur hershöfðingi, liðsforingi
og sex hermenn, sem eru í haldi mú-
slímskra stjómvalda vegna meintra
stríðsglæpa, yrðu látnir lausir.
Serbi sem Reuters-fréttastofan
ræddi við á leið milli yfirráðasvæða
sagði að bann Serba við umferð
milli yfirráðasvæða yrði að engu
haft og bætti við að Mladic væri
ekki eins i hávegum hafður meðal
Serba eins og á dögum stríðsins.
Reuter
Rússneskur hermaður vaktar svæði nærri Privoj í Bosníu í gær. Óttast var að upp úr syði vegna Serba sem eru í
haldi vegna meintra stríðsglæpa. Símamynd Reuter
Ný skoðanakönnun birt í Bretlandi:
Ihaldsmenn saxa á for-
skot Verkamannaflokksins
Það glaðnaði heldur betur yfir
breskum íhaldsmönnum þegar nið-
urstöður nýrrar skoðanakönnunar
Gallups voru kynntar. Samkvæmt
þeim hefur forskot Verkamanna-
flokksins á íhaldsflokkinn minnkað
um 13 prósentustig. Fylgi Verka-
mannaflokksins hafði hrapað um
sex prósentustig og mælist nú 54,5
prósent en íhaldsflokkurinn bætti
við sig 7 prósentustigum og mælist
nú með 28 prósenta fylgi. Stjórn-
málaskýrandi sagði að þó að íhalds-
flokkurinn hefði engan veginn náð
að rétta úr kútnum eftir mikið
fylgistap í könnunum væri ekki úti-
lokað að hann næði fyrra fylgi.
Illvígar deilur innan Verka-
mannaflokksins um menntun 11 ára
drengs, sonar talsmanns flokksins í
heilbrigðismálum, eru taldar aðal-
orsök fylgistapsins. Talsmaðurinn
John Major fagnar auknu fylgi í
skoðanakönnun.
sendi son sinn í framhaldsskóla sem
býr nemendur undir háskólanám en
þar eru nemendur teknir inn eftir
getu. Verkamannaflokkurinn styð-
ur hins vegar fjölbrautaskólana þar
sem allir nemendur tiltekins hverf-
is eru teknir inn. Formaður
menntanefndar flokksins sagði af
sér vegna málsins og John Major,
forsætisráðherra og formaður
íhaldsflokksins, var fljótur að nýta
sér deilurnar. Sagði hann þær vitna
um hræsnina innan Verkamanna-
flokksins og fullyrti að Tony Blair,
formaður Verkamannaflokksins,
hefði gert það sama með son sinn.
í könnun Gallups kom einnig
fram að Bretar virtust bjartsýnni á
afkomu sína næstu 12 mánuði en í
fyrri könnunum og þykir það einnig
skýra fylgisaukningu íhaldsmanna
að einhverju leyti. Reuter
Bandaríkin:
Neyðarástand
vegna flóða
Ríkisstjóri Oregon-ríkis i
Bandaríkjunum hefur lýst yfir
neyðarástandi i ríkinu vegna flóða
og hefur beðið alríkisstjórnina um
I hjálp. Gríðarlegt snjófarg og leys-
ingar hafa orsakað mikil flóð víða
í ríkinu. Þá hefur einnig verið lýst
yfir neyðarástandi í Washington-
ríki vegna flóða.
Flóöin í Oregon hafa neytt þús-
undir manna til að flýja heimili
1 sin og hafa kostað þrjá lifið. Borg-
Í' in Portland var svo gott sem ein-
angruð en flestir vegir að henni
voru undir vatni. íbúar Portland
( fylgjast kvíðnir með hvernig yfir-
borð árinnar Willamette rís
| stöðugt en vatnsmagn hennar hef-
: ur ekki verið meira síðan í mann-
skæðum flóðum 1964.
Fort Lauderdale:
Myrti fyrrum
vinnufélaga og
skaut síðan
sjálfan sig
i Maður sem rekinn var úr
| strandhreinsunarflokki í Fort
| Lauderdale á Flórída vegna þess
að hann mældist jákvæður á eitur-
lyijaprófi skaut sex fyrrum vinnu-
j félaga sína til bana í dögun í gær.
Að skothríðinni lokinni framdi
: maðurinn sjálfsmorð. Einn maður
varð fyrir tveimur skotum en
slapp með skrekkinn þar sem
|j hann þóttist vera látinn.
Skotmaðurinn kom að skrif-
stofuvagninum í dögun, um það
leyti sem menn voru að mæta til
vinnu, og lét skothríðina dynja á
( honum. Atburðurinn átti sér staö
j rétt hjá ströndinni.
Vísa á bug
ásökunum um
að líkin hefðu
verið rænd
Talsmaöur stjórnvalda í
:' Dóminíska lýðveldinu vísaði á bug
ásökunum þess efnis að lík fórnar-
j lamba flugslyssins aðfaranótt mið-
: vikudags hefðu verið rænd skil-
ríkjum og peningum skömmu eftir
slysið. Hann sagöi fullyrðingar frá
bandaríska hermálaráðuneytinu
um að eyjaskeggjar hefðu flykkst á
slysstaðinn á kænum og rænt lík-
p in sem flutu í sjónum vera alrang-
| ar.
Yfirmaður á bandarískum
| björgunarbát fullyrðir hins vegar
| að líkin hafi veriö rænd og að
| kænur eyjaskeggja hafi verið
komnar á vettvang langt á undan
björgunarmönnum.
§§
Furstadæmin:
Þjónustustúlka
hýddlOOsinn-
um fyrir morð
Filippseysk þjónustustúlka,
Sarah Balabagan, var hýdd 100
sinnum með staf í fangelsi í Sam-
einuðu arabísku furstadæmunum.
• Fulltrúar sendiráðs Filippseyja
hehnsóttu Söruh í fangelsið og
höfðu eftir henni aö hýðingin hefði
| ekki verið óbærileg. Ekki sáust
j nein merki um barsmíðarnar á lík-
ama konunnar. Sarah var hýdd í
fimm daga, fékk 20 slög hvern dag.
Sarah var dæmd til dauöa í
september síöastliðnum fyrir að
hafa myrt húsbónda sinn, 70 ára
gamlan, með því að stinga hann 34
j sinnum með hnífi. Rétturinn hafn-
I aði þeirri skýringu að Sarah hefði
; verið að verjast nauðgun. Dauða-
dómurinn vakti mótmæli á Fil-
: ippseyjum og víðar. En eftir að for-
seti furstadæmanna hafði gripið
I inn í og aðstandendur karlsins
fallist á tæpar 3 milljónir króna í
bætur var fallið frá dauðadómi.
■ Sarah mun þó dúsa eitt ár í fang-
elsi og verður síðan send úr landi.
Reuter