Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.1996, Blaðsíða 51
DV LAUGARDAGUR 10. FEBRÚAR 1996
aftnæíi
Guðmundur Þorbjörn Harðarson
Guðmundur Þorbjörn Harðar-
son, forstöðumaður Sundlaugar
Kópavogs, Lerkihlíð 7, Reykjavík,
er fimmtugur í dag.
Starfsferill
Guðmundur fæddist í Reykjavík
og ólst þar upp. Hann lauk íþrótta-
kennaraprófi frá íþróttakennara-
skólanum á Laugarvatni 1965, var
við framhaldsnám í Kaliforníuhá-
skóla í Long Beach, Bandaríkjun-
um, á árunum 1967-1968, i fram-
haldsnámi 1973-1975, sem lauk með
BS- prófi í íþróttakennslu og
heilsufræði, við Alabamaháskólan-
um í Tuscaloosa, Bandaríkjunum.
Guðmundur var sundkennari
við Sundlaug Vesturbæjar í
Reykjavík 1965-1967, íþróttakenari
við Mýrarhúsa- og Valhúsaskóla á
Seltjarnarnesi 1963-1980, náms-
stjóri í sundi hjá menntamálaráðu-
neytinu 1975-1980 og í hlutastarfi
aftur 1985-1987, sundþjálfari í fullu
starfi hjá sundfélaginu Neptún í
Randers í Danmörku 1980- 1985,
rak eigin heildverslun 1985-1993 og
hefur verið forstöðumaður Sund-
laugar Kópavogs frá 1993. Guð-
mundur var sundþjálfari hjá Sund-
félaginu Ægi í Reykjavík frá
1965-1980, landsliðsþjálfari i sundi
hjá Sundsambandi íslands
1969-1980, m.a. þjálfari í sundi á
ólympíuleikunum 1972 og 1976, aft-
ur landsliðsþjálfari í sundi hjá
Sundsambandi íslands frá 1985-
1988 og þjálfaði í sundi á ólympíu-
leikunum 1988, landsliðsþjálfari
danska unglingalandsliðsins í
sundi 1981- 1985.
Guðmundur sat í stjórn Sundfé-
lagsins Ægis frá 1960-1979, í stjórn
Sundráðs Reykjavikur frá
1960-1973. Einnig hefur hann unnið
nefndastörf í fjölda neftida á vegum
Sundsambands íslands frá 1965, s.s.
landsliðsnefnd, fræðslunefnd og
setið í þjálfararáði, hann var for-
maður í Samtökum sundþjálfara
1971-1975, gjaldkeri í stjórn danska
sundþjálfarasambandsins frá
1981-1985 og formaður í Samtökum
forstöðumanna sundstaða á Islandi
frá stofnun í mars 1995.
Þá hefur Guðmundur skrifað
fjölda bæklinga og námsefni fyrir
íþróttakennara um sund og sund-
kennslu. Allt það efni var gefið út
af menntamálaráðuneytinu.
Fjölskylda
Guðmundur kvæntist 22. júní
1968 Rögnu Maríu Ragnarsdóttur,
f. 12.1. 1948. Foreldrar hennar Mar-
ía Halldórsdóttir og Ragnar Á.
Bjarnason sem lést 1948. Þau
bjuggu í Reykjavík. Uppeldisfaðir
Rögnu var Kolbeinn K.G. Jónsson
sem lést 1975.
Börn Guðmundar og Rögnu eru
Ragnar, f. 2.4. 1968, íþróttakennari,
hann lauk prófi frá Kölnarháskóla
1994 og starfar sem sundþjálfari í
fullu starfi í Hjörring í Danmörku,
sambýliskona hans er Nicol Cordes
íþróttakennari; Þórunn Kristín, f.
28.5. 1969, lyfjafræðingur, lauk
námi frá Háskóla Islands 1994 og
stundar framhaldsnám í Edinborg
í Skotlandi; Hörður, f. 10.2. 1974,
nemi, býr í foreldrahúsum; María
Björk, f. 24.5. 1982, grunnskóla-
nemi.
