Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.1996, Side 47
I>V LAUGARDAGUR 10. FEBRÚAR 1996
55
Peugeot 205 Junior ‘91 til sölu, 3 dyra,
hvítur, spameytinn, skoðaður ‘97, ný
nagladeldr. Ath. skipti á ódýrari.
Upplýsingar í síma 896 2263.
km, 88 gírkassi, nýsprautaður, ný sum-
ardekk fylgja, skoðaður ‘96, skipti á
ódýrari. Úppl. í síma 555 3505.
Til sölu Dodge Eagle Talon TSi, turbo,
4x4, árg. ‘91, ekinn 52.000 mílur, 210
hö. Góður bíll í toppstandi. Ásett verð
1.750 þús. Upplýsingar í síma 565
5281.
inn 140 þús. km. Ryðlaus, gott
eintak. Verð 300 þús., 250 þús. stgr.
Upplýsingar í síma 557 2115.
sumar- og vetrardekk á felgum,
með farinn. Sjón er sögu ríkari, verð að-
eins 490 þús. Uppl. í síma 554 1275.
ekinn 39 þús. km, mjög fallegur bíll,
engin skipti. Uppl. í síma 566 6044.
sO Vörubilar
Flutningskassi til sölu.
Uppi. í síma 852 9626 og hs. 483 3818.
Til sölu Volkswagen Golf Syncro, 4x4,
árg. ‘86. Uppl. í síma 551 5523.
ATH.!
Smáauglýsing í
helgarblað DV
verður að berast
okkur fyrir kl. 17
á föstudag.
Þverholti 11-105 Reykjavfk
Sími 563 2700
Bréfasími 563 2727
Græni síminn: 99-6272
____________________ §éttir
Fiskmarkaður Vestmannaeyja:
Hagnaðurinn 1995
meiri en eigið fé
var í árslok 1994
DV. Vestmannaeyjum:________________
Á síðasta ári fóru 12.521 tonn af
fiski í gegnum Fiskmarkað Vest-
mannaeyja á móti 7.111 tonnum árið
áður og hefur magnið aukist um
5.410 tonn, eða um 76%. Verðmætið
jókst úr 508 millj. króna í 885 millj-
ónir og hefur aukist um 74%.
Með aukningunni er FMV í 3ja
sæti yfir stærstu fiskmarkaði lands-
ins 1995. Þá var FMV stærsti ein-
staki móttökustaður fisks á landinu
þar sem þeir tveir markaðir, sem
náðu meira magni, eru með 35 sölu-
staði.
Þetta kom fram á aðalfundi FMV
fyrir árið 1995 sem haldinn var ný-
lega. 1995 var mjög hagstætt í
rekstri og var hagnaður rúmar 11
milljónir eftir skatta á móti 1,4
milljóna hagnaði árið áður. Tekjur
jukust úr 46,1 milljón í 74,4 milljón-
ir á síðasta ári og var hagnaður af
reglulegri starfsemi 12,7 milljónir
fyrir skatta.
Árið 1995 er fjórða starfsár FMV
og annað árið sem hagnaður er af
rekstrinum. Fyrstu tvö árin var tap
um 5 milljónir kr. Upphaflega var
hlutafé 10 milljónir en aukið um 2,5
milljónir 1994 og aðrar 2,5 milljónir
í fyrra að því er kom fram í ræðu
Páls R. Pálssonar framkvæmda-
stjóra.
„Athyglisvert er að sjá að hagnað-
ur 1995 er meiri en allt eigið fé fyr-
irtækisins í árslok 1994 eftir 3ja ára
rekstur,“ sagði Páll. Eigið fé er nú
21,1 milljón en hlutafé er 15 milljón-
ir.
Stjórn FMV skipa Sigurður Ein-
arsson, Þórður Rafn Sigurðsson, Ás-
mundur Friðriksson, Börkur
Grímsson og Jóhann Kristján Ragn-
arsson. Til vara Viktor Helgason,
Óskar Þórarinsson og Þorsteinn
Viktorsson. Snorri Jónsson, fráfar-
andi formaður, gaf ekki kost á sér
til áframhaldandi stjórnarsetu.
-ÓG
Ársæll SH 88 við bryggju í Skipavík í Stykkishólmi. DV-mynd Birgitta
Nýr bátur
DV, Stykkishólmi:________________________
Nýr bátur í eigu útgerðarfélags-
ins Sólborgar ehf. kom í heimahöfn
í Stykkishólmi nýlega.' Báturinn er
keyptur frá Grúndarfirði - hét áður
Farsæll - en var smíðaður á Seyðis-
firði 1976.
