Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.1996, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.1996, Blaðsíða 25
LAUGARDAGUR 10. FEBRÚAR 1996 „Mér standa nú orðið allar dyr opnar. Það sýna þessu flestir skilning og það er eflaust ekki síst að þakka fjöl- miðlaumfjöllun. Ef ég hringi til dæmis í fyrirtæki og bið um framlag þá er bara skrifaður tékki og hann lagður inn á reikning átaksins," segir Svavar. DV-mynd GS Guðsmaður berst gegn fíkniefnabölinu þrotlausri baráttu: Bjóst al- drei við þessum móttökum - segir Svavar Sigurðsson sem kostar milljónum til tækjakaupa og forvarna „í upphafi bjóst ég aldrei við því að mér yrði tekið jafn vel i baráttu minni gegn flkniefnabiilinu og raun ber vitni. Ég byrjaði á þessu í sept- ember ’94 og fór þá til lögreglunnar og ræddi við yfirmann fikniefnalög- reglunnar í Reykjavík. Hann sagði mér frá því hvemig þetta væri hjá þeim og hvaða úrbóta þyrfti við. Ég fann það mjög fljótlega hvemig stað- an var. Það vildi enginn hafa af- skipti af þessum málum. Þá skorti tilfinnanlega tækjabúnað og ég sá því hvar þurfti að byrja," segir Svavar Sigurðsson sem að eigin frumkvæði hefur lyft Grettistaki í baráttunni gegn fikniefnum. Árangurinn undraverður Síðan þá hefur hann gefið fikni- efnadeildinni tölvubúnað og GSM- síma, tollgæslunni á Keflavíkurflug- velli GSM-síma, tölvubúnað og ljós- myndavél og rannsóknardeild Toll- gæslu íslands GSM-síma sem þeir reyndar urðu að afþakka því ekki var inni á fjárhagsáætlun hjá þeim að borga símareikninginn. Nú vinn- ur Svavar hins vegar að stærsta verkefninu tU þessa; útgáfu bæk- lings í forvarnarskyni sem ætlaður er foreldnun ungmenna þar sem skýrt er frá öUu sem talið er að þeir þurfi að vita. Bæklinginn er ætlun- in að gefa út í 95 þúsund eintökum og dreifa á öU heimUi landsins. Auk þessa á hann sér þann draum að geta fært fíkniefnalögreglunni að gjöf fjarskiptatæki sem gerir henni fært að stunda vinnu sína án þess að nokkur geti hlustað á hennar samtöl. Þegar blaðamaður tók viðtal við Svavar í maí á seinasta ári hafði hann að tUstuðlan Rolfs Johansens stórkaupmanns orðið sér úti um bók sem hann gekk með á miUi fyr- irtækja til að safna peningum tU að fjármagna átak sitt, þjóðarátak, eins og Svavar kaUar það, gegn fíkniefn- um. Þá höfðu þrjú til fjögur fyrirtæki stutt baráttu hans og nafn þeirra verið ritað á fyrstu síðuna en þegar blaðamaður hitti Svavar aftur sl. miðvikudag höfðu á sjöunda tug blaðsíðna verið fyUtar og ótal fyrir- tæki reitt nokkurt fé af höndum. Hann var nýkominn af fundi fjár- málaráðherra sem hafði tekið vel í að styrkja átakið og var hann bjart- sýnn á stuðning fleiri ráðuneyta vegna þess góða fordæmis sem fjár- málaráðherra sýndi. , „Mér standa nú orðið aUar dyr opnar. Það sýna þessu flestir skiln- ing og það er eflaust ekki síst að þakka fjölmiðlaumfjöUun. Ef ég hringi til dæmis í fyrirtæki og bið um framlag þá er bara skrifaður tékki og hann lagður inn á reikning átaksins. Nú æUa ég að fara að hafa samband við fyrirtæki á lands- byggðinni sem ég hef ekki gert mik- ið af tU þessa.“ Kostar miklu til sjálfur En það er ekki einungis framlög fyrirtækja í baráttunni sem hann Svavar hefur lagt til tækjakaupa. Sjálfur hefur hann kostað umtals- verðu af eigin fé tU átaksins en seg- ir þó nú svo komið að eigin sjóðir, sem eru til komnir vegna sölu hans á eigin fyrirtæki og erfðafé, séu orðnir fuUrýrir tU að hægt sé að ganga í þá af sama krafti og áður. Hann segist þó hafa liUar áhyggjur af þessu því hann hafi Guð með sér og hann geti gert kraftaverk í fjár- málum þótt hann borgi ekki reikn- ingana. Fákk köllun Aðspurður hvað fengi hann til kosta svona miklu til að standa í þessu án þess að þyggja nokkurt fé fyrir segir Svavar að hann hefði fengið köllun. Það var fyrst árið 1969 sem hann fékk köllun um að fylgjast með fjármálum þjóðarinnar en það var ekki fyrr en 1994 að hann fékk köUun um að beina kröftum sínum að fíkniefnamálum. Svavar segist hafa rætt við ungan vin sinn sem hann vissi að var í fikniefna- neyslu og borið undir hann hvort ekki væri best að fara út á meðal fólksins og biðja það að hætta. Hann hafi sagt sér að hætta að hugsa um þetta svona nema hann vildi láta drepa sig. í desembef 1994 hafi hann svo heUt sér út í baráttuna af krafti með því að senda Alþingi áskorun um að