Dagblaðið Vísir - DV - 29.02.1996, Page 21
FIMMTUDAGUR 29. FEBRÚAR 1996
33
Fréttir
Leikhús
Jón Baldvin Hannibalsson, formaður Alþýðuflokksins:
Upploginn áburður og
óhróður huldumanna
DV hefur borist eftirfarandi
bréf frá Jóni Baldvin Hannibals-
syni, formanni Alþýðuflokksins:
„í fimm dálka fyrirsögn DV fóstu-
daginn 23. feb. er Alþýðuflokkurinn
sagður gjaldþrota, ef hann væri
hlutafélag. í uppslætti á bls. 4 er því
haldið fram, í texta og fyrirsögn, að
Alþýðuflokkurinn hafi fengið „15
milljónir í erlenda styrki og styrki
frá unnendum lýðræðis“. Annað í
frásögninni, sem að venju byggir á
nafnlausum heimildarmönnum, er
eftir þessu.
Skv. íslenskum lögum er erlendur
fjárstuðningur við íslenska stjórn-
málaflokka lagabrot. DV sakar því
Alþýðuflokkinn um lögbrot. Það er
að sönnu grafalvarlegt mál og því
ástæða tU að leita allra leiða til að
fá upplognum áburði af þessu tagi
hnekkt.
Vinnubrögð ritstjórnar DV í
þessu máli eru blaðinu til háborinn-
ar skammar. Blaðamaðurinn
hringdi í formann Alþýðublaðsins
að morgni föstudags. í því samtali
var blaðamaðurinn fullvissaður um
að þetta væru ósannindi. Honum
var jafnframt sagt að Alþýðuflokk-
urinn einn íslenskra stjórnmála-
flokka svo ég viti, birti opinberlega
efnahags- og rekstrarreikning sinn.
Hún gæti nálgast hann hjá Sigurði
Arnórssyni, gjaldkera flokksins,
eins og hann væri staðfestur af lög-
giltum endurskoðanda og kjörnum
endurskoðendum. Auk þess var
blaðamanni sagt að hún gæti fengið
staðfestar upplýsingar frá fyrstu
hendi um kostnað Alþýðuflokksins
vegna alþingiskosninga 1995, því að
þær upplýsingar væru birtar.
Að sögn gjaldkera Alþýðuflokks-
ins hafði blaðamaðurinn ekkert
samband við hann né skildi eftir
boð um að óskað væri samtals. Þrátt
fyrir þetta birti blaðamaðurinn
samsetning sinn, og virti þannig að
vettugi grundvallarreglu heiðvirðr-
ar blaðamennsku að leita fyrst eftir
staðfestum upplýsingum, áður en
hún birti óhróður og ósannindi eft-
ir heimildarmönnum, sem þora
ekki að láta nafns síns getið. Þetta
heitir að láta óvandaða heimildar-
menn, sem í þessu tilviki reyndust
slúðúrberar, nota sig.
Óhróður af þessu tagi varðar ekki
einungis heiður Alþýðuflokksins
heldur einnig heiður Endurskoðun-
arskrifstofu Eyjólfs K. Sigurjónsson-
ar hf. og kjörinna endurskoðenda
flokksins, sem hafa yflrfarið og stað-
fest niðurstöður rekstrar- og efna-
hagsreiknings og sundurliðað yfírlit
um tekjur og gjöld vegna alþingsi-
kosninganna 1995.
Lesendum DV til upplýsingar
skal eftirfarandi tekið fram: Tekjur
og gjöld Alþýðuflokksins (á tímabil-
'inu 1.9. 1994-31.8.1995) eru kr.
26.983.902. Útgjöld Alþýðuflokksins
vegna alþingiskosninganna námu
kr. 28.699.511. Útgjöld fulltrúaráðs
Alþýðuflokksfélaganna í Reykjavík
vegna alþingiskosninganna námu
kr. 8.940.056.
Kostnaður vegna kosningabarát-
tunnar skiptist þannig: Prentað mál
(23%), sjónvarpsauglýsingar (22%),
markhópar, bréf og símakostnaður
(18%), blaðaauglýsingar (11%),
vörukaup (11%), útiauglýsingar
(10%), annar kostnaður (5%).
Skuldir Alþýðuflokksins skv efna-
hagsreikningi (31.8.1995) námu kr.
32.254.667. Síðan hefur skuldastaðan
batnað skv. greinargerð gjaldkera,
sem lögð hefur verið fram í fram-
kvæmdastjórn og þingflokki. Þann
30.1.96 voru skuldir flokksins í kr.
