Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.1996, Blaðsíða 30
38
unglingaspjall
LAUGARDAGUR 10. FEBRÚAR 1996 J
Skíðasvæðið í Bláfjöilum:
Ætla að kenna unglingum á snjóbretti
- og vera með skíðakennslu fyrir allan aldur
„Við erum fluttir úr Skálafelli
yfir í Bláfjöll og ætlum að vera með
mjög viðtæka skíðakennslu fyrir
allan aldur og byrjum strax í dag.
Margar nýjungar verða, eins og
snjóbrettakennsla fyrir unglingana
og skíðaleikskóli fyrir börn á aldr-
inum 3-7 ára. Það hefur ekki þekkst
hér áður en er víða erlendis á skíða-
svæðum," segir Þorgrímur Krist-
jánsson skíðakennari sem hefur,
ásamt Sturlu Sigurðarsyni, Einari
Karlssyni og bræðrunum Garðari
og Örnólfi Þorvarðarsonum komið
upp skíðakennslu í Bláfjöllum í
samstarfi við Bláfjallanefnd. Þeir
sem áhuga hafa á að læra á skíðum
eða snjóbrettum geta haft samband
við fólksvangsvörðinn eða komið á
svæðið en kennslan byrjar klukkan
ellefu á morgnana um helgar og á
frídögum. Kennararnir eru allir
menntaðir kennarar, annaðhvort úr
Kerlingafjöllum eða frá austurríska
skíðaskólanum.
Skíðaskóli þeirra nefnist Snæfríð-
ur og átti tíu ára afmæli á síðasta
ári. „Þetta er allt orðið miklu
stærra dæmi en áður og við viljum
endilega hvetja fólk á öllum aldri til
að prófa skíðaíþróttina. í samstarfi
við Skátabúðinu munum við lána
Fyrirsætan Cindy Crawford var á 400 forsíðum á síðasta ári.
Stærsta ósk Cindy Crawford:
Langar að eignast
mörg böm
„Ég var á fjögur hundruð forsíð-
um á síðasta ári, það er sennilega
met,“ segir súperfyrirsætan Cindy
Crawford, 29 ára, en hún er vin-
sælasta fyrirsæta heims. Cindy get-
ur vart kvartað yfir aðgerðaleysi
því hún þeytist á milli heimshluta í
ljósmyndatökur og til að sýna fót á
tískusýningum helstu tískuhúsa
Parísar. Þá er Cindy á samningi við
Revlon snyrtivörufyrirtækið en ein-
ungis hann gefur henni 140 milljón-
ir í aðra hönd fyrir tuttugu daga
starf. Hún hefur einnig gefið Prince
hugmynd að lagi, George Michael
fékk hana til að vera á myndbandi
sínu og Pepsi Cola hefur gert við
hana auglýsingasamning.
„Þegar ég var lítil langaði mig að
verða fyrsti kvenforseti Bandarikj-
anna,“ segir fyrirsætan. „En ég átti
líka draum um að verða læknir. Það
var í rauninni algjör tilviljun að fyr-
irsætustarfið varð að aðafatvinnu
minni. Þegar maður fær vel borgað
freistast maður til að halda áfram
þrátt fyrir mikið stress. Flestir
halda sjálfsagt að starfið sé dans á
rósum en svo er ekki. Það þarf mik-
ið að leggja á sig fyrir þetta starf. Ég
þarf alltaf að vera í góðu formi og
þarf þar af leiðandi að neita mér um
ýmislegt."
Cindy Crawford hefur einnig
fengið fjölda tilboða um kvikmynda-
leik og hefur þegar leikið í kvik-
myndinni Fairgame á móti Billy
Baldwin. Þá er hún með þátt á sjón-
varpsrásinni MTV. Fyrirsætan hef-
ur þó önnur plön um framtíðina.
Hún á að baki misheppnað hjóna-
band með leikaranum Richard Gere
en stærsta ósk hennar er að giftast
og eignast mörg börn í framtíðinni.
Þorgrímur Kristjánsson skíðakennari hefur verið með kennslu í Skálafelli en hefur nú flutt sig í Bláfjöil ásamt fleiri
skíðakennurum.
þeim skíði sem vilja prófa,“ segir
Þorgrímur.
Hressir og kætir
Hann segir að skíðaíþróttin sé
bæði holl vegna hreyfingarinnar en
ekki síður vegna útiverunnar. „Fólk
er frískt og glatt eftir að hafa reynt
svolítið á sig í brekkunum," segir
hann. „Við viljum fá unglinga og
fullorðið fólk í kennslu því það er
alltaf hægt að læra meira. Snjóbrett-
in eru algjört æði um þessar mund-
ir og krakkarnir ættu endilega að
koma og læra að nota þau.“
Þorgrímur er einn af fáum íslend-
ingum sem er með kennararéttindí
á skíðum frá Austurríki en hann er
mörgum skíðamönnum að góðu
kunnur úr Kerlingafjöllum þar sem
hann starfaði sem skíðakennari."
