Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.1996, Qupperneq 29
28
LAUGARDAGUR 10. FEBRÚAR 1996 DV
UV LAUGARDAGUR 10. FEBRÚAR 1996
37
Umdeildur og klokur politikus
- nærmynd af Davíð Oddssyni forsætisráðherra og hugsanlegum forsetaframbjóðanda
Óhætt er að fullyrða að Davíð
Oddsson forsætisráðherra er um-
deildur maður. Af samtölum við vini
hans og samferðamenn kemur fram
að hann er vinur vina sinna. Þeir
sem ekki hafa lent upp á kant við
hann telja hann sanngjarnan and-
stæðing í pólitík en fæstir vilja vera í
þeim sporum að verða óvinir hans.
Skemmtilegur, gáfaður, skarpur,
góðviljaður, traustur, einstrengings-
legur, hefnigjarn, óbilgjarn og lang-
rækinn eru aðeins brot þeirra lýsing-
arorða sem samferðamenn hans í
gegnum tíðina nota um hann.
Davíð hefur verið sterklega orðað-
ur við forsetaframboð allt frá því Vig-
dís Finnbogadóttir, forseti íslands,
lýsti því yfir að hún hygðist ekki gefa
kost á sér. Samkvæmt skoðanakönn-
unum DV hefur Davíð verið í þriðja
sæti í hugum þjóðarinnar, með 12 til
15 prósenta fylgi þeirra sem afstöðu
taka, allt frá því fyrsta skoðanakönn-
unin var gerð um miðjan október.
Davíð hefur hvorki viljað svara ját-
andi né neitandi hvort hann ætli að
gefa kost á sér í embætti.
Davíð hefur sagt að forsetakosn-
ingaslagurinn ætti ekki að standa í
meira en mánuð. Haft hefur verið á
orði að hann gefi sér þetta rúman
tíma til umhugsunar vegna þess hve
miklu hann hefur að tapa ef hann fer
fram og nær ekki kjöri, ólíkt öðrum
stjórnmálamönnum. Sömu menn
segja að því fleiri sem fari í framboð
því meiri líku séu á því að Davíð geti
náð kjöri.
Kann að verja sig
Vinir og nánir samstarfsmenn eru
á eitt sáttir um ágæti hans. Hannes
Hólmsteinn Gissurarson kynntist
Davíð fyrst í Menntaskólanum í
Reykjavik undir lok sjöunda áratug-
arins. Þeir urðu síðan vinir er þeir
störfuðu saman innan Vöku í Háskól-
anum árið 1974. Hannes segir Davíð
sérstakan, gáfaðan og ftjótan að
hugsa. Hann sé mikill mannþekkjari,
reynsluríkur, góðviljaður og hlýr.
„Það er mikill misskilningur að
hann sé grimmur. Hann kann hins
vegar að verja sig ef á hann er ráðist.
Hann er kænn stjórnmálamaður
þannig að menn geta ekki búist við
því að hann hnipri sig saman úti í
horni og biðjist vægðar ef á hann er
ráðist. Miklu frekar gerir hann gagn-
árás. Það þýðir samt ekki að hann sé
kaldrifjaöur og illgjarn."
Hannes segir aðspurður það mik-
inn misskilning að Davíð sé langræk-
inn og hefnigjarn. Þessi misskilning-
ur sé líklega til kominn vegna þess
hve minnugur Davíð sé - sem hafi jú
komið honum vel.
„Davíð er það sjóaður í stjórnmál-
um að hann veit að stjórnmál snúast
ekki um að hefna sín eða ná sér niðri
á öðrum. Hann veit að stjórnmál snú-
ast um það að hafa taumhald á sjálf-
um sér og sigla áfallalítið í gegnum
ólgusjó stjórnmálanna.“'
Þannig segir Hannes líkingamál
Platons lýsa vel þróunarferli Daviðs
þegar Platon segir að tilfinningar og
skapsmunir séu eins og ótemja sem
þurfi að beisla. Það sem geti beislað
þetta sé skynsemin.
„í upphafi kann að vera að Davíð
hafi verið eins og ótaminn hestur
sem sprettir úr spori en nú er hann
orðinn gæðingur sem kann bæði að
hlaupa hægt og hratt ef því er að
skipta.“
Hannes segir Davíð að vísu mikinn
tilfinningamann. Honum geti sárnað
og runnið í skap en það sé mjög áber-
andi hin síðari ár hvað hann sé sátt-
ur við sjálfan sig.