17.257.365. Þrátt fyrir 2 kosningaár
að baki (sveitarstjórnarkosningar
1994 og alþingiskosningar 1995) hef-
ur skuldastaðan batnað um 6 millj-
ónir frá því sem hún var skv. efna-
hagsreikningi árið 1992.
Ég læt svo lesendum DV eftir að
bera saman þessar staðreyndir,
staðfestar af löggiltum endurskoð-
anda, við slúðrið sem DV hefur eft-
ir nafnlausum heimildarmönnum
sínum, án þess að hafa haft fyrir því
að kanna staðreyndir mála.
Vegna endurtekinna tilrauna
ónafngreindra huldumanna til að
grafa undan trausti á fjárhag Al-
þýðuflokksins og koma óorði á gjald-
kera hans, leyfí ég mér að birta hér
orðrétt umsögn Friðþjófs K. Eyjólfs-
sonar, endurskoðanda, um vinnu-
brögð gjaldkera flokksins, en hann
lætur þessa umsögn fylgja endur-
skoðuðum reikningum flokksins.
„Á kjörtímabili núverandi gjald-
kera hafa orðið mikil stakkaskipti
varðandi umgengni og varðveislu
gagna; bókhaldsgögn flokkins hafa
verið færð reglulega. Frágangur
þeirra og merking hefur verið til
mikillar fyrirmyndar. Bókhaldið hef-
ur komið á skrifstofu okkar fullfært
og afstemmt, sem hefur auðveldað
alla frekari úrvinnslu og reikings-
skilagerð. ^Væri þess í raun óskandi
að fleiri fyrirtæki og stofnanir við-
hefðu jafn vönduð vinnubrögð og
bókari Alþýðuflokksins." Þessi orð
endurskoðandans segja það sem
segja þarf um óhróður huldumann-
anna.“
Frá flokksþingi Alþýðuflokksins - Jafnaðarmannaflokks íslands í Keflavík 1994. DV-mynd ÆMK
Svar blaðamanns:
Skjalfestar heimildir
DV íjallaöi um tjármál Alþýðu-
flokksins í grein á fóstudaginn og
greindi frá þvi að flokkurinn væri
gjaldþrota ef hann væri hlutafélag
og að hann hefði fengið 3 milljónir í
erlenda styrki og 12 milljónir í
styrki frá unnendum lýðræðis. Þess-
ar upplýsingar eru að sönnu grafal-
varlegar fyrir Alþýðuflokkinn, sem
einn segist birta reikninga sína, en
engu að síðar byggðar á öruggum
heimildum - skriflegum heimildum
úr Alþýðuflokknum sjálfum og því
ekki um neina huldumenn, slúður-
bera eða upploginn áburð að ræða.
I frétt blaðsins á föstudag er
heimilda skýrt og greinilega getið
og sama gildir um þær fréttir sem
hafa fylgt í kjölfarið. í fóstudags-
fréttinni er vitnað í greinargerð Sig-
urðar E. Arnórssonar, gjaldkera
flokksins, og Friðþjófs K. Eyjólfs-
sonar endurskoðanda til Rannveig-
ar Guðmundsdóttur alþingismanns,
dagsett 21. júní 1995, þar sem þeir
segja að flokkurinn væri gjaldþrota
ef hann væri hlutafélag. Þar er því
um innanhússmat alþýðuflokks-
manna sjálfra að ræða.
í sömu frétt kemur fram að blað-
ið hefur skjalfestar heimildir fyrir
því að gert hafi verið ráð fyrir er-
lendum styrkjum og styrkjum frá
unnendum lýðræðis fyrir alþingis-
kosningarnar 1995. Vitnað er í
kostnaðaráætlun flokksins og leitaö
eftir skýringum hjá Guðmundi
Oddssyni, formanni framkvæmda-
stjórnar, þó að samband við hann
hafi rofnað í miðju símtali. Á laug-
ardag birtist svo viðtal við gjald-
kera flokksins sem kannaðist ekki
við neitt.
í samtali við formann Alþýðu-
flokksins á föstudaginn kvaðst
blaðamaður hafa reynt að ná tali af
gjaldkeranum, meðal annars gegn-
um símboða. Það tókst þó ekki fyrr
en eftir samtalið við flokksformann-
inn. Blaðamaður óskaði þá eftir því
að fá gögn um fjármál flokksins,
vitnaði í samtal við formanninn,
sem sagði gögnin opinber, og sagð-
ist geta látið sækja þau. Gjaldkerinn
kvaðst þurfa að ræða fyrst við for-
manninn og hafa samband að því
loknu. Það hefur hann ekki gert enn
og umbeðin gögn því ekki komin í
hendur blaðamanns.
