Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.1996, Blaðsíða 48
56
leikhús.
LAUGARDAGUR 10. FEBRÚAR 1996
menning______________________
Heimur án jóla
- tónlist eftir Giya Kancheli
Tíðar og opinskáar skírskotanir
nokkurra fyrrum sovéskra tón-
skálda til æðri máttarvalda í verk-
um sínum hefur komið okkur trú-
lausum Vesturlandabúum í opna
skjöldu. Var ekki verið að frelsa
þessa menn undan alræði öreiganna
til að þeir gætu neytt ávaxtanna af
skilningstré vestræns kapítalisma
og lifað síðan hamingjusömu lífi
alla sína daga? Það kemur sem sagt
í ljós að mörgum austurevrópskum
listamönnum þykir það andlega
frelsi sem boðið er upp á hér á Vest-
urlöndum æði skilyrt. Nauðugir
viljugir þiggja þeir þó vestrænan
beina, til dæmis uppihald við þýska
eða franska tónlistarskóla, þar sem
vaxandi markaðshyggjan heima er
búin að úthýsa þeim sem áður voru
á ríkisstyrkjum við að semja „erf-
iða“ tónlist. Löngun þessara burt-
fluttu listamanna eftir samastað, i
andlegum sem landfræðilegum
skilningi, birtist ekki sist í sláandi
og mjög svo persónulegum umritun-
um þeirra á trúarlegri tónlist. Hér
vil ég sérstaklega nefna eistneska
tónskáldið Arvo Párt, þýsk-rúss-
neska tónskáldið Alfred Schnittke,
Edison Denisov, Georgiumanninn
Giya Kancheli og að vissu marki,
tatarakonuna Sofla Goubadullina.
Margbrotinn einfaldleiki
En það er ekki aðeins hið trúar-
lega inntak þessarar nýju tónlistar,
heldur einnig einfaldleiki hennar,
sem farið hefur soldið í taugarnar á
veraldarvönum hlustendum á Vest-
urlöndum. íslenskt tónskáld hafði
mörg orð i mín eyru um „meðvitaða
bernsku" hennar og afneitun á
„vitsmunalegum" tjáningarmáta og
átti þá að ég held ekki síst við Párt,
sem beitir oft löngum þögnum og
bjölluhljóman til að skapa andakt-
ugar stemningar.
Hljómplötur
Aðalsteinn Ingólfssnn
Einfaldleikinn er lika eitt af að-
alsmerkjum Giya Kanchelis, sem nú
dvelur í „útlegð" í Belgíu, en Manf-
red Eicher hjá ECM-útgáfunni hefur
gefið út frábærlega fallega útlítandi
og hljómandi geislaplötur með tón-
list hans. (Ein þeirra, Abii ne vider-
em, skartar m.a.s. ljósmynd frá ís-
landi.) Hins vegar hefur hlustand-
inn á tiifmningunni að einfaldleik-
inn í tónlist Kanchelis verði til eftir
mikinn og sársaukafullan niður-
skurð uns eftir stendur harður og
tær kjarni upphafningar eða skiln-
ings. Þessi einfaldleiki er ekki alltaf
auðskiljanlegur og á heldur ekki að
vera það.
Ihugun og tilfinningar
Eitt þekktasta verk Kanchelis,
Heimur án jóla (sjá Abii ne vider-
em), öðlast einmitt áhrifamátt sinn
fyrir þá tónklasa og tóneffekta sem
ekki eru til staðar. Eftir stendur
mettuð dauðaþögnin, rofin af sker-
andi hljóðum úr hversdagsleikan-
um eða angurværum drengjarödd-
um. Heimur án jóla, og þar með án
trúar, er ömuleikinn uppmálaður.
Vissulega fer Kancheli stundum út
á ystu nöf í manípúlasjón tilflnn-
inga, keyrir upp angist og trega, en
nemur staðar áður en tónmál hans
snýst upp í klisjur.
Áhrifamest er tónlist Kanchelis
þar sem stakri sópran- eða drengja-
rödd eða kvartett (t.d. Hilliard kvar-
tettinum) er teflt gegn lítilli
strengjasveit, ef til vill með ívafi
hljóðeffekta af segulbandi. Þar fer
hann af miklu öryggi bil beggja
milli íhugunar og mikilla tilfinn-
inga.