Vinir Davíðs telja að þau gildi sem
hann hafi í hávegum séu frjálslyndi
og umburðarlyndi en um leið íhalds-
semi - frjálslyndið og íhaldssemin
séu sáttir pólar í huga hans. Einn
vina hans telur hann húmanista.
„Selfmade man"
„Þótt Davíð geti verið harður í
horn að taka þá er hann friðarhöfð-
ingi í sér. Hann fer ekki í vandræði
nema hann þurfi óhjákvæmilega á
því að halda,“ segir Hrafn Gunn-
laugsson, einn af æskufélögum Dav-
íðs, en frægt er orðið samstarf þeirra
félaga og Þórarins Eldjárns í Útvarp
Matthildi.
Hrafn Gunnlaugsson segir itarlega
frá samskiptum þeirra Davíðs á ung-
lingsárunum í bókinni Krumma sem
Árni Þórarinsson skrifaði.
Kynni Davíðs og Hrafns hófust í
Hagaskóla er þeir léku saman í leik-
riti sem Hörður Bergmann stjórnaði.
„Þegar við kynntumst var Davíð í
leiklistarskóla Ævars Kvarans. Hluti
af þessari öruggu og glæsilegu fram-
komu sem Davíð hefur er eflaust að
einhverju leyti tilkomin af því að
hann lærði hjá Ævari kornungur."
Á þessum árum bjó Davíð á Fálka-
götunni. Davíð sá sér sjálfur fyrir
vasapeningum og þurfti að hafa fyrir
hlutunum. Segir Hrafn Davíð hafa
þann reynsluheim sem margan ís-
lenskan pólitíkus skorti.
„í pólitík er Davíð því sér á parti.
Hann er það sem Bandaríkjamenn
kalla „seifmade man“. Hann er ekki
Morgunblaðsegg eða afsprengi póliti-
skra samtaka eins og Heimdallar og
SUS. Hann hefur sjálfur þurft að hafa
fyrir sínum frarna."
Sem unglingur segir Hrafn Davíð
hafa getað verið mjög djarfan og hug-
myndaríkan en jaifnframt fastan fyr-
ir.
„Hann hafði mikla stöðuorku. Dav-
íð og Vilmundur Gylfason eru líkir
að mörgu leyti en Vilmundur var
meiri leiftursóknarmaður og skorti
svo oft úthaldið og stöðuorkuna en
Davíð hefur stöðuorkuna og teflir sið-
ur fram nema til vinnings. Vilmund-
ur elskaði hins vegar leiftursóknina
og hraðskákina."
- Að þessu sögðu telurðu líklegt
eða ekki að Davíð gefi kost á sér í for-
setakjöri?
„Ég held að Davíð einn viti það.“
„Eftir því sem hann styrkist sjálfur í sessi því rólegri og landsföðurlegri verður hann. Meðan hann er að slást fyrir sínu
rými þá beitir hann olnboganum mikið.“
Hrafn segir engan mann hæfari til
að vera forseti' en það sé spurning
hvort það sé ekki meiri þörf á Davíð
í öðru embætti en forsetaembættinu.
Að þessu muni margir spyrja sig,
meðal annars Davíð.
Felldi sitjandi formann
Davíð Oddsson er 48 ára gamall,
giftur Ástríði Thorarensen hjúkrun-
arfræðingi. Saman eiga þau einn son,
Þorstein, sem er 24 ára gamall.
Davíð er lögfræðingur að mennt og
hóf snemma afskipti af stjórnmálum.
Hann var kosinn í stjórn Sambands
ungra sjálfstæðismanna árið 1973 og
árið eftir varð hann borgarfulltrúi.
Árin 1978 til 1982 var hann oddviti
minnihluta Sjálf-
stæðismanna í
borgarstjórn og
varð borgarstjóri
árið 1982. Níu
árum seinna felldi
hann í kosningum
sitjandi formann
Sjálfstæðisflokks-
ins, Þorstein Páls-
son, og sama ár
var hann kjörinn á
þing og varð for-
sætisráðherra.
