Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.1996, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.1996, Blaðsíða 10
10 LAUGARDAGUR 10. FEBRÚAR 1996 JL# V Á (slandi í 2 V2 ár og dúxar í læknisfræðinni: Hóf fslands- Meredith Cricco ásamt kærasta sínum, Oddi Ólafssyni. Hún átti ekki í erfiðleikum með að læra íslenskuna en segir að það sé öllu erfiðara að kynnast fólk- inu sem hér býr. DV-mynd Brynjar Gauti Hún er bandarísk, af írskum og ítölskum ættum og hefur einungis verið búsett á íslandi í rúmlega tvö ár. Samt munaði hana ekki um að skjóta tæplega 200 samstúdentum sínum í læknisfræði í Háskólanum ref fyrir rass og verða fimmta í röð- inni í samkeppnisprófunum á fyrsta ári - og það í fyrstu tilraun. Einungis 30 manns komast á hverju ári inn í læknisfræðina en vegna þess að Meredith Cricco er ekki íslenskur ríkisborgari þá opn- aðist smuga fyrir einn nema í við- bót. Svo vildi til að næstu sex í próf- inu voru með sömu einkunn og fóru því allir inn. „Það hefur nú enginn hringt í mig enn og þakkað mér fyrir,“ segir Meredith og hlær en hún talar lýta- lausa íslensku með nánast engum hreim þrátt fyrir tiltölulega stutta dvöl hérlendis. Meredith, sem er 24 ára, býr með kærastanum sínum, Oddi Ólafssyni, sem er á fjórða ári í læknisfræði, í lítilli íbúð á Stúdentagörðunum. í gluggakistunni í svefnherberginu má sjá safn íslenskra steina sem segja sitt um ástfóstur Meredith á íslandi. Til íslands fyrir tilviljun Það var tilviljun ein sem réð því að þessi hispurslausa og ákveðna kona lenti hér á landi í fyrsta sinn. Fyrir rúmum fimm árum fór hún á vegum skiptinemasamtakanna AUS til Kenya. Hún var búin að vera í tæpan mánuð þegar samtökin voru lögð niður þar í landi. Henni var þá í staðinn boðið að fara til Kína, Bólivíu eða íslands. „Það var svolítið hættulegt að vera í Kenya. Skiptinema frá Finn- landi var til dæmis rænt daginn eft- ir að við komum þangað og engin vissi neitt um hana í viku. Ég nennti ekki lengur að búa við þessa hættu, langaði að komast í eitthvað evrópskt og öruggt og vera nálægt heimaslóðunum og valdi því ís- land.“ Fyrstu kynni Meredith af íslandi voru þau að konan sem sat við hlið hennar í flugvélinni á leiðinni til landsins bauðst til að taka hana með sér heim til Siglufjarðar þar sem enginn frá AUS var mættur tii að sækja hana. Til þess kom þó ekki og Meredith var strax daginn eftir send til starfa á bóndabæ rétt hjá Flúðum þar sem hún passaði börn og mjólkaði kýr. „Ég var bara með fötin mín frá Kenya og var alls ekki undir þetta búin. Ég fékk um fimm klukku- stundir til að sjá Reykjavík og síðan fór ég beint út í sveit að vinna í fjós- inu. Ég hafði aldrei séð kú áður - alla vega ekki svona nálægt. En þetta var bara yndislegt og mjög gaman enda var fólkið, sem ég bjó hjá, gott,“ 'segir Meredith. Hún hafði sett það sem skilyrði fyrir íslandsdvölinni að hún fengi námskeið í íslensku en ekkert varð úr því og Meredith hélt því heim á leið eftir aðeins um tveggja og hálfs mánaðar dvöl. „Ég rétt lærði orð eins og „mjólka þessa" og „komdu“. Ég vissi hins vegar að mér myndi aldrei ganga vel ef ég lærði ekki tungumálið. Þar að auki átti ég síðan að fara að vinna með fötluðum á Skálatúni eða Sólheimum og það hefði bara ekki verið hægt þar sem ég talaði enga íslensku." Eftir þessi stuttu kynni sín af ís- landi varð Meredith haldin ólækn- andi Íslandsbakteríu. Hún kláraði sitt BA nám í trúfræði og hugvís- indum við háskólann í Chicago en langaði alltaf aftur til íslands. „Ég fór á námskeið hjá norskum prófessor um íslendingasögur og gerði smárannsókn um stöðu kvenna í íslendingasögunum. Ég sótti síðan um og fékk Fulbright- styrk til að rannsaka kynhlutverk á íslandi." Það fór því þannig að Meredith kom aftur til íslands haustið 1993 og skráði sig í íslensku fyrir erlenda stúdenta