Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.1996, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.1996, Blaðsíða 27
LAUGARDAGUR 10. FEBRÚAR 1996 tOttHSt 27 ísland — plötur og diskar- | 1.(1) Crougie d'ou lá Emilíana Torrini t 2. ( 5 ) The Memory of Trees Enya t 3. ( - ) Presidents of the United States... Presidents of the United States... | 4. ( 2 ) Pottþétt 1995 Ýmsir t 5. ( 7 ) Gangsta's Paradise Coolio t 6. ( - ) Boys for Pele Tori Amos t 7. (Al) Life Cardigans t 8. (17) Waiting to Exhale Úr kvikmynd | 9. ( 6 ) Melon Collie and the Infinite... Smashing Pumpkins # 10. ( 9 ) (What's the Story) Morning Glory? Oasis $ 11. ( 3 ) Different Class Pulp 112. (15) Drullumall Botnleöja 113. (20) Love Songs Elton John 114. (12) Crazysexycool TLC 115. (18) Maxinquaye Tricky 116. (13) The Bends Radiohead 117. (Al) Þrekogtár Ur leikriti 118. (Al) Jagged Little Pill Alanis Morrisette 119. ( - ) Tical Method Man 120. ( - ) Liquid Swords Genius London -lög- | 1(1) Spaceman Babylon Zoo t 2. ( 3 ) Anything 3T 4 3. ( 2 ) Slight Return Bluetones t. 4. ( - ) Lifted Lighthouse Family t 5. ( - ) | Just Want to Make Love to You Etta James t 6. ( - ) One of Us Joan Osbourne t 7. ( - ) Do U Still? East 17 t 8. (12) I Wanna Be Hippy Technohead 4 9. ( 8 ) One by One Cher 4 10. ( 4 ) Jesus to a Child George Michael New York -lög- ) 1. ( 1 ) One Sweet Day Mariah Carey & Boyz II Men { 2. ( 2 ) Exhale (Shoop Shoop) Whitney Houston | 3. ( 3 ) Missing Everything butthe Girl | 4. ( 4 ) One of Us Joan Osbourne t 5. ( 5 ) Hey Lover LL Cool J t 6. (21) Not Gon' Cry Mary J. Blige | 7. ( 6 ) Name Goo Goo Dolls | 8. ( 8 ) Be My Lover La Bouche t 9.(10) NobodyKnows The Tony Rich Project 4 10. ( 7 ) Breakfast at Tiffany's Deep Blue Something Bretland — plötur og diskar— J 1.(1) (What's the Story) Morning Glory? Oasis t 2. ( 3 ) Jagged Little Pill Alanis Morrisette t 3. ( 4 ) Different Class Pulp t 4. (17) The Bends Radiohead t 5. ( - ) Deliverance Baby D 4 6. ( 2 ) Boys for Pele Tori Amos 4 7. ( 5 ) Robson & Jerome Robson & Jerome t 8. ( 9 ) All Change Cast 4 9. ( 6 ) History - Past Present and Future .. Michael Jackson t 10. (16) It's a Man's World Cher Bandaríkin — plötur og diskar — J 1. (1 ) Waiting to Exhale Úr kvikmynd t 2. ( - ) Boys for Pele Tori Amos J 3. ( 3 ) Jagged Líttle Pill Alanis Morrissette 4 4. ( 2 ) Daydream Mariah Carey J 5. ( 5 ) (What's the Story) Morning Glory? Oasis 4 6. ( 4 ) Sixteen Stone Bush J 7. ( 7 ) The Woman in Me Shania Twain 4 8. ( 6 ) Cracked Rear View Hootie and the Blowfish t- 9. (11) The Memory of Trees Enya 410. ( 8 ) Mellon Collie and the Infínite ... Smashing Pumpkins Smashing Pumpkins og tvöfalda platan þeirra Corgan, Iha, D’Arcy og Chamberlain hafa starfað saman í átta ár undir nafninu Smashing Pumpkins. Tónlistin er melódískt rokk og skáldskapur, ímyndin þykir annaðhvort töff eða tepruleg. Eftir að hafa selt milljónir ein- taka af plötunum „Gish“, „Siamese Dream“ og b hliða plötunni „Pisces Iscariot" býður hljómsveitin Smas- hing Pumpkins áheyrendum sínum upp á nýja plötu, „Mellon Collie and the Infinite Sadness“. Platan er tvö- föld og innheldur 28 lög eða rúmlega tvo og hálfan tíma af yfirþyrmandi rokktónlist. Hún er afrakstur 10 mánaða í hljóðveri, þar sem unnið var í tólf tíma hvern dag, og sam- starfs laga/textahöfundarins, gítar- leikarans, söngvarans og nýlega pí- anóleikarans Billy Corgan, gítar- leikarans James Iha, bassaleikarans D’Arcy og trommuleikarans Jimmy Chamberlain. „Hugmynd mín var að koma öllu fyrir sem