Vex við
hverja
raun
Forsætisráðherrahjónin, Davíð og Ástríður, með forsetahjónum Bandaríkjanna, Bill ogHillary
Clinton. Myndin var tekin í tilefni af '50 ára afmæli Sameinuðu þjóðanna.
Birni Bjarna-
syni menntamála-
ráðherra finnst
Davíð vera maður sem vex við hverja
raun og því treysti hann honum til
allra þeirra starfa sem hann bjóði sig
fram tU.
Björn telur kosti Davíðs felast í því
hve glöggur hann sé og að hann nálg-
ist mál oft frá öðrum sjónarhóli en
aðrir.
„Þetta ýtir undir að ólík sjónarmið
komist að og að menn komist að
skynsamlegri niðurstöðu. Hann legg-
ur einnig rækt við fólk. Þegar hann
er að vinna erfið mál gerir hann það
með sínum hætti og í kyrrþey en þeir
sem starfa með honum vita að málið
er í öruggum höndum."
Björn telur galla Davíðs helst felast
í því að hann geti stundum sagt hluti
sem koma þannig út gagnvart öðrum
að þeir valdi óþarfa titringi.
„Og menn geta notað slík ummæli
eða viðbrögð gegn honum ef þeir
vilja. Hann getur verið hvatvís. En
það er nú stundum nauðsynlegt í hita
leiksins."
Andrés Magnússon HeimdeUingur
hefur verið í forystusveit ungra sjálf-
stæðismanna.
Brást hörðum nöglum
„Þegar Davíð kemur.inn í lands-
málapólitíkina þá gustar ekki eins
mikið um hann og gerði í borgarmál-
unum. Og fyrir harða nagla eins og
mig þá voru það mjög mikil von-
brigði, til dæmis þegar ekki gerðist
sá skurkur í landbúnaðarmálum sem
ég hefði kosið. Hann er auðvitað for-
maður flokksins og lét þá hagsmuni
ráða. Hann var afdráttarlausari í
borgarstjórn en í landsmálapólitík-
inni. Eftir að hann fór í landsmálapóli-
tíkina eru það Qeiri hagsmunir sem
hann þarf að taka tillit tU.“
Andrés segist hafa mikla trú á
Davíð í forsetaemhættinu af því að
Davíð sé pólitíkus.
„Mér finnst allt að því synd hvern-
ig forsetaembættið hefur orðið valda-
minna. Forsetinn hefur hætt að
skipta sér af landsmálum og ég sé
Davíð Oddsson ekki fyrir mér sitj-
andi hjá. AUir forsetar hafa auðvitað
breytt embættinu og ég held að Dav-
íð myndi gera það á mjög hollan hátt.
Hann myndi veita stjórnmálamönn-
um ákveðið aðhald sem er skylda for-
seta en hefur ekki verið nógu vel
sinnt.“
Andrés telur líklegt að Björn
Bjarnason muni taka formennsku-
sæti Davíðs ef sá síðarnefndi flyst í
Bessastaði.
A
Ahugamaður um trjárækt
Að sögn vina Daviðs eru áhugamál
hans fjölmörg. Má þar nefna laxveiði,
bridge, lestur góðra bóka og þá þykir
honum gaman að horfa á fræðslu-
þætti og sögulega þætti í sjónvarpi.
Þá hafa þau hjónin lagt alúð við trjá-
rækt við sumarbústað sinn á Suður-
landi.
Davíð er mjög listhneigður maður.
Þegar hefur komið fram leiklistará-
hugi hans á unglingsaldri. Þá hefur
hann skrifað leikrit fyrir svið og
sjónvarp, texta við tónlist, kvik-
myndahandrit og fengist talsvert við
ljóðagerð.
Prinsipp-maður
Jón Steinar Gunnlaugsson lögmað-
ur segist ekki hvetja vin sinn Davíð
Oddsson til að fara í framboð því
hann vill að Davíð gegni áfram því
starfi sem hann er í. Slíkt sé brýnt
hagsmunamál fyrir þjóðina.
Hann telur helstu kosti Davíð fel-
ast í heiðarleika hans, stefnufestu og
ákveðni.