Guðrún Helga Sigurðardóttir
LEIKFÉLAG
REYKJAVÍKUR
SÍMI 568-8000
STÓRA SVIÐ KL. 20.00:
ÍSLENSKA MAFÍAN
eftir Einar Kárason og Kjartan
Ragnarsson
Lau. 2/3, fáein sæti laus, föd. 8/3, fáein
sæti laus, föd. 15/3, fáein sæti laus.
LÍNA LANGSOKKUR
eftir Astrid Lindgren
Sud. 10/3, fáein sæti laus, sud. 17/3,
sud. 24/3. Sýningum fer fækkandi.
STÓRA SVIÐ KL. 20:
VIÐ BORGUM EKKI,
VIÐ BORGUM EKKI
eftir Dario Fo
Fös. 1/3, uppselt, sud. 10/3, fáein sæti
laus, laud. 16/3, fáein sæti laus.
Þú kaupir einn miöa, færð tvo!
Samstarfsverkefni
við Leikfélag Reykjavíkur:
Alheimsleikhúsið sýnir á
Litla sviði kl. 20.00:
KONUR SKELFA
toilet-drama eftir Hlín
Agnarsdóttur.
Fd. 29/2, uppselt, föd. 1/3, uppselt,
laud. 2/3, uppselt, sud. 3/3, uppselt,
mid. 6/3, fáein sæti laus, fid. 7/3,
uppselt, föd. 8/3, uppselt, sud. 10/3,
uppselt.
Barflugurnar sýna á
Leynibarnum kl. 20.30:
BAR PAR
eftir Jim Cartwright
Föd. 1/3, uppselt, laud. 2/3 kl. 23.00,
fáein sæti laus, föd. 8/3 kl. 23.00, fáein
sæti laus, föd. 15/3, kl. 23.00, fáein
sæti laus, 40 sýn. laud. 16/3, uppselt.
Tónleikaröð L.R.
Á STÓRA SVIÐI KL. 20.30.
Þrd. 5/3 Einsöngvarar af yngri
kynslóðinni: Gunnar Guðbjörnsson,
Hanna Dóra Sturludóttir, Ingveldur Ýr
Jónsdóttir, Sigurður Skagfjörð og
Jónas Ingimundarson.
Miðaverð 1.000 kr.
Höfundasmiðja L.R.
laugardaginn 2/3 kl. 16.00.
Uppgerðarasi með dugnaðarfasi - þrjú
hreyfiljóð eftir Svölu Anrardóttir.
Miðaverð kr. 500.
Fyrir börnin: Linu-ópal, Línu-bolir og
Linu-púsluspil.
Miðasalan er opin alla daga frá
kl. 13-20, nema mánudaga frá
kl. 13-17, auk þess er tekið á
móti miðapöntunum í síma
568-8000 alla virka daga.
Greiðslukortaþjónusta.
Gjafakortin okkar
- frábær tækifærisgjöf.
Leikfélag Reykjavíkur -
Borgarleikhús
Faxnúmer 568-0383.
Til3<ynmngar
Félagsmiðstöð í Hvaleyrar-
skóla í Hafnarfirði
Fimmtud. 29.2. kl. 17.00 verður opnuð ný
félagsmiðstöð. Af því tilefni er fólki fólki
í hverfinu boðið að þiggja veitingar. Um
kvöldið verður opið hús milli kl. 20.00 og
22.00 fyrir ungmenni 13-16 ára. Páll Ósk-
ar mun skemmta. Aðgangur ókeypis.
Hjólreiðafólk
Framhaldsstofnfundur Landssambands
hjólreiöamanna (LHM) verður haldinn í
húsakynnum íþróttasamhands íslands í
Laugardal fimmtud. 29.2. kl. 20.00.
ÞJÓÐLEIKHÚSID
STÓRA SVIÐIÐ KL. 20.00:
TRÖLLAKIRKJA
leikverk eftir Þórunni
Sigurðardóttur, byggt á bók Ólafs
Gunnarssonar.
Frumsýning föd. 1/3, nokkur sæti
laus, 2. sýn. sud. 3/3, 3. sýn. föd. 8/3,
4. sýn. fid. 14/3, 5. sýn. Id. 16/3.
