Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.1996, Side 18
18
MIÐVIKUDAGUR 10. APRÍL 1996
íslandsmótið í handbolta:
ÍR og FH í úrslit
ÍR og FH sigruðu í úrslitaum-
ferð B-liða í 4. flokki karla B-
riðli og leika því í úrslitakeppn-
inni 3.-5. maí. Úrslit leikja urðu
þessi:
FH-Stjaman...............18-13
FH-ÍR....................17-22
FH-Víkingur..............27-18
FH-Grótta................16-15
Súaman-ÍR................17-18
Stjaman-Víkingur.........24-10
Stjaman-Grótta...........22-12
ÍR-Víkingur..............30-15
ÍR-Grótta................17-16
Víkingur-Grótta..........14-24
Lokastaðan:
ÍR
FH
Stjaman
Grótta
Víkingur
Handbolti, 4. fl. karla:
HK og Fram áfram
HK og Fram skipuðu tvö efstu
sætin í úrslitaumferð í 4. flokki
karla A-riðils. Úrslitakeppnin
sjálf fer fram 3.-5. maí. Úrslit
leikja urðu sem hér segir:
Valur-Fram..............20-20
Valur-HK................13-14
Valur-KR................19-16
Valur-Fram(2)...........20-19
Fram-HK.................14-18
Fram-KR.................15-14
Fram-Fram(2)............30-15
HK-KR...................18-16
HK-Fram(2)..............28-16
KR-Fram(2)..............25-13
Lokastaðan:
HK
Fram
Valur
KR
Fram(2)
Handbolti, 3. fl. karla:
KA og KR náðu
í úrslitin
KA og KR unnu sér rétt til
þátttöku í úrslitakeppni i 3.
flokki karla með því að ná 2
efstu sætunum í úrslitaumferð í
B-riðli en úrslitakeppnin verður
3.-5. maí. Úrslit urðu eftirfar-
andi:
KA Lokastaðan: 4 4 0 0 85-59 8
KR 4 2 1 1 72-71 5
Stjaman 4 2 0 2 71-78 4
Haukar 4 1 0 3 63-73 2
FH 4 0 1 3 63-73 1
Handbolti, 3. fl. kvenna:
ÍR- og KA-stúlkur
beint í úrslitin
ÍR og KA unnu úrslitaumferð-
ina í 3. flokki kvenna, B-riðli.
Þessi tvö lið keppa þvl í úrslita-
keppninni sem verður 3.-5. mai.
Úrslit urðu þessi:
ÍR Lokastaöan: 4 4 0 0 69-36 8
KA 4 3 0 1 63-51 6
Fram 4 2 0 2 50-52 4
Valur 4 1 0 3 5572 2
Fjölnir 4 0 0 4 38-64 0
Handbolti, 3. fl. kvenna:
KR og FH í urslit
KR og FH sigruðu í úrslitaum-
ferð í 3. flokki kvenna, A-riðli, og
leika.því í úrslitunum 3.-5. maí.
Úrslit uröu þessi:
Lokastaðan:
KR
FH
Víkingur
Stjaman
Haukar
Handbolti, 4. fl. kvenna:
FH og KR áfram
FH og KR urðu í tveim efstu
sætum í úrslitaumferð B-liða 4.
flokks og keppa til úrslita 3.-5.
maí. Úrslit urðu þessi:
FH Lokastaðan: 4 4 00 84-52 8
KR 4 3 01 64-46 6
Víkingur 4 1 03 62-70 2
Víkingur(2) 4 1 03 60-75 2
Fram 4 1 03 48-75 2
Iþróttir unglinga
Unglingalandslið íslands og Danmerkur í borðtennis eftir verðlaunaafhendinguna. Frá vinstri, íslenska liðið: Peter Nilsson, þjálfari liðsins, Markús Árnason,
Guðmundur E. Stephensen og Ingólfur Ingólfsson. Danska liðið: Martin Lundquist, þjálfari liðsins, Mikael Maze, Martin Bræmer og Allan Nielsen.