Að sögn Þorgríms er skíðasvæðið
í Bláfjöllum sæmilegt um þessar
mundir en þó .vantar meiri snjó.
„Það er ágætisfæri en menn verða
að fara varlega vegna grjótsins.
Stólalyftan er opin og tvær aðrar
lyftur en maður vonar að þetta fari
að lagast og skíðaíþróttin geti hafist
að fullu. Það er gríðarlegur áhugi
fyrir íþróttinni. Við fundum fyrir
því í fyrra hversu áhuginn er mikill
og hann er ekki minni núna,“ segir
Þorgrimur Kristjánsson skíðakenn-
ari. -ELA
hin hliðin
Leiðinlegt að reka tána í þröskuldinn
- segir Selma Björnsdóttir, nýr kynmr í Ó-inu
Selma Björnsdóttir
er nýr kynnir í ung-
iingaþáttunum Ó-inu
sem eru á dagskrá
Sjónvarpsins. Selma
tekttr þar við hlut-
verki Dóru Takefusa
sem er að flytja úr
landi. Selma segir að
hringt hafi verið í
sig og óskað eftir að
hún kæmi í prufu
fyrir þáttinn sem
síðar varð til þess að
hún var ráðin. Þetta
er í fyrsta skipti sem
hún starfar fyrir
sjónvarp og segir
hún það mjög spenn-
andi. Undanfarið
hefur Selma leikið í
söngleiknum Rocky
Horror í Loftkastal-
anum, sett upp
dansa fyrir Cats,
sem Verslunarskóli
íslands er að sýna,
og sungið með
hljómsveitinni
Fantasíu sem hefur
sent frá sér plötur
bæði hér heima og erlendis. Það
hefur því verið nóg að gera hjá
henni aö undanfornu. Það er
Selma sem sýnir hina hliðina að
þessu sinni:
Fullt nafh: Selma Björnsdóttir.
Fæðingardagur og ár: 13. júní
1974.
Maki: Enginn.
Börn: Ekkert.
Bifreið: Æðislegur rauður Dai-
hatsu Charade árgerð 1991.
Starf: Leikkona og nú dagskrár-
gerðarmaður.
Laun: Ágæt.
Áhugamál: Kvikmyndir, tónlist,
ferðalög og matur.
Hefur þú unnið í happdrætti
eða lottói? Nei, aldrei.
stjórninni? Hlut
laus.
Hvaða persónu
langar þig mest að
hitta? Mig langar
mest að hitta ófætt
barn nákominnar
konu.
Uppáhaldsleikari:
Gary Oldman.
Uppáhaldsleik-
kona: Lora SanG-
iacomo.
Uppáhaldssöngv-
ari: Sting og Pava-
rotti.
Uppáhaldsstjórn-
málamaður: Jón
Baldvin Hannbals-
son.
Uppáhaldsteikni-
myndapersóna:
Beavis og Butthead.
Uppáhaldssjón-
varpsefni: Ó-ið.
Uppáhaldsmatsölu-
staður: Humarhús-
ið.
Hvaða bók langar
þig mest að lesa?
Karlar eru frá mars
og konur frá venus.
Hver útvarpsrásanna finnst þér
best? Ég skipti sífellt á milli
þeirra.
Uppáhaldsútvarpsmaður: Eng-
inn.
Á hvaða sjónvarpsstöð horfir
þú mest? Sjónvarpið.
Uppáhaldssjónvarpsmaður:
Enginn sérstakur.
Uppáhaldskrá: Kaffibarinn.
Uppáhaldsfélag í íþróttum: Al-
veg hlutlaus.
Stefnir þú að einhverju sér-
stöku í framtíðinni? Ég stefni á
að vera hamingjusöm.
Hvað ætlar þú að gera í sumar-
friinu? Ég stefhi á að eiga fyrir
sköttunum. -ELA
Selma Björnsdóttir er nýr umsjónarmaður þáttarins Ó-ið.
DV-mynd
Hvað finnst þér skemmtilegast
að gera? Mér finnst skemmtfleg-
ast að ferðast til útlanda og að fara
út að borða.
Hvað finnst þér leiðinlegast að
gera? Reka tána í þröskuldinn.
Uppáhaldsmatur: Humar og all-
ur ítalskur matur.
Uppáhaldsdrykkur Vatn og app-
elsín.
Hvaða íþróttamaður stendur
fremstur í dag að þínu mati?
Jón Arnar Magnússon.
Uppáhaldstlmarit: Ekkert sér-
stakt.
Hver er fallegasti karl sem þú
hefur séð? Leikarinn Campell
Scott.
Ertu hlynnt eða andvíg ríkis-