lífið hefur upp á að bjóða,“ segir Corgan. „Óendanlegri sorg, já, en líka gleði, reiði, tví- bendni og furðuverkum." Enginn einn uppruni Faðir Corgans var gítarleikari í R&B hljómsveitum í Chicago-borg en Corgan byrjaði að spila á ung- lingsárunum eftir að hafa fengið forsmekk af „nánast öllum tónlist- arstefnum”. Hann minnist þess að „ . . . heima voru til plötur með Del- fonics og Steve Wonder. Seinna komu plötur með Led Zeppelin, Jimi Hendrix og The Beatles. Svo heyrði maður í Cheap Trick, The Rasberries o.fl. í útvarpi áttunda áratugarins." Vinna í plötubúðum hjálpaði honum líka til að sjá „ . . . sameiginlega hluti með Hendrix og John Coltrane og Sinatra og Miles Davis.“ Bráðlega rann upp fyrir honum ljós: „Góð tónlist upprætir algjörlega allar hugmyndir um upp- runa.“ Slík upprunaútþurrkun myndi líklega lýsa tónsmíðum Corg- an hvað best. Samstarfið Eftir að hafa verið fremstur í The Marked, rokkbandi frá borg vind- anna, búandi til demóupptökur í nokkur ár hitti Corgan Iha, D’Arcy og Chamberlain árið 1988. Fyrsta platan þeirra (Gish) kom út árið 1990. Hún náði heimsathygli. Sam- bland melódíu, hrá- leika gítarsins og skáldskapar Corg- ans virtist virka. í byrjun árs 1992 var svo komið að hljóm- sveitin var orðin vel smurð rokkmask- ína. Með smátöfrum og einbeitingu af hálfu sveitarinnar var hún annaðhvort elskuð eða hötuð. Árið 1993 kom síð- an Siamese Dream á markaðinn og stað- festi þau loforð sem sveitin virtist gera með fyrstu plötunni. Lög eins og „Cherub Rock“, „Disarm” og „Todav" brutu viðjarnar og komu plötunni í milljóna- sölu um allan heim. Nýi hljómurinn féll vel að þörfum hlust- enda sem gleyptu allt hrátt frá þessari nýju súpersveit. Blandan var áfram rokk, melódíur og skáldskapur (ímynd- in þótti annaðhvort töff eða tepruleg). Nýja platan Það var byrjað að vinna „Mellon Collie and the Infinite Sadness" stuttu eftir að hljómsveitin fór fyrir fríðum flokki sveita á Lollapalooza tónleikaferðalaginu árið 1994. „Við erum heppin“ segir Corgan. „Mikið af fólki studdi hugmyndina að tvö- faldri plötu. Hugmynd sem er í raun erfitt að útskýra án þess að hljóma eins og maður sé genginn af göflun- um.“ Helmingurinn af plötunni er saminn á gítar, hinn helmingurinn á píanó (sem Corgan byrjaði að spila á fyrir rúmu ári). Upptöku- stjórar á plötunni voru Flood og Alan Moulder ásamt Corgan sjálf- um. Textabrot: „Heimurinn er vam- píra, stillt á uppþurrkun ...” Of langt mál væri að lýsa tónlist plötunnar enda kannski meira verk plötugagnrýnanda en greinahöfund- ar. Hér fyrir ofan höfum við hins vegar tilfinningu meðlima fyrir af- rakstrinum, þín tilfinning kemur eft- ir langa og stranga hlustun. GBG - 1 m ->..............1 ■ . Í J Tekur upp plötu á íslandi? Samkvæmt staðfestum fréttum frá útgáfufyrirtæki bresku stór- hljómsveitarinnar Blur mun sveitin hljóðrita næstu plötu sína á ís- landi! Söngvari Blur, Daimon Albarn lét þessa getið í framhjá- hlaupi í samtali við Internettímaritið Addicted to Noise en þar sem hann er þekktur fyrir að draga blaðamenn á asnaeyrunum var haft samband við útgáfufyrirtæki Blur sem staðfesti orð söngvarans. Ekki fylgir fréttinni hvar Blur muni taka plötuna upp hér á landi eða hvenær hljómsveitin sé væntanleg til landsins. Engu að síður er ljóst að ef þessar fregnir eiga við rök að styðjast mun þetta vekja verulega athygli á íslandi og hver veit nema þetta verði til þess að fleiri þekktar hljómsveitir leggi leið sína hingað til lands til plötu- upptöku. -SþS-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.