„Hann heldur fast í sín grundvall-
arprinsipp og vinnur með miklu út-
haldi á þann hátt þó hann þurfi
kannski, eins og aðrir stjórnmála-
menn, á stundum að hliðra til fyrir
öðrum sjónarmiðum. En hann lætur
ekki hlut sinn fyrir einhverjum dæg-
urstraumum nema auðvitað að því
marki sem það er nauðsynlegt af
praktískum ástæðum."
Aðspurður hvort Davíð sé lang-
rækinn telur Jón Steinar, líkt og
Hannes Hólmsteinn, það mikinn mis-
skilning. Davíð hafi gott minni og
gleymi hvorki því sem vel er gert né
illa.
„Ég tel það ekki galla enda er hann
ekki ósáttfús.“
Ráðríkur og óbilgjarn
Jóhanna Sigurðardóttir starfaði
undir stjórn Davíðs í ríkisstjórn
Sjálfstæðisflokks og Alþýðuflokks
þar til hún lét af ráðherraembætti
vegna ágreinings við formann Al-
þýðuflokksins. Oft hafði Jóhanna hót-
að afsögn ef hennar mál næðu ekki
fram að ganga. Hún segist ekkert
hafa út á samstarf þeirra Davíðs að
setja í ríkisstjórn.
„Það er hins vegar ljóst að Davíð
Oddsson getur verið mjög óbilgjarn
andstæðingur og honum er mjög um-
hugað um eigin völd. Ég sé bæði
kosti og galla í því að stjórnmálamað-
ur setjist í stól forseta. En ég tel að
gallarnir séu fleiri, sérstaklega þegar
mjög umdeildur stjórnmálamaður
eins og Davíð Oddsson á í hlut. Ég tel
að öðru jöfnu að forseti eigi að koma
úr ópólitísku umhverfi og að það sér
farsælast fyrir embættið."
Ónefndur stjórnarþingmaður á síð-
asta kjörtímabili sagði í samtali við
DV að það væri númer eitt hjá Davíð
að vera ráðríkur.
„Út af fyrir sig getur það verið gott
og blessað. Þó verður að hlusta á rök
annarra og fara eftir því sem er skyn-
samlegt sem þeir segja en ekki bregð-
ast við þannig að vilja lítt við þá tala
sem hafa ekki látið í öllu eftir hans
vUja. Hann vill að allir sínir stuðn-
ingsmenn séu hlýðnir. Honum er af-
skaplega lítið um þá sem ekki eru
það.“
Sami maður telur stöðu Sjálfstæð-
isflokksins lítt skaðast þótt Davíð fari
í framboð. Davíð hafi vissulega verið
sterkur í flokknum. Árangur hans
verði hins vegar að skoða í því ljósi
að hann tók við af formanni sem
reyndist illa. Auk þess hafi stjórnar-
andstaðan í ríkisstjórnartíð Davíðs
reynst handónýt og því ekki verið
nein ógnun við Sjálfstæðisflokkinn.
Jón Baldvin Hannibalsson alþing-
ismaður starfaði náið með Davíð í
rykkjóttu stjórnarsamstarfi síðustu
ríkisstjórnar. Vart gekk hnífurinn á
milli þeirra í upphafi stjórnarsam-
starfsins en brestir komu í samstarf
þeirra þegar áherslumunur í stefnu-
málum kom í ljós. Jón Baldvin hefur
í fjölmiðlum lýst yfir að hann sé and-
vígur Davíð á forsetastóli.
Hann segir þann helstan kost í fari
Davíðs hversu rífandi skemmtilegur
hann geti verið á góðri stundu.
„Hann er gæddur galgopahúmor,
frásagnargaldri og eftirhermulist. Sá
eiginleiki að sjá hið spaugilega í til-
verunni er verðmætur. En ef það er
verið að spýrja um hvaða kostir eigi
einkum að prýða þann sem gefur sig
fram sem sameiningartákn þjóðar-
innar í embætti forseta þá snýst það
kannski um eitthvað annað. Af þeim
sem orðaðir hafa verið við framboð
þá sker Davíð sig úr að því leyti að
hann er flokksleiðtogi. Hann er há-
pólitískur maður og auðvitað fulltrúi
síns flokks og þeirra miklu hags-
muna og valdakerfis sem að baki býr.