Giya Kancheli - Abii ne viderem
Kim Kashkashian, Hilliard En-
semble, Stuttgart Kammerorkest-
er o.fl.
ECM 1510
Giya Kancheli - Exil
Verk fyrir sópran, flautur og
strengjasveit
ECM 1535
Umboð á íslandi: JAPIS
Andlát
Sveinn H.M. Ólafsson, fyrrverandi
brunavörður, Bústaðavegi 75, lést í
Sjúkrahúsi Reykjavíkur fimmtu-
daginn 8. febrúar.
Lára Guðbjörg Kristjánsdóttir,
Mávakletti 12, Borgarnesi, lést í
Sjúkrahúsi Akraness 6. febrúar.
Guðfríður Kristín Jóhannesdótt-
ir, Hrafnistu, lést 8. febrúar.
Andlát
Kristmundur Anton Jónasson
framreiðslumaður verður jarðsung-
UPPBOÐ
Eftirtaldir munir verða boðnir í uppboðssal í Tollhúsinu við Tryggvagötu
laugardaginn 17. febrúar 1996, kl. 13.30:
1 cl. ballvalves 80 kg, 10 stk. snittvélar, 14 IBM-tölvur, 17 rörtengur o.fl., 18
hótelrúm, eldhúsinnrétting, víxill, kr. 210.000, útg. af Gunnari G. Gunnars-
syni en samþykktur af Perlu hf., greiðsludagur 15.11 .’94, Europa rafstöðv-
ar, Eskofot plöturammi, EX-tölva, Fantataka eftir Jerzy Kowsenski, 400
bækur, fatahengi, fatnaður, faxtæki, Feste vals, fjallareiðhjól, 21 gírs, fjöl-
rása upptökutæki, Fostex E16, flökunarvél, framköllunarvél, framlnr.
604917, framleiðsluverkfæri, 2 dælur og 2 blöndunarpottar, Frostwear
kæliskápur, frystiborð, fundarborð, geisladrif, power DC, geisladrif, geipla-
spilari, gervitunglaloftnet, 180 cm, gínur, gínustandar, glasiringavél, gler-
borð, glerhillur, Globe kæliskápur, grasstrá, greni, gufuofn, Becck FCV-4,
Harteck afgreiðslutæki, hausklofningsvél, hátalarar, háþrýstidæla, Gerní,
háþrýstidælur, háþrýstiþvottatæki og rafsuðutæki, Hewlett Packard leysi-
prentari, Hewlett Packard Vectra VL tölvur, hillur, hillusamstæða, hilluuppi-
stöður, hitablásarar, hitamælar, híasintur, hjólainnivinnupallar, hjólsög í
borði, hleðsluborvél, hliðarborð, hljóðblöndunarborð af gerð Cadac,
hljóðmixer, Soundcraft Series 2400 28/24, hljóðmælitæki, hljómflutnings-
tæki, hlutabréf í Kaupgarói hf. að nafnvirði kr. 4.000, Hobart 2 stk., 80 stk.
stólar, 20 stk. borð, Hobart hrærivélar, hornsófar, sófasett, borð, hraðbátur
úr trefjaplasti, hvítur, 14fet, hringborð, Husqvarna ofnar, húsgögn, húshlut-
ar, Hyuandai tölvur, höggborvél, IBM 4019 leysiprentari, IBM 486 tölva
með prentara, IBM AS 400 tölva, Image nálaprentari, Inno- hit 2, sjónvarp,
innréttingar í verslun, ITEK 975 PFA prentvél, ísskápur, ísvélar, Electrofric,
járngrind, jólaskraut, jólastjörnur, JRC JFV-216 Color Echo Sounder, Jun
air loftpressur, Jun air maxi loftpressa, kaffivélar, kantpússivél, kastari, kál-
far, keflaþjappa o.fl., Kells Sail, 1500 kg, Kemp suðuvél, kommóða, Konica
550 Ijósritunarvélar, Kvikk hausklofningarvél, kvikmyndatökuvél, kæliborð,
kæliskápur, lampar, leysiprentari, teg. HP, leysiprentari, QMS 420, lágborð,
leiktæki, listaverk, listaverkið „Fyrirmæli óskast", litaskjár, litatæki, Electro
Teck, litatæki, Finlux 22, litatæki, ITT, litatæki, Kolster, litatæki, Mark, lita-
tæki, Multi-Tec, litatæki, Nordmende, litatæki, Philips, litatæki, Samsung,
litatæki, Sony, litatæki, teg. Grund, litsjónvarp, teg. Finlux, litsjónvarp, teg.