i Háskólanum því hún var staðráðin í að læra tungumálið. „Mig langaði til aö eiga heima á Islandi í einhvern tíma og að þá varð ég að læra íslensku. Þetta nám er þó frekar hugsað fyrir þá sem hafa fræðilegan áhuga á íslensku og þó að mér finnist íslenskan skemmtilegt og skrýtið tungumál þá ætlaði ég aldrei að verða málvís- indamaður." Lærði af Bubba - En er ekki erfitt að læra ís- lensku? „Nei, ekki finnst mér það. Ég harðneitaði að tala ensku en það verður maður að gera. Svo hafði ég keypt mér geisladisk með Bubba Morthens þegar ég var hérna allra fyrst og hlustaði á hann aftur og aft- ur úti í Bandaríkjunum til að læra framburðinn. Textinn fylgdi með en ég vissi ekkert hvað ég var að segja því að ég fann fæst orðin í orða- bók.“ Meredith kynntist læknisfræð- inni fyrst í gegnum kærastann sinn og ákvað að lokum að snúa baki við málvísindunum og takast á við Jæknavísindin. „Mér fundust bækurnar hans svo miklu skemmtilegri en mínar, sem voru allar um íslenska málfræði, að ég las nánast bara hans bækur,“ segir Meredith. Erlendum stúdentum er boðið upp á aö þreyta prófin í læknisfræð- inni á ensku en Meredith segir að afar illa hafi verið staðið að þeirri framkvæmd. Enska þýðingin á einu prófinu hafi til dæmis komið hálf- tíma eftir að prófið hófst og annað prófiö hafi verið mjög illa þýtt, orð vantað inn í spurningarnar og í sumum tilfellum öðruvísi svar- möguleikar í ensku útgáfunni en þeirri íslensku. Meredith, sem fékk að hafa báðar útgáfurnar hjá sér, sá misræmiö á milli þeirra. „islenska orðið deiling var til dæmis bæði þýtt sem „quote“ og „quota" eða tilvitnun og kvóti og af- köst sem „effecf ‘ eða áhrif.“ í einu prófinu stóð „be sure to have a good rubber with you,“ sem í Bandaríkjunum myndi skiljast sem svo að nemendur ættu að mæta í prófið með góða smokka! Meredith ólst upp í New Hamps- hire í Bandaríkjunum. Mamma hennar er prófessor í sagnfræði og pabbi hennar er læknir. Hún segir að vinir og vandamenn hafi brugð- ist misjafnlega við þegar hún til- kynnti þeim að hún ætlaði að hefja læknisnám hér á landi. Þessi ákvörðun þýddi að minnsta kosti sex ára íslandsdvöl í viöbót en flest- ir höfðu búist við að hún yrði.hér eingöngu í eitt ár. „Fólk heima verður alltaf frekar hissa þegar ég segi að ég búi á ís- landi. Svo fæ ég alls konar spurn- ingar eins og „Já, komstu alla leið frá íslandi með lestinni“. Það eru líka allir mjög hissa þegar ég segi þeim að það sé ekki svo kalt á ís- landi. Það er til dæmis miklu kald- ara þar sem ég ólst upp heldur en hér í Reykjavík." Skammdegisþunglyndi Þrátt fyrir að Meredith ætti ekki í vandræðum méð að venjast veður- laginu hér á landi þá var ekki það sama hægt að segja um skammdeg- ið. Fyrsti veturinn reyndist henni afar erfiður. „Skammdegið lagðist mjög illa í mig og ég svaf bara endalaust. Mér fannst alveg ómögulegt að vakna fyrr en að sólin væri komin upp og það var orðið þannig að það var kannski komið hádegi og ég var ennþá uppi í rúmi,“ segir Meredith. Þegar komið var fram í mars seg- ist hún hafa verið farin að efast stórlega um að ísland væri eitthvert draumaland. Hún ákvað samt að vera áfram og sér ekki eftir því núna. Meredith segir að það sé mjög erf- fitt að kynnast íslendingum því þeir séu frekar lokaðir. Hún segir að flestir þeir útlendingar sem hún þekkir hér, fólk sem hefur lært ís- lensku og ætlar að búa hér áfram, eigi í erfíðleikum með að eignast vini. „íslendingum finnst gaman að tala við mann, kannski einu sinni, tvisvar en það kemur ekkert út úr því. Ég held að það sé vegna þess að hér hafa allir eignast sína vini í menntaskóla og hafa ekki tíma eða pláss fyrir fleiri. Hins vegar er ekk- ert mál ef maður er enskumælandi, til dæmis á bar, að eignast alls kon- ar kunningja." -ból
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.