PREK OG TÁR
eftir Ólaf Hauk Símonarson
í kvöld, uppselt., Id. 2/3, uppselt, fid
7/3, laus sæti, Id. 9/3, uppselt, föd.
15/3, uppselt.
KARDEMOMMUBÆRINN
eftir Thorbjörn Egner
Ld. 2/3 kl. 14, uppselt, sud. 3/3 kl. 14,
uppselt, Id. 9/3 kl. 14, uppselt, sud.
10/3 kl. 14, uppselt, sud. 10/3 kl. 17,
uppselt, laud. 16/3, kl. 14.00, nokkur
sæti laus, sud. 17/3 kl. 14.00, nokkur
sæti laus.
KIRKJUGARÐSKLÚBBURINN
eftir ívan Menchell
Engar sýningar veröa á
Kirkjugarðsklúbbnum fyrri hluta
marsmánaðar, sala á sýningar síðari
hluta mánaðarins hefst föd. 1/3.
SMÍÐAVERKSTÆÐIÐ KL. 20.00:
Leigjandinn
eftir Simon Burke
Á morgun, sud. 3/3, föd. 8/3.
Sýningin er ekki við hæfi barna.
Ekki er hægt að hleypa gestum inn í
salinn eftir að sýning hefst.
LEIKHÚSKJALLARINN
Ástarbréf eftir A.J. Gurney
Herdís og Gunnar flytja Ástarbréf með
sunnudagskaffinu. Aukasýning
sunnudag kl. 15.00.
Gjafakort í leikhús -
sígila og skemmtileg gjöfí
Miðasalan er opin alla daga nema
mánudaga frá kl. 13.00-18.00 og
fram að sýningu sýningardaga.
Einnig símaþjónusta frá kl. 10.00
virka daga.
Greiðslukortaþjónusta.
Fax: 561 1200
SÍMI MIÐASÖLU: 551 1200
SÍMI SKRIFSTOFU: 551 1204
VELKOMIN í ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ!
stund, kafFiveitingar. Sr. Halldór S. Grön-
dal.
Hallgrímskirkja: Kyrrðarstund með
lestri Passíusálma kl. 12.15. Léttur hádeg-
isverður á eftir.
Háteigskirkja: Starf fyrir 10-12 ára kl.
17.00. Kvöldsöngur meö Taizé tónlist kl.
21.00. Kyrrð, íhugun, endurnæring. Allir
hjartanlega velkomnir.
Kópavogskirkja: Starf með eldri borgur-
um í safnaðarheimilinu Borgum í dag kl.
14-16.30. Starf með 8-9 ára börnum í dag
kl. 16.45-18 í Borgum. TTT starf á sama
stað kl. 18.
Langholtskirkja: Vinafundur kl. 14.00.
Samvera þar sem aldraðir ræða trú og líf.
Aftansöngur kl. 18.00. Lestur Passíu-
sálma fram að páskum.
Laugarneskirkja: Kyrröarstund kl.
12.00. Orgelleikur, altarisganga, fyrir-
bænir. Léttur málsveröur í safnaðar-
heimilinu að stundinni lokinni. Starf fyr-
ir 10-12 ára kl. 17.30.
Laugarneskirkja: Kyrrðarstund kl.
12.00. Orgelleikur, altarisganga, fyrir-
bænir. Léttur málsverður í safnaðar-
heimilinu að stundinni lokinni'. Starf fyr-
ir 10-12 ára kl. 17.30.
Seljakirkja: KFUM. Fundur í dag kl. 17.
Seltjamarneskirkja: Starf fyrir 10-12
ára í dag kl. 17.30.
Safnaðarstarf
Fimmtudagur 29. febrúar
Áskirkja: Opið hús fyrir alla aldurshópa
kl. 14-17. Biblíulestur í safnaðarheimil-
inu kl. 20.30. Daviössálmar lesnir og
skýrðir. Árni Bergur Sigurbjörnsson.
Breiðholtskirkja: TTT starf í dag kl. 17.
Mömmumorgunn á morgun kl. 10-12.
Fella- og Hólakirkja: Starf 11-12 ára
barna kl. 17.
Grafarvogskirkja: Æskulýðsfundur,
yngri deild, kl. 20.30.
Grensáskirkja: Opið hús fyrir eldri
borgara kl. 14.00. Biblíulestur, bæna-
Fermingar
Höfum sali
til leigu
fyrir
fermingar
I1ÓTEL ÍlflND
5687111