Systkini Guðmundar eru Odd-
fríður Lilja, f. 1941, hjúkrunarfæð-
ingur í Reykjavík; Kristján, f. 1948,
bifvélavirki í Neskaupstað.
Foreldrar Guðmundar eru Hörð-
ur Guðmundsson, f. 7.5. 1918, bak-
arameistari, og Steinunn Kristjáns-
dóttir, f. 5.4. 1948. Þau hafa alltaf
verið búsett í Reykjavík.
Guðmundur tekur á móti gestum
í Félagsheimili Kópavogs á afmæl-
isdaginn milli klukkan 17 og 20.
Aðalheiður Jónsdóttir
Aðalheiður Jónsdóttir, fyrrver-
andi húsmóðir, Dvalarheimilinu
Höfða, Akranesi, er níræð í dag.
Starfsferill
Aðalheiður fæddist að Hafurs-
stöðum á Fellsströnd í Dalasýslu og
ólst þar upp. Hún naut barna-
fræðslu í heimahúsum en var ekki
í farskóla. I foreldrahúsum gékk
hún í öll tilfallandi sveitastörf auk
húsverka. Hún vann sem ritari í
kvenfélaginu á Fellsströndinni.
Hún fór að heiman eftir lát föður
síns 1941 og var tvö sumur við
garðyrkjunám á vegum Huldu Jak-
obsdóttur á Marbakka í Kópavogi.
Þar kynntist hún mannsefni sínu,
Þórarni Kristjánssyni og hófu þau
búskap á Illugástöðum í Múlasveit.
Hjónin brugðu búskap á Illugastöð-
um og íluttu að Hyrningsstöðum í
Reykhólasveit og aftur að Hólum í
sömu sveit. I Reykhólasveit vann
Aðalheiður Jónsdóttir.
Aðalheiður sem ritari kvenfélags-
ins.
Aðalheiður flutti síðan í Búðar-
dal og á Akranes þar sem hún vann
við húsmóðurstörf.
Fjölskylda
Aðalheiður giftist 4.7. 1944 Þór-
arni Kristjánssyni, f. 20.06. 1907,
bónda á Illugastöðum. Hann var
sonur Engilberts Kristjáns Arason-
ar, bónda á Illugastöðum, og Frið-
riku Steinunnar Friöriksdóttur
húsmóður.
Aðalheiður og Þórarinn áttu eng-
in börn. Systur Aðalheiðar: Mar-
grét Jónsdóttir, f. 03.04. 1907, d.
23.06. 1976, búsett í Reykjavík;
Kristín Jónsdóttir, f. 18.09. 1909.
Hún dó i ágúst 1931.
Foreldrar Aðalheiðar voru Jón
Eiríksson, f. 07.03.1864, d.
16.06,1941, bóndi á Hafursstöðum á
Fellsströnd, og kona hans, Jónína
Ingibjörg Bæringsdóttir, f. 16.11.
1881, d. 18.06.1925, húsmóðir á Haf-
ursstöðum.
fréttir
Kristinn Ingvarsson, háseti á aflaskipinu Breka, glaður í lestinni við loðnulöndun í Neskaupstað. DV-mynd Hjörvar
Loðnan færist nær landi
DV, Seyðisfirði:______________________
Það var mikill og jafn gangur í
loðnuveiðunum síðasta sólarhring-
inn. Skipin eru nú sem óðast að
taka grynnri nætur enda er loðnan
að nálgast landið. Mörg skip hafa
landað hjá SR-Mjöli hér og Faxi GK
kom með átulausa loðnu sem var
fryst fyrir Taivan og Kóreu. Vakta-
vinna er allan sólarhringinn.
