Dagblaðið Vísir - DV - 29.02.1996, Page 16
28
FIMMTUDAGUR 29. FEBRUAR 1996
íþróttir
Njáll þjálfar
Einherja
Njáll Eiðsson hefur verið ráð-
inn þjálfari 4. deildar liðs Ein-
herja í knattspyrnu en Einheiji
kemur frá Vopnafirði.
Njáll mun einnig leika með
liðinu í sumar og ætla Einherja-
menn sér stóra hluti á komandi
keppnistímabili knattspymu-
manna.
Að sögn eins forráðamanna
liðsins er stefnan sett á úrslita-
keppnina og jafnvel lengra.
-SK
Ajax meistari
meistaranna
Hollenska stórliðið Ajax varð í
gær meistari meistaranna þegar
það vann síðari leik sinn gegn
Real Zaragoza frá Spáni, 4-0, og
samanlagt, 5-1.
Danny Blind skoraði tvívegis
úr vítaspymum fyrir Ajax en
hin tvö mörkin gerðu Winston
Bogarde og Finidi George.
Karlsruhe í
úrslitaleikinn
Það verða Karlsruhe og
Kaiserslautern sem leika til úr-
slita í þýsku bikarkeppninni.
Karlsruhe komst í úrslitaleikinn
í gær meö því aö bera sigurorð
af Fortuna Dússeldorf, 2-0.
PSV komið í
undanúrslit
PSV tryggði sér sæti í gær-
kvöld í undanúrslitum hollensku
bikarkeppninnar í knattspyrnu.
PSV sigraði Twente með þremur
mörkum gegn einu.
í hollensku 1. deildinni vora
tveir leikir á dagskrá. Go Ahead
Eagles og NEC Nijmegen gerðu
jafntefli, 2-2, og sömu úrslit urðu
í leik Doetinchem og Heeren-
veen.
Fiorentina
mætir Atalanta
Fiorentina gerir það ekki
endasleppt í ítölsku knattspyrn-
unni en í gærkvöld sigraði liðið
Inter, 1-0, í undanúrslitum bik-
arsins.
Gabriel Batistuta skoraði sigr-
amark Fiorentina og mætir liðið
Atalanta í úrslitum keppninnar.
Naumur sigur
HK gegn Blikum
HK vann nauman sigur á
Breiðabliki, 25-24, í 2. deild karla
í handknattleik i gærkvöldi.
Hanna ekki meira
með í vetur
Nú er Ijóst að Hanna Kjartans-
dóttir leikur ekki meira með
kvennaliði Breiðabliks í körfu-
bolta í vetur.
Hanna á við sjóntaugarbólgur
að stríða og verður að halda sig
inni við næsta mánuðinn.
Glasgow Rangers
á eftir Dana
Dönsk útvarpsstöð sagði í gær
að danski landsliðsmaðurinn
Erik Bo Andersen væri á leið-
inni til Glasgow Rangers fyrir
1,2 milljón punda.
Talsmaður Rangers sagði hins
vegar að félagið væri ekki að
kaupa leikmann þessa stundina
en vænta mætti frétta af þeim
málum jafnvel í dag. Þessi yfir-
lýsing þykir staðfesta að Daninn
sé á leiðinni til Rangers.
-JKS/GH
Guðjón Þórðarson, þjálfari ÍA, undirbýr sína menn meðal annars í
æfingabúðum á Kýpur fyrir átökin hér heima í sumar.
Enska bikarkeppnin:
Liverpool mætir
Leeds United í
8-liða úrslitum
Liverpool mætir Leeds í 8-liða úr-
slium ensku bikarkeppninnar i
knattspymu. Þetta varð ljóst eftir
sigur Liverpool á 1. deildarliði
Charlton í 5. umferð keppninnar á
Anfield Road í gærkvöldi, 2-1.
Robbie Fowler og Stan Collymore
skoruðu mörk liðsins.
Nottingham Forest og Tottenham
skildu jöfn, 2-2, á City Ground og
þurfa liðin að mætast að nýju á
White Hart Lane. Ian Woan skoraði
bæði mörk Forest og það gerði
Chris Armstrong einnig fyrir
Tottenham. Sigurvegarinn mætir
Aston Villa í 8-liða úrslitunum.
