Dagblaðið Vísir - DV - 29.02.1996, Blaðsíða 3
FIMMTUDAGUR 29. FEBRÚAR 1996
Fréttir
3
Hafnarfjörður:
Kjaraskerðing
starfsmanna
fyrir dómstóla
Bæjaryfirvöld í Hafnarfiröi hafa
ákveðiö að skera niöur bílastyrk hjá
50-60 bæjarstarfsmönnum um 25% frá 1.
mars, lækka fasta yfirvinnu og setja
nokkra starfsmenn á fljótandi yfirvinnu.
Ámi Guömundsson, formaður Starfs-
mannafélags Hafnarfjaröar, segir aö
álitamál sé hvort bílastyrkur teljist laun
eöa bilastyrkur. Látið verði reyna á þaö
fyrir dómstólum.
„Raunsparnaðurinn þýðir í mesta
lagi um 2,4 milljóna króna spamað hjá
bænum eða 0,004 prósent af 900 milljóna
króna launakostnaði bæjarins. Þessi
sparnaður er alltof dýru verði keyptur.
Hann þýðir gjörbreytta starfsmanna-
stefnu hjá bænum,“ segir Árni. -GHS
með mikla veghæð
MITSUBISHI LANCER 4X4 er glæsilegur og ríkulega úlbúinn skutbíll. Staðalbúnaður er
m.a. vindskeið með hemlaljósi, toppgrindarbogar, rafdrifnar rúðuvindur framan og aftan,
rafdrifnir útispeglar, upphituð framsæti, útvarp og segulband. Hann er rúmgóður,
kraftmikill, 113 hestöfl, með mikla veghæð, 18,5 cm og þar af leiðandi traustur í
baráttunni við ófærðina.
Sóknarnefndir reka organista:
Gert að undir-
lagi prestsins
- segir Jóhann Ólafsson organisti
Vertu skrefi á undan
með okkur!
Viðskipta- og tölvuskólinn býður 6 vikna
kvöldnámskeið fyrir aðeins kr. 21.600
vj Windows J Word J Excel Internet
Hringdu og fáðu nánari upplýsingar í síma 569 7640
<Ö>
VIÐSKIPTA- OG
TÖLVUSKÓLINN
Ánanaustum 15
101 Reykjavík
Sími 569 7640
Símbréf 552 8583
skoli@nyherji.is
„Það er brotinn á mér réttur. Eg hef
nokkuð áreiðanlegar heimildir fyrir
því að þetta sé gert að undirlagi
prestsins og mér er ekki gefið tæki-
færi til að kynna mér hans málflutn-
ing og svara honum eins og skylt er
samkvæmt stjórnsýslulögum," segir
Jóhann Ólafsson, organisti í Svarfað-
ardal, sem sagt hefur verið upp störf-
um af tveimur sóknarnefndum. Hann
hefur verið organisti og kórstjóri við
Urðarkirkju og Vallakirkju síðan 1990.
Jóhann var einnig ráðinn að Tjarnar-
kirkju en hætti störfum þar.
„Uppsagnarfrestur, sem ég er búinn
að ávinna mér með störfum mínum
hér, er ekki virtur. Ég tel það alveg
ljóst að ég eigi rétt á þriggja mánaða
uppsagnarfresti en mér var sagt upp
með mánaðarfyrirvara," bætir Jóhann
viö.
Hann segir engar ástæður gefnar
sem gefa tilefni til uppsagnar í bréfinu
sem honum barst 13. febrúar. „Sam-
starf við kór hefur verið í góðu lagi.
Ég hef aldrei verið boðaður á sóknar-
nefndarfundi og ekki fengið gagnrýni
frá sóknarnefndum."
Ástæðu þess að Jóhann hætti að
spila í Tjarnarkirkju segir hann vera
þá að ekki hafi verið staðið við sam-
komulag sem var gert. „Þetta var sam-
komulag um greiðslur og þar að auki
var sóknarnefndin með ýmis ónot í
minn garð. Hinar sóknarnefndirnar
stóðu við samkomulagið og ég hef
starfað samkvæmt því af heilum hug.
Hins vegar er óþægilegt að fá ekki að
vita hvenær á að messa fyrr en á síð-
ustu stundu. Organistinn er aldrei
hafður með í ráðum þegar verið er að
skipuleggja messurnar."
Jóhann segir að í uppsagnarbréfmu
standi að sóknarnefndunum þyki full-
reynt að ekki sé hægt að hafa tvo org-
anista og einn kór. „Ég hef lýst áhuga
mínum á að ræða þessi mál og boðað
sóknarnefndir og kórstjórn á minn
fund. Málin hafa verið rædd en síðan
hefur ekkert meira heyrst. Þegar tveir
organistar eru með einn kór þarf að
hafa samstarf. Það hefur komið fyrir
að hinn organistinn hafi boðað æflng-
ar ofan í æfingar hjá mér og svo fram-
vegis. Það hefur ýmislegt gerst til að
geja manni starfið erfiðara án þess að
hlutirnir séu ræddir," segir Jóhann.
Formenn sóknarnefndanna vildu
ekki tjá sig um málið. -IBS
A MITSUBISHI
LRNCER 4X4
113 HESTÖFL i
Akranes:
Félagslegu íbúð-
irnar illseljanlegar
DV, Akranesi:
Lítil eftirspurn virðist vera í sambandi
við félagslegu íbúðimar hér á Akranesi.
Samkvæmt ársreikningi Húsnæðisnefnd-
ar Akraneskaupstaðar átti nefndin um
síðustu áramót 12 íbúðir og fasteignamat
þeirra er 41,7 miiljónir króna. í stóru fjöl-
býlishúsi á nefndin níu íbúðir. Nefndar-
menn eru nú að íhuga að þann möguleika
aö taka 27 milljóna króna lán til veru-
legra endurbóta á húsinu. Þar þarf að
skipta um þak og klæða húsið að utan
auk þess sem allir gluggar þarfnast mik-
illa endurbóta. -DÓ
A
MITSUBISHI
MOTORS
MMC LANCER 4x4 aldrif, tilbúinn á götuna kostar
1.790.000
m
HEKLA