Pólitísk reynsla er forseta verðmæt
því að hluta til er forsetaembættið
pólitískt. Hins vegar er munur á því
að hafa að baki pólitíska reynslu eða
að vera á miðjum ferli sem leiðtogi
flokks."
Jón Baldvin segir að það sé önnur
hlið á málinu - alþjóðasamskiptin.
„Þar kemur að notum sú reynsla
að hafa búið með öðrum þjóðum,
hvort sem það er við nám eða starf.
Mér hefur löngum þótt það vera mjög
takmarkandi þáttur í uppeldi þeirra
lögfræðinga sem hafa verið fyrirferð-
armiklir í forystusveit Sjálfstæðis-
flokksins. Þá skortir mjög þessa
reynslu. Þeir eru í þeim skilningi
heimalningar og skortir einatt hvort
tveggja, sjálfstraust og vald á tungu-
málum til þess að njóta sín í sam-
skiptum við erlenda þjóðhöfðingja og
stjórnmálaleiðtoga.“
Jón segir að menn verði samt fyrst
og fremst að einblína á hvort Davíð,
hyggi hann á framboð, geti í ljósi
reynslunnar verið sameiningartákn
og gegnt forsetaembætti þannig að
það verði hafið yfir flokkadrætti og
stjórnmál.
Beitir olnboganum
Sigurjón Pétursson, fyrrverandi
borgarfulltrúi Alþýðubandalagsins,
starfaði með Davíð í borgarstjórn all-
an þann tíma sem Davíð var borgar-
fulltrúi og borgarstjóri. Hann hefur
bæði reynslu af Davíð í meiri- og
minnihluta.
„Það er mikill kostur við Davíð að
hann er bráðskemmtilegur, fyndinn
og léttur. Gallarnir eru hins vegar
fyrst og fremst þeir að hann er ákaf-
lega fastur á sínu - einstrengingsleg-
ur. Hann hefur ríka tilhneigingu til
að halda hlutum frá öðrum þangað til
hann er búinn að tryggja niðurstöðu
og nær þannig fram því sem hann
viU, að minnsta kosti á meðan hann
hefur meirihluta á bak við sig. Utan
starfs fór ákaflega vel á með okkur.
Ég held að það væri ekki rangt að
segja um Davíð að hann sé langræk-
inn. En það er ekki bara á misgjörð-
ir. Hann man líka mjög vel það sem
vel er gert. Ég veit að ef honum finnst
að menn hafi lagt honum lið, og þá
fremur persónulega en pólitískt, þá
gleymir hann því ekki. En hann man
líka ef menn hafa gert eitthvað á móti
honum, það er alveg klárt mál. Það er
enginn vandi að hafa hann fyrir and-
stæðing en ég held að það hljóti að
vera erfitt að hafa hann fyrir óvin.
Ég held að Davíð myndi nýta emb-
ætti forseta meira. Mér sýnist hann
hafa fingurna í flestu því sem ráð-
herrarnir eru að gera, án þess að
hann sé gerandi í því. Hann svona
fjarstýrir með ákveðnum hætti og er
á bak við þetta allt saman. Og það
held ég að hann myndi líka gera sem
forseti vegna þess að afskiptasemi er
í eðli hans og að vilja vera þar sem
hlutirnir eru að gerast.
Sigurjón segist hafa tekið eftir
mörgurn breytingum á Davíð á hans
stjórnmálaferli. „Sem forsætisráð-
herra byrjaði hann nokkuð bratt,
eins og sem borgarstjóri, en hann hef-
ur síðan verið að flytja sig yfir í það
að verða landsföðurlegur. Það getur
vel verið að þetta sé allt leiðin í
Bessastaði, ég skal ekki segja um
það.“
Sigurjón segist ekki geta neitað því
að Davíð sé klókur stjórnmálamaður.
„Eftir því sem hann styrkist sjálfur
i sessi þvi rólegri og landsföðurlegri
verður hann. Meðan hann er að slást
fyrir sínu rými þá beitir hann oln-
boganum rnikið." -pp/-ból
s
Ur frændffarði
ænagi
Davíðs Odassonar
forsætisráðherra
Jón Finnsson,
pr. á Djúpavogi
Ólöf Einarsdóttir,
húsfr. á Klyppsstaó
r
Einar Erlendsson,
b. í Hellisfírði
DV