Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.1996, Blaðsíða 5
MIÐVIKUDAGUR 10. APRÍL 1996
5
DV
Harðar deilur í Sandgerði vegna fiskimjölsverksmiðju:
Fréttir
Bæjarstjórnin hótar
að loka bræðslunni
- bæjarráð krafðist lokunar vegna páska og ferminga
DV, Suðurnesjum:
„Þaö var allt vitlaust hér í bæn-
um út af fiskimjölsbræðslunni, ann-
ars hefðum við ekki verið að taka á
þessu máli. Það er mikil óánægja
meðal íbúanna þegar reyk leggur
yflr bæinn frá verksmiðjunni,"
sagði Sigurður Valur Ásbjamarson,
bæjarstjóri Sandgerðis, í samtali
við DV.
Bæjarbúar í Sandgerði eru ekki
Tryggvi Valur Sæmundsson, Harpa Dögg Kristinsdóttir og Arnar Víðir Jóns-
son með páskalambið og móðurina. DV-mynd Olgeir
Páskalamb
í Skorradal
dv, Borgarbyggð: lambi Strákarnir á bænum voru
--------------- strax bumr að skíra hrútinn Páska
Það var gleðidagur hjá krökkun- enda hann páskalamb og heldur
um á Hálsum í Skorradal á skirdag fyrr á ferðinni en til stóð.
en þá bar ein ærin á bænum hrút- -OHR
66 miUjónum úthlutað úr Menningarsjóði útvarpsstöðva:
Mest á Lynghálsinn
og Laugaveginn
- sótt um 500 milljónir til 212 verkefna
Úthlutað hefur verið 66,2 milljón-
um króna úr Menningarsjóöi út-
varpsstöðva til 57 verkefna. Auglýst
var eftir styrkjum í janúar sl. og
bárust umsóknir um alls 212 verk-
efni. Styrkumsóknirnar námu sam-
tals tæpum 500 milljónum króna og
heildarkostnaðaráætlanir verkefh-
anna námu 1,1 milljarði króna. Af
úthlutuðum 66 milljónum var 5,6
milljónum endurúthlutað vegna
styrkveitinga á árunum 1988, 1991
og 1995 til verkefna sem hætt hefur
verið við. Endurúthlutunin skiptist
þannig að Rikissjónvarpið fær 2
milljónir, Stöð 2 1,9 milljónir, Hans
Kristján Ámason 1 milljón og rás 1
750 þúsund krónur.
Alls var 15 milljónum úthlutað tO
18 verkefna fyrir hljóðvarp, 47,3
mOljónir fóru tO 33 verkefna fyrir
sjónvarp og 3,9 mOljónir í 6 undir-
búnings- og handritastyrki. Ef aOt
er tekið fá Ríkissjónvarpið og -út-
varpið mest eða alls 8,4 mOljónir
króna. Þar af fær Rikissjónvarpið
6,2 miOjónir til 3 verkefna og Ríkis-
útvarpið 2,2 milljónir tO 6 verkefna.
Næstmest fer á Lynghálsinn tO
Stöðvar 2 og Bylgjunnar eða aOs 7,5
mOljónir. Það skiptist þannig að
Bylgjan fær 4,4 miOjónir tO 3 verk-
efna og Stöð 2 3,1 miOjón tO 5 verk-
efna. Saga film fær 6,3 miOjónir tO
vinnslu 3 sjónvarpsþátta, þar af
hæsta einstaka styrkinn í úthlutun-
inni, 3,5 milljónir, vegna þáttar sem
nefnist Fornbókabúðin.
Aflvakinn hf„ sem rekur útvarps-
stöðvarnar Aðalstöðina, X-ið og
Klassík fm, fær 5,5 milljónir úr
Menningarsjóði útvarpsstöðva, þar
af fara 2,9 miOjónir í þáttagerð á
Klassík fm. Af öðrum styrkjum í
hærri kantinum má nefna 3 miOjón-
ir til kvikmyndagerðarinnar Alvís
vegna sjónvarpsþáttarins Tuttug-
asta öldin og 3 midjónir fóru einnig
tO FILM vegna þáttar sem nefnist
Þegar það gerist.
-bjb
hrifnir þegar reyk frá verksmiðj-
unni leggur yfir bæinn. Bæjarráð
Sandgerðisbæjar segir að óheimOt
sé að bræða í verksmiðjunni þegar
ákveðnar vindáttir eru ríkjandi og
hafa eigendur fiskimjölsverksmiðj-
unnar ekki fylgt þeim fyrirmælum.
