Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.1996, Qupperneq 13
UV LAUGARDAGUR 10. FEBRÚAR 1996
13
Eina bigbandið á Islandi
með afmælistónleika
- stórsveit Reykjavíkur fjögura ára
Sæbjöm og Stefán með Stórsveit Reykjavíkur á bak við sig. DV-mynd ÞÖK
Stórsveit Reykjavíkur, eina starf-
andi bigbandiö hérlendis, heldur
nk. þriðjudag afmælistónleika í
Borgarleikhúsinu í tilefni þess að
fjögur ár eru liðin frá því að Sæ-
bjöm Jónsson, aðalhljómsveitar-
stjóri Stórsveitarinnar, stofnaði
bandið. Það má segja að það teljist
til tíðinda þegar stórsveitin kveður
sér hljóðs en hún heldur aðeins
nokkra tónleika á ári.
„Fyrir fjórum ámm datt mér í
hug að gera eina tilraun enn til að
stofna svona band og skipa það at-
vinnumönnum, mönnum sem eru
menntaðir í jassinum eins mikið og
hægt er, reyndar hvöttu menn mig
til þess. Nú er þetta fólk til, sem
ekki var mikið um fyrir 15 áram.
Þetta unga fólk er að koma úr há-
skólanámi í Bandaríkjunum þannig
að ég fór af stað og hóaði mönnum
saman. Þetta var fólk sem ég þekkti
vel, bæði „fullorðnir" menn á aldur
við mig og svo kemur líka ungt fólk
inn í þetta. Sumir sem eru í þessum
hópi vom hjá mér i tónlistarskóla
frá átta ára aldri, fóru út að læra og
eru komnir heim aftur sem fulltíða
menn. Nú er ásóknin það mikil að
komast í sveitina að fólk bíðúr í röð
eftir því,“ segir Sæbjöm Jónsson en
hann hefur starfað sem tónlistar-
kennari við Tónmenntaskóla
Reykjavíkur í fjölda ára, auk þess
að vera trompetleikari við Sinfóníu-
hljómsveit íslands.
Fjórar söngkonur
Tónleikamir á þriðjudaginn eru
liður í tónleikaröð Borgarleikhúss-
ins. Auk Stórsveitarinnar koma
fram fjórar söngkonur, þær Andrea
Gylfadóttir, sem reyndar varð fyrsta
söngkonan til að syngja með Stór-
sveitinni, Berglind Björk Jónasdótt-
ir, Edda Borg og Ellen Kristjánsdótt-
ir. Sæbjörn, sem verið hefur frá tón-
listcirstörfum um skeið vegna veik-
inda sem hann er að ná sér af, mun
einungis koma og stjórna einu
verki. Stefán S. Stefánsson saxófón-
leikari mun að öðru leyti stýra
hljómsveitinni á þessum tónleikum
eins og hann hefur gert undanfarið.
Sæbjöm mun hins vegar að öllum
líkindum taka við stjórninni á ný á
vori komanda.
„í þetta skiptið verðum við ein-
göngu með erlend lög því það kost-
ar svo mikið að útsetja íslenska tón-
list fyrir svona stóra hljómsveit. Við
höfum bara ekki fjármagn til þess.
Einn dýrasti liðurinn em nótna-
kaupin, þótt við kaupum þær er-
lendis frá þá kosta þær sitt. Ein-
hvem tíman kemur vonandi að því
að einhverjir styrki okkur svo við
getum leikið íslenska tónlist."
Stórsveit er ákveðin stærð af
hljómsveit þar sem átján hljóðfæra-
leikarar spila: fimm saxófónar, íjór-
ir trompetar, fjórar hásúnur,
trommur, bassi, gítar og píanó. Stór-
sveit Reykjavíkur hefur að vísu
bætt við sig einum trompetleikara
og einum básúnuleikara. í ljósi
stærðar hljómsveitarinnar er lítið
um að hún leiki opinberlega fyrir
greiðslu, þ.e. einstaklingar í hljóm-
sveitinni fá ekki greitt fyrir vinnu
sína. Sæbjöm segist vona að hugar-
farsbreyting verði gagnvart þessum
þætti. Hann segist greina mikinn
áhuga fólks á tónlistinni sem sveit-
in leikur. Til marks um það bendir
hann á að hljómdiskur, sem Stór-
sveitin gaf út sl. haust, hafi selst vel.
Tónleikamir nk. þriðjudag hefj-
ast klukkan 20.30 í Borgarleikhús-
inu og kynnir á tónleikunum er
jasssérfræðingurinn Vernharður
Linnet. -pp
Vinsælustu 36” og 38” radíaldekkin á íslandi.
Pantanir óskast sóttar.
Dekkjaviðgerð-
arsett fylgir
hverjum
umgangi af
38” Mudder eða
Dick Cepek
^EPEK
ÚT FEBRÚAR
Vagnhöfði 23 - Sfmi 587-0-587
HVORT VILTU HELDUR?
- sama sjónvarpstækið - sitthvort útlitið -
SMmRRFJitBSTOBIN
r r r
SIÐUMULA 2 • SIMI 568 9090
Við vorum að fá
takmarkað magn
af 28" Kolster
litsjónvarps-
tækjum, þar
sem þú getur
valið um tvo
möguleika á útliti
- með sömu
eiginleikum!
TÆKNILEGAR
UPPLÝSÍNGAR:
• Black Line - Svartur myndlampi
• 40 w Nicam Stereo Surround hljómgæði
• íslenskt textavarp
• 40 stöðva minni
• Fullkomin fjarstýring
• Sjálfvirk stöðvaleitun
• Svefnrofi 15-120 mín.
• Allar aðgerðir birtast á skjá
• Persónulegt minni á lit, birtu og hljóði
• 2 Scart-tengi
• Heyrnartóistengi
• Tengi fyrir auka hátalara
nvarp
- Black Line - Svartur myndlampi
- Nicam Stereo Surround hljómgæði
ALLT ÞETTA
FYRIR AÐEINS
69.900
STGR.