Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.1996, Blaðsíða 36
44
sviðsljós
LAUGARDAGUR 10. FEBRÚAR 1996
Cindy sér á eftir Richard
- sem fundið hefur sár nýja og greindari spúsu
Nú er þaö loksins komið á hreint
að Cindy Crawford hélt fram hjá
Richard Gere - að minnsta kosti ef
marka má breska blaðið The
Sunday Mirror. Þar kemur fram að
Cindy hafi viðurkennt vergirni sína
í bréfi sem hún skrifaði Richard en
sendi aldrei. Bréfið skrifaði hún á
hótelherbergi á Dahid Jaya Hótel-
inu í Jakarta í Indónesíu.
Þótt sögusagnir séu á kreiki um
að Richard hafi verið litlu skárri í
kvennamálum en spúsa hans í
karlamálum þá sagði Cindy í bréf-
inu sem skrifað var í desember árið
1994: „Mér þykir leitt að hafa haldið
fram hjá þér. Mér þykir leitt að hafa
brugðist trausti þínu. Mér þykir
leitt að hafa valdið þér og fjölskyldu
minni vonbrigöum."
The Sunday Mirror segir enn
fremur frá því að Cindy hafi greint
frá því í bréfinu að hún hafi óttast
að hjónaband sitt færi í hundana
vegna framhjáhaldsins með mann-
inum sem hún vill ekki nefna. Segir
hún málið í raun hið vandræðaleg-
asta fyrir sig því í því séu fólgin
stærstu mistök lífs síns. Jafnframt
segist hún óttast að Richard muni
aldrei fyrirgefa sér. „Ég fyrirverð
mig fyrir að hafa logið að þér,“ end-
ar Cindy bréf sitt.
Af Richard, sem er 46 ára, er það
annars að frétta að hann á nú í
heitu ástarsambandi með fyrrum
Bond- stúlkunni Carey Lowell. Slef-
ið slitnar nú vart á milli skötu-
hjúanna þar sem þau halda sig dag-
og næturlangt í margmilljón króna
villu Richards við Tjarnarhrygg í
New York þar sem hann og Cindy
héldu sig tíðum í gamla daga.
Carey, sem er 34 ára og á 4 ára
gamla dóttur með fyrrum eigin-
Auk þess að vera hið fegursta
man er Carey hin greindasta, að
sögn vina Richards, en hún var bók-
menntafræðinemi áður en hún lagði
kvikmyndaleik og fyrirsætustörf
fyrir sig. Einnig er haft eftir vinum
Richards að honum hafi aldrei þótt
Cindy andlega uppörvandi þótt fal-
leg sé.
Cindy sér eftir Richard.
manni sínum, lék á móti Timothy
Dalton i Bond-myndinni A License
to Kill. Kvikmyndahúsagestir muna
líklega líka eftir henni úr myndinni
Sleepless í Seattle þar sem hún lék
eiginkonu Tom Hanks sem dó í upp-
hafi myndarinnar. Þá hefur hún se-
tið fyrir í auglýsingum fyrir Calvin
Garey Lowell og Richard eru hin hamingjusömustu þessa dagana. Klein og Ralph Lauren.
Simpson
flytur til
Brasilíu?
Ekki þykir ólíklegt að O.J. Simp-
son yfirgefi Los Angeles þar sem
hann er orðinn að félagslegu úr-
hraki. Enginn vill lengur tala við
hann eða umgangast hann, honum
er aldrei boðið á frumsýningar og
stórverslanir vilja ekki halda versl-
unum sínum opnum lengur svo
hann geti verslað þar einn.
Vinkona hans, Dionne Warwick,
sem verið hefur að búa sér nýtt
heimili í Rio de Janeiro í Brasilíu,
hefur boðið honum að búa á heimili
sínu eins lengi og hann telur þörf á.
Ættingjar O.J. hafa lagt hart að hon-
um að þiggja boðið og er líklegra en
ekki að hann láti verða af því. Að
minnsta kosti er hann þegar byrjað-
ur að læra portúgölsku.
O.J. Simpson er þegar búinn að læra nokkur orð í portúgölsku.
Ólyginn sagði...
. . .að Amy
Fisher, sú sem
reyndi að drepa
eiginkonu
kennara síns,
væri búin að
gifta sig I fang-
elsinu sem hún
afplánar dóm
sinn í. Maki
Amy er Yvonne Acevedo, fertug
kona sem situr inni fyrir vopn-
að rán. Amy mun hafa átt fjölda
elskhuga í fangelsinu, þar á
meðal fangaverði.
. . .að Brooke Shields væri í
megrun eftir að ákveðið var að
hún léki í nokkrum Friends-
sjónvarpsþáttum til viðbótar.
Brook lék nýlega gestahlutverk
í einum þætti. Þegar hún stóð
við hlið stjarnanna Courteney
Cox og Jennifer Aniston fannst
henni hún líta út sem fíll, svo
tálgaðar voru samstarfskonur
hennar.
. . .að Pamela Anderson væri
bálreið út í útgefendur Playboy.
í janúarhefti blaðsins er að
finna myndir sem ljósmyndari
blaðsins tók af strandverðinum
léttklæddum með hennar sam-
þykki en þar er líka að finna
myndir sem teknar voru af
Pamelu og eiginmanni hennar,
Tommy Lee, á brúðkaupsnótt
þeirra hjóna.
.. .að Tom
Hanks hefði
farið að há-
gráta við
töku á nýj-
ustu mynd
sinni, That
Thing You
Do. Myndin
fjallar að
hluta til um
uppvaxtarár
Toms og
þegar leikar-
ar voru að leika í rifrildissenu
sonar og foreldra uppgötvaði
Tom að hann hafði haft rangt
fyrir sér. Hann stöðvaði töku,
fór að gráta og hringdi í móður
sína og bað afsökunar þar sem
hann'hefði haft rangt fyrir sér
fyrir 25 árum.
. . .að ljósmyndasafn safnara .
nokkurs í Los Angeles hefði
verið selt á dögunum. Það væri
svo sem ekki í frásögur færandi
en þarna var að finna safn nekt-
armynda þeirra sem reynt hafa
fyrir sér í Hollywood. Meðal
þeirra sem eiga mynd af sér í
safninu er Fred Dryer en hann
hefur að sögn þeirra sem til
safnsins þekkja lítið að fela á
myndunum.