Huddersfield náði óvænt foryst-
unni gegn Wimbledon en það reynd-
ist aðeins skammgóður vermir og
Wimbledon sigraði, 3-1. Wimbledon
mætir Cheslea á útivelli i næstum
umferð.
Það tók góðan tíma fyrir Cheslea
að hrista Grimsby af sér. Michael
Duberry skoraði fyrsta markið fyrir
Chelsea og mínútu eftir að Mark
Hughes hafði komið Chelsea í, 2-0,
minnkaði Groves muninn fyrir
Grimsby. Tvö mörk á þremur mín-
útum frá John Spencer og Gavin
Peacock komu sigri Chelsea í ör-
ugga höfn.
Þá sigraði Southampton lið
Swindon, 2-0, og mætir Manchester
United á útivelli næstu umferð.
í úrvalsdeildinni var einn leikur
þegar Aston Villa sigraði Black-
burn, 2-0. Julian Joachim, sem
Villa keypti á dögunum frá Leicest-
er, skoraði sitt fyrsta mark fyrir fé-
lagið og Gareth Southagate það síð-
ara.
í 1. deild voru þrir leikir. Efsta
liðið Derby gerði markalaust jafn-
tefli við Leicester og sömu úrslit
urðu í leik Norwich og Sheffield
United en Stoke sigraði Watford,
2-0. -JKS
„íslendingamót"
í sólinni á Kýpur
ÍBV, ÍA, Flora og Sirius á sama móti
Óhætt er að segja að hálfgert ís-
lendingamót í knattspyrnu fari
fram á Kýpur dagana 19.-24. mars.
Þar fer þá fram alþjóðlegt mót með
þátttöku átta félagsliða en þau eru
ÍBV, ÍA, Flora Tallinn frá Eistlandi,
Skonto Riga frá Lettlandi og sænsku
1. deildarliðin Gávle, Sundsvall,
Motala og Sirius.
Teitur Þórðarson þjálfar eist-
nesku meistarana Flora Tallinn og
með Sirius leikur Einar Brekkan,
knattspymumaðurinn efnilegi sem
gert hefur það gott í sænsku knatt-
spyrnunni síðustu tvö árin.
ÍBV, Gavle, Flora og Sundsvall
era saman í riðli og síðan eru ÍA,
Motala, Sirius og Skonto Riga í hin-
um riðlinum.
ÍBV leikur við Gávle í fyrstu um-
ferð. Sigurliðið mætir sigurvegaran-
um úr leik Flora og Sundsvall en
tapliðið mætir tapliðinu. Sama fyr-
irkomulag er í hinum riðlinum, þar
leikur ÍA fyrst við Motala og síðan
við Skonto eða Sirius. Síðan er leik-
ið til úrslita um sæti.
Kristinn dæmir á mótinu
Til að bæta við íslendingaflóruna
á Kýpur þessa daga verður Kristinn
Jakobsson með í för og dæmir á
mótinu.
-VS
1. deild kvenna í handknattleik:
Úrslit eftir bókinni
Öll liðin i efri hluta 1. deildar
kvenna í handknattleik lögðu and-
stæðinga sina í gærkvöldi.
Að Hlíðarenda sigraði Víkingur
lið Vals, 21-25. Valsstúlkur vora
með yfirhöndinni lengstum og það
var ekki fyrr en nokkuð var liðið á
leikinn að Víkingur seig fram úr og
tryggði sér sigur. í hálfleik höfðu
Valsstúlkur yfir, 12-9.
Gerður Jóhannsdóttir skoraði 6
mörk fyrir Val og þær Sonja Jóns-
dóttir, Björk Tómasdóttir og Hafrún
Kristjánsdóttir skoruðu allar fjögur
mörk hver. Hjá Víkingi skoraði
Halla María Helgadóttir alls 12
mörk og Elísabet Þorgeirsdótti 5
mörk.
KR-stúlkur veittu Fram harða
keppni en í lokin náði Fram að
knýja fram eins marks sigur, 19-20.
Fram hafði tveggja marka forystu i
hálfleik, 9-11.
Helga Ormsdóttir skoraði 7 mörk
fyrir KR og Anna Steinsdóttir 6.
