Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.1996, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.1996, Blaðsíða 32
40 LAUGARDAGUR 10. FEBRÚAR 1996 - Holland og Danmörk vilja taka upp ókeypis dreifingu Pálmi Jónasson, DV, Kaupmannahöfn__ Ókeypis dreifing ríkisvaldsins á heróíni er orðin að veruleika. Til- raun með 800 langt leidda flkla í Sviss hefur gefið mjög góða raun og nú eru Danir og Hollendingar í startholunum. Þessi tilraun hefur einnig verið' reynd í smærra mæli í Englandi og Þýskalandi með já- kvæðum niðurstöðum. Tilraunin gengur út á það að ná þeim sem lengst eru leiddir af göt- unni og losna við glæpi sem neysl- unni fylgja. Gramm af heróíni, framleiddu á tilraunastofu, kostar 250 krónur en er selt á 25 þúsund krónur á svarta markaðinum. Fíkniefnamarkaðurinn í Evrópu er talinn velta 35 þúsund milljörðum eða fjárlögum íslenska ríkisins í 350 ár. Tilraunin dregur því samhliða úr hagnaði fíkniefnahringanna. Einkum er þetta þó hugsað sem lið- ur í að bæta heilbrigðisástand þegn- anna, gefa fíklunum færi á að koma stjórn á líf sitt og fá vinnu og eigið húsnæði. Jákvæð reynsla í Sviss í hálft annað ár hefur staðið yfir verkefni í stærstu borgum Sviss þar sem um 800 langt leiddum heróínist- um er boðið upp á frítt heróín und- ir handleiðslu lækna. Reyndar þurfa þeir formsins vegna að greiða 800 krónur fyrir dagskammtinn sem annars kostaði um 25 þúsund krón- ur á svarta markaðinum. Efnið, sem er 99 prósent hreint, kemur frá til- raunastofum í Frakklandi og kostar framleiðslan einungis 250 krónur en er seld ólöglega á 100 sinnum hærra verði á götunni. Aðeins hörðustu neytendurnir geta tekið þátt í til- rauninni, þeir verða að hafa verið neytendur í fjölda ára og hafa geng- ið í gegnum misheppnaðar meðferð- ir. Tilraunin á að standa út þetta ár og endanlegra niðurstaðna er að vænta á árinu 1997. Þeir sem fylgst hafa með tilrauninni telja flestir að tilraunin hafi gefið mjög góða raun. Barbara Muhlheim, sem stýrir átakinu í Bern, segir heilbrigðis- ástand fiklanna hafa batnað til mik- illa muna, enda séu þeir lausir úr götulíferninu. Eftir hálft annað ár sé yfir helmingurinn í vinnu á veg- um átaksins og nokkur hópur hafi sjálfur fengið sér vinnu á almenn- um markaði fyrir venjulegt kaup. Aðeins yfirmennirnir vita að þeir eru fiklar. Hún hefur þó lagt áherslu á að með þessari tilraun sé ekki búið að gefast upp á meðhöndl- un og afeitrun. Takmarkið er að losa fiklana alveg undan efninu og fjölmargir hafa minnkað notkunina töluvert og nokkrir eru alveg lausir undan efninu. Niðurstöðurnar eru þó ekki ein- vörðungu góðar. Þannig hafa mjög fáir alveg losnað úr viðjum eiturs- ins og sumir þátttakendur kaupa önnur fíkniefni, einkum kókaín, samhliða tilrauninni. Félagsfræð- ingurinn Anja Dobler frá Zúrich hefur fylgst náið með tilrauninni og er ein þeirra sem eiga að leggja mat á framhaldið. Hún segir þetta ekki leysa vandann en sé óneitanlega skref í rétta átt. Margir fíklar hafi hætt lögbrotum, fengið vinnu og séu orðnir virkir þátttakendur í samfé- laginu. Anja segir að það séu alltaf einhverjir sem enga hjálp vilji en ef hægt er að hjálpa 70-80 prósentum sé það mikill árangur. Hún vonast til þess að tilrauninni verði haldið áfram. Áætlunin bjargaði lífi mínu Áætlunin hefur bjargað lífi mínu, segir Marin Aeschbacher, 48 ára heróínisti, í viðtali við BT en hann tekur þátt í tilrauninni í Sviss. Það er vel hægt að vinna og lifa eðlilegu lífi þótt maður taki heróín, bara ef maður sleppur við allt stressið og glæpina sem maður neyðist út í þeg- ar maður þarf að kaupa efnið ólög- lega. Marin hefur verið fíkniefnaneyt- andi í þrjá áratugi og þar af heróín- isti í 12 ár. Hann missti eiginkonu, veitingahús sem hann átti og rak og var orðinn heimilislaus. Þegar verst var þurfti hann 3 grömm á dag sem kosta 75 þúsund krónur. Að lokum var hann dæmdur í fangelsi þar sem hann smitaðist af eyðni af not- aðri sprautu. Aðeins tveimur mán- uðum eftir að hann byrjaði í Koda-1 tilrauninni í Bern hafði hann fengið vinnu í stórmarkaði og íbúð. í upp- hafi fékk hann 800 millígrömm á dag en er nú kominn í 150 og vonast til þess að vera alveg laus frá efninu í árslok. Jacqueline Albori er 28 ára og hefur neytt heróíns síðan hún var 15 ára. Hún segist ekki í vafa um að verkefnið hafi bjargað lífi sínu. Nú er hún komin með kærasta sem ekki er neytandi og sjálf starfar hún sem listamaður og stundar íþróttir, skíðagöngur og fjallaklifur. Meirihluti Dana vill ókeypis heróín Ríkisdreifing á ókeypis heróíni hefur nær einokað umræðuna hér í Danmörku frá því að Lars Ryhave, formaður dómarafélagsins, lagði til skömmu eftir nýárið að þessi leið yrði farin. Nú hefur komið í ljós að meiri- hluti Dana er fylgjandi því að láta þá fíkniefnaneytendur sem lengst eru leiddir fá heróín undir hand- leiðslu lækna. í skoðanakönnun GfK frá síðustu helgi kemur fram að 51 prósent Dana er því fylgjandi, 38 prósent andvíg og 11 prósent eru óá- kveðin. Ríflega 57 prósent af þeim sem afstöðu tóku eru því fylgjandi hugmyndinni. í kjölfarið hafa sér- fræðingar og stjórnmálamenn keppst viö að lýsa sig fylgjandi hug- myndinni.í sömu skoðanakönnun var spurt hvernig núverandi stefna í fikniefnamálum hefði gengið. Að- eins eitt prósent taldi hana hafa gengið mjög vel og 17 prósent vel. 44 prósent töldu að illa hefði tekist til og 30 prósent mjög illa. Aðeins 8 prósent voru óákveðin. Af þeim sem afstöðu tóku eru því ríflega 80 pró- sent Dana á því að ríkjandi stefna gangi ekki upp. Þótt aldrei hafi veriö lagt hald á jafn mikið af fíkniefnum og á síðasta ári tekst lögreglu- og tollyfirvöldum aðeins að ná broti þeirra fíkniefna sem eru í umferð.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.