Bæjarráð sendi skeyti tO Njarðar
hf„ eiganda fiskimjölsverksmiðj-
unnar, þar sem þess var krafist að
ekkert yrði brætt í verksmiðjunni
frá 4.-14. aprO vegna páskahátíðar
og ferminga.
Bæjarstjórn Sandgerðis sam-
þykkti síðan á fundi sínum rétt fyr-
ir páska að senda Nirði hf. bréf og
var bréfið stOað á Hafliða Þórsson
framkvæmdarstjóra. í bréfinu segir
m.a.: „Það sem fyOti mælinn endan-
lega var framkoma þín þegar fólk
var að undirbúa fermingar og halda
veislur m.a. í Samkomuhúsi staðar-
ins, en þá stóð vindur á norður-
byggð og Samkomuhús. Haft var
samband og beðið um að stöðva
reksturinn en þeirri ósk var ekki
sinnt. Bæjarstjórnin er einhuga um
að hún mun ekki stuðla að því að
verksmiðjan fái starfsleyfi aftur eft-
ir þetta tímabO sem rennur út eftir
u.þ.b. mánuð, nema tO komi við-
horfsbreyting af þinni hálfu í þessu
viðkvæma máli. Þar sem þú ert ekki
búsettur á staðnum en stjórnar fyr-
irtækinu frá skrifstofu í Kópavogi
þá hefur það sýnt sig að þú hefur
litla tilfinningu til bæjarbúa er
varðar rekstur á verksmiðjunni
enda sést viðhorf þitt til bæjarfé-
lagsins i viðhaldsleysi þeirra eigna
sem þú átt eða ert í forsvari fyrir
hér á staðnum. Virðingarleysið er
algjört þegar bæjarbúar horfa á það
dag eftir dag að miklu magni af úr-
gangi frá fiskvinnslu er staflað upp
á plani fyrir framan verksmiðjuna
sem er skýlaust brot í starfsleyfi
þínu,“ segir í bréfinu.
„Ég kannast ekki við svona skrif
og er undrandi á framferði bæjar-
stjórnarinnar. Það er búið að vera
óhagstætt veður í vor og verið tóm-
ar vestlægar áttir sem er nánast
óþekkt hér. Það verður að koma
hráefninu í gegn, annars verður það
ónýtt. Það er aOtaf eitthvert fólk í
hverju byggðalagi, og ekki síst í
þúsund manna byggðarlagi, sem lít-
ur misjöfnum augum á svona hluti
og sumum er það heOagt að láta
loka svona bræðslum. Þetta bréf
kemur mér á óvart vegna þess aö
þeir eiga við fleiri mengunarmál að
etja. Það eru öO holræsi opin og
maður veður mannaskít í öllum
fjörum. Það er ekkert klóak sem
nær út fyrir fjöruborðið. Á góðviðr-
isdögum leggur bæði mannaskíts-
og þaralykt yfir bæinn í sömu átt og
við eigum í vandamálum með. Þá
eru opnir ruslahaugar á Stafnesi
fyrir hvaða dót sem Kaninn (innsk.
Bandaríkjamenn á VeOinum) kem-
ur með og hendir. I 90-95% tilfeOa
er fiskimjölsverksmiðjan í gangi
þegar vindátt stendur út frá Sand-
gerði,“ sagði Hafliði Þórsson, fram-
kvæmdastjóri Njarðar hf„ sem hef-
ur rekið fiskimjölsverksmiðjuna í
Sandgerði frá 1976.
-ÆMK
og kaupa lítið pekkt vörumerkiP
þegar þú geturfengið Sanyo jyrir aðeins:
hrÆtiWá
Heimilistæki hf
SÆTÚN8 SlMI 588 1500
tgr.
Verð: 77.666
SANYO 28 EH 85
• NICAM stereo
• Svartur, flatur Black Matrix
myndlampi
• Textavarp með öllum
íslenskum stöfum
• Allar aðgerðir á skjá
• 1 scarttengi með
S-VHS inntaki
• Tengi fyrir heyrnartól
• CTI (ColourTransit
Improvement)
litaaðgreiningarkerfi
• Tengi fyrir videotökuvél
framan á
Umboðsmenn um land allt
I
■
I
I