DV-myndir Hson
Unglingalandsleikur í borðtennis:
Dönsku strákarnir góðir
- Ingólfur sýndi styrk en Gummi og Markús langt frá sínu besta
fyrir Maze, D, 14-21, 20-22.
Ingólfur Ingólfsson, í, sigraði All-
an Nielsen, D, 19-21, 21-12, 21-15.
Markús Árnason, í, tapaði fyrir
Bræmer, D, 14-21,16-21.
Ingólfúr Ingólfsson, í, tapaði fyrir
Maze, D, 16-21, 21-18, 17-21.
Guðmundur Stephensen, í, tapaði
gegn Martin Bræmer, D, 19-21,
11-21.
Markús Árnason, í, tapaði fyrir
Allan Nielsen, D, 13-21, 11-21.
Lokastaðan: Ísland-Danmörk 2-7.
Mjög óánægður
Peter Nilsson, hinn sænski lands-
liðsþjálfari íslands, kvaðst vera
mjög óánægður með frammistöð-
una:
Umsjón
Halldór Halldórsson
„Ingólfur var maður islenska liðs-
ins að þessu sinni - byrjaði illa en
sótti sig eftir því sem á leið. Gummi
sýndi enga baráttu og var ótrúlega
slakur. Eins og ég hef áður sagt er
það kristaltært að hann verður að
þjálfa og spila mun meira gegn betri
spilurum, helst að staðaldri. Hann
þyrfti helst að flytja til útlanda til
þess að bæta sig. Við svona aðstæð-
ur í fámenninu bætir hann sig ekk-
ert. Hann hefur af þessum sökum
slegið aðeins af og æfingar hans
hafa engan veginn verið nógu mark-
vissar að undanförnu. Guðmundur
á mikla möguleika til þess að ná
langt í borðtennis en til þess að
verða súperspilari má hann ekki
slaka á í leikjum og það er mjög
mikilvægt í uppbyggingunni að
hann sýni það í hverjum einasta
leik hvers hann er megnugur. Svo
einfalt er það,“ sagði Peter Nilsson
landsliðsþjálfari.
Borðtennis á uppleið
í Danmörku
Þjálfari danska liðsins, Martin
Lundquist, var að vonum ánægður
með sigurinn:
„Borðtennis er í miklum upp-
gangi í Danmörku og hin mikla
vinna Borðtennissambands Dan-
merkur hefur þegar skilað sér vel
og unglingar flykkjast í íþróttina.
Koman til íslands hefur verið mjög
skemmtileg - ekki síst þar sem ég á
skyldmenni hér á landi sem ég mun
heimsækja," sagði Martin.
Hvað á maður að segja?
Guðmundur Stephensen átti svo-
ísland tapaði unglingalandsleik í
borðtennis gegn sterku liði frá Dan-
mörku. Spilað var í TBR-húsinu 4.
apríl. Danirnir sigruðu, 2-7, og kom
þessi stóri sigur danska liðsins svo-
litið á óvart því búist var við nokk-
uð tvísýnum leikjum. Annað kom
þó á daginn því íslenska liðið átti
slæman dag. Guðmundur Stephen-
sen var langt frá sínu besta. Hann
sigraði þó Allan Nielsen í fyrstu
umferð en tapaði síöan klaufalega
gegn Maze eftir að hafa haft góða
forystu. Gegn Bræmer átti Guð-
mundur góða möguleika í fyrstu
lotu en tapaði naumlega, 19-21.
Markús Árnason, sem hefur verið i
mikilli framför að undanförnu,
vann ekki leik að þessu sinni.
Ingólfur náði oddalotu gegn hinum
snjalla Maze en tapaði naumt, 17-21,
og tókst ekki að fylgja eftir góðri
stöðu undir lokin. Hann sigraði aft-
ur á móti Allan Nielsen, eftir odda-
leik. Ljóst er að dönsku drengimir
Martin Bræmer og Mikael Maze eru
nöfn sem eiga eftir að vera áberandi
í borðtennis í Evrópu, ef að líkum
lætur. Auðvitað er Guðmundur
Stephensen i svipuðum ef ekki
hærri gæðaflokki en þessir dönsku
piltar þó svo illa hafi tekist til að
þessu sinni.