í Hólminn
Báturinn, sem er 103 tonna stál-
bátur, hlaut nafnið Ársæll eða sama
nafn og sá bátur sem hann leysir af
hólmi. Að sögn Gunnlaugs Árnason-
ar, útgerðarstjóra Sólborgar, er ætl-
unin að senda bátinn á netaveiðar i
febrúar og mars en síðan á rækju í
sumar. -BB
Leifsstöð:
Klór í vatninu af
hernaðarástæðum
„Klórinu er bætt i vatnið til að
koma í veg fyrir að það skemmist í
kerfinu og til að drepa gerla. Þetta
er viðtekin venja samkvæmt heil-
brigðisréglum bandaríska hersins.
Ástæðan fyrir því að vatnið er klór-
blandað í flugstöðinni er sú að það
kemur úr vatnskerfi varnarliðsins
sem lagði allar vatnsleiðslur til og
frá flugstöðinni,“ sagði Friðþór Ey-
dal, upplýsingafulltrúi varnarliðs-
ins á Keflavíkurflugvelli.
Margir íslendingar eru óhressir
með að ekki skuli vera hægt að
drekka hreint íslenskt vatn í Leifs-
stöð. Magnús Guðjónsson, fram-
kvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits
Suðumesja, segir að eina ráðið til
að koma í veg fyrir klórið sé að
leggja vatnsleiðslur frá Keflavík í
Leifsstöð.
Samkvæmt heimildum DV er
vatnið klórblandað af hernaðará-
stæðum. Klórið drepur gerla og
kemur því í veg fyrir að hægt sé að
setja gerla og eða önnur efni, sem
valda hættulegum sjúkdómum, í
vatnið. Því er vatnið klórblandað í
öllum herstöðvum bandaríska hers-
ins vítt og breitt um heiminn.
-ÆMK
Frá grunnskólanum
í Hveragerði
Vegna veikindaforfalla vantar kennara við
skólann nú þegar.
Upplýsingar gefa:
GUÐJÓN SIGURÐSSON skólastjóri
í síma 483 4195 og 483 4950.
PÁLÍNA SNORRADÓTTIR
í síma 483 4195 og 483 4635.
Skólastjórnendur
ER ÞORSKSTOFNINN
Á UPPLEBÐ?
Fiskifélag íslands boðar til fundar um stöðu
þorskstofnsins við ísland. Fundurinn verður haldinn
mánudaginn 12. febrúar 1996 kl. 20.00
á Hótel Sögu, Reykjavík, þingstofu A, 2. hæð.
Gunnar Stefánsson, formaður fiskiveiðiráðgjafanefndar
Hafrannsóknastofnunarinnar, verður frummælandi. Að
loknu erindi hans verða almennar umræður og er öllum
frjálst að mæta og taka til máls.
Allir áhugamenn um sjávarútvegsmál
eru hvattir til að mæta.
FISKIFÉLAG ÍSLANDS
Útboð
Rekstur m/s. Sæfara 1996-1999
Fólks- og vöruflutningar til og frá Grímsey
og vöruflutningar til og frá Hrísey
Vegagerðin óskar eftir tilboðum í fólks- og vöruflutn-
inga til og frá Grímsey og vöruflutninga til og frá
Hrísey (rekstur m/s. Sæfara) maí 1996 - maí 1999.
Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni á Akureyri
og í Borgartúni 5, Reykjavík (aðalgjaldkera),
frá og með 12. febrúar 1996.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14.00
þann 4. mars 1996.
Verð útboðsgagna er 1.500 kr.
Vegamálastjóri
Forritið Fjölhugi
Arftaki Vaskhuga
Fjölhugi er fullkomið bókhaldsforrit
sem hentar flestum rekstri.
Fjölhugi byggir á Vaskhuga sem er í
notkun hjá yfir 1000 fyrirtækjum
um allt land.
Fjölhugi kemur tilbúinn til notkunar
og krefst ekki sérstakrar tölvu- eða
bókhaldskunnáttu.
Fjölhugi er alhliða bókhaldshugbúnaður,
og þú getur fjölgað kerfum eftir þörfum.
Meðal kerfa í Fjölhuga eru:
sala, birgðir, viðskiptamenn, verkefna-
bókhald, launabókhald, tollskýrslukerfi
og fullkomið tvíhliða fjárhagsbókhald.
Og þjónustan hjá Vaskhuga hf.
er pottþétt.
KTVaskhugi hf.
Skeifan 7 - Sími 568-2680