Samsung, líkamsræktartæki, Ijósabúnaður, Ijósarammi, Ijóskastarar, Ijós-
myndavörur, Ijósritunarvél, Sharp, Ijósritunarvél, Mita DC-1205, Lockfor-
mer lásavél, Lovero HM-450 pökkunarvélar, Luxor sjónvarp, lýsingarkassi,
DUPLEX helioprint, Macintosh Color Classic tölva, Macintosh Plus tölva,
matarstell, Suomi, fyrir 12 manns, Maxima Front prentvél, málmklefi, mál-
verk eftir Axel Einarsson, „Sólarlag", og málverk eftir Gunnar Örn (hálf-
brjósta kona), málverk eftir Jóhannes Kjarval, 120x150 cm, málverk eftir
Sigurð Örlygsson (Reiðhjól í talíu), MCS486 SX20 tölva, Microtec borðs-
kanni, mótahreinsivél, Europa, mótorskemmtibátur, 4000 kg, móttökuborð,
myndbandstæki, Sony Betacam 40, myndvinnslutæki, Multiflex 2000, Nas-
hua Ijósritunarvél, nálaprentari af Apple-gerð, Nescoxenon, New life rönt-
gentæki, Novell netbúnaður, Obi leysiprentari, offsetmyndavél, offsetprent-
vél, Heidelberg, 5 lita, teg. MOFPP, Oki prentarar, 2. stk., Otari MTR-90
fjölrásasegulbandstæki, óþekkt vara, pallar, Panasonic klippisett,
pappaprufur, pappír o.fl., pappírsskurðarhnífur, IDEAL, PC tölva, gerð XT-
486, peningakassi, peningaskápar, Peugeot 1976, Philips sjónvarp, Pitney
Bows 1861 pökkunarsamstæða, plaköt í ramma, plasmaskurðarvél og kol-
sýruvél, plötuþjappa, Power Macintosh tölva, póstfax, prentarar, prentvél,
ADAST Dominant, prentvél, frnr. 5160, prentvél, einlita, frnr. 5160, putta-
beygjuvél, QMS geislaspilari, PS-410, QMS leysiprentari, PS-410, QMS
PS410 prentari, Rafha eldavélar, Rainbow ryksuga, rakatæki, rammar,
reiðhjól, reiknivél, repromaster, Richmac peningakassar, ritvél, Rival púss-
vél, Roller handsnitti, Rosenthal vasar, róðrarvél, rósabúnt, rósir, ryksuga,
SCM-kantlímingarvél, seglskútan Svalan (16 feta), Serial nr. mx 2428-
0135, setningartölva, Siemens eldavél, Sissons gólfstandandi ruslakvörn,
Sissons ruslakvörn í vask, sími, símkerfi, trilla: Hanna Vigdís, sk.skr.nr.
6588, Tulip 486 tölva, tveggja hausa Jun air loftpressur, tvær tölvur,
PC486, tveggja skerma, tvö reykköfunartæki, Appareil Respiradire, töflust-
and, tölva 486 megah. MH2 með prentara, tölva, AST power Premium,
tölva, Huyndai 486, tölva, Macintosh, tölva XT 286, 21190276, tölva, IBM,
Seikosh prentari, Sharp faxtæki, tölvuborð, tölvubúnaður, tölvusetningar-
vél, Linotype Mergenthaler, tölvuteiknari, tölvuvigt, töskur, umbúðir, Unitron
tölva, Unitron PC tölva með skjá, Universal suðuvél, uppþvottavél af gerð-
inni Vexiodisk, uppþvottavél, Hobart HX40, uppþvottavél, Vexiodisk, upp-
þvottavélarborð og fylgihl., útgáfusamningar: Hótel Færeyjar, bein leið, og
Súkkat dúett, útvarp af gerðinni Sailor R-106, varahlutir, vatnaliljur, vatns-
hitari, vegghillur, Venturi, Franke-ofn, afgreiðsluborð í bakaríi, verkfæri,
vélahlutar, vélar, vélpressa, Victor VP 05 L leysiprentari, videotökuvél,
Cannon, viðarhillur, vinnupallar, vinnuskúrar, vörulager á 10 brettum af
2,5” kínverskum rakettum, vörur, Waxstation tölvubúnaður, Winkzlin matar-
stell, WLS- útrúllunarvél, World class dragvél, Xerox Ijósritunarvél, Zanussi
ísskápur/frystir, Zusuki Ijósavél, þakhellur, þokuúðunartæki, þvottavél frá
Imanuel, þykktarhefill, ökutæki, TE-406, sem er í smápörtum, og ölkælir,
bifreið, IB-654 (R-33818) Fiat Panda, árg. ’87, gólfbón og gólfsápa, þjófa-
varnarkerfi fyrir heimili, mælitæki fyrir örbylgjuofna, fatnaður, myndavél,
faxtæki, leikföng, Dantax- hátalarar, bílabón, sjampó og hreinsiefni, 2 bretti
eldhúsvörur.
Ávísanir ekki teknar gildar sem greiðsla nema með samþykki uppboðs-
haldara eða gjaldkera.
Greiðsla við hamarshögg.
SÝSLUMAÐURINN í REYKJAVÍK
LEIKFÉLAG
REYKJAVÍPJR
SÍMI 568-8000
STÓRA SVIÐ:
ÍSLENSKA MAFÍAN
eftir Einar Kárason og Kjartan
Ragnarsson
Lau 10/2, fáein sæti laus, lau. 17/2,
lau. 24/2.
LÍNA LANGSOKKUR
eftir Astrid Lindgren
Laugard. 10/2., fáein sæti laus, sun.
18/2, uppselt, sun. 25/2, fáein sæti
laus.
STÓRA SVIÐ KL. 20:
VIÐ BORGUM EKKI,
VIÐ BORGUM EKKI
eftir Dario Fo
Fösd. 16/2, fös. 23/2, aukasýningar.
Pú kaupir einn miða, færð tvo!
Samstarfsverkefni
við Leikfélag Reykjavíkur:
Alheimsleikhúsið sýnir á
Litla sviði kl. 20.00:
KONUR SKELFA
toilet-drama eftir Hlín
Agnarsdóttur.
Lau. 10/2, uppselt, fid. 15/2, fáein sæti
laus, föd. 16/2, uppselt, laud. 17/2,
uppselt, aukasýning fimmtud. 22/2,
föst. 23/2, uppselt, lau. 24/2, uppselt.
Barflugurnar sýna á
Leynibarnum kl. 20.30:
BAR PAR
eftir Jim Cartwright
30. sýn. laud. 10/2 kl. 23.00, fáein sæti
laus, föst. 16/2, uppselt, lau 17/2 kl.
23.00, fáein sæti laus, fös. 23/2, fáein
sæti laus, lau. 24/2 kl. 23.00, fáein sæti
laus.
Tónleikaröð L.R.
Á STÓRA SVIÐI KL. 20.30.
Þriðjud. 13. feb.
Stórsveit Reykjavíkur ásamt
söngkonum. Miðaverð kr. 1.000.
Fyrir börnin: Línu-ópal, Lfnu-bolir og
Lmu-púsluspil.
Miðasalan er opín alla daga frá
kl. 13-20, nema mánudaga frá
kl. 13-17, auk pess er tekið á
móti miðapöntunum í síma
568-8000 alla virka daga.
Greiðslukortaþjónusta.
Gjafakortin okkar
- frábær tækifærisgjöf.
Leikfélag Reykjavíkur -
Borgarleikhús
Faxnúmer 568-0383.
Bæjarleikhúsið
Mosfellsbæ
LEIKFÉLAC
MOSFELLSSVEITAR
sýnir
gamanleikinn
Deleríum Búbónis
eftir Jónas og Jón Múla Árnasyni
f Bæjarleikhúsinu.
Sýningar hefjast kl. 20.30.
Laugardaginn 10. febr.
Föstudaginn 16. febr.
Sunnudaginn 18. febr.
Föstudaglnn 23. febr.
Sunnudaginn 25. febrúar.
Miðaverð kr. 1200.
Miðapantanir í síma 566 7788
allan sólarhringinn.
Miðasala í leikhúsi frá kl. 17
sýningardaga.
inn frá Dómkirkjunni i Reykjavík
mánudaginn 12. febrúar kl. 15.00.
Helga Rósa Ingvarsdóttir, Vall-
holti 3, Ólafsvík, veröur jarðsungin
frá Ólafsvíkurkirkju laugardaginn
10. febrúar kl. 14.00.
Sigrún Guðjónsdóttir frá Vatns-
nesi í Grímsnesi verður jarðsungin
frá Kotstrandarkirkju laugardaginn
10. febrúar kl. 14.00.
Ólafur Vigfússon, Safamýri 46,
áður bóndi á Þverá, verður jarð-
sunginn frá Prestbakkakirkju á
Síðu laugardaginn 10. febrúar kl.
14.00.
Ásmundur Hálfdán Magnússon,
ÞJÓDLEIKHÚSIÐ
STÓRA SVIÐIÐ KL. 20.00:
ÞREK OG TÁR
eftir Ólaf Hauk Símonarson
í kvöld, uppselt, fid. 15/2, uppselt, föd.
16/2, uppselt, fid. 22/2, uppselt, Id.
24/2, uppselt, fld. 29/2, nokkur sæti
laus.
GLERBROT
eftir Arthur Miller
Á morgun, Id. 17/2, næstsíöasta
sýning, sud. 25/2, sfðasta sýning.
DONJUAN
eftir Moliére
Sun. 18/2, næstsíðasta sýning, föd.
23/2, síðasta sýning.
KARDEMOMMUBÆRINN
eftir Thorbjörn Egner
í dag, uppselt, á morgun, uppselt, Id.
17/2, uppselt, sud. 18/2, uppseit, Id.
24/2, örfá sæti laus, sud. 25/2, uppselt.
LITLA SVIÐIÐ KL. 20.30:
KIRKJUGARÐSKLÚBBURNN
Á morgun, uppselt, Id. 17/2, uppselt,
sud. 18/2, uppselt, mvd. 21/2, laus
sæti, föd. 23/2, uppselt, sud. 25/2, laus
sætl.
Athugið að ekki er hægt aö hleypa
gestum inn í salinn eftir að sýning
hefst.
SMÍÐAVERKSTÆÐIÐ KL. 20.00:
Leigjandinn
eftir Simon Burke
Á morgun, nokkur sæti laus, Id. 17/2,
sud. 18/2, föd. 23/2, sud. 25/2.
Sýningin er ekki við hæfi barna.
Ekki er hægt að hleypa gestum inn í
salinn eftir að sýning hefst.
ÁSTARBRÉF
með sunnudagskaffinu.
kl. 15.00 í Leikhúskjallaranum.
Gjafakort í leikhús -
sígild og skemmtileg gjöfl
Miðasalan er opin alla daga nema
mánudaga frá kl. 13.00-18.00 og
fram að sýningu sýningardaga.
Einnig símaþjónusta frá kl. 10.00
virka daga.
Sími miðasölu 551 1200 - Sími ‘
skrifstofu 551 1204.
Greiðslukortaþjónusta.
Fax: 561 1200
SÍMI MIÐASÖLU: 551 1200
SÍMI SKRIFSTOFU: 551 1204
VELKOMIN í ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ!
MADAMA BUTTERFLY
eftir Giacomo Puccini
Sun. 11/2 kl. 20, síðasta sýning.
HANS OG GRÉTA
eftir Engilbert Humperdinck
Sun. 11/2 kl. 15.00, síðasta sýning.
Miðasalan er opin alla daga nema
mánudaga frá kl. 15-19, laugar-
daga og sunnudaga kl. 13-19 og
sýningarkvöld er opið til kl. 20.
SÍMI 551-1475, bréfasími 552-7384.
GREIÐSLUKORTAÞJÓNUSTA
Eyrarstíg 1, Reyðarfirði, verður
jarðsunginn frá Reyðarfjarðar-
kirkju laugardaginn 10. febrúar kl.
14.00.
Pétur Tryggvi Pétursson, Græna-
garði, verður jarðsunginn frá ísa-
fjarðarkirkju laugardaginn 10.
febrúar kl. 14.00.
Jóna Sigríður Ólafsdóttir, Þúfu,
Vestur-Landeyjum, verður jarð-
sungin frá Voðmúlastaðakapellu í
Austur-Landeyjum laugardaginn 10.
febrúar kl. 14.00.
Eygló Kristjánsdóttir verður jarð-
sungin frá Fella- og Hólakirkju
mánudaginn 12. febrúar kl. 13.30.