Úrslit leikja
Guðmundur Stephensen, í, sigr-
aði Allan Nielsen, D, 21—11, 21-11.
Markús Ámason, f, tapaði gegn
Allan Nielsen, D, 9-21, 13-21.
Ingólfur Ingólfsson, í, tapaði fyrir
Martin Bræmer, D, 14-21, 12-21.
Guðmundur Stephensen, í, tapaði
Ingólfur Ingólfsson stóð sig hvafl
best af íslenski spilurunum.
Tveir af þeim efnilegustu í Evrópu í borðtennis. Til vinstri er Mikael Maze, 14
ára, frá Danmörku og til hægri er Guðmundur Stephensen, 13 ára, íslandi,
en þeir félagar munu leika saman í tvfliðakeppni. í landskeppninni á dögun-
um kom það berlega fram að þeir bera mikla virðingu hvor fyrir öðrum sem
borðtennisspilarar.
lítið erfitt. Hér er þó engin hætta á
ferðum því allir íþróttamenn geta
lent i þeirri gryfju að eiga slæman
dag:
„Ég veit eiginlega ekki hvað skal
segja. Það gekk bókstaflega ekkert
upp hjá mér og svo fór ég að láta
uppgjafirnar hjá Maze fara í
taugamar á mér. En ég verð þó að
viðurkenna að hann var betri í
þetta sinnið. Það kemur dagur eftir
þennan dag,“ sagði Guðmundur.
Uppgjafir Mikael Maze
eru ekki löglegar
Ingólfur Ingólfsson var í góðum
málum gegn Maze en allt kom fyrir
Körfubolti:
Glæsiferð
Grindavíkur
og KR til
Svíþjóðar
KR-strákamir í 8. flokki urðu
íslandsmeistarar í körfubolta og
það urðu Grindavíkurstrákarnir
einnig í 7. flokki. Bæði þessi lið
tóku þátt í sterku móti sem heit-
ir „Skandia" og fór fram í Stokk-
hólmi i Svíþjóð um páskana og
það sem meira er, bæði þessi lið
sigruðu í mótinu og voru því góð
auglýsing fyrir íslenskan hand-
bolta í Svíþjóð. Myndir af báðum
þessum fræknu liðum verða birt-
ar við fyrsta tækifæri.
ekki, Maze vann á lokasprettinum:
„Uppgjafimar hjá Maze eru ekki
löglegar að mínu mati því ég sá
aldrei boltann þegar hann gaf upp
og slíkt er ekki hægt,“ sagði Ingólf-
ur. Þegar málið var kannað nánar
var það skoðun viturra manna að
þetta væri rétt hjá Ingólfi. í beinu
framhaldi má því spyrja hvort dóm-
gæsla hafi verið nógu góð í land-
skeppninni?
Opið mót á laugardag
Á laugardag var síðan opið mót í
TBR-húsinu í einstaklingskeppni,
þar sem sterkustu spilarar landsins
léku ásamt danska unglingalands-
liðinu. í undanúrslitum léku síðan
Guðmundur gegn Maze og Ingólfur
gegn Martin Bræmer. Ingólfur og
Guðmundur biðu lægri hlut gegn
Dönunum sem léku síðan úrslita-
leik þar sem Bræmer, sem er eldri,
sigraði, 2-0.
Munu spila saman
í tvíiiðaleik á EM
í tvíliðakeppninni sigruðu þeir
Guðmundur Stephensen og Mikael
Maze örugglega og sýndu og sönn-
uðu að þeir eru mjög góðir saman.
Það var því ákveðið að þeir leiki
saman á Evrópumóti unglinga sem
fer fram í sumar og á Norðurlanda-
móti unglinga og opnum mótum í
Evrópu. Þetta er mikill heiður fyrir
okkur þar sem Maze er talinn vera
bestur I Evrópu í sínum aldurs-
flokki.