Berglind Ómarsdóttir var atkvæða-
mest hjá Fram, skoraði 7 mörk og
Arna Steinsen skoraði 4 mörk.
I nágrannaslagnum í Hafnarfirði
sigraðu Haukar lið FH í Kaplakrika,
15-20.1 hálfleik var staðan, 9-11, fyr-
ir Hauka.
Björk Ægisdóttir skoraði 6 mörk
fyrir FH og þær Hildur Erlingsdótt-
ir og Bára Jóhannsdóttir 3 mörk
hver. Auður Hermannsdóttir var
markahæst hjá Haukum með 8
mörk, Hulda Bjarnadóttir skoraði 4
mörk og Harpa Melsteð 3 mörk.
í Árbænum virtist allt stefna í ör-
uggan sigur Eyjastúlkna gegn Fylki
en Fylkir barðist af miklum krafti i
síðari hálfleik og náði að gera leik-
inn jafnan en forskotið sem ÍBV
náði í fyrri hálfleik var og stórt.
Lokatölur, 28-30, fyrir ÍBV, eftir að
staðan var, 9-16, í hálfleik fyrir gest-
ina.
Rut Baldursdóttir skoraði 11
mörk fyrir Fylki og Anna Halldórs-
dótir 6 mörk. Andrea Atladóttir
gerði 8 mörk fyrir ÍBV og Helga
Kristjánsdóttir 7 mörk.
-JKS/GH/HS
Julian Howard og félagar hans í Washington Bullets máttu þola stórt tap
gegn Malone og félögum í Utah Jazz í nótt. Malone skoraði 26 stig.
Keflvíkingar deildarmeistarar
Keflavík tryggði sér í gær deildarmeistaratitilinn í körfuknattleik
kvenna með sigri á Breiðabliki, 67-52. Keflavík hafði undirtökin í
leiknum allan tímann og sigur liðsins öruggur. Veronika Cook skoraði 25
stig fyrir Keflavík, Anna M. Sveinsdóttir 16 og Björg Hafsteinsdóttir 10
en hjá Blikum skoraöi Betty Harrys 25, Bima Valgarðsdóttir 12 og Inga
D. Magnúsdóttir 12. „Þaö var komin tími til að vinna Breiðablik en við
höfðum tapað síðustu sex leikjum gegn þvi,” sagði Anna María, fyrirliði
Keflavíkur eftir leikinn. . -ÆMK
NBA-deildin í körfuknattleik í nótt:
Orlando enn ósigraö
á heimavelli sínum á
keppnistímabilinu
Orlando hefur 'ekki enn tapað leik vann góðan sigur. David Wesley
á heimavelli sínum i NBA-deildinni skoraði 33 stig fyrir Boston, Dino
í vetur. í nótt sigraði Orlando lið Radja og Rick Fox voru með 16 stig
Miami Heat og það voru þeir hvor. Larry Johnson skoraði 26 stig
Shaquille O’Neal og Penny fyrir Charlotte.
Hardaway sem vora í aðalhlutverki, Næsti sigur Atlanta í deildinni
O’Neal skoraði 31 stig og Hardaway verður merkilegur fyrir þjálfara
27. Þetta var 29. heimasigur Orlando liðsins, Lenny Wilkens. Sigurinn
á tímabilinu. gegn Portland var 999. sigur hans
Úrslit leikja í nótt urðu sem hér sem þjálfari i deildinni. Mookie Bla-
segir: ylock skoraði 23 stig fyrir Atlanta
Boston-Charlotte .frl. 121-116 og Arvydas Sabonis var með 26 stig
Orlando-Miami ......116-112 fyrir Portland.
Atlanta-Portland..... 90-88 Hroðalegt gengi New York Knicks
Minnesota-Phoenix...93-117 ætlar engan endi að taka og þrátt
Utah-Washington ...115-93 fyrir að Patrick Ewing léki með lið-
Sacramento-New York . 90-85 inu í nótt og skoraði 29 stig, tókst
Seattle-Detroit.....94-60 liðinu ekki að vinna Sacramento.
Vancouver-LA Lakers. 80-99 Mich Richmond skoraði 22 stig fyr-
í Boston var hart barist og Boston ir Sacramento. -SK