skera upp herör gegn fíkni- efnavandamálinu. - Hvemig tók fólk svo þessari köUun þinni? „Ég var nú farinn að segja fólki frá þessu og sagði að ég væri með svipaða köUun og Jóhanna frá Örk. Það var eins og flestir trúðu mér ekki. Ég eignaðist hins vegar góða vini seinna meir sem fylgdust með mér og það var mér mikils virði. Þetta fólk lagði að mér að leggja áherslu á að berjast gegn fikniefna- vandamálinu og það starfar með mér á bak við tjöldin. Þetta var oft erfitt enda fylgdi mikið álag þessari köUun." Bæklingur til allra fjölskyldna „Ég stefni að því að bæklingur- inn komi út 1. mars og þá verði byrjað að bera hann út um allt land. Ég hef verið í sambandi við Póst og síma um að þeir geri það fyrir mig en þeir hafa ekki gefið ákveðið svar en það er mín ósk að komast í sam- band við fólk í hverju byggðarlagi sem sjái um að dreifa honum eða þá að félagasamtök, eins og Lions eða Kiwanis, sjái um að koma honum inn á öU heimUi. Ég leitaði til dæm- is til Lionsmanna um fjármagn til útgáfunnar og vona að það fari að skUa sér núna.“ Svavar segist hafa verið í sam- bandi við Hagstofuna og þar hafi hann fengið þær upplýsingar að heimUin í landinu væru 95 þúsund en hann hafi ekki enn fengið upp gefið hve mörg heimili væru í hverju byggðarlagi. Horfir til lands- byggðarinnar Svavar segir að hann hafi talsvert gert að því að fara á fundi og ræða um fíkniefnavandamálið sem hann segist vita orðið talsvert um í gegn- um baráttu sína. TU dæmis hafi hann nýlega haldið hálfs annars klukkustundar erindi um fikniefni. „Fundarmenn ætluðu aldrei að hætta að spyrja. Það er greinUegt að almenningur í landinu veit ekkert um hve vandamálið er stórt eða yfir- leitt ekki neitt um fikniefni. Þessi bæklingur verður því mjög gott inn- legg i umræðuna - hann er svo hnit- miðaður. Ég tel brýna þörf á því að hann fari inn á hvert heimUi, hvort sem þar eru börn eða unglingar. Það þurfa aUir að vita um þessi mál. Þarna er hægt að lesa um aUar kringumstæður sem koma upp og hvernig eigi að bregðast við þeim. Það er ekki bara mín skoðun hversu góður hann er. Elías Krisljánsson, tollfuUtrúi á KeflavíkurUugveUi, sem hefur hvatt mig til dáða í þessu verk- efni mínu, er alveg sammála mér en hann starfar mikið að félagsmálum og reynir að koma forvarnarboðskap á framfæri þar.“ Bæklingurinn er breskur og fékk Svavar hann sendan hingað ásamt ýmsu öðru forvarnarefni sem breska heUbrigðisráðuneytið hefur gefið út - þar á meðal teiknimyndasögu á plakati sem ætlað er barnaskólum og Svavar hefur látið ljósrita og komið á framfæri í sumum grunnskólun- um. En það er mat Svavars að for- varnarfræðsla eigi fullt erindi í grunnskólana. Hann hafi til dæmis komist að því að þess séu dæmi að fikniefni séu í skólunum þótt skóla- stjórar fuUyrði að í þeirra skóla sé enginn slíkur vandi. Að því hafi hann komist af samtölum sínum við nemendurnar. Þeir séu reyndar öfl- ugasti aðUinn til að berjast gegn fikniefnavandanum. Þeir viti hverjir það eru sem neyta þeirra og viti að það er verið að skapa þeim sjálfum hættu. Nú er hins vegar verið að leggja lokahönd á þýðingu bæklings- ins fyrrnefnda sem ætlaður er for- eldrum og aðstandendiun ungmenna. Eins og fyrr segir er Svavar eng- an veginn hættur í baráttu sinni. Nú ætlar hann að beina sjónum sín- um að fyrirtækjum og einstakling- um á landsbyggðinni og reyna að fá fjármagn frá ríkinu. Hann segir að á meðan stjómvöld sýni málinu ekki meiri áhuga verði frumkvæðið að koma frá einstaklingum og hann sé einn af þeim. -pp GBM16-2 RE Borvél 1050w GWS 9-125 Slípirokkur 900w GFZ16-35 AC Trésverðsög GWS 21-180 J Slípirokkur 2100w GBH 2-24 DSR Lofthöggborvél m<§> BOSCH BOSCH umboðið aðkeyrsla frá Háaleitisbraut B R Æ Ð U R N I R OfcdSSONHF Lágmúla 9 • Sími: 553 8820 • Fax: 568 8807 e BOSCH Handvepkfærí Söiuaðllar: Málningarþjónustan, Akranesi (Handverkfæri). GH verkstæðið Borgarnesi (Bílavara- hlutir og fl). Póllinn, ísafirði (Handverkfæri). KEA, Akureyri (Handverkfæri og fl). Þórshamar, Akureyri (Bílavarahlutir og fl). KÞ Húsavík (Handverkfæri og bílavarahlutir). Víkingur, Egilsstöðum (Handverkfæri, btlavarahlutir og (hlutir).Vélsmiðja Hornafjarðar, Hornafirðl (Handverkfæri, bílavarahlutir og fl). Bygglngavörur Steinars Árnasonar hf., Selfossi (Handverkfæri).
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.