Þórður Jónasson kom að landi í
gær og eru Japanar nú að skoða
farm skipsins. Nái hrognafylling
staðli verður það fyrsta frysting á
Japansmarkað á vertíðinni. -JJ
Til hamingju með
afmælið 11. febrúar
80 ára_______________
Ársæll Pálsson,
Boðahlein 30, Garðabæ.
70 ára
Guðrún Hansdóttir,
Eyrarvegi 18, Grundarfirði.
Jón Guðjónsson,
Laugabóli, Hólmavíkurhreppi.
Hildegard Þórhallsson,
Árskógum 6, Reykjavík.
Bryndís Bjarnason,
Holtsbúð 27, Garðabæ.
Hún tekur á móti gestum laugar-
daginn 10. febrúar frá kl. 15-18 á
heimili dóttur sinnar að Ásbúð 51
í Garðabæ.
Skúli Jónas-
son, bygginga-
meistari og
starfsm. Búnað-
arbankans (á af-
mæli 12.2),
Háaleitisbraut
20, Reykjavík.
Kona hans er
Guðrún Jóns-
dóttir.
Þau taka á móti gestum í
AKOGES-salnum, Sigtúni 3,
sunndaginn 11. febrúar frá kl.
15-18.
60 ára
Indriði Indriðason,
Langholtsvegi 14, Reykjavík.
50 ára__________________
Ólöf Hafdís Gunnarsdóttir,
Heiðarholti 3, Keflavík.
40 ára
Einar Páll Svavarsson,
Aflagranda 21, Reykjavík.
Sighvatur E. Sighvatsson,
Baughóli 48, Húsavík.
Sigurlaug Vilhjálmsdóttir,
Fögruhæð 6, Garðabæ.
Ingibjörg S. Norðfjörð,
Fagrabergi 46, Hafnarfírði.
Guðmundur J. Halldórsson,
Reykjasíðu 19, Akureyri.
Sólrún Björk Valdimarsdóttir,
Grenstanga, A-Landeyjahreppi.
Guðlaugur Gíslason,
Bræðraborgarstíg 26, Reykjavík.
Rúnar Oddur Guðbrandsson,
Kirkjuteigi 17, Keflavík.
Brynjólfur Þór Jónsson,
Melgerði 2, Akureyri.
Þorbjörg Karlsdóttir,
Laufengi 9, Reykjavík.
Sveinn Gaukur blikksmiður (á
afmæli 12.2),
Löngufit 26, Garðabæ.
Hann tekur á móti gestum á heim-
ili sínu 11. febrúar kl. 16.
FRÁ STARFSMANNAFÉLAGINU SÓKN
Allsherjaratkvæðagreiðsla
Ákveðið hefur verið að viðhafa allsherjaratkvæðagreiðslu
um kjör stjórnar og trúnaðarmannaráðs Starfsmannafélagsins
Sóknar. Tillögur skulu vera skv. A-lið 22. greinar félagslaga
Sóknar og skv. B-lið 22. gr. til eins árs (gjaldkeri og
meðstjórnandi).
Framboðslistum eða tillögum skal skila á skrifstofu félagsins
eigi síðar en kl. 12 á hádegi föstudaginn 16. febrúar 1996.
Kjörstjórnin
S©RPA
Fræðslu- og kynningarstarf
Starfsmaður óskast til að annast fræðslu- og kynningarstarf,
gerð fræðsluefnis og að fylgja því eftir m.a. með heimsóknum
í leikskóla og grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu og skipuleggja
skoðunarferðir á athafnasvæði SORPU.
Æskilegt er að umsækjandi hafi uppeldisfræðilega menntun og
reynslu í tölvuvinnslu. Ráðningartími er 18-24 mánuðir.
Umsóknarfrestur er til 1. mars 1996 og skulu umsóknir sendar til
Ögmundar Einarssonar framkvæmdastjóra sem jafnframt veitir
nánari upplýsingar.
SORPEYÐING HÖFUÐBORGARSVÆÐISINS BS
GUFUNESI, PÓSTHÓLF 